Morgunblaðið - 11.03.2005, Side 15
FC Stack vetnisvespan frá Honda er mikil um sig miðja en telst þó vera sam-
bærileg við 125 rúmsentimetra bensínhjól í afli.
ÞÓTT bensín sé eldsneyti lang-
flestra mótorhjóla hafa nýlega komið
fram nokkrir áhugaverðir gripir sem
ganga fyrir öðrum orkugjöfum. Ný-
lega pantaði bandaríski herinn 522
mótorhjól frá Kawasaki er ganga
fyrir dísilolíu. Er þetta fyrsta fjölda-
framleidda dísilmótorhjólið fyrir
heimsmarkað, en áður hafði Royal
Enfield í Indlandi framleitt einfalt
dísilmótorhjól. Hjólið er byggt á
traustum grunni KLR650-hjólsins
og er vélin 584 rúmsentimetrar og
skilar 28 hestöflum. Hámarkshrað-
inn er 140 km á klst. og eyðir hjólið
rétt innan við 2,5 lítrum á hundraðið.
Aðalkostur dísilolíunnar, að mati
bandaríska hersins, er að einfaldara
er að fá eldsneyti á hjólið við styrj-
aldaraðstæður þar sem það getur
fengið það af næsta skriðdreka ef því
er að skipta.
Rafdrifinn krossari
Electric Moto er nýtt krosshjól
með rafmagnsmótorsem hefur svip-
að afl og hjól með 200 rúmsentimetra
bensínmótor en er hávaðalaust.
Hjólið er byggt á léttri grind og hafa
þekkt nöfn eins og Travis Pastrana
og Mike Metzger prófað gripinn og
hrifist af eiginleikum hans. Er það
aðeins nokkrum hestöflum kraft-
minna en Honda XR250 en hvorki
meira né minna er 35 kílóum léttara.
Auk þess hefur það meira snúnings-
vægi í afturdekk sem skilar sér í
betra viðbragði frá inngjöf. Hægt er
að stilla næmi hennar og líka afl
hjólsins með tölvu.
Drægni hjólsins er þó takmörkuð
sem er Akkilesarhæll allra rafknú-
inna fararækja. Rafmagnshjól virð-
ast þó eiga framtíð fyrir sér því að
samkvæmt japanska mótorhjóla-
tímaritinu Cycle Press er áætlað að
einn milljarður rafdrifinna mótor-
hjóla verði kominn á markað árið
2020.
Vetnisknúin vespa
Honda hefur kynnt aðra útgáfu
FC Stack-vetnisvespu sinnar sem er
bæði minni og léttari en áður. Hjólið
er nú svipað að afli og þyngd og sam-
bærilegt 125 rúmsentimetra hjól.
Unnið er að því að bæta farangurs-
rými hjólsins til samræmis við venju-
leg bensínknúin hjól en vetnisrafall-
inn tekur meira pláss frá miðju þess.
Honda er einnig með tilraunatvinn-
hjól sem er byggt á 50 rúmsenti-
metra Dio Z4-skellinöðrunni. Það er
10 kílóum þyngra en bensínhjólið en
rafmótorinn, sem er hjálparmótor,
gerir það að verkum að eyðslan er
næstum helmingi minni. Einnig los-
ar það 37% minna af koltvíoxíði út í
andrúmsloftið.
Eins og í tvinnbílum hleður hjólið
rafgeyminn með þeirri umframorku
sem verður til við hemlun og slekkur
sjálfkrafa á bensínmótornum þegar
stoppað er. Fer vélin svo aftur í gang
um leið og gefið er inn.
Njáll Gunnlaugsson
Umhverfisvæn mótorhjól
Electric Moto er aðeins 75 kíló og hefur úr allt að 18 hestöflum að spila, en létt-
leiki er fyrir öllu í litlum krossurum eins og þessum.
Kawasaki hefur selt bandaríska hernum þessi dísilknúnu torfæruhjól sem
byggja töluvert á hinu trausta KLR650 hjóli.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 B 15
bílar
BELGÍSKA mótorhjólablaðið Motor-
Wereld tilkynnir á hverju ári hvaða
mótorhjóli hlotnast titillinn Mót-
orhjól ársins í heiminum. Safnað er
saman tilnefningum frá 12 stærstu
mótorhjólatímaritum í 12 löndum.
Meðal tímarita sem taka þátt í
könnuninni eru Cycle World frá
Bandaríkjunum, AMCN frá Ástralíu,
Bike frá Bretlandi, MO frá Þýska-
landi og Auto-By frá Japan. Önnur
lönd sem taka þátt í valinu eru
Grikkland, Frakkland, Noregur,
Spánn, Holland og Ítalía. Að þessu
sinni var það hið nýja BMW
R1200GS sem hlotnaðist þessi
heiður en fast á hæla þess kom
Kawasaki ZX-10R. Meðal kosta
BMW-hjólsins voru nefndar frábærar
bremsur, gott afl, mikil þægindi,
langdrægni og þýsk gæði. Einnig var
sérstaklega bent á bætta aksturs-
eiginleika, ekki síst fyrir það að hjól-
ið er um 40 kílóum léttara en fyrri
kynslóð þrátt fyrir stærri mótor.
ZX-10R var mest hampað fyrir
hrátt afl og um leið frábæra akst-
urseiginleika enda var mjótt á mun-
unum milli þessara hjóla. Í þriðja
sæti kom svo nýjasta kynslóð Yam-
aha R1-ofurhjólsins, en það hjól
keppir við Kawasaki-hjólið um at-
hygli kaupenda í þeim flokki.
Njáll Gunnlaugsson
BMW R1200GS-hjólið þykir æði sérstakt en um leið úthugsað. Sem dæmi um
það er goggurinn svokallaði fyrir ofan frambrettið en hann þrýstir hjólinu niður
að framan sem tryggir 50% meira grip á framdekkinu.
BMW
R1200GS
valið mótor-
hjól ársins
LÍKUR eru á því að MG Rover,
einn af síðustu bresku bílafram-
leiðendunum, verði innan tíðar í
eigu Shanghai Automotive Ind-
ustry í Kína, SAIC. Gangi þetta
eftir flyst stór hluti af framleiðsl-
unni til Kína. Samningaviðræður
hafa staðið yfir um málið í marga
mánuði, að því er fram kemur í
Financial Times. Þar kemur fram
að MG Rover sé að selja fram-
leiðslu á Rover 25 til SAIC, sem
þýðir að nálægt 2.000 manns missa
vinnu sína í Englandi, sem er þriðj-
ungur af heildarstarfsmannafjölda
MG Rover. SAIC hefur lýst yfir
áhuga á að eignast 75% eignar-
hluta í MG Rover.
Líkur á að MG Rover verði selt til Kína?