Morgunblaðið - 31.03.2005, Side 15
Reykjavík | Það hefur viðrað
ágætlega fyrir þá sem vinna
utandyra síðustu daga, en aldrei
að vita hvað það endist lengi.
Jesper Ipsen, sem vinnur hjá
Björgun, var önnum kafinn við
störf sín þegar ljósmyndari átti
leið hjá. Félagið, sem stofnað var
árið 1952, einbeitti sér fyrstu ár-
in að björgun strandaðra skipa
og má segja að í tengslum við
þau verkefni hafi nafngiftin kom-
ið. Fyrsta verkefni félagsins var
að vinna að niðurrifi flutninga-
skipsins Clam sem strandað
hafði á Reykjanestá. Meðal
stofnenda félagsins var Kristinn
Guðbrandsson og var hann helsti
sérfræðingur þess um björgun
strandaðra skipa og í raun þjóð-
sagnapersóna fyrir þau afrek.
Morgunblaðið/Eyþór
Önnum kafinn
Neistaflug
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Spellvirki | 19 rúður voru brotnar í hús-
um við Garðarsbrautina á Húsavík um
páskana og ein bílrúða að auki. Rúðurnar
voru fyrst og fremst brotnar hjá fyrir-
tækjum og tækið sem var notað til þess
var að öllum líkindum öflug teygjubyssa
sem skaut stálkúlum, en túttubyssa kem-
ur einnig til greina að því er fram kemur
á vef Skarps á Húsavík. Haft er eftir yfir-
lögregluþjóni staðarins að teygjubyssa
hafi verið gerð upptæk, „og ef sú sem not-
uð var nú er af því taginu, þá eru þetta
svo kraftmikið tól að það er auðveldlega
hægt að drepa mann með stálkúlum sem
skotið er úr þeim“. Lögreglan rannsakar
spellvirkin og þiggur allar upplýsingar
sem leitt gætu til lausnar.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
900 pylsur | Mikil umferð var um
Hólmavík um nýliðna páskahelgi en til
marks um það má nefna að í söluskála stað-
arins voru seldar yfir 900 pylsur auk þess
sem gestir gæddu sér á öðrum skyndibita,
hamborgurum og samlokum. Á vefnum
strandir.is er haft eftir starfsfólki söluskál-
ans á Hólmavík að umferð hafi dreifst
meira en áður um þessa frídaga.
Vel sóttar páskamessur | Messað var í
Laufáskirkju að kvöldi föstudagsins langa
og að venju var páskamessa í Grenivíkur-
kirkju kl. 8 á páskadagsmorgun. Fjölmenni
var við báðar messurnar og virðist fólki líka
vel að byrja páskadaginn með messu, segir
í frétt á vef Grýtubakkahrepps.
Að lokinni messu bauð kirkjukórinn upp
á morgunverð í Grenivíkurskóla. „Hefur
þessi siður tíðkast síðastliðin ár og er af-
skaplega notalegur. Að morgunverði lokn-
um var nægur tími eftir til að njóta veður-
blíðunnar sem var einstök,“ segir á
grenivik.is.
BjörgunarskipBjörgunarsveit-arinnar Strandar
og Björgunarbátasjóðs
Húnaflóa kom til landsins
á sunnudaginn var. Sam-
skip flutti skipið frá Eng-
landi og skipaði því upp í
Reykjavík.
Verið er að undirbúa
skipið til siglingar í
heimahöfn á Skaga-
strönd.
Um er að ræða fullbúið
björgunarskip en Lands-
björg hefur á und-
anförum árum staðið fyr-
ir átaki í að kaupa hingað
skip frá Bretlandi og
staðsetja víðsvegar um
landið, eða alls fjórtán
skip og eru þau í öllum
landsfjórðungum.
Frá þessu er sagt á
vefnum skagaströnd.is.
Björgunarskip
KB banki á Hólmavík gaf
á dögunum Grunnskól-
anum átta notaðar tölvur.
Þær eiga eflaust eftir að
koma sér vel í skólastarf-
inu.
Myndin var tekin við
afhendingu gjafarinnar
en á henni eru þau Victor
Örn Victorsson skóla-
stjóri og Þorbjörg Magn-
úsdóttir og Elsa Björk
Sigurðardóttir starfs-
menn bankans.
Gaf tölvur
Hreiðar Karlssonorti um „óska-barn þjóð-
arinnar“:
Þá er Bobby Fischer frjáls á ný,
ferskir vindar leika um skegg og kinnar.
Eflaust verður einhver bið á því
að hann læri að gæta tungu sinnar.
Kristján Bersi Ólafsson
svarar Hreiðari:
Styðja ber þá sem steyta í sífellu
görn
gegn stórveldahroka og rangsleitni
veraldarinnar,
og tilveran yrði auk þess mjög l
leiðigjörn
ef allir færu að gæta vel tungu
sinnar.
Kristján Eiríksson yrkir:
Í ólöndum þola varð hríðar og hregg
sá hógværi skáklistarmaður
sem hingað er kominn með hár sitt og
skegg
svo háttvís og kurteis og glaður.
Er Fischer vér heimtum af fjarlægri
grund
vér fögnum en Búss skal í staðinn
fá heim sína dáta sem drykklanga
stund
hér dvöldu – svo bættur mun
skaðinn.
Enn af Fischer
pebl@mbl.is
Ísafjörður | Miðfell hf. hefur fengið
heimild til að leita nauðasamninga, en
úrskurður þess efnis var kveðinn upp í
Héraðsdómi Vestfjarða í gærdag.
Umsjónarmaður er Sigurbjörn Magnús-
son hrl.
Félagið var stofnað árið 1999 og hefur
rekið rækjuverksmiðju á Ísafirði en það
er einn stærsti vinnuveitandi í bænum,
með um 40 starfsmenn.
Nauðasamningarnir ná til almennra
krafna félagsins en félagið býðst til að
greiða 30% krafna í einni greiðslu innan
fjögurra vikna frá því samningurinn er
endanlega staðfestur. Kröfuhafar get
einnig valið að eignast hlutafé í félaginu
fyrir sömu fjárhæð að nafnverði og krafa
þeirra stendur í á úrskurðardegi. Allar
kröfur undir 50 þúsund krónum verða að
fullu greiddar. Forsvarsmenn félagins
hafa að undanförnu unnið að fjárhags-
legri endurskipulagningu en í bréfi sem
vefur Bæjarins besta vitnar til segir að
með samningum við Byggðastofnun og
helstu lánardrottna um skuldbreytingar
og nýjum langtímafyrirgreiðslum hafi
tekist að útvega fjármagn til áframhald-
andi aðgerða til bjargar félaginu.
Á síðastliðnu ári var unnið úr um 7.000
tonnum af hráefni hjá fyrirtækinu og
veltan var um 1.200 milljónir króna.
Stærstu hluthafar eru Kagrafell á Ísa-
firði, Hraðfrystihúsið Gunnvör í Hnífsdal
og Ísafjarðarbær sem á 16% í félaginu,
en bærinn gerðist hluthafi á liðnu ári
þegar skuldum fyrirtækisins var breytt í
hlutafé.
Miðfell fær
heimild til að
leita nauða-
samninga
SOFFÍA Gísladóttir hefur verið ráðin
forstöðumaður Símenntunarmiðstöðvar
Eyjafjarðar – SÍMEY og hefur hún
störf í apríl.
Soffía lauk BA-prófi í uppeldis- og
menntunarfræði við HÍ 1994 en árið
2004 útskrifaðist hún með kennslufræði
til kennsluréttinda, einnig frá HÍ.
Soffía hefur víðtæka reynslu að skóla-
málum, starfaði nú síðast sem félags-
málastjóri á Húsavík og í Þingeyjar-
sýslum frá 1995 en verksvið hennar
hefur m.a. verið að sinna félagsþjónustu,
barnavernd, málefnum fatlaðra og skóla-
þjónustu.
Soffía tekur við af Katrínu Dóru Þor-
steinsdóttir sem hefur gegnt starfi for-
stöðumanns SÍMEY frá upphafi en
SÍMEY hóf starfsemi í júní árið 2000.
Soffía ráðin
forstöðumaður
♦♦♦
SKÍÐASVÆÐI Austfirðinga í
Stafdal í Seyðisfirði og Oddskarði
í Fjarðabyggð voru opin um
páskana þó að ekki væri hægt að
segja að miklum snjó væri til að
dreifa.
Á laugardeginum fyrir páska
var haldið páskaeggjamót í Odd-
skarði, annars má segja að veð-
urblíðan hafi leikið um Austfirð-
inga yfir páskahátíðina og nutu
þeir hennar til hins ýtrasta.
Ljósmynd/Einar Bragi Bragason
Leikur listir sínar
Öldruð hæna | Ólöf Sveinsdóttir, bóndi í
Árdal hefur ræktað íslensk hænsni um
nokkur skeið en í hópnum er m.a. ein hæna
sem er yfir 10 ára gömul. Frá þessu er
greint á vefnum kelduhverfi.is þar sem
jafnframt er að finna myndir af hænum
Ólafar. Fram kemur að hún er að velta því
fyrir sér hvort það sé ekki óvenjulegt að
hænur nái 10 ára aldri.
Hænsnaræktin er tómstundagaman hjá
Ólöfu en lífrænt ræktað sauðfé hennar aðal-
áhugamál.
Einnig er Ólöf sláturhússtjóri hjá
fiskeldisstöðinni Rifósi í Kelduhverfi og
varaoddviti hreppsins, þannig að Ólöf hefur
í nógu að snúast, segir á vefnum.