Morgunblaðið - 11.03.2005, Qupperneq 6
6 B FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
H
yundai Sonata, fimmta kyn-
slóð næststærsta fólksbíls-
ins frá Hyundai, var kynnt í
Þýskalandi nýverið fyrir
blaðamönnum og má segja að bíllinn
hafi gengið gegnum mikla endurnýj-
un lífdaga. Hyundai-verksmiðjurnar
kóresku framleiða sem kunnugt er
nokkrar gerðir fólksbíla og jeppa og
auk þess sem þessi nýja gerð Són-
ötunnar kemur nú fram frumsýndi
framleiðandinn nýja gerð lúxusbílsins
Grandeur á bílasýningunni í Genf
sem nú er að ljúka.
Talsmenn Hyundai segja áfram
einblínt á tækni og gæði en auk þess
sem útlit þessarar fimmtu kynslóðar
er gjörbreytt eru nýjar vélar í boði,
fjöðrun er endurhönnuð og allur að-
búnaður hið innra er nýr og ferskur.
Tíu milljónir bíla
Werner Frey, aðstoðarforstjóri
Hyundai í Evrópu, sagði við kynn-
inguna í Þýskalandi að Hyundai hefði
á árunum frá 1967 þegar bílafram-
leiðslan hófst fyrir alvöru og þar til í
fyrra framleitt um tíu milljónir bíla.
Fyrirtækið væri nú
sjötti stærsti bílafram-
leiðandi heims og í þriðja
sæti yfir innflutta bíla til
Evrópu. Sagði hann fyr-
irtækið státa af 170%
söluaukningu á síðustu
tíu árum. Hyundai hefði
alltaf talið Sónötuna
vera eina mikilvægustu
tegund sína frá því bíll-
inn fyrst kom á markað
1985. Með honum hefðu
gjarnan verið kynntar
tækninýjungar og
fimmta kynslóðin væri
þar engin undantekning.
Framleiðandinn ætlar
sér líka stóra hluti með
Sónötunni, stefnir að 230
þúsund bíla sölu á árinu.
Hyundai Sonata er
ásjálegur bíll með hrein-
legar línur. Luktir að
framan og aftan eru
skemmtilega frísklegar
og skemmtileg brot í vél-
arloki. Hann er ólíkur
fyrri gerðum og ekki
augljóst í fljótu bragði af
hvaða ætt bíllinn er.
Lögð var áhersla á að stækka hann
örlítið, hann er um 5,5 cm lengri og
hjólahafið þar með lengt um 3 cm sem
virðist kannski ekki mikið en farþega-
rýmið fær að njóta þessarar stækk-
unar. Heildarlengd er 4,8 m, breiddin
er 1,832 og hæð bílsins 1,475 metrar.
Þá er eftirtektarvert hversu farang-
ursrýmið er drjúgt og á það að taka
462 lítra.
Framleiðandinn segir evrópsk
áhrif hafa ráðið ferðinni við hönnun
bílsins enda sé honum mjög stefnt á
Evrópulönd. Fari þar saman hagnýt-
ar lausnir og laglegar og má alveg
taka undir það. Séður á hlið er bíllinn
næsta voldugur með rísandi línu aftur
eftir og ávölum hliðum.
Hægt er að fá bílinn á 17 þumlunga
felgum, bíllinn með V6-vélinni er boð-
inn með tvöföldu púströri, rafknúin
sóllúga er í boði, sjálfvirk loftkæling
og geislaspilari með nokkurra diska
geymslu.
Góður aðbúnaður
Um aðbúnað innan stokks má segja
að hann sé á alla lund góður. Rými er
yfrið nóg bæði í framsætum sem og
aftursætum og það þótt framstólar
séu í öftustu stöðu. Rafstýrðar still-
ingar eru á framstólum sem eru alltaf
skemmtileg þægindi þegar menn búa
ekki við slíkt dags daglega og hægt er
að hækka og lækka ökumannssæti og
breyta halla á setu. Þá liggur allt vel
við og góður kostur er að rofar fyrir
skriðstilli eru í stýri. Gott er að um-
gangast bílinn og ekki of djúpt að
setjast inn og þá opnast skottlokið
uppá gátt og eins og fyrr segir gleypir
það heilmikið dót.
Öryggisbúnaður er hefðbundinn,
líknarbelgir fyrir framsæti og hliðar-
belgir og styrktarbitar eru í hurðum
ásamt því að helstu bitar í yfirbygg-
ingu og á framenda hafa verið styrkt-
ir.
Tvær nýjar vélar eru annars vegar
bensínvélarnar 2,4 lítra sem er 161
hestafl og 3,3 lítra V6-vél sem er 233
hestöfl. Á næsta ári verður 135 hest-
afla dísilvél einnig í boði. Boðnar eru
fimm gíra handskipting og sjálfskipt-
ing með vali.
Enginn hraði
Í akstri vekur einna fyrst athygli
hversu hljóðlátur bíllinn er. Farið var
talsvert mikið um hraðbrautir en
einnig eftir minni háttar sveitavegum
og þótt spyrnt væri í um 170 km
hraða fannst hvorki vegarhljóð né
vindgnauð og hefði því allt eins verið
trúað að bíllinn væri á mun minni
ferð. Þá er bíllinn nákvæmur og góð-
ur í stýri og fer vel um krókóttar slóð-
ir. Spólvörn kemur í veg fyrir óþæg-
indi þegar spyrnt er í hálkunni.
Prófaðir voru bílar með sjálfskipt-
ingu og fimm gíra handskiptingu.
Sjálfskipting er vitaskuld þægilegri
og ekki síst sá kostur hennar að geta
skellt henni í handstýrða mögu-
leikann. Finnst ökumanni hann þá
hafa eitthvað meiri ítök í bílnum en
segja má að þessi möguleiki sé fyrst
og fremst skemmtilegur – hin eigin-
lega sjálfskipting dugar fullvel við
venjulegan akstur.
Í heild má því segja að Hyundai
Sonata hafi flest það til að bera sem
menn vilja í fjölskyldubíl af milli-
stærð, þægindi, næga vinnslu og nóg
pláss.
Verð á sjálfskipta bílnum er rétt
um 2,3 milljónir króna.
Fimmta kynslóðin lipur og hljóðlát
Sonata er verulega breyttur bæði hið ytra sem innra.
Gott pláss er bæði í fram- sem aftursætum og allur aðbúnaður til fyrirmyndar.
Hentugt er að hafa rofa fyrir skriðstillinn í stýrinu.
Framluktirnar eru frísklegar á Sónötunni.
Morgunblaðið/jt
Hyundai Sonata er laglegur bíll, en fimmta kynslóðin verður kynnt hjá umboðinu, B&L, um helgina.
Hægt er að þeysa á
Hyundai Sonata um
hraðbrautir án þess að nokkuð
verði vart við vindgnauð eða
vegarhljóð. Jóhannes
Tómasson reyndi gripinn á
þýskum vegum á dögunum
og líkaði ekki illa.
joto@mbl.is