Morgunblaðið - 11.03.2005, Side 2
BMW lýsti því yfir sl. þriðjudag að sala á
BMW ökutækjum hefði aukist um 7,3% í
febrúar. Sala á BMW fólksbílum og jepp-
um fór í 69.632 bíla í mánuðinum og
sala á BMW jókst á sama tíma um
5,5%, fór í 13.556 bíla. Þá voru 40
Rolls-Royce Phantoms seldir í febrúar.
Sala á öllum gerðum BMW jókst um
8,5% í febrúar.
Söluaukning
hjá BMW
HYUNDAI Motor Co. hefur gert nýjan
samstarfssamning við FIFA, Alþjóða-
knattspyrnusambandið. Samningurinn er
til átta ára, eða frá árinu 2007 til ársloka
2014, og felur í sér að Hyundai verði áfram
einn af sex meginstyrktaraðilum sam-
bandsins. Þetta þýðir að Hyundai mun
áfram sjá mótstjórnum HM keppninnar
fyrir bílum sem flytja m.a. keppnisliðin og
dómara á milli staða. Núverandi samn-
ingur Hyundai við FIFA gildir út árið 2006,
en Hyundai hefur jafnframt styrkt UEFA
vegna EM með svipuðu móti. Samning-
urinn var undirritaður af Joseph S. Blatter,
forseta FIFA, og Kim Dong-Jin, aðstoð-
arforstjóra Hyundai, á bílasýningunni í
Genf.
Hyundai semur
við FIFA
2 B FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
PORSCHE mun innan tíðar hefja
framleiðslu á nýjum bíl sem kall-
ast Cayman. Þetta verður hrein-
ræktaður sportbíll og stærðin er
mitt á milli 911 Carrera og Boxs-
ter. Hann verður tveggja sæta og
með sex strokka boxervél fyrir
miðjum bílnum. Vélin er 3,4 lítra
og mun skila 295 hestöflum, eða 35
hestöflum meira en Boxster S.
Verðið á Cayman, sem er nafn á
krókódílategund, verður mitt á
milli 911 Carrera og Boxster.
Nafnið á bílnum er fengið að láni
úr dýraveröldinni. Cayman til-
heyrir krókódílategund sem er
fremur lítil en ákaflega kvik í
hreyfingum og sterk.
Hér sést Cayman við prófanir í Þýskalandi fyrir skemmstu.
Cayman – minni en Carrera
en stærri en Boxster
Porsche Cayman verður stærri og
aflmeiri en Boxster.
NISSAN 350Z Roadster blæjubíllinn hefur verið valinn blæjubíll ársins af dómnefnd sem starfaði í tengslum við bílasýn-
inguna í Genf. Dómnefndin hefur valið blæjubíl ársins á bílasýningunni í Genf síðan 1994. Verðlaunin í Genf eru þau 42. í
röðinni síðan bíllinn kom á markað, og þau tólftu í Evrópu. Blæjubíllinn er nú að koma á markað í Evrópu og var fjallað um
hann í reynsluakstri í síðasta bílablaði.
Það varð að hafa blæjuna uppi í rigningunni í Lissabon.
Nissan 350Z Roadster valinn blæjubíll ársins
ÞAÐ skiptir stöðugt meira máli
við val bílkaupenda að útkoma úr
öryggisprófunum hafi verið viðun-
andi. Einn besti mælikvarðinn er
útkoma úr prófunum hins evr-
ópska prófunarapparats Euro
NCAP, sem Alþjóðabílasambandið,
FIA, á heiðurinn af að stofna til.
Peugeot 1007 fékk í nýjustu
árekstraprófun Euro NCAP fimm
stjörnur, eða fullt hús stjarna, og
fer þar í flokk með öruggustu bíl-
um í efri stærðarflokkum, sem al-
mennt eru taldir öruggari bílar en
minni og léttari bílar. Ljónið fékk
þó aðeins tvær stjörnur af fimm
mögulegum hvað varðar hönnun á
framenda sem miðast að því að
draga úr meiðslum við ákeyrslu á
gangandi vegfarendur.
Tveir aðrir nýir bílar voru í nýj-
ustu prófun Euro NCAP. Honda
FR-V-fjölnotabíllinn, sem ennþá er
ókynntur á Íslandi, og sömuleiðis
splunkunýr Suzuki Swift, sem
fjallað er um ítarlega í reynslu-
akstri sem tekinn var í Monte
Carlo sl. þriðjudag á bls. 4 í
blaðinu dag, fengu fjórar stjörnur
fyrir vasklega vörn fyrir bílstjóra
og farþega við árekstur á fram-
anverðum bílnum. Annars voru
niðurstöður Euro NCAP eftirfar-
andi:
Honda FR-V:
Öryggi vegna árekstrar að framan:
4 stjörnur
Öryggi vegna barna í bílnum:
3 stjörnur
Ekið á gangandi vegfaranda:
3 stjörnur
Peugeot 1007:
Öryggi vegna árekstrar að
framan: 5 stjörnur
Öryggi vegna barna í bílnum:
3 stjörnur
Ekið á gangandi vegfaranda:
2 stjörnur
Suzuki Swift:
Öryggi vegna árekstrar að
framan: 4 stjörnur
Öryggi vegna barna í bílnum:
3 stjörnur
Ekið á gangandi vegfaranda:
3 stjörnur
Peugeot 1007 öruggasti smábíllinn
Honda FR-V fékk fjórar stjörnur vegna áreksturs að framan.
Peugeot 307 fékk fullt hús stiga, eða
þrjár stjörnur fyrir varnir fyrir börn.
Nýr Suzuki Swift fékk fjórar stjörnur
vegna áreksturs að framan.
DÓMNEFND 48 þekktra bílablaðamanna
hefur komist að þeirri niðurstöðu að titillinn
Heimsbíllinn 2005, sem nú er veittur í fyrsta
sinn, falli í skaut Audi A6. Audi A6 skýtur
þar með 35 keppinautum úr öllum stærð-
arflokkum ref fyrir rass. Viðurkenningin var
veitt að kvöldi 16. febrúar sl. í tengslum við
alþjóðlegu bílasýninguna í Toronto í Kanada.
Í dómnefndinni voru fulltrúar helstu
svæða bifreiðamarkaðarins og leiðandi fjöl-
miðla á sviði bílgreina í heiminum. Bílarnir
36 voru metnir út frá eiginleikum framleiðsl-
unnar og vegna annarra eiginleika. Það að
bifreiðin er „hrífandi“ hefur því greinilega
vægi rétt eins og öryggi, umhverfisáhrif og
verðlagning.
Titillinn Heimsbíllinn 2005 er nýjasta við-
bótin við margar viðurkenningar sem bílnum
hefur hlotnast síðan hann kom á markað á
síðasta ári. Hann hefur m.a. hlotið Auto
Trophy frá tímaritinu Auto Zeitung, Auto1
frá tímaritinu Auto Bild, Gullna stýrið frá
þýska dagblaðinu Bild am Sonntag, útnefnd-
ur Besti bíllinn/lúxusbílaflokkur af lesendum
tímaritsins Auto, Motor und Sport og félag
bifreiðaeigenda í Þýskalandi, ADAC, veitti
honum hinn svonefnda Gula engil.
Audi A6 valinn Heimsbíllinn 2005