Morgunblaðið - 31.03.2005, Side 14

Morgunblaðið - 31.03.2005, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÞINGKOSNINGAR verða í Zimb- abwe í dag, þær sjöttu frá því að landið fékk sjálfstæði árið 1980. Verður þá kosið um 120 þingsæti af 150 en Robert Mugabe forseti og leiðtogi stjórnarflokks- ins, ZANU-PF, skipar sjálfur í hin 30. Nú er það ekki svo, að ein- hver vafi þyki leika á um úrslit- in. Víst er talið, að Mugabe muni vinna enn einn „stórsigurinn“, það er að segja, hann muni beita sömu brögðum og í kosningunum 2000 og 2002, víðtæku kosningasvindli. Nicolas Schmit, utanríkisráð- herra Lúxemborgar, sem nú er í forsæti fyrir Evrópusambandinu, sagði síðastliðinn þriðjudag, að kosningarnar í Zimbabwe væru „skrípaleikur“ og benti á, að Mu- gabe hefði bannað erlendum eft- irlitsmönnum að fylgjast með kosn- ingunum, öðrum en frá nokkrum Afríkuríkjum og Rússlandi. Hvatti Schmit til, að Evrópusambandið brygðist hart við ástandinu í land- inu og það sama hefur komið fram hjá talsmönnum Bandaríkjastjórn- ar. Condoleezza Rice utanríkisráð- herra sagði nýlega, að Zimbabwe væri einn af „útvörðum einræðis- ins“ og fékk það þá framan í sig frá Mugabe, að hún væri ekkert annað en undirlægja hvítra manna. Bandaríkin og Evrópusambandið hafa raunar þegar gripið til nokk- urra refsiaðgerða gegn Mugabe og stjórn hans. Hafa þau meðal annars sett ferðabann á hann og 80 nán- ustu samstarfsmenn hans. Mugabe var á sínum tíma einn af leiðtogum baráttunnar gegn stjórn hvítra manna í Ródesíu eins og landið hét þá en eftir samfellda stjórn frelsishetjunnar í 25 ár, má heita, að landið sé í rúst. Zimbabwe var áður ein helsta matarkistan í sunnanverðri Afríku en á síðustu fimm árum hefur þjóðarframleiðsl- an skroppið saman um 35%. Verð- bólgan hefur farið í 600% og hung- ursneyð ríkir víða í landinu. Erlendur gjaldeyrir til eldsneytis- og matarkaupa er ekki til og um þrjár milljónir manna hafa ýmist flúið landið vegna ofsókna eða til að verða sér úti um atvinnu erlendis. Á þetta ekki síst við um þá, sem hafa einhverja menntun, enda er nú svo komið, að menntaða heil- brigðisstarfsmenn er varla að finna í landinu. Úr frelsishetju í harðstjóra Ein af meginástæðunum fyrir afturförinni í Zimbabwe er sú ákvörðun Mugabes að taka landið af hvítu bændunum og skipta því upp á milli landlausra blökku- manna. Raunar lenti það fyrst og fremst í höndunum á flokksmönn- um hans, her- og lögreglumönnum, sem undantekningalítið kunnu ekk- ert til landbúnaðar. Afleiðingin er sú, að landið er ekki nýtt og land- búnaðarframleiðslan hefur í heild minnkað um helming. Vegna þess er fólk að deyja úr hungri á landsbyggðinni. Brugðust alþjóðlegar hjálparstofnanir strax við því með matvælaaðstoð en fyrir tveimur árum ákvað Mugabe, að í stað þess að dreifa matnum ókeyp- is, skyldu þær afhenda stjórnvöld- um allar birgðirnar. Síðan hafa þær verið seldar örsnauðu fólkinu og talsmenn ZANU-PF segja það full- um fetum, að aðeins stuðnings- menn flokksins muni fá einhverja aðstoð. Áætlað er, að af 11,5 milljónum íbúa í Zimbabwe þurfi 5,8 milljónir á tafarlausri aðstoð að halda eigi þeir ekki að svelta í hel. Fyrir þá getur því stuðningur við stjórnar- andstöðuna jafngilt dauðadómi. Baráttan er á milli tveggja flokka Tveir helstu stjórnmálaflokkarn- ir í Zimbabwe eru ZANU-PF, flokkur Mugabes, sem er nú með 68 menn á þingi, og MDC, Hreyf- ingin fyrir lýðræðislegum breyting- um, sem hefur 51 þingmann. Var sá flokkur stofnaður 1999 og sækir stuðning sinn til allra stétta, jafnt verkamanna sem menntaða fólks- ins. Er leiðtogi hans Morgan Tsvang- irai, 53 ára gamall verkamaður. Hefur hann farið mikinn í baráttu sinni gegn Mugabe þótt hann hafi raunar alla tíð verið með annan fót- inn í réttarsölum vegna ásakana Mugabes á hendur honum fyrir föðurlandssvik. Að auki bjóða fram í kosning- unum fjórir smáflokkar og nokkrir óháðir frambjóðendur. Af þeim vekur mesta eftirtekt Jonathan Moyo, fyrrverandi upplýsingaráð- herra Mugabes og raunar höfundur hinna alræmdu fjölmiðlalaga. Voru þau sett til að þagga niður í óháð- um fréttamiðlum. Moyo sagði skilið við Mugabe og ZANU-PF í desember síðastliðnum vegna óánægju með val Mugabes á nýjum varaforseta og býður sig nú fram í Tsholotsho-kjördæmi í Ma- tabelelandi en þar hefur alltaf verið mikil andstaða við Mugabe og stjórn hans. Miðað við ferilinn er Moyo augljóslega enginn lýðræð- issinni en það yrði þó mikið áfall fyrir ZANU-PF ef hann sigraði í Tsholotsho. Hefur Mugabe þegar brugðist við þeim möguleika með því að lýsa yfir, að hann muni þá „einangra“ héraðið. 800.000 „draugaatkvæði“ Almennt er talið víst, að Tsvang- irai og flokkur hans, MDC, hefðu borið sigur úr býtum í kosning- unum 2002, hefðu útsendarar Mugabes ekki barið á stuðnings- mönnum hans og handtekið fyrir „pólitíska glæpi“. Ofbeldið, sem hefur raunar verið minna fyrir kosningarnar nú, er þó aðeins lítill hluti af svindlinu. Á flestum kjör- stöðum eru starfsmennirnir her- menn, sem kunnir eru fyrir að ógna fólki, og það eru þeir, sem afhenda kjörseðla og telja atkvæðin. Önnur aðferð stjórnvalda er að breyta kjördæmaskipaninni, allt eftir því hvað þau telja koma sér best. Nokkur kjördæmi í Harare, höfuðborginni, og öðrum borgum þar sem MDC nýtur mikils fylgis, hafa verið lögð niður og önnur búin til á landsbyggðinni þar sem mikið er um landlausa bændur og líklega til að kjósa ZANU-PF. Þar fyrir utan hamra talsmenn Mugabes á því, að sjá megi í gegnum gagnsæja kjörkassana hverjir kjósi MDC. Mesta svindlið er líklega í gegn- um kjörskrána, sem hefur þó aldrei verið birt opinberlega. Athugun, sem starfsmenn MDC í Bulawajo gerðu á 500 kjósendum á skrá, sýndi, að aðeins helmingurinn var rétt skráður og fimmtungurinn var látinn. Embættismenn hafa áður séð um, að þessi „draugaatkvæði“, látið fólk á skrá, lendi öll hjá ZANU-PF. Áætlað er, að þetta samsvari um 800.000 atkvæðum en alls eru kjós- endur 5,3 milljónir. Við þetta bæt- ist síðan, að þeim þremur millj- ónum manna, sem nú eru utanlands, er bannað kjósa. Vill breyta stjórnarskránni Mugabe, sem er kominn yfir átt- rætt, hefur sett markið hátt í þess- um kosningum, stefnir að því að fá tvo þriðju atkvæða og hefur það líklega í hendi sér. Það er til að hann geti breytt stjórnarskránni, einkum því ákvæði, sem segir, að efna skuli til kosninga strax og for- seti segir af sér. Að því frátöldu getur hann sjálfur valið sér eft- irmann og þannig tryggt áfram- haldandi ógnarstjórn í landinu. Pius Ncube, erkibiskup í Harare, sem hefur gagnrýnt Mugabe harð- lega, segir, að aðeins almenn upp- reisn muni geta hrakið Mugabe frá en hann er ekki trúaður á, að af henni verði. „Fólkið er hrætt og óttast um líf sitt. Það bíður þess eins, að Mug- abe hrökkvi upp af. Ég bið líka fyr- ir því,“ sagði Ncube. Fréttaskýring | Kjósendur í Zimbabwe munu ganga að kjörborðinu í dag en líklega eru úrslitin þegar ráðin að því er fram kemur í þessari grein Sveins Sigurðssonar. Ofbeldi, kúgun og fangelsanir eru þau meðul, sem Robert Mugabe, forseti landsins, hefur beitt gegn landsmönnum og breytt um leið þessari matarkistu, sem áður var, í örsnautt ríki þar sem hungurvofan leikur lausum hala. Kosningar í skugga of- beldis og svika Reuters Stuðningsmenn MDC á kosningafundi í Harare með mynd af leiðtoga flokksins, Morgan Tsvangirai. Hvítt fólk í land- inu hefur látið lítið fyrir sér fara í kosningabaráttunni vegna þess áróðurs Mugabes, að Tsvangirai gangi erinda þess. Robert Mugabe ’Fólkið er hrætt og ótt-ast um líf sitt. Það bíður þess eins, að Mugabe hrökkvi upp af.‘ svs@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.