Morgunblaðið - 31.03.2005, Síða 6

Morgunblaðið - 31.03.2005, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR A U G L † S IN G A S T O F A E .B A C K M A N SVO virðist sem meira beri orðið á neikvæðum viðhorfum unglinga til nýbúa samkvæmt könnunum sem Rannsóknir og greining hafa gert fyrir Rauða kross Íslands. Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri RKÍ, segir þessar niðurstöður sýna að efla þurfi enn fræðslu og forvarnir í því skyni að auka umburðarlyndi og draga úr fordómum. Hún sagði það stefnu Rauða krossins að afla sér upplýsinga með rannsóknum sem þessum til að undirbyggja starf sitt. Rannsóknir og greining hafa þrisv- ar kannað viðhorf grunnskólanema fyrir RKÍ, árin 1997, 2000 og 2003. Hafa kannanirnar náð til allra nem- enda í 9. og 10. bekk og er svarhlut- fallið í þeim öllum um og yfir 85%. Helstu niðurstöðurnar voru kynntar á blaðamannafundi hjá Rauða kross- inum í gær. Verður nánar skýrt frá þeim á málþingi um innflytjendur sem halda á í Norræna húsinu í dag. Sem dæmi um breytingu á við- horfum má nefna svör við því hvort unglingar séu sammála eða ósam- mála þeirri fullyrðingu að sú menning sem fylgi nýbúum hafi jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Árið 1997 voru 15% ósammála þeirri fullyrðingu en árið 2003 var hlutfall þeirra sem voru ósammála komið í 27%. Hlutfall þeirra sem hvorki voru sammála né ósammála fullyrðingunni hafði minnkað úr 53% árið 1997 í 45 fyrir tveimur árum. Einnig var spurt um viðhorf til þeirrar fullyrðingar hvort of margir nýbúar séu á Íslandi. Árið 1997 voru 29% ósammála henni en árið 2003 var hlutfall þeirra komið niður í 19%. Á sama hátt hafði fjölgað þeim sem voru sammála fullyrðingunni og sögð- ust 24% vera sammála því árið 1997 að of margir nýbúar væru á Íslandi en árið 2003 var 41% svarenda orðið sammála fullyrðingunni. Neikvæðari viðhorf áhyggjuefni Ómar H. Kristmundsson, formað- ur Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands, sagði á fundinum að nota yrði rannsóknir til að móta stefnuna í fræðslumálum gagnvart viðhorfum til nýbúa. Sagði hann það áhyggjumál hversu viðhorfin hefðu breyst á þess- um fáu árum sem liðið hefðu milli rannsókna og ljóst væri að unglingar væru nú orðið neikvæðari í garð ný- búa en áður. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, frá Rannsóknum og greiningu, sagði að ýmsir félagslegir þættir réðu nokkru um viðhorf unglinganna. Þannig sagði hún jákvæð viðhorf þeirra til náms og meiri menntun foreldra hafa í för með sér almennt jákvæðari við- horf og meira umburðarlyndi í garð nýbúa en þeirra sem ættu minna menntaða foreldra og hefðu neikvæð viðhorf til skólans. Þá væri viðhorfið neikvæðara hjá unglingum sem reyktu og/eða neyttu áfengis en þeirra sem ekki gerðu það. Kemur fram að viðhorf stúlkna eru almennt jákvæðari en pilta. Þannig eru 34% pilta ósammála þeirri fullyrðingu að sú menning sem fylgi nýbúum hafi já- kvæð áhrif á íslenskt samfélag en 20% stúlkna eru því ósammála. Bryn- dís sagði þessi atriði marktæk í rann- sókninni en ekki vega þungt í nið- urstöðunum. Sigrún Árnadóttir segir ljóst að efla verði forvarnir með fræðslu í leikskólum og grunnskólum til að stuðla að jákvæðum viðhorfum í garð útlendinga. Rauði krossinn hef- ur gefið út ýmislegt fræðsluefni sem kennarar og leikskólakennarar geta stuðst við í slíkri vinnu. Þá fer fram margs konar fræðslustarfsemi á veg- um Alþjóðahússins sem Rauði kross- inn stendur að. Viðhorf til nýbúa kannað fyrir Rauða kross Íslands meðal grunnskólanema Meira um neikvæð viðhorf til nýbúa Morgunblaðið/RAX Þau kynntu niðurstöður viðhorfskönnunarinnar. Frá vinstri: Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, frá Rannsóknum og greiningu, Ómar H. Kristmunds- son, formaður Reykjavíkurdeildar RKÍ, Sigrún Árnadóttir, fram- kvæmdastjóri RKÍ, og Helga G. Halldórsdóttir, sviðsstjóri innanlandssviðs. joto@mbl.is Eftir Jóhannes Tómasson og Svavar Knút Kristinsson VINKONURNAR Guðrún Erna Leví og Guðrún Erla Bjarna- dóttir eru þrettán ára. Þær segjast ekki gjörla vita hvers vegna fordómar og neikvæð viðhorf eru að aukast meðal ungs fólks. „Við eigum fullt af vinum sem eru Kínverjar eða af asískum uppruna. Við tökum þeim mjög vel, en það eru aðrir sem taka þeim öðru- vísi og kalla þá t.d. grjón,“ segir Guðrún Erna. „Þetta er rangt, þeir eru ekkert öðruvísi en við.“ Guðrún Erla, sem gengur í Kársnesskóla, hefur ekki orðið vör við kyn- þáttafordóma í sínum bekk, en Guðrún Erna, sem er í Langholtsskóla, seg- ist verða nokkuð vör við kynþáttafordóma meðal sinna bekkjarfélaga, að- allega strákanna. „Ég held að þetta sé öfundsýki,“ segir Guðrún Erna. Stúlkurnar segja afar nauðsynlegt að breyta ástandinu og minnka for- dóma meðal ungs fólks. Aðspurð hvernig mögulegt sé að bæta ástandið segir Guðrún Erla nauðsynlegt að hver einstaklingur horfi í sinn garð og taki á málum út frá sinni samvisku. „Ég veit ekki hvernig öðruvísi er hægt að taka á svona hlutum.“ Guðrún Erna og Guðrún Erla segja að ein- staklingar þurfi að takast á við eigin fordóma. Fólk þarf að taka á eigin fordómum Morgunblaðið/Golli HALDIÐ verður í dag rann- sóknarþing um málefni inn- flytjenda á Íslandi. Fer það fram í Norræna húsinu í Reykjavík og stendur frá 9 til 16. Að þinginu standa Rauði kross Íslands, Alþjóðahús, Háskóli Íslands og Kenn- araháskóli Íslands. Fjallað verður annars veg- ar um málefni innflytjenda og samfélagsins og hins veg- ar um innflytjendur og menntakerfið. Kynnt verður samantekt á rannsóknum og ritgerðum um málefni inn- flytjenda, rætt t.d. um að- stæður starfsmanna af er- lendum uppruna hjá Félagsþjónustunni í Reykja- vík, viðhorf innflytjenda til búsetu, vinnu og fleiri atriða. Þá verður fjallað um sam- starf í leikskólum við for- eldra af erlendum uppruna, um málumhverfi tvítyngdra leikskólabarna og rannsókn á árangri nemenda frá As- íulöndum, svo nokkuð sé nefnt. Málþing um rannsóknir á málefnum innflytjenda ÞEIR Páll Ágúst Karlsson, Kjartan Pétursson og Birgir Ólafur Guð- laugsson segjast allir verða varir við fordóma gagnvart útlend- ingum, en segja þá ekki ríkjandi í sínum vinahópi, enda sé hann blandaður. „Ég hef ekki kynnt mér þetta neitt, ég hef ekkert á móti öðru fólki eða öðrum kynþáttum,“ segir Páll sem er átján ára. „Við fé- lagarnir vorum uppi í Fjölbraut í Garðabæ áðan og einn vinur minn sem er af indónesískum uppruna. Og af því að hann vissi ekki að stelpa sem hann var að reyna við ætti kærasta var hann bara kall- aður negraskítur þegar hann labb- aði út.“ Orsakir aukinna fordóma telja þeir félagar líklegast vera þær að meira beri á fólki af erlendum upp- runa og einhverjum Íslendingum finnist sér ógnað af veru þeirra hér. „Kannski finnst mönnum að þeir séu að eigna sér landið og séu orðnir of margir. Þeir koma hingað og vinna störfin sem við viljum ekki vinna og þá byrjar eitthvert fólk að væla yfir því,“ segir Birgir. „En það þarf að auka fræðsluna í skól- unum og upplýsa unglinga. Það er lítið tekið á þessu í skólunum.“ Kjartan, sem er tvítugur, segir fordóma mega rekja til fáfræði. „Fólki finnst kannski eins og það sé verið að stela vinnunni og landinu frá því. Krakkarnir heyra svo ljóta hluti í fjölmiðlum og heima og upp- lifa fordóma sem eðlilega hluti,“ segir Kjartan. „Á tímum Rómverja og Egypta var þetta allt öðruvísi, menn áttu í miklu betri sam- skiptum, því þá voru menn upplýst- ari. Eftir nýlendustefnuna og þrælahaldið má segja að þetta hafi komið aftur í þessari hug- myndafræði sem er ríkjandi í dag.“ Kjartan segist einungis verða var við fordóma vegna öfundsýki eða afbrýðisemi. „Ég er alinn upp hérna og það segir enginn eitthvað svona við mig nema hann sé ein- hver nýnasisti eða eitthvað. Ég held að fordómar beinist miklu meira gegn þeim sem eru nýkomnir hingað, kunna ekki málið og halda sig þess vegna saman. Þeir eru ein- angraðir og eiga kannski ekki eins marga vini úr hópi hvítra Íslend- inga og þess vegna er auðveldara að hafa fordóma gegn þeim. Það er samt tímaspursmál hvenær Íslend- ingar verða tilbúnir og fordóm- arnir minnka. Þetta lagast þegar krakkarnir eru búnir að alast upp hér og aðlagast samfélaginu. Þetta er bara spurning um aðlög- unartíma bæði innflytjenda og Ís- lendinga. Þeir sem flytja hingað þurfa að aðlagast skráðum og óskráðum reglum um það sem er gott og rétt í samfélaginu. Auðvitað verða menn að aðlagast aðstæðum. Maður verður að gefa af sér til að geta tekið út. Annars verður manni bara útskúfað. Þá skiptir ekki máli hvort maður er litaður.“ Spurning um aðlögunartíma Morgunblaðið/Golli Páll Ágúst Karlsson, Kjartan Pétursson og Birgir Ólafur Guðlaugsson telja nauðsynlegt að Íslendingar og nýbúar lagi sig að breyttum aðstæðum. svavar@mbl.is BILUN varð í háspennustreng hjá Orkuveitu Reykjavíkur kl. 18.50 í gærkvöldi og leiddi bilunin til þess að fjórum spennistöðvum sló út. Af þeim sökum varð raf- magnslaust í Skipholti, Brautar- holti og við efsta hluta Laugaveg- ar í rúman klukkutíma, en rafmagn var aftur komið á kl. 20 í gærkvöldi. Bilun leiddi til raf- magnsleysis í Holtum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.