Morgunblaðið - 31.03.2005, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 31.03.2005, Qupperneq 44
44 FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ Stóra svið Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Lau 2/4 kl 14 – AUKASÝNING Su 3/4 kl 14 – AUKASÝNING Lokasýningar HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Lau 23/4 kl 20, Fö 29/4 kl 20 AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA Í kvöld kl 20, Su 3/4 kl 20, Fi 21/4 kl 20 - Síðasta sýning Ath: Miðaverð kr 1.500 SEGÐU MÉR ALLT - Taumlausir draumórar? AMERICAN DIPLOMACY eftir Þorleif Örn Arnarsson Í samstarfi við Hið lifandi leikhús Fö 1/4 kl 20 - Síðasta sýning SVIK eftir Harold Pinter Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA. Lau 2/4 kl 20, Lau 9/4 kl 20 Síðustu sýningar HOUDINI SNÝR AFTUR Fö 1/4 kl 20 - AUKASÝNING Síðasta sýning SEGÐU MÉR ALLT e. Kristínu Ómarsdóttur Fö 1/4 kl 20, Lau 9/4 kl 20, Su 17/4 kl 20 LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA - UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið - kynning á verki kvöldsins Kl 19:00 Matseðill kvöldsins Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA - gildir ekki á barnasýningar! Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Einleikur Eddu Björgvinsdóttur Í kvöld kl 20 - UPPSELT, Fö 1/4 kl 20, Lau 2/4 kl 20 - UPPSELT, Su 3/4 kl 20 - UPPSELT, Fi 14/4 kl 20 - UPPSELT, Fö 15/4 kl 20 - UPPSELT, Lau 16/4 kl 20 - UPPSELT, Su 17/4 kl 20, Mi 20/4 kl 20 - UPPSELT HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftir vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar Fi 7/4 kl 20, Fö 8/4 kl 20, Lau 16/4 kl 20, Su 17/4 kl 20, Fi 21/4 kl 20, Fö 22/4 kl 20, Lau 30/4 kl 20 DRAUMLEIKUR eftir Strindberg Samstarf: Leiklistardeild LHÍ Lau 9/4 kl 20, Su 10/4 kl 20, Fi 14/4 kl 20 Síðustu sýningar RIÐIÐ INN Í SÓLARLAGIÐ e. Önnu Reynolds Í samstarfi við Leikhópinn KLÁUS Aðalæfing fi 7/4 kl 20 - kr. 1.000, Frumsýning fö 8/4 kl 20 - UPPSELT, Fö 15/4 kl 20, Lau 16/4 kl 20 HÁSKÓLABÍÓI, LAUGARDAGINN 2. APRÍL KL. 15.00Tónsprotinn #4 Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is Ævintýralegir tónleikar Hljómsveitarstjóri ::: Guðmundur Óli Gunnarsson Sögumaður og kynnir ::: Örn Árnason Árni Björnsson ::: Forleikur að Nýársnóttinni Fuzzy / H.C. Andersen ::: Förunauturinn Benjamin Britten ::: Hljómsveitin kynnir sig ER BAKHJARL TÓNSPROTANS Tónleikaröð fjölskyldunnar, Tónsprotinn, hefur slegið í gegn í vetur. Þessir ævintýralegu tónleikar eru tileinkaðir H.C. Andersen á 200 ára fæðingarafmæli hans. LEIKFÉLAG Hörgdæla hefur unnið sér gott orð undanfarin ár með vönduðum leiksýningum þar sem valinn maður er í hverju rúmi. Saga Jónsdóttir leikstýrir hér þriðju sýningunni hjá félaginu og bregst ekki bogalistin fremur en fyrr. Að velja alvarlegt og beitt raunsæisverk næst á eftir gam- anleiknum Klerkum í klípu í fyrra ber vitni hugrekki og metnaði en sýning félagsins nú á Stundarfriði er í stuttu máli vel unnin og áhrifa- mikil. Þó að Stundarfriður sé beitt og alvarlegt verk er auðvelt að hlæja á sýningunni og það oft. Við hlæjum nefnilega þegar við sjáum eitthvað sem er svo satt að það snertir okk- ur. Þegar verkið var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1979 var það næstum súrreal- ískt hvernig manneskjurnar voru ofurseldar tækni, hraða og stressuðum sam- skiptum á nú- tímaheimili. Að því leyti var sýningin eins og forspá eða aðvörun. Það er sláandi að sjá hjá Hörgdælum núna hve Guð- mundur Steinsson var forspár og að mennirnir hafa ekki séð að sér nema síður sé. Leikritið er um fjöl- skyldu sem æðir inn og út af heimili sínu þar sem öllu gömlu er hent og símar hringja samfellt; það talar í síma, horfir látlaust á sjónvarpið og hlustar á tónlist í tækjum, borðar ekki saman nema á jólunum, skilur ekki hugsunarhátt annarra kyn- slóða en sinnar eigin, lætur ekki hrífast, finnur ekki til með öðrum. Það er ekki vegna illsku eða eig- ingirni heldur vegna álagsins, hrað- ans, tækjagræðginnar og vegna þess að persónur Guðmundar eru pikkfastar í neti sem enginn vill vera í. Andstæðurnar við þetta fólk eru foreldrar heimilisföðurins sem fulltrúar gamla tímans og yngsta dóttirin; unglingur sem dregur sig inn í sinn eigin heim og mótmælir þannig ástandi sem hún skilur ekki. Allt þetta er dregið svo skýrum dráttum í sýningunni að sannleikur hennar hittir óþyrmilega í mark. Saga Jónsdóttir er afar flink við að vinna með hröð og tæknileg sam- skipti og samtöl þar sem allt er hár- rétt; afstaða persóna hver til ann- arrar, vinna með ótal leikmuni, nýtingu á rýminu, inn- og útkomur. Leikararnir eru misreyndir, sumir ekkert og aðrir mikið en allir léku áreynslulaust og hópurinn var sem einn maður. Tryggvi Gunnarsson og Fanney Valsdóttir léku hjónin Har- ald og Ingunni mjög sannfærandi sem nútímafólk, dálítið ringlað og hætt við stresssjúkdómum en ákveðið í að lifa sínu nútímalífi til fulls, ánægt með að hafa skoðanir og vinnu og að vera að byggja en þurfa taugatöflur við öllu álagi. Ívar Björnsson lék unglinginn Árna af list, hengslalegan og sjálfhverfan, ófæran um allt nema samskiptin við vinina og íþróttir. Ásta Júlía Að- alsteinsdóttir lék eldri dótturina Mörtu, hún var skemmtilega skvísuleg og upptekin af sénsunum sínum. Vigdís María Her- mannsdóttir, sem er aðeins fjórtán ára, lék hina sérstöku Guðrúnu mjög vel. Hún sýndi tilfinningar hennar með tempruðum leik en birti jafnframt skýrt hvernig ung- lingar geta lokað sig af frá öðrum með líkamsbeitingu og tómlæti. Gömlu hjónin voru fallega leikin af Sesselju Ingólfsdóttur og Hjörleifi Halldórssyni og hina ólíku kærasta Mörtu léku þeir Einar Þórir Árna- son og Þórir Ármannsson sannfær- andi og vel. Leikmynd Þórarins Blöndals var jafnglæsileg og nostursamlega unn- inn og jafnan hjá honum, búning- arnir voru eðlilegir og lýsingin og hljóðið mjög vel gert. Það eina sem finna má að sýningunni voru langar myrkvanir milli sumra atriðanna. En það er rík ástæða til að hvetja unnendur góðs leikhúss til að bregða sér að Melum því sýningin á Stundarfriði skilur margt eftir sig. LEIKLIST Leikfélag Hörgdæla Höfundur: Guðmundur Steinsson. Leik- stjóri: Saga Jónsdóttir. Leikmynd: Þór- arinn Blöndal. Umsjón búninga: Saga Jónsdóttir. Lýsing og hljóðstjórn: Jóhann- es Gunnar Jóhannesson, Valgeir Árnason og Örn Þórisson. Sýning á Melum, Hörgárdal, 23. mars 2005 Stundarfriður Hrund Ólafsdóttir Guðmundur Steinsson JPV útgáfa hefur sent frá sér í kilju bókina Bella- donnaskjalið eftir Ian Caldwell og Dustin Thom- asson í þýðingu Magneu J. Matth- íasdóttur. Bella- donnaskjalið er spennusaga þar sem fléttað er saman listum, fróðleik og launráðum. Belladonnaskjalið hefur verið fræði- mönnum ráðgáta frá því það kom fyrst fyrir sjónir manna árið 1499. Leynd- ardómurinn um hver hinn raunverulegi höfundur þess er og merkingin á bak við dularfullt innihald skjalsins er enn óráðin. Um aldamótin 2000 freista tveir nemendur í Princeton-háskóla þess að reyna að leysa ráðgátuna. Framtíð þeirra er í húfi … en þar kemur að söguhetjurnar berjast ekki aðeins við að finna lausn gátunnar heldur líka að halda lífi … Belladonnaskjalið var á topp 5 lista New York Times í 20 vikur samfleytt eftir að bókin kom út í Bandaríkjunum. Spennusaga Vilborg Dagbjartsdóttir ogverk hennar eru viðfangs-efni ritþings sem haldið verður í Gerðubergi um helgina. Það er dr. Dagný Kristjánsdóttir prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands sem stjórnar þinginu, en spyrlar verða þau Guð- bergur Bergsson rithöfundur og Soffía Auður Birgisdóttir bók- menntafræðingur. Þá munu Viðar Eggertsson og Steinunn Ólafsdóttir lesa brot úr verkum Vilborgar. Þingið verður byggt þannig upp, að fyrri hlutinn verður helgaður lífi og list Vilborgar og verður sagan sögð út frá myndum, en í síðari hlut- anum verður sjónum beint að ljóð- um hennar. Það stendur yfir kl. 13.30–16 á laugardaginn og eru all- ir velkomnir.    Flestir þekkja eitthvað af verk-um Vilborgar Dagbjarts- dóttur, en hún hefur verið einn ást- sælasti rithöfundur okkar Íslendinga um áratuga skeið. Hún er vel þekkt fyrir ritstörf sín í þágu barna, en eftir hana liggja níu barnabækur og meira en þrjátíu þýðingar á erlendum barnabókum, þar á meðal nokkrum sem flestir kannast við á borð við Emil í Katt- holti eftir Astrid Lindgren. Þá hélt hún um árabil úti vinsælli barna- síðu Þjóðviljans. En ljóðin sín er hún kannski þekktust fyrir, því hún hefur gefið út fimm ljóðabækur og kom sú síð- asta út hjá JPV-forlagi í fyrra, Fiskar hafa enga rödd.    Að sögn Dagnýjar Kristjáns-dóttur prófessors, sem stjórna mun ritþinginu, hefur Vilborg Dag- bjartsdóttir haft mikla þýðingu fyr- ir íslenskar bókmenntir. „Þetta rit- þing er haldið af því að okkur finnst hún mikilvægt ljóðskáld,“ segir Dagný. „Hún hefur auðgað íslensk- ar bókmenntir bæði með sínum ljóðabókum og gefið okkur mikið, en líka með ljóðaþýðingum sínum. Það er svo mikið sem liggur eftir hana Vilborgu.“ Sjónum verður einkum beint að ljóðum Vilborgar á þinginu, ekki vegna þess að barnabækur hennar og þýðingar verðskuldi ekki at- hygli, heldur vegna þess að ljóðin hennar eru talin hafa skipt svo miklu máli þegar kemur að ís- lenskri ljóðagerð, að sögn Dagnýj- ar. Hún hafi verið ein fyrsta konan sem var virt og viðurkennd sem at- ómskáld, þó að hún hafi ekki verið sú fyrsta til að yrkja með þeim hætti.    Vilborg fæddist árið 1930 – samaár og nokkrar aðrar merk- iskonur í íslensku menningarlífi, þar á meðal Vigdís Finnbogadóttir forseti og Ásta Sigurðardóttir rit- höfundur, - og fagnar því 75 ára af- mæli í sumar. Hún er enn virk á rit- vellinum, því eins og áður sagði kom síðasta ljóðabók hennar út í fyrra. Að mati Dagnýjar verða ljóð Vil- borgar sífellt betri. „Fiskar hafa enga rödd er yndisleg bók,“ segir hún. „Reyndar eru allar ljóðabækur Vilborgar sérstakar og ólíkar. Og hún verður bara betri og betri.“    Í lokin er birt eitt af ljóðum Vil-borgar úr bókinni Fiskar hafa enga rödd: Vorljósir dagar með lóunnar dirrindí í votu fangi. Starrarnir sitja á sjónvarpsloftnetinu og herma sönginn Ljóðin hennar Vilborgar ’Flestir þekkja eitthvaðaf verkum Vilborgar Dagbjartsdóttur, en hún hefur verið einn ástsælasti rithöfundur okkar Íslendinga um áratuga skeið. ‘ Vilborg Dagbjartsdóttir skáld. ingamaria@mbl.is AF LISTUM Inga María Leifsdóttir Heppin eftir Alice Sebold er komin út í kilju hjá JPV útgáfu. Bókin kom út í innbund- inni útgáfu á síð- asta ári og hlaut mjög góða dóma. JPV hefur áður gefið út met- sölubókina Svo fögur bein eftir sama höfund. „Djúpt ígrunduð og grípandi frá- sögn, innblásin þeirri trú að hægt sé að ná fram réttlæti og halda fullri reisn jafnvel eftir hroðalega lífs- reynslu. Þetta er frásögn af hetjulegri baráttu sem rígheldur athygli lesand- ans frá upphafi til enda,“ segir í kynningu útgefanda. „Þessi bók á erindi við alla því hún fær okkur til að hugsa og hún fær okkur til að taka afstöðu, hún lætur engan ósnortinn,“ sagði Ingveldur Róbertsdóttir á kistan.is Friðrikka Benónýs sagði í Morg- unblaðinu: „Og það er þessi húmor sem gerir það að verkum að þrátt fyr- ir allt er Heppin skemmtileg bók. En hún er líka hræðilega sorgleg. Vel skrifuð og vel byggð. Sannfærandi og heiðarleg. Og áhrifameiri en nokkur skáldsaga sem ég hef lesið. Ætti að vera skyldulesning fyrir alla.“ Lífsreynsla

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.