Morgunblaðið - 11.03.2005, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 B 19
bílar 480 8000
SELFOSSI
480 8000
Toyota Landcr. 90 VX disel,
árg. 11/2003, ek. 35 þús., sjálfskipt-
ur. Verð 5.150 þús.
Toyota Landcr. 90 GX dísel, árg.
2000, gullsans, ek. 171 þús., sjálfsk.
Verð 2.500 þús.
Bílasala Suðurlands - Fossnesi 14 - 800 Selfossi
www.toyotaselfossi.is • toyotaselfossi@toyotaselfossi.is
Toyota Landcr. 90 VX disel, árg.
2004, ekinn 22 þús., sjálfskiptur.
Verð 5.200 þús.
Toyota Landcr. 90 VX dísel, árg.
2002, ekinn 68 þús., sjálfskiptur.
Verð 3.650 þús.
Toyota Landcr. 100 bensín, árg.
2003, vínrauður, ek. 30 þús., sjálfsk.
Verð 6.570 þús.
Toyota Landcr. 100 TDI, 35" dekk,
árg. 1998, vínrauður, ek. 274 þús.,
sjálfsk. Verð 3.690 þús.
Ford F 250 X-CAB disel, 35" dekk,
árg.1999 (12/1998), toppeintak,
sjálfsk., leður o.fl., ekinn 106 þús.
Verð 2.450 þús.
Ford F 250 Lariat SUPERCAB 7.3
TDI, árg. 2000, leður o.fl., ekinn 140
þús. Verð 2.590 þús.
Ford F 250 Lariat 7,3 TDI, árg.
2000, 35" dekk, sjálfsk., leður o.fl.
Ek. aðeins 68 þús. Verð 3.090 þús.
GMC Sierra 2500 SLT Z 71 6.6
Duramax, árg. 7/2003 sjálfsk. leður
o.fl. Ekinn 49 þús. Verð 4.090 þús.
Ford F 250 Lariat 6,0 TD, árg.
2004, gullsans, sjálfskiptur, ekinn
50 þús. Verð 3.990 þús.
Ford F 250 Crew Cab 7,3 TDI
Platinum, árg. 2001, sjálfsk., ek.
157 þ., klædd skúffa, sumar- og
vetrard., leður o.fl. Verð 2.890 þús.
Toyota Landcr. VX dísel turbo,
árg. 1994, 33" dekk, sjálfsk., leður
o.fl. Ek. 278 þús. Verð 2.090 þús.
Toyota Landcr. 90 GX new dísel,
sjálfskiptur, ekinn 6 þús.
Verð 4.590 þús.
Toyota RAV 4 VVTI 2000, árg.
11/2001, sídrif, sjálfskiptur, ekinn 30
þús. Verð 2.150 þús.
Dodge Dakota SLT 4,7 bensín,
árg. 2001, 240 hö, aksturstölva, 8
hátalara hljómkerfi, kæling á skipt-
ingu og stýrisvél, klædd skúffa,
auka álfelgur og ný dekk o.fl. Ekinn
31 þús. Verð 2.370 þús.
NÝ kynslóð Honda Civic, sú átt-
unda í röðinni, er væntanleg á
markað í byrjun næsta árs. Á bíla-
sýningunni í Genf var sýnd hug-
myndaútfærsla af bílnum, sem er
afar sportleg og ekki talin mjög frá-
brugðin framleiðslubílnum þegar
hann kemur á markað. Þessi bíll er
sérstaklega hannaður fyrir Evrópu-
markað og verður smíðaður í Eng-
landi í sömu verksmiðju og núver-
andi gerð Civic er framleidd.
Núverandi gerð kom á markað fyrir
fjórum árum, og er því ekki sérlega
gömul, en engu að síður telur
Honda að tími sé kominn til að
skipta henni út.
Honda hefur gefið það út á nýr
Civic verði aðgreindur frá öðrum
bílum í c-stærðarflokki. Hann verði
sportlegri og keppi fremur við bíla
eins og Audi A3 Sportback og
BMW 1-línuna en VW Golf eða
Opel Astra.
Bíllinn verður líklega boðinn með
2,2 lítra dísilvél, sem skilar 140
hestöflum og 340 Nm togi. Þessi vél
yrði óhagkvæm í innflutningi til Ís-
lands þar sem vörugjald breytist
við 2,0 lítra markið. Þannig bæri
hann 40% vörugjald í stað 30%,
sem hækkar hann mikið í verði. En
þá er bara að velja eina af mörgum
bensínvélum sem bíllinn verður
boðinn með. Honda hefur hins veg-
ar ekki gefið upp frekari upplýs-
ingar um vélakostinn.
Óneitanlega hinn sportlegasti og á að keppa við dýrari bíla en áður.
8. kynslóð Honda Civic
Hugmyndaútfærsla af nýjum Civic var sýnd í Genf.
LÚXUSBÍLAMERKI Fiat er sem kunnugt er Alfa Romeo og
Maserati. Nýlega var frumsýndur Alfa Romeo 159, sem næsta
haust leysir af hólmi 156, sem margir eru á götunni hér á landi.
Seinna á árinu kemur jafnframt á markað kúpubakurinn Brera,
sem byggður er á sama undirvagni og 159. Þessir bílar munu
eiga að ýta undir sölu á Alfa-bílum, sem nú eru til í fjórum gerð-
um, þ.e. 147, Spider-sportbíllinn, 156 og 166. 147 og 166 eru
nokkuð farnir að reskjast; 147 kom í sinni fyrstu gerð 1994 og
166 1998. Mjög líklegt er að talið að Spider-sportbíllinn hverfi og
í hans stað komi blæjugerð af Brera, en 166 hverfi og í stað komi
169.
Samstarf Alfa Romeo og Maserati
Fiat er móðurfélag Alfa Romeo, Maserati, Lancia og Ferrari.
Áður var Maserati undir Ferrari, líkt og Lamborghini er undir
Audi. Nú hefur þessu verið breytt og Maserati heyrir nú beint
undir Fiat. Ástæðan fyrir þessu er sú að styrkja ímynd og sam-
vinnu milli Alfa Romeo og Maserati. Samstarfið verður svo náið
að Alfa Romeo- og Maserati-bílar verða byggðir á sama und-
irvagni. Þannig er t.d. reiknað með því að næsta kynslóð Maser-
ati Spider og væntanlegur borgarjeppi Maserati, sem kallast
Kubang, verði báðir smíðaðir á sama undirvagn og Alfa Romeo
Brera og Alfa Romeo 159. Sömuleiðis verði væntanlegur Alfa
169 smíðaður á sama undirvagn og Maserati Quattroporte.
En ekki er nóg með að mikið samstarf verði tekið upp milli
Alfa Romeo og Maserati. Bæði merkin eiga að herja inn á
Bandaríkjamarkað. Maserati er reyndar þegar í boði vestra en
Alfa Romeo dró sig út af honum árið 1995. Því hefur núna verið
lýst opinberlega yfir af stjórnendum Alfa Romeo að kynna eigi
merkið á ný í Bandaríkjunum árið 2007. Þar með þarf Alfa
Romeo að uppfylla margvíslegar kröfur sem bandaríski mark-
aðurinn gerir til bíla, t.a.m. á sviði véla og öryggisbúnaðar.
Maserati Kubang, fjórhjóladrifinn borgarjeppi. Alfa Brera verður roadster og sennilega líka blæjubíll Alfa Romeo.
Náið samstarf Alfa og Maserati
Mikið breyttur Alfa 156 – en heitir reyndar núna 159.
Nýr 159 leysir 156-bílinn af hólmi.