Morgunblaðið - 31.03.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 31.03.2005, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Svona Bobby, reyndu að hafa þverrifuna lokaða rétt á meðan ég kynni þig fyrir nýju fósturforeldrunum. Viðbragðsáætlun ís-lenskra heilbrigð-isyfirvalda vegna heimsfaraldra á borð við fuglaflensuna er stöðugt til endurskoðunar. Að sögn Haraldar Briem sótt- varnarlæknis var áætlun- in gerð í fyrra og því eðli- legt að endurskoða hana reglulega með hliðsjón af þróun mála. „Við erum aðeins að auka viðbúnaðarstigið núna og auka meðvitund manna,“ segir Haraldur, en tekur fram að í sjálfu sér hafi ekkert breyst frá því fyrir ári annað en það að ekki hafi tekist að ráða niðurlögum fuglaflensunnar þar sem hún haldi áfram að skjóta upp kollinum hjá fólki sem smitast beint frá fuglum, en enn sem kom- ið er hefur ekki verið sýnt fram að á inflúensan smitist frá manni til manns. Inni í myndinni að loka land- inu þó það sé tæknilega erfitt Spurður hvernig undirbúningn- um hérlendis gegn farsótt á borð við fuglaflensu sé háttað segir Haraldur að auðvitað hefði verið ákjósanlegast að eiga bóluefni. Hins vegar sé ólíklegt að það verði fyrir hendi þegar og ef nýr far- aldur komi því þá verður um að ræða nýja tegund af veiru sem menn hafa ekki bóluefni við, alla vegna ekki til að byrja með. Að sögn Haraldar eru heil- brigðisyfirvöld að huga að því að eiga varabirgðir af inflúensulyfj- um, sem geti mögulega hjálpað og dregið verulega úr hugsanlegum faraldri. Raunar hefur enn ekki verið sýnt fram á hverskonar áhrif notkun inflúensulyfja hefði, enda hafa þau ekki verið notuð við sambærilegar kringumstæður, en vonir manna standa til að þau geti hjálpað til. Segir Haraldur að inflúensulyfin yrði hugsuð til notkunar fyrir sérstaka áhættu- hópa sem og fyrir fólk sem þarf að sinna sjúkum, enda mikilvægt að þeir geti sinnt sínu hlutverki. Kæmi til faraldrar hérlendis eru ýmsar formlegar aðgerðir sem hægt væri að grípa til í því skyni að hindra útbreiðslu á far- sótt. Meðal þeirra er að reyna að hindra að smitandi fólk sé mikið á ferðinni. Þannig væri, að sögn Haraldar, inni í myndinni að loka landinu, sem þó er tæknilega mjög erfitt. En einnig mætti koma í veg fyrir að fólk komi saman þar sem það eykur á útbreiðslu far- sótta. Síðan er reynt að huga að því að geta hlúð að sjúklingum á sjúkrahúsi í einangrun eða að halda þeim sem hafa verið útsettir fyrir smiti í sóttkví. Ekki varað sérstaklega við ferðum til ákveðinna landa Haraldur segir mikilvægt að velta þessum málum fyrir sér þar sem allar fyrrgreindar aðgerðir myndu hafa heilmikil áhrif á þjóð- félagið allt. Spurður hvort al- menningur geti gert eitthvað til að sporna við útbreiðslu farsóttar hérlendis svarar Haraldur því ját- andi. „Í fyrsta lagi ætti fólk auðvitað ekki að vera á ferð hafi það ein- kenni sjúkdómsins, auk þess sem fólk ætti að huga vel að almennu hreinlæti og þvo sér vel um hend- urnar til að forðast smit, hósta ekki framan í hvert annað og hafa klúta fyrir vitunum í því skyni að forðast að smita aðra eða smitast sjálft,“ segir Haraldur og bendir á að eins og staðan sé í dag sé þó ekki sérstaklega varað við ferðum til landa þar sem fuglainflúensa geisar í fiðurfé, en ferðamönnum er bent á að forðast fuglamarkaði, illa soðið fuglakjöt og hrá egg, auk þess sem ráðlagt sé almennt hreinlæti og tíður handþvottur. Ekki sértækar aðgerðir gegn Spænsku veikinni Skæðasti heimsfaraldurinn á síðustu öld var Spænska veikin á árunum 1918–1919 en þá létust á milli 40 og 50 milljónir manna, en nánast helmingur þeirra var ungt og hraust fólk. Hérlendis sýktust um tíu þúsund af fimmtán þúsund íbúum Reykjavíkur og um fimm hundruð manns létust á landinu. Spurður hvort Íslendingar séu betur í stakk búnir til að takast á við farsótt í dag en 1918 þegar Spænska veikin geisaði hér svarar Haraldur því játandi. „Menn voru náttúrlega ekki nógu passasamir þá og þannig var t.d. ekki gripið til neinna sértækra aðgerða á Reykjavíkursvæðinu til að sporna við útbreiðslu sóttarinnar. Í dag myndum við grípa til aðgerða mun fyrr, þ.e. takmarka ferðir fólks og nota þau inflúensulyf sem við eig- um,“ segir Haraldur og bendir á að einnig sé heilbrigðisþjónustan mun öflugri í dag en þá, auk þess sem möguleikinn á að veita fólki þjónustu í heimahúsi sé fyrir hendi. Aðspurður segir Haraldur mik- ilvægt að menn séu sífellt vakandi í þessu máli og séu búnir að leggja niður fyrir sér hvernig eigi að bregðast við ef til farsóttar kæmi. „Þetta er eitthvað sem gerist kannski ekki í ár og ekki næstu tvö til þrjú árin. Hins vegar er nauðsynlegt að fylgjast vel með málum og vera viðbúinn.“ Fréttaskýring | Viðbrögð við farsóttum Viðbúnaður- inn aukinn Viðbragðsáætlun íslenskra heilbrigðis- yfirvalda í sífelldri endurskoðun Fuglaflensan smitast ekki milli manna. Betur undir það búin að takast á við farsótt nú  Eitt af því sem farið var yfir við síðustu endurskoðun við- bragðsáætlunar íslenskra heil- brigðisyfirvalda er að samhæfa aðgerðir allra þeirra aðila sem koma myndu mest að málum, s.s. heilbrigðisstofnanir, sjúkraflutn- ingsmenn, löggæslumenn og toll- gæslan. Segir Haraldur Briem sóttvarnarlæknir í mörg horn að líta því ef til farsóttar kæmi þyrfti einnig að tryggja að hægt sé að halda þjóðfélaginu gang- andi, þ.e. sjá til þess að ein- hverjir geti séð til þess að við fáum t.d. rafmagn, vatn og hita. silja@mbl.is SKRIFAÐ hefur verið undir sam- komulag milli heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra, Landlæknisemb- ættisins, Lyfjastofnunar og Trygg- ingastofnunar ríkisins um rekstur lyfjagagnagrunns. Samkvæmt sam- komulaginu ber landlæknisembætt- ið ábyrgð á lyfjagagnagrunninum, en Tryggingastofnun verður falið að reka, hýsa og halda lyfjagagna- grunninum við. Gagnagrunnurinn er rekinn í samræmi við lög um Per- sónuvernd og reglur Persónuvernd- ar. Samkvæmt lyfjalögum starfrækir landlæknisembættið lyfjagagna- grunn um afgreiðslu lyfja. Er það gert í þeim tilgangi að hafa almennt eftirlit með ávísunum lækna á lyf, að fylgjast með þróun lyfjanotkunar og til þess að hafa eftirlit með ávana- og fíknilyfjum. Landlæknisembættið ber samkvæmt samkomulaginu ábyrgð á dulkóðun persónuauð- kenna í lyfjagagnagrunninum, en Lyfjastofnun og Tryggingastofnun ríkisins geta sótt um aðgang að gagnagrunninum að uppfylltum skil- yrðum sem fram koma í lyfjalögum. Samkvæmt upplýsingum frá heil- brigðisráðuneytinu er samkomulag- ið niðurstaða nefndar sem sá um að undirbúa starfrækslu gagnagrunns- ins. Nefndinni var sömuleiðis falið að greiða úr álitamálum sem upp kynnu að koma. Samkomulag staðfest um rekstur lyfjagagnagrunns

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.