Morgunblaðið - 11.03.2005, Síða 4
4 B FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
HAUSTIÐ 2003 frumsýndi Suzuki
hugmyndabílinn S á bílasýningunni í
Frankfurt. Bíllinn vakti mikla at-
hygli þar sem hönnun var í mörgu
ólík því sem áður hafði sést frá Su-
zuki og öllum var ljóst að þarna var
kominn smjörþefurinn af nýjum Suz-
uki Swift. Ári seinna sýndi Suzuki
svo S-hugmyndabílinn á bílasýning-
unni í París, og nú í blæjugerð. Ekki
síður athyglisverð hönnun og ljóst að
bíllinn ber blæju líka vel. Fyrr í vik-
unni kynnti Suzuki síðan nýja kyn-
slóð Swift sem byggð er að verulegu
leyti á S-hugmyndabílnum í fursta-
dæminu Mónakó. Blaðamaður hélt
þangað til að reynsluaka bílnum, sem
boðinn verður með 1,3 l og 1,5 l bens-
ínvélum og 1,3 l dísilvél, fimm og
þrennra dyra. Það var kannski ekki
alveg í takt við vélarkostinn í Swift
að reynsluaksturinn fór m.a. fram á
sömu vegum og Formúla 1 keppnin í
Monte Carlo – en gaman var það.
Swift er hannaður með þarfir Evr-
ópumannsins í huga. Þess vegna er
hann stærri en áður og mun há-
byggðari. Hann verður framleiddur í
Ungverjalandi fyrir Evrópu en fyrir
markaði í Asíu verður hann fram-
leiddur í Japan, Kína og Indlandi.
Bíllinn er dálítið á reiki í stærð-
arflokkun. Hann er stærri en t.d.
Opel Corsa og Toyota Yaris, en
minni en bílar í C-stærðarflokknum,
(VW Golf, Opel Astra o.fl.). Helstu
samkeppnisbílarnar verða Toyota
Yaris, Peugeot 207, Opel Corsa og
VW Polo.
Úti í Mónakó var bíllinn prófaður
með stærri bensínvélinni og dísilvél-
inni, beinskiptur, en þó með sitthvor-
um fimm gíra kassanum. Einnig
verður boðið upp á fjögurra þrepa
sjálfskiptingu með handskiptivali
með 1,5 l bensínvélinni og fimm
þrepa hálfsjálfskiptingu með minni
bensínvélinni, sem ekki gafst tæki-
færi til að prófa að þessu sinni.
Lítill en rúmgóður borgarbíll
Það fyrsta sem mætir auganu þeg-
ar nýr Swift er skoðaður er mikil
sporvídd bílsins og virkilega sport-
legur framendi með stórum fram-
lugtum og loftinntaki. Hann er frem-
ur hár en breiður og virkar
sportlegur á vegi – maður fær strax á
tilfinninguna að hann eigi eftir að
liggja vel.
Þegar sest er inn verður vart við
stærstu breytinguna; Swift hefur
breyst úr litlum þröngum borgarbíl í
lítinn, en afar rúmgóðan borgarbíl.
Það er t.d. óvenjuhátt til lofts í bíln-
um sem er mikill kostur, ekki síst í
aftursætum, og auðveldara er fyrir
vikið að umgangast bílinn; setjast
inn í hann og fara út úr honum. Far-
angursrýmið er að sönnu ekki mikið,
frekar en í öðrum bílum í þessum
stærðarflokki, en með því að fella
niður sætisbökin og velta síðan sæt-
unum upp að framsætisbökunum
skapast gott pláss fyrir talsverðan
farangur; fer úr 213 lítrum í 562 lítra.
Sömuleiðis er sætastaðan í bílnum
hærri sem eykur bæði yfirsýnina út
úr bílnum og gerir langan akstur síð-
ur þreytandi. Smekklegur frágangur
er á öllu í innanrýminu; stýrið komið
með fjölrofastillingar, innbyggð
hljómtæki eru með gegnsæjum
plastglugga og í bensínbílnum var
meira að segja leiðsögukerfi af ein-
földustu gerð, sem greinilega er val-
búnaður á einhverjum mörkuðum.
Það stakk samt í stúf við vandaðan
fráganginn að efnisvalið var ekki alls
staðar eins og við hefði mátt búast.
Þannig voru hurðarhúnar að innan
úr harðplasti. Sætin eru með hæð-
arstillingu og aftursætisbökin er
hægt að leggja niður og fella sætin
sjálf upp að framsætunum og mynda
þannig mikið farangursrými.
Á slóðum Formúlu 1 fáka
Leiðin lá um götur Monte Carlo,
meðal annars um fræg undirgöng
þar sem Formúlu 1 fákar þeytast um
á ofurhraða. Síðan var farið um sveit-
ir í kring þar sem allt er undirlagt af
vinkilbeygjum og undirgöngum.
Þarna reyndi því á undirvagninn.
Bíllinn er afar stöðugur á vegi, eins
Swift á Form-
úlu 1 brautum í
furstadæminu
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
Swift er sportlegur með stór loftinntök og á 15" felgum.
Snotur frágangur er inni í bílnum og sætishæð stillanleg.
Menn sitja hátt í Swift en samt er lofthæðin inni í bílnum næg.
Bíllinn kemur líka með 1,3 l dísilvél
með samrásarinnsprautun.
Há hliðarlína og sveigð afturljós eru áberandi útlitseinkenni.
REYNSLUAKSTUR
Suzuki Swift
Guðjón Guðmundsson