Morgunblaðið - 11.03.2005, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 B 13
bílar
SAMKEPPNISRÁÐ hefur í
Ákvörðun nr. 9/2005 komist að
þeirri niðurstöðu að Sjóvá-Al-
mennar tryggingar hafi brotið
gegn 10 gr. samkeppnislaga með
því að hafa átt í verðsamráði við
Tryggingamiðstöðina hf. og Vá-
tryggingafélag Íslands hf.
Í fréttatilkynningu frá Bíl-
greinasambandinu segir að í
ákvörðun ráðsins komi fram að
tryggingafélögin hafi á árinu 2002
brotið gegn 10. gr. samkeppnis-
laga og samráðið hafi falist í eft-
irfarandi:
Tryggingafélögin gerðu sam-
eiginlega samanburð á Cabas-kerf-
inu og eldra
tjónamatsfyrirkomulagi. Telur
samkeppnisráð að í þessari sam-
vinnu hafi falist samráð trygginga-
félaganna um að meta hækkunar-
þörf á tímagjaldi verðstæða og
með því hafi félögin brotið gegn
banni samkeppnislaga um verð-
samráð.
Samkeppnisráð telur að
tryggingafélögin hafi í kjölfar
framangreinds samanburðar kom-
ið sér saman um viðmiðunarverð
sem þau hafi ætlað að nota í samn-
ingaviðræðum við verkstæði um
verð á Cabas-einingu.
Telur samkeppnisráð að
tryggingafélögin hafi einnig í kjöl-
far samanburðar á eldra matsfyr-
irkomulagi og Cabas-kerfinu haft
samráð um kaupverð á viðgerð-
arþjónustu af P. Samúelssyni ehf.
sem rekur eitt stærsta bifreiða-
verkstæði landsins.
Tvö tryggingafélög VÍS og TM
hafa lokið þessu máli með sátt og
greiðslu sekta.
Sjóvá fellst ekki á þessa nið-
urstöðu.
Í fréttatilkynningu Bílgreina-
sambandsins segir að vert sé að
benda á ýmis atriði sem koma
fram í ákvörðun samkeppnisráðs.
Þar segir ma. að tryggingafélögin
hafi gert samkomulag við P. Sam-
úelsson ehf. um að fyrirtækið
framkvæmdi samanburðarrann-
sóknir á Cabas-kerfinu og eldra
tjónamatskerfi yfir ákveðið tíma-
bil. Jafnframt segir að gögn máls-
ins sýni að í þessum aðgerðum hafi
falist samvinna tryggingafélag-
anna um mat á hvernig verð til
verkstæðanna þyrfti að breytast
við þessa kerfisbreytingu. Í bréfi
Sjóvár-Almennra til Samkeppnis-
stofnunar kemur fram að niður-
staðan hafi orðið sú að gjald fyrir
einstök verk þyrfti að vera 57%
hærra en samkvæmt eldra fyrir-
komulagi. Engin önnur verkstæði
voru skoðuð eða samanburður
gerður á öðrum verkstæðum en
þessu stóra sérhæfða verkstæði
sem um var að ræða. Þá var held-
ur ekki skoðað hvernig þessi atriði
gætu hugsanlega horft við á lands-
byggðinni eða við mismunandi að-
stæður.
Auk þess ber að hafa í huga að
eldra tjónamatskerfi var huglægt
mat og samanburður á grundvelli
fárra tjóna á sérhæfðu verkstæði
gefa engan grunn til að finna eina
prósentuhækkun fyrir öll verk-
stæði og mörg þúsund tjón.
„Samkvæmt gögnum samkeppn-
isráðs kemur fram að verulegur
munur er á því hvernig menn meta
þessar samanburðarrannsóknir.
Þannig sýndi niðurstaða P. Sam-
úelssonar ehf.mun hærra verð fyr-
ir hverja CABAS einingu, en vá-
tryggingafélögin vildu sætta sig
við. Þá kemur einnig fram í skjöl-
um Samkeppnisstofnunar, að frá
því um miðjan júlí 2002 hafi öll fé-
lögin miðað við verð fyrir hverja
Cabas-einingu í áætlunum sínum,
sem var enn lægri en þau höfðu
áður fengið úr samanburðarmæl-
ingunum.
Félögin beittu yfirburðarstöðu
sinni á markaðnum til að fá verk-
stæðin til að semja um Cabas á
þessu verði án þess að þeim væri
gefinn kostur á að kynna sér for-
sendur fyrir niðurstöðu saman-
burðarverkefnis félaganna og P.
Samúelssonar ehf. Verkstæðin
áttu fárra kosta völ því trygginga-
félögin óskuðu eindregið eftir því
að gerður yrði samningur. Verk-
stæðum var gert ljóst að ef menn
semdu ekki þá yrðu þeir ekki á
skrá hjá viðkomandi trygginga-
félagi og kynningar og auglýsingar
verkstæða sem ekki skrifuðu undir
samning yrðu fjarlægðar úr aug-
lýsingarekkum hjá tryggingafélög-
unum.
Í raun má segja að ferlið frá
miðju ári 2002 hafi einkennst á því
að tryggingafélögin hafi lagt fram
við verkstæðin drög að samningi
ásamt krónutölu. Rök og gögn
verkstæða voru alfarið hunsuð.
Þetta er raunin alveg til dagsins í
dag því allir þessir samningar eru
mjög einhliða og má t.d. benda á
að óskir um endurskoðun samn-
inga nú í kjölfar launahækkana um
síðustu áramót svo og vegna
hækkana annarra kostnaðarliða
hafi í flestum tilfellum fallið í mjög
grýttan jarðveg.
Þá ber að líta á að Cabas-tjóna-
matið er nýjung og í sjálfu sér gott
kerfi. En ýmis túlkunaratriði og
mismunandi verklag og aðstaða á
Íslandi miðað við Svíþjóð þar sem
vinnumælingar kerfisins fóru fram
hafa kallað á að túlka og skilgreina
þarf mörg atriði. Niðurstaða þessa
er almennt á þann veg að það eru
tryggingafélögin sem hafa síðasta
orðið varðandi þessa túlkun,“ segir
í fréttatilkynningu Bílgreinasam-
bandsins.
Ákvörðun samkeppnisráðs um verðsamráð tryggingafélaga
Sjóvá brotið gegn
samkeppnislögum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samkeppnisráð telur að tryggingafélögin hafi haft með sér samvinnu og í henni
hafi falist samráð þeirra um að meta hækkunarþörf á tímagjaldi verkstæða.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Britax
barnastólar
frá Bílanaust
Sími 535 9000
www.bilanaust.is