Morgunblaðið - 31.03.2005, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 11
FRÉTTIR
PÓST- og fjarskiptastofnun hefur
sent eftirfarandi tilkynningu til
Morgunblaðsins vegna umfjöllunar
í leiðara blaðsins um alþjónustu og
breiðbandsvæðingu á landsbyggð-
inni.
„Fjarskiptalög nr. 81 frá árinu
2003 heimila ekki, líkt og fullyrt
var í leiðara Morgunblaðsins 30.
mars að leggja megi á Landssím-
ann eða önnur fjarskiptafyrirtæki
útvíkkaðar kvaðir um að veita
þjónustu umfram alþjónustu, t.d.
þá að koma upp breiðbandsteng-
ingum í dreifbýli.
Íslensk fjarskiptalög taka mið af
alþjónustutilskipun Evrópusam-
bandsins nr. 2002/22/EB. Í henni
er alþjónusta skilgreind sem sú
lágmarksþjónusta sem stjórnvöld-
um er skylt að tryggja öllum þegn-
um á viðráðanlegu verði, óháð
landfræðilegri staðsetningu. Þetta
er gert með því að leggja kvaðir á
fyrirtæki sem rekur fjarskiptanet
eða -þjónustu.
Þar sem tilskipun Evrópusam-
bandsins nr. 2002/22/EB heimilar
ekki aðrar kvaðir en þær sem þeg-
ar eru innleiddar í íslensk lög
verður að leita annarra leiða, en
útvíkka alþjónustukvaðir, vilji ís-
lensk stjórnvöld bæta fjarskipta-
þjónustu. Má þar t.d. benda á 23.
grein fjarskiptalaga þar sem sam-
gönguráðherra er heimilt að leggja
í framkvæmdir, rekstur eða þjón-
ustu sem er til almannaheilla, í ör-
yggisskyni, af umhverfisástæðum
eða samkvæmt byggðasjónarmið-
um, ef ætla má að fjarskiptaþjón-
ustan skili ekki arði, án þess þó að
um alþjónustu sé að ræða.
Samkvæmt gildandi lögum telst
alþjónusta vera talsímaþjónusta,
almenningssímar, handvirk þjón-
usta og þjónusta við öryrkja eða
notendur með sérstakar þjóð-
félagsþarfir. Einnig gagnaflutn-
ingsþjónusta með allt að 128 kbps
hraða. Kvöðin um alþjónustu er nú
lögð á Landssímann og er hún
nánar skilgreind í rekstrarleyfi út-
gefnu í janúar 2002.
Alþjónusta, samkvæmt ofan-
greindri skilgreiningu, er veitt
hérlendis, ef undan eru skildir um
70 sveitabæir sem ekki njóta 128
kbps tengihraða. Er nú verið að
kanna með hvaða hætti bæta megi
þar úr, en kostnaður við hverja
tengingu getur numið á aðra millj-
ón króna.“
Kvaðir um
alþjónustu
takmörk-
unum háðar
„VIÐ getum ekki horft þegjandi á
þetta,“ sagði Guðrún Ögmundsdóttir
alþingismaður á blaðamannafundi
sem var haldinn vegna ferðar níu
manna hóps Íslendinga er heimsótti
Palestínu og Ísrael dagana 18. til 28.
mars sl., en ferðin var skipulögð á
vegum félagsins Ísland-Palestína.
Í hópnum voru fimm alþingismenn
auk þriggja forystumanna úr laun-
þegahreyfingunni. Hópurinn var
sammála um að ferðin hefði haft
djúpstæð áhrif á þau enda hefðu þau
orðið vitni að skelfilegum aðstæðum
íbúa Palestínu sem væru þvingaðir af
Ísraelsher sem þar réði öllu. Jónína
Bjartmarz sagði að þeir Palestínu-
menn sem þau hefðu rætt við fyndist
að þeir væru gleymdir. „Fólkið var að
biðja okkur um að láta þetta ekki
bara kyrrt liggja þegar við kæmum
heim heldur að vekja máls og minna á
þessa baráttu,“ segir Jónína og bend-
ir á að Ísraelsmenn hafi virt ályktanir
Sameinuðu þjóðanna og Alþingis að
vettugi.
Víða komið við
Hópurinn gerði víðreist og heim-
sótti m.a. staði sem alla jafna eru lok-
aðir ferðamönnum og íbúum Ísrael.
Hópurinn heimsótti Jerúsalem, þar
sem þau heimsóttu ísraelska þingið,
og Hebron á Vesturbakka Palestínu.
Jafnframt ferðaðist hópurinn til pal-
estínsku borganna Ramallah, Nabl-
us, Bethlehem og Qalqiliya. Auk þess
heimsóttu þau Balata flóttamanna-
búðirnar og Gólanhæðir.
Í hópnum voru auk Guðrúnar og
Jónínu alþingismennirnir Þuríður
Backman, Jón Bjarnason og Magnús
Þór Hafsteinsson. Frá launþegasam-
tökum voru þau Hilmar Harðarson,
formaður Félags iðn- og tæknigreina,
Svala Norðdal, varaformaður Starfs-
mannafélags ríkisstofnana og Garðar
Hilmarsson, stjórnarmaður í Starfs-
mannafélagi Reykjavíkurborgar.
Borgþór Kjærnested var fararstjóri.
Á fundinum voru sýndar ljós- og
kvikmyndir ásamt því sem ferðalang-
arnir sögðu frá því sem fyrir augu
bar. Þar voru m.a. sýndar myndir af
u.þ.b. 10 metra háum aðskilnaðar-
múrum sem verið er að reisa á milli
Ísraels og Palestínu. Jónína benti á
að Alþingi hafi lýst yfir andstöðu
sinni við byggingu múrsins. Hún
sagði hópinn hafa velt því fyrir sér,
eftir að hafa séð með eigin augum
hvernig múrinn stækkaði og breiddi
úr sér, hvort ástæða væri til að taka
málið aftur upp á Alþingi og kveða
fastar að orði en gert hefur verið.
Versnandi ástand ef
ekkert verður að gert
„Svo er spurningin hinsvegar líka
sú hvað við getum gert sem einstak-
lingar og þingmenn,“ segir Jónína.
Hún sagði hópinn hafa hitt lækni í
borginni Nablus sem hafi tjáð þeim
að verið sé að reisa heilsugæslustöð
austan við borgina sem eigi m.a. að
þjóna 10 þorpum í nágrenninu. Hins-
vegar séu nokkur þorp fyrir norðan
borgina, sem sökum vegatálma, geta
ekki nýtt sér þjónustu stöðvarinnar.
Þar væri afar brýnt að útvega íbúum
þessa svæðis þessa þjónustu með
hreyfanlega sjúkrastöð. „Sem er þá
bara sérlega vel búinn sjúkrabíll sem
getur þá farið á milli þorpanna,“ segir
Jónína og bætti því við að þar gætu
Íslendingar aðstoðað með fjárstuðn-
ingi. Hún sagðist vera fullviss um ef
að ekkert yrði að gert þá væri ljóst að
ástandið færi versnandi fyrir íbúa
Palestínu.
Að mati Magnúsar Þórs var ljóst
að um skipulegt landrán af hálfu Ísr-
aelsmanna ætti sér stað. Hann benti
á að múrinn væri að mestu ef ekki
öllu leyti inni á yfirráðasvæði Palest-
ínumanna. Þar væri að finna varð-
stöðvar með þungvopnuðum her-
mönnum sem héldu íbúum Palestínu í
gíslingu. Magnús sagði að íbúarnir
minntu einna helst á kjúklinga í búr-
um sem kæmust hvergi. Einnig
fannst honum aðstæðurnar minna
óþægilega mikið á stjórnartíð nasista
á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar.
Vilja ná sáttum
Jónína benti á að um 80% Ísr-
aelsmanna væru á móti framgöngu
Ísraelshers í Palestínu og að þeir vilji
hætta hernáminu og vilja ná sáttum
milli þjóðanna. Hinsvegar fengju íbú-
arnir litlar upplýsingar um gang
mála handan múranna auk þess sem
Ísraelsmenn fái ekki að koma til Pal-
estínu til þess að sjá með eigin augum
það dapurlega ástand sem þar ríkir.
Ljóst væri að ástandið hefði ekki
einungis áhrif á daglegt líf Palestínu-
manna því Ísraelsmenn byggju við sí-
felldan ótta, sem vopnaðir verðir og
múrar drægju ekki úr.
Ferðalangarnir bentu á að hópur-
inn hefði alstaðar fengið vinsamlegar
móttökur utan eitt sinn er ísraelskir
landtökumenn köstuðu grjóti í áttina
að þeim í Hebron eins og fram hefur
komið.
Á meðan á ferðalaginu stóð voru
haldnir fjölmargir fundir með stjórn-
málamönnum, fulltrúum trúarhópa,
friðargæsluliðum, forystumönnum
launahreyfingum, aðilum í heilbrigð-
isstétt og baráttumönnum fyrir
mannréttindum bæði í Palestínu og
Ísrael. Auk þess hitti hópurinn fjölda
annarra íbúa landanna.
„Við getum ekki horft
þegjandi á þetta“
Íslenska sendinefndin heimsótti byggðir Palestínumanna í ferðinni. Lengst til vinstri er Jónína Bjartmarz.
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
STJÓRN læknaráðs Landspítalans telur að
taka verði vísbendingar um stjórnunarvanda
alvarlega. Stjórnin sendi frá sér yfirlýsingu í
gær vegna fjölmiðlaumræðu að undanförnu
um stjórnskipulag LSH.
„Fram komnar vísbendingar um stjórnun-
arvanda á LSH verður að taka alvarlega og
nauðsynlegt er að bregðast við þeirri gagnrýni
sem fram hefur komið. Læknaráð hefur áður
bent á þann vanda sem nú er til umræðu.
Þrjár kannanir meðal starfsmanna LSH, m.a.
könnun sem Vinnueftirlit ríkisins gerði fyrir
læknaráð LSH, benda einnig til samskipta- og
stjórnunarvanda.
Læknaráð starfar samkvæmt starfsreglum
sem því hafa verið settar og samþykktar af
stjórnarnefnd LSH. Í starfsreglum læknaráðs
segir m.a.: ,,Læknaráð skal vera stjórnendum
LSH til ráðuneytis um öll læknisfræðileg at-
riði í rekstri sjúkrahússins, enda ber stjórn-
endum þess að leita álits læknaráðs á öllu því
sem varðar læknisþjónustu sbr. 32. gr. laga
nr. 97/1990. Læknaráð skal vera stjórnendum
til ráðuneytis í málum er varða þróun LSH og
skipulag, samstarf og samhæfingu starfkrafta,
rekstur, stjórnun, uppbyggingu og nýtingu
einstakra stofnana LSH.
Ágreiningur um tegund stjórnkerfis
Sameining sjúkrahúsanna í Reykjavík árið
2001 var gríðarlega erfitt verkefni. Meðal ann-
ars var ágreiningur um hvers konar stjórn-
kerfi myndi henta best hinu nýja sjúkrahúsi.
Meginágreiningsefnin voru staða sérgreina
lækninga og hvernig staðið skyldi að vali
æðstu stjórnenda. Eðlilegt var að þær deilur
væru lagðar til hliðar, þar til reynsla væri
komin á nýtt stjórnfyrirkomulag sjúkrahúss-
ins og endurskoðun stjórnkerfisins hefði farið
fram.
Í samræmi við starfsreglur hefur læknaráð,
frá sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík,
unnið að tillögum vegna þeirrar endurskoð-
unar stjórnskipulags sjúkrahússins, sem átti
að fara fram á árinu 2004. Í meginatriðum
felst í tillögunum að:
– Sérgreinar lækninga eru kjarninn í starf-
semi háskólasjúkrahúsa eins og LSH. Því er
mikilvægt að þær séu vel skilgreindar og hlut-
verk yfirmanna þeirra sé ljóst. Sérgreinar
þurfa að verða meðal meginrekstrareininga
sjúkrahússins, og ákveðið jafnræði þarf að
ríkja milli þeirra. Fagleg og rekstrarleg
ábyrgð þarf að fara saman á öllum stigum.
– Að sama skapi þarf hlutverk sviðstjóra
lækninga að vera vel skilgreint þannig að ekki
verði óeðlileg skörun við hlutverk yfirlækna.
Endurskoða þarf hvernig staðið er að vali og
ráðningu sviðstjóra, þannig að tryggt sé að
hæfustu aðilar fáist til starfa og að þeir njóti
trausts, jafnt yfirstjórnar sem starfsmanna.
– Skerpa þarf á hlutverkaskiptingu lækn-
inga og hjúkrunar í stjórnun sjúkrahússins.
– Skilgreina þarf, mun betur en gert hefur
verið, hlutverk Háskóla Íslands í stjórnun
LSH.
Margt hefur áunnist
Rétt er að benda á að mjög metnaðarfullt
starf er unnið á LSH og margt hefur áunnist
frá sameiningu sjúkrahúsanna. Á háskóla-
sjúkrahúsinu eru þjónusta við sjúka, kennsla
og rannsóknir í fyrirrúmi. Eðlilegt er að
stjórnkerfi sjúkrahússins sé í stöðugri endur-
skoðun, þannig að starfsemin sé sem skilvirk-
ust og hagkvæmust.
Stjórn læknaráðs LSH vill árétta að leysa
þarf þann vanda sem nú er til umræðu.
Læknaráð er reiðubúið að vinna með stjórn-
endum sjúkrahússins og heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu að farsælli lausn mála.“
Verður að taka vísbendingar
um stjórnunarvanda alvarlega
STJÓRNARNEFND Landspítala – há-
skólasjúkrahúss fagnar því að heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytið hafi tekið af öll
tvímæli um lögmæti stjórnskipulags spít-
alans að því er segir í ályktun nefndarinnar
að loknum fundi sínum í gær. Segir þar að
ráðuneytið telji að skipurit LSH sé í fullu
samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu.
„Sameining sjúkrahúsanna í Reykjavík,
og þar með óhjákvæmileg endurskoðun á
skipulagi og starfsemi hans, hefur orsakað
mikið álag á starfsmenn spítalans. Þrátt fyr-
ir það hefur spítalinn sýnt fram á mjög góð-
an árangur í rekstri og má benda á aukin af-
köst í starfsemi hans á síðasta ári samhliða
sparnaði í rekstri sem skilar sér beint í
fækkun á biðlistum eftir þjónustu hans.
Stjórnskipulag spítalans hefur stutt vel við
þessar breytingar og hinn góða árangur í
rekstri.
Forstjóri og framkvæmdarstjórn munu á
næstunni boða til fundar með fulltrúum yf-
irlækna, sviðsstjóra og læknaráðs og hjúkr-
unarráðs LSH með það að leiðarljósi að efla
enn frekar samskipti og auka samráð þess-
ara aðila og yfirstjórnar LSH.“
Skipurit
LSH í sam-
ræmi við lög