Morgunblaðið - 11.03.2005, Síða 14
14 B FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
GÆÐAÍMYND Mercedes-Benz á
undir högg að sækja, að þessu
sinni vegna falleinkunnar fyrir E-
Class, sem reyndist vera með
hæstu bilanatíðnina í Consumer
Report, einni af þekktustu áreið-
anleikakönnun bílaiðnaðarins.
Lægsta bilanatíðnin mældist hjá
Hyundai Sonata, en á heildina litð
voru það japanskir og suður-kór-
eskir framleiðendur sem voru með
almennt bestu útkomuna.
Bandarískir bílar í sókn
Niðurstöður könnunarinnar
þykja enn eitt áfallið fyrir Merced-
es-Benz, þýska hlutann í Daiml-
erChrysler samsteypunni, sem hef-
ur á undanförnum sex árum farið
úr 3. í 28. sætið í áreiðanleikakönn-
un JD Powers. Risarnir í Detroit,
General Motors, Ford og Chrysler,
hluti DaimlerChrysler, komu á
hinn bóginn betur út en í fyrri
könnunum CR, sem gæti verið til
marks um að þeir séu að ná tökum
á þeim gæðavandamálum sem
hrjáð hafa bandaríska bílaiðnaðinn.
Jürgen Schrempp, forstjóri Daiml-
er hlutans, hefur lýst því yfir að öll
framleiðsla uppfylli á nýjan leik
gæðaskilyrði úrvalsbíla.
CR áreiðanleikakönnunin birtist
árlega á vegum bandarísku neyt-
endasamtakanna og byggir á svör-
um 810 þúsund félagsmanna um
vélabilanir eða önnur vandkvæði
sem rekja má til bílaframleiðand-
ans. Könnunin er talin ein sú
áhrifamesta í Bandaríkjunum og
víðar hvað bílakaup almennings
varðar. Undir lok 9. áratugarins
þótti gæðaímynd Hyundai það lé-
leg eftir slaka frammistöðu í áreið-
anleikakönnunum, að merkið nán-
ast hvarf af Bandaríkjamarkaði.
Þeirri þróun tókst Hyundai svo að
snúa við um miðjan 10. áratuginn
og nýtur nú vaxandi markaðshlut-
deildar bæði í Bandaríkjunum og
Evrópu.
Mercedes-Benz bilar mest
INNAN tíðar kemur á markað ný gerð
af Toyota Hilux-pallbílnum sem er
mikið breyttur frá fyrri gerð. Hann
verður að sjálfsögðu seldur með tvö-
földu farþegarými, Double Cab, alls
staðar í Evrópu, nema í Noregi, þar
sem íslensk fyrirtæki eins og Arctic
Trucks og Fjallasport fá það verkefni
að nánast endursmíða bílana. Vanda-
málið fyrir Noreg er að pallurinn er lít-
ið eitt of stuttur fyrir reglugerðir í þar
í landi. Til þess að hægt sé að skrá bíl-
inn til almennrar notkunar verður að
lengja pallinn um 17 cm. Nýr Hilux
verður framleiddur í Taílandi og Suð-
ur-Afríku. Norskir innflytjendur bíls-
ins vænta mikils af honum og eiga
von á fyrstu bílunum með haustinu,
en Double Cab-gerðin verður þó
seinna á ferðinni. Þeir eiga jafnvel von
á því að við framleiðslu á bílnum verði
tekið tillit til norsku reglnanna og
hann fáist framleiddur í Double Cab-
gerð með 17 cm lengri palli, þannig að
ekki þurfi að koma til þess að honum
þurfi að breyta í Noregi. Líklega von-
ast forsvarsmenn breytingafyr-
irtækja í Noregi, eins og Arctic Trucks
og Fjallasport, að ekki verði tekið tillit
til norskra reglna við framleiðsluna.
Nýr Hilux, hér sýndur í Double Cab-gerð með húsi.
Nýr Hilux hentar
ekki Norðmönnum
HYUNDAI Sonata var með lægstu
bilanatíðnina í nýjustu áreiðanleika-
könnun Consumer Report, sem er
jafnframt ein sú þekktasta innan
bílaiðnaðarins. Könnunin birtist ár-
lega á vegum bandarísku neytenda-
samtakanna og byggir á svörum 810
þúsund bifreiðareigenda um vélar-
bilanir eða önnur vandkvæði sem
rakin verða til framleiðandans.
Í neðsta sæti, eða með hæstu bil-
anatíðnina var Mercedes Benz E-
Class. Þessi árangur Hyundai hefur
vakið verulega athygli, en fyrirtæk-
inu hefur á innan við áratug tekist að
vinna sig upp úr neðstu sætum áreið-
anleikakannana í það efsta. Þetta er
ekki í fyrsta skipti sem Sonata kem-
ur best út í alþjóðlegum gæðakönn-
unum. Á síðasta ári hlaut hún m.a. 1.
sætið í gæðakönnun JD Powers
ásamt Total Quality Award, fyrsta
sætið í gæðakönnun Strategic
Vision.
Hyundai með lægstu
bilanatíðnina
HELMUT Panke, yfirmaður BMW,
er óánægður með gæði nýrra BMW-
bíla, en þar á bæ eru gerðar ríkar
kröfur á þessu sviði. Panke telur að
of mikil áhersla hafi verið lögð á að
ná góðum sölutölum fyrir BMW og
það hafi verið á kostnað gæðanna.
Þetta kemur fram í frétt á vefmiðl-
unum BilNorge.no.
Í fyrra var 7-lína BMW metin sem
einn lakasti kosturinn með tilliti til
gæða í könnun bandaríska neytenda-
tímaritsins Consumer Report. Í
einni viðurkenndustu gæðarannsókn
í heimi, J.D. Power, var BMW í 13.
sæti af 37 tegundum – sem er nið-
urstaða sem margir innan bílaheims-
ins telja að BMW geti ekki sætt sig
við, þótt staða BMW sé snöggtum
skárri en Mercedes-Benz á þessu
sviði. Fyrir nokkrum árum stóð
BMW fyrir gæði og aftur gæði. Nú
herja hins vegar alls kyns gæða-
vandamál á fyrirtækinu. Í umfjöllun
BilNorge kemur fram að gæða-
vandamál hafi komið upp í öllum
gerðum BMW og tengist yfirleitt
rafeindabúnaði bílanna.
BMW vinnur nú að þróun sjö sæta
fjölnotabíls, þess fyrsta sem kemur
frá München. Bíllinn verður líklega
framleiddur í Þýskalandi og verður
kynntur á næsta ári. BMW ætlar sér
með honum að ná til fleiri bílkaup-
enda en áður. BMW telur að þegar
fyrirtækið getur boðið allt frá BMW
1 til hins nýja fjölnotabíls verði
minni líkur á miklum sveiflum í af-
komu fyrirtækisins. BMW vinnur
einnig að annarri nýrri gerð sem
verður einkum ætlaður fyrir Banda-
ríkjamarkað. Samkvæmt BilNorge
hefur BMW ekki viljað gefa nánari
upplýsingar um þann bíl að svo
stöddu.
Gæðavandamál hjá BMW
SAAB verður áfram eitt af lúx-
usmerkjum General Motors og sam-
starf í sölu- og markaðsmálum verð-
ur aukið milli Opel og Saab. Opel á að
verða fyrir GM eins og vörumerkið
VW en Saab í framtíðinni eins og
Audi. Í Svíþjóð hafa menn lengi haft
áhyggjur af því að GM vilji losa sig við
Saab og hætta bílaframleiðslu í Troll-
hättan í Svíþjóð. En nú hefur Bob
Lutz, yfirmaður GM, lægt allar öldur
með því að lýsa því yfir að Saab verði
áfram til undir handarjaðri GM.
Meiri óvissa er hins vegar um
hvort Saab verði í framtíðinni fram-
leiddur í Trollhättan. Í fyrra voru
framleiddir þar 128.000 nýir bílar en
eigin greiningar GM sýna að til þess
að framleiðslan sé arðbær þurfi að
framleiða minnst 200.000 bíla á ári,
og helst 250.000 bíla. GM hefur
sýnt vilja til þess að safna saman
allri framleiðslu á bílum í C-
stærðarflokki í eina, stóra verk-
smiðju.
Líkleg niðurstaða er að GM flytji
framleiðslu á Opel og Saab í framtíð-
inni til Tyrklands, þar sem lægri
launakostnaður freistar margra. Þó
hefur verið ákveðið að GM ætlar að
framleiða nýjan Cadillac fyrir Evrópu
í Trollhättan – en á það ber að líta að
þar er einungis um 40.000 bíla að
ræða á ári.
Saab hefur verið að kynna til sög-
unnar nýjar gerðir bíla en verður jafn-
framt að horfast í augu við það að
sala á Saab 9-2X, sem framleiddur
er af Subaru (sem einnig er í eigu
GM), hefur verið undir væntingum í
Bandaríkjunum, þar sem hann er
kominn á markað. Þar er sagt að
Saab-eigendur vilji raunverulegan
Saab en ekki japanskan bíl með
Saab-nafni.
Saab verður áfram í eigu GM