Morgunblaðið - 31.03.2005, Side 17
Norðurlandaráð veitir í ár Náttúru- og umhverfisverðlaunin í
ellefta sinn. Þau nema 350.000 danskra króna og eru veitt
einkareknu eða opinberu fyrirtæki, hópi manna eða
einstaklingi sem sýnt hefur sérstaka framtakssemi á sviði
náttúru- og umhverfisverndar.
Þema ársins 2005.
Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið 2005
skulu veitt einstaklingi, fyrirtæki eða samtökum á Norður-
löndum sem vinna að því að viðhalda, nýta, vekja athygli á
eða stjórna landsvæði á Norðurlöndum sem hefur ríkt menn-
ingarsögulegt gildi, og stuðla þannig að varðveislu og þróun
náttúru- og menningarverðmæta.
Öllum er heimilt að tilnefna verðlaunahafa. Rökstyðja ber
tilnefninguna og láta fylgja lýsingu á viðkomandi verkefni og
upplýsingar um hver hefur staðið eða stendur að því.
Verkefnið verður að vera vel unnið og skipta máli í víðara
samhengi í einu eða fleiri ríkjum Norðurlanda. Tilnefningum
skulu gerð skil á mest tveimur blaðsíðum í A4-stærð.
Dómnefnd velur verðlaunahafa en í henni sitja fulltrúar
Norðurlandanna fimm og sjálfsstjórnarsvæðanna Færeyja,
Grænlands og Álandseyja.
Tilnefningin skal send á sérstöku eyðublaði sem á að hafa
borist skrifstofu Norðurlandaráðs í pósti í síðasta lagi
föstudaginn 29. apríl kl. 12.00. Eyðublaðið má nálgast á
heimasíðu ráðsins, www.norden.org, eða á skrifstofu
dönsku landsdeildarinnar:
Nordisk Råd
Den Danske Delegation
Christiansborg
DK-1240 København K
Sími +45 3337 5958
Fax +45 3337 5964
Netfang: nrpost@ft.dk
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 17
MINNSTAÐUR
Fáðu þessa fallegu snyrtitösku að
gjöf fulla af snyrtivörum. Meðal
annars ótrúlegir viðgerðardropar og
augnkrem, nýi XL maskarinn,
varalitur og fleira.
Allt þetta fyrir þig ef þú verslar
Estée Lauder vörur fyrir 3.500 kr.
eða meira á Kringlukasi í Lyf &
heilsu Kringlunni.*
Verðgildi gjafarinnar er um
kr. 7.900.
* Meðan birgðir endast
Kringlunni
Nú er rétti tíminn til að prófa
Nýtt Ideal Matte Refinishing
Compact Makeup SPF 12
Léttfarði. Frábær á allan hátt. Laufléttur,
slétt og eðlileg áferð, engin skil. Þessi
nýi, sérlega létti farði jafnar misfellur og
litaskil og er ótrúlega mjúkur. Virðist
eins og krem í byrjun en verður síðan
líkastur silkikenndu púðri. Færir þér
hvort tveggja í senn ferskt og eðlilegt
yfirbragð kremfarðans og lýtalausa áferð
púðurs. Hentar öllum húðgerðum.
GJÖF
www.esteelauder.com
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Hafnarfjörður | Niðurrif gömlu
Bæjarútgerðarinnar við Norður-
bakka í Hafnarfirði hefur tafist
nokkuð, en reiknað er með að því
ljúki fyrir lok aprílmánaðar. Í
verkáætlun var gert ráð fyrir því
að verkinu væri lokið um miðjan
apríl, en síðar uppgötvaðist að as-
best hafði verið notað í bygging-
unni þvert á það sem talið var.
„Þetta gengur þokkalega vel,“
segir Sigurjón Halldórsson, eig-
andi Bortækni karbó, verktakans
sem vinnur að niðurrifinu. „Það
átti ekki að vera neitt asbest í
húsinu, en þegar það uppgötvaðist
fóru alveg þrjár og hálf vika í að
rífa það niður.“ Sigurjón segir
fyrirtækið bæði hafa tilskilin leyfi
og útbúnað til að rífa niður as-
bestið, og því hafi það ekki verið
stórt vandamál þótt það hafi tafið
fyrir, enda þurfti að senda starfs-
mennina á námskeið til þess að
læra að fara með asbestið.
Stimplar olíufélaganna
saman í pakka
Mikið magn af úrgangi verður
til þegar svo stórar byggingar eru
rifnar; steypa, járn, timbur og
fleira. „Steypuúrgangurinn er
mulinn á staðnum og notaður í
uppfyllingu. Járnið fer allt í
Hringrás, og timbrið fer að mest-
um hluta í Gámaþjónustuna,“ seg-
ir Sigurjón.
Þegar hús af þessu tagi eru rif-
in finnast oft ýmsir fjársjóðir frá
fornri tíð þegar vel er leitað. „Það
var fullt af dóti þarna, fullt af
gömlum stimplum og alls konar
dóti. Þar á meðal stimplar frá öll-
um olíufélögunum í sama pakk-
anum,“ segir Sigurjón.
Asbestfundur tefur niðurrif húsanna á Norðurbakka
Morgunblaðið/Golli
Rífa Bæjarútgerðina Vel gengur að rífa gömlu Bæjarútgerðina þó framkvæmdir hafi tafist nokkuð.
Ætla sér að klára verkið
fyrir lok aprílmánaðar
Fáðu úrslitin
send í símann þinn
Túnin | Ljóst er að þörf verður fyr-
ir nýjan grunnskóla og leikskóla í
Túnahverfi þegar fram líða stundir
vegna þeirrar
miklu uppbygg-
ingar og fjölgun-
ar íbúa sem
stefnir í í hverf-
inu á næstu ár-
um. Áform um
slíkt er þó ekki
inni á þriggja ára
áætlun Reykja-
víkurborgar, seg-
ir Stefán Jón
Hafstein, formaður menntaráðs
borgarinnar. „Það er eðlilegur hluti
af því að skipuleggja þéttingu
byggðar að huga að innviðunum
sem þarf fyrir slíkt íbúðarhverfi,“
segir Stefán Jón. Hann segir upp-
byggingu við Hlemm, á Bílanausts-
reit, Sigtúni og víðar kalla á nýjan
skóla í hverfinu, og segir að hann
geti hugsanlega verið staðsettur á
Ármannstúninu. Ljóst sé að Austur-
bæjarskóli taki ekki við fleiri nem-
endum og því þurfi þetta að koma
til.
Ekki er komin nein tímasetning á
hvenær grunnskóli eða leikskóli
verða byggðir og Stefán segir áform
um skólann ekki inni í þriggja ára
áætlun borgarinnar. Ekki er heldur
búið að ákveða hvort skólinn verður
fyrir 1. til 10. bekk, eða bara fyrir
fyrstu bekkina.
„Í raun vitum við ekki hversu
hratt þetta byggist upp, hver þörfin
verður, og hvers konar íbúar flytja
þarna inn,“ segir Stefán Jón. Þetta
er ólíkt því sem er á Norðlingaholti
þar sem ágætlega er hægt að segja
fyrir um samsetningu íbúa og því
byggja upp innviðina í samræmi við
það.
Langtímaáætlun borgarinnar um
byggingu nýs grunnskóla og leikskóla
Þéttari byggð kallar
á styrka innviði
Stefán Jón
Hafstein
Fréttasíminn 904 1100