Morgunblaðið - 11.03.2005, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 B 5
bílar
og hönnunin gefur fyrirheit um, en
vottur er af undirstýringu þegar
hratt er farið í beygjur. Mikil spor-
vídd og stór dekk á 15 tommu felgum
halda honum í góðu jarðsambandi.
Fjöðrunin er fremur stinn en bíllinn
er hljóðlátur og vel einangraður.
Swift er samt enginn orkubolti
með 1,5 l vélinni eða 1,3 l dísilvélinni,
en engu að síður eru þetta vélar sem
dugar honum fyllilega í borgarakstr-
inum og jafnvel úti á hraðbrautum.
Hún skilar mestu afli á fremur háum
snúningi og fimm gíra skiptingin er
lipur og ekkert los í henni. Dísilvélin
er annar kostur sem mun bjóðast
hérlendis, ásamt 1,3 l bensínvélinni.
Dísilvélin er, eins og vænta mátti,
talsvert togmeiri og því eftirsóknar-
verðari kostur í langkeyrslu. Hún er
líka hljóðlát og ágætlega togmikil,
170 Nm við 2.000 snúninga.
Von er á nýjum Swift til Íslands á
vordögum og búast má við að verðið
verði einhvers staðar nálægt 1,2–1,5
milljónum kr., ef að líkum lætur.
Swift er athyglisverður kostur fyrir
þá sem eru að kaupa bíl í fyrsta sinn,
eða sem annar bíll á heimili. Þar nýt-
ur hann þeirra kosta sinna að vera
lítill en rúmgóður og eyðslugrannur,
en um leið nútímalegur í útliti. Ekki
skemmir að Suzuki hefur í gegnum
tíðina reynst vera með lága bilana-
tíðni.
ALLT útlit er fyrir stóraukið samstarf milli
franskra og japanskra bílaframleiðenda í nánustu
framtíð. Árið 2007 kemur á markað fyrsti Peugeot-
Citroën borgarjeppinn sem framleiddur er af Mits-
ubishi í Japan. Seinna er svo væntanlegur fyrsti
borgarjeppi Renault, sem Nissan mun framleiða.
Mitsubishi á að framleiða nálægt 30.000 á ári frá
árinu 2007 fyrir Peugeot-Citroën. Þessi bíll verður
í öðrum stærðarflokki en bíll Renault og verður því
ekki um samkeppni þar á milli að ræða.
Mitsubishi þróar nýjan borgarjeppa
Bílar PSA verða boðnir með bensínvélum frá
Mitsubishi og dísilvélum PSA. Mitsubishi er að
þróa fleiri gerðir borgarjeppa og verður sá fyrsti
kynntur á bílasýningunni í Tókíó í október næst-
komandi. Sá bíll kemur á markað í Evrópu 2007
og verður líklega sá bíll sem PSA mun bjóða und-
ir sínum merkjum.
Renault á meirihluta í Nissan og samstarfið
verður nánara með hverju árinu sem líður. Ren-
ault á einnig meirihluta í Samsung frá Kóreu. Og
það verður Samsung sem mun þróa nýja borg-
arjeppa og framleiða hann í Kóreu, en notaðar
verða vélar frá Nissan. Einnig fær Renault annan
borgarjeppa sem Nissan þróar og framleiðir og
verður seldur sem Renault í Evrópu. Einnig er
líklegt að Renault fái sendibíla og pallbíla inn í
sína vörulínu frá Nissan. Renault er á höttunum
eftir fjórhjóladrifsbílum til að selja í Evrópu og
mun nýta sér þekkingu og reynslu Nissan á því
sviði.
Nánara samstarf milli franskra og japanskra
AKREINAVARI, búnaður sem var-
ar ökumann við því ef hann skiptir
óviljandi um akrein á meira en 80 km
hraða á klst., var frumsýndur á bíla-
sýningunni í Detroit. Þar hlaut hann
Auto 1 verðlaunin fyrir tækninýj-
ung. Akreinavarinn gerir ökumanni
viðvart ef hann skiptir óviljandi um
akrein með því að koma af stað titr-
ingi í sæti ökumanns. Búnaðurinn er
fáanlegur í nýjustu gerðir Citroën
C4 og C5 sem aukabúnaður og verð-
ur einnig boðinn í nýjum Citroën C6
þegar hann kemur á markað.
Akreinavari
Citroën hlýtur
Auto 1-verðlaunin
BMW 540 IA, 8 cyl, 285 hö, nýskr.
09/96, ek. 145 þús. km., sjálfskiptur,
dökkblár, xenon-ljós, sóllúga, leður
o.m.fl. Áhvílandi 1.300 þús.
Verð 1.980.000.
www.heimsbilar.is
heimsbilar@heimsbilar.is
Kletthálsi 11a, 110 Reykjavík,
sími 567 4000
Ert þú að selja bíl?
Komdu þá strax í dag, sýndu okkur
hann og skráðu hann hjá okkur.
Þá er páskaegg nr. 5 frá Nóa Síríusi
þitt! Heimsbílar er traust bílasala
með reynslumikið og duglegt starfs-
fólk. Staðsett á nýju, stóru og sér-
hönnuðu bílasölusvæði við Klettháls.
Næg bílastæði, svo hver bíll hjá okk-
ur fái hámarks athygli!"
Vélar: 4ra strokka, 1.328
rúmsentimetra, 90 hest-
öfl, 4ra strokka 1.490
rúmsentimetrar, 100
hestöfl, fjórir strokkar,
1.248 rúmsentimetrar
dísil, 68 hestöfl.
Lengd: 3.695 mm.
Breidd: 1.690 mm.
Hæð: 1.500 mm.
Farangursrými:
213–562 lítrar.
Eyðsla í borgarakstri: 8 l,
(1,3 l beinskiptur), 8,6 l,
(1,5 l beinskiptur).
Hemlar: Kældir diskar að
framan, tromlur að aftan.
Verð: Ekki ljóst.
Umboð: Suzuki bílar hf.
Suzuki
Swift
gugu@mbl.is