Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.2005, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.2005, Blaðsíða 14
14 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 19. nóvember 2005 Að eiga sér aðeins andlit í áhrifum. Að hreiðra um sig í orðum sem fóru í eyði fyrir löngu. Við fylgjumst með athöfnum hans á miðju gólfi. Í fullum skrúða með mjaðarhorn milli handanna og biðlar til samhengis og trúnaðar líkt og í óráði. Hann dreypir miði á plast og steinsteypu undir fótum sér, og við meðtökum athöfnina eins og ilm frá afskornum blómum. Nú smýgur maður fram úr skugganum í jaðri salarins, otar álútur stórri myndavél að goðanum eins og langt að kominn sendiboði dýrmætri gjöf. Goðinn masar viðstöðulaust, hann hrærist eins og svipur á tjaldi meðan stálblá leiftur vélarinnar brytja niður athöfnina eins og lostugan rétt. Masið er sofandans og samsemd okkar við hvítdúkuð borðin er við ásýnd sem merkir sakleysi og afturbati fyrir málfar auglýsingastofunnar. Að morgni verða blómin borin út í tunnu. Þorsteinn Antonsson Goðinn Höfundur er rithöfundur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.