Morgunblaðið - 11.03.2005, Blaðsíða 10
10 B FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Benz 35.35, árg. 1992.
Verð 2,7 + vsk.
Man 26.403, árg. 1996.
Verð 3,3 + vsk.
Vélavagnar frá Fliegl.
Soosan fleygar á allar gerðir véla
LINSER belti, keðjur, spyrnur o.fl.
Amco-Veba bílkranar
Scania 143 4öxla með Hiabb
245 krana. Verð 5,5 + vsk.
Volvo 612, árg. 1999.
Verð 2,2 + vsk.
4hjól, árg 2004. Verð 300 þ.
Man 41.402, 8x8, árg. 1996, með
20 TM krana. Verð 6,2 + vsk.
Hraungörðum 2-4,
Hafnarfirði, sími 565 2727
www.bilhraun.is
sími
565 2727
SEM fyrr er hart barist á markaði
fyrir bíla í C-flokki; en þar er að
finna mikla sölubíla eins og VW
Golf, Toyota Corolla, Ford Focus
og fleiri. Nú hefur bæst við í flór-
una spennandi bíll frá Citroën sem
leysir hinn aldna Xsara af hólmi.
Sá kallast C4 og er að miklu leyti
byggður á systurbílnum Peugeot
307, sem einnig er undir handar-
jaðri PSA-samsteypunnar. C4 var
reynsluekið með dísilvélum í
Frakklandi við blaðamannakynn-
ingu þar seint á síðasta ári. Núna
er bíllinn kominn hingað lands og
við prófuðum hann með 1,6 lítra
bensínvélinni, sem ef að líkum læt-
ur verður helsti sölubíllinn hérlend-
is.
Frískleg útlitshönnun
Citroën hefur á síðustu misser-
um komið fram með bíla sem vekja
athygli fyrir frísklega útlitshönnun.
Picasso-fjölnotabíllinn sker sig frá
öðrum sambærilegum bílum í útliti
og litli C3 er sannkallað augnayndi
með sínu skemmtilega dropalagi.
Við þróun á C4 ákvað Citroën að
búa í raun og veru til tvo bíla; ann-
ars vegar þrennra dyra coupe-út-
færslu, sem er sportlegheitin upp-
máluð, og síðan hefðbundnari
útfærslu af fimm dyra hlaðbaki. Sá
er einnig dropalaga eins og C3 og
með stóru, krómlögðu grilli sem
vekur mikla athygli, og stórum
framlugtum sem ná langt upp á
vélarhlífina. Bíllinn er hannaður út
frá ströngustu kröfum um strauml-
ínulögun og er eiginlega ein sam-
felld lína frá framstuðara að aft-
urstuðara. Á hliðum eru fjórir
gluggar; þ.e.a.s. tveir litlir ljórar
framan við framhliðargluggann og
aftan við afturhliðargluggann. Úti-
speglarnir eru líka íturhannaðir
með tilliti til lítillar loftmótstöðu.
Það er því í senn sportlegt og ný-
stárlegt yfirbragð yfir bílnum sem
setur hann strax í dálítinn sérflokk
í hópi lítilla millistærðarbíla, sem
sannast sagna eru margir hverjir
keimlíkir hver öðrum.
Citroën ætlar að bjóða þennan
nýja valkost í C-stærðarflokknum
með breiðu vali af alls kyns valbún-
aði, sumum allsérstæðum. Meðal
tækninýjunga sem teljast til örygg-
isbúnaðar sem kynntar eru í C4 er
akreinavari; búnaður sem varar
ökumann við með titringi í sætinu
ef bíllinn fer yfir brotna eða sam-
fellda akreinalínu á yfir 80 km
hraða án þess að stefnuljós hafi
verið notuð. Sama má segja um
annan búnað, sem fram til þessa
hefur nánast eingöngu verið að
finna í mun stærri og dýrari bílum,
eins og stefnuvirku Xenon-fram-
ljósin sem lýsa fyrir horn, fyrirvara
að framan og aftan, sem gefur
hljóðmerki þegar bíllinn nálgast
fyrirstöðu, og búnaður sem varar
við þegar of lágur þrýstingur er í
hjólbörðum. En, nota bene, öll
þessi tækni er ekki hluti af stað-
albúnaði frekar en loftfrískunar-
búnaðurinn, sem fáanlegur er með
þremur gerðum lyktarspjalda.
Föst stýrismiðja
Einna mest kemur C4 samt á
óvart að innan. Fremur stórt stýrið
er með fastri stýrismiðju, sem ekki
er að finna í öðrum bílum. Í fyrstu
virkar þetta svolítið undarlega á
mann; maður snýr stýrinu í beygju
en miðjan helst kyrr. Helsti kost-
urinn við þetta er sá að með þessu
móti er hægt að hafa stærri líkn-
arbelg inni í stýrinu og betur form-
aðan til að verja ökumanninn, en
auk þess er hægt að hafa fleiri
stjórnrofa á stýrismiðjunni, stjórn-
rofa sem annars væri eðlilegra að
finna í sjálfu mælaborðinu. Þarna
er t.a.m. að finna rofa fyrir hljóm-
Morgunblaðið/RAX
Hönnun eins og hún gerist hvað laglegust á bíl í c-stærðarflokki.
Góð hönnun og akstur
haldast í hendur
Smekkleg hönnun og vandað efnisval er í C4.
Stafrænir mælar og föst stýrismiðja vekur athygli að innan.
Hægt er að stækka farangursrýmið með því að fella niður aftursæti.
REYNSLUAKSTUR
Citroën C4 Saloon SX
Guðjón Guðmundsson
Vél:
1.587 rúmsentimetrar,
fjórir strokkar, 16 ventlar.
Afl: 110 hestöfl við 5.800
snúninga á mínútu.
Tog: 147 Nm við 4.000
snúninga á mínútu.
Hröðun: 10,6 sekúndur úr
kyrrstöðu í 100 km/klst.
Hámarkshraði:
194 km/klst.
Gírskipting:
Fimm gíra beinskiptur.
Lengd: 4.273 mm.
Breidd: 1.769 mm.
Hæð: 1.458 mm.
Eigin þyngd: 1.200 kg.
Staðalbúnaður: ABS,
EBD, EBA, hraðastillir og
hraðatakmarkari, loftkæl-
ing, sex öryggispúðar, hiti
í framsætum, aksturs-
tölva, rafdrifnir speglar,
þokuljós, heimreiðarljós,
kæling á hanskahólfi, hólf
undir framsæti farþega,
hæðarstilling á öku-
mannssæti, diskahemlar
að framan og aftan,
stefnuljós í útispeglum
o.fl.
Verð: 1.920.000 kr.
Umboð: Brimborg hf.
Citroën C4
Saloon SX