Morgunblaðið - 31.03.2005, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 31.03.2005, Blaðsíða 40
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Litli Svalur © DUPUIS HMMM... ALVEG EINS OG ODDI LJÓSIN ERU KVEIKT... EN ÞAÐ ER ENGINN HEIMA KÆRA, STÓRA GRASKER. ÉG HLAKKA TIL AÐ SJÁ ÞIG ÞEGAR ÞÚ KEMUR Á HREKKJAVÖKUNNI JÓLASVEINNINN ER MEÐ ÁLFA TIL ÞESS AÐ HJÁLPA SÉR. HVAÐ HEFUR STÓRA GRASKERIÐ? APPELSÍNUR? EKKI HLUSTA Á HANA. ÞAÐ ERU ALLTAF FLEIRI OG FLEIRI SEM HÆTTA AÐ TRÚA. MÉR SÝNIST VERA KOMIN SAUMSPRETTA Í HLIÐINA Á HOBBES. ÉG ÆTLA AÐ NÁ Í SAUMADÓTIÐ MITT ÞETTA ER BARA PÍNU SKRÁMA. ÉG HELD AÐ ÉG ÞURFI EKKI AÐ FARA Í ÞESSA AÐGERÐ AÐGERÐ? MAMMA ÆTLAR BARA AÐ SAUMA NOKKUR SPOR. AF HVERJU ERTU SVONA HRÆDDUR VIÐ ÞETTA? MAMMA ÞÍN DEYFIR MIG ALDREI ÁÐUR EN HÚN SAUMAR GEEEEEERÐU ÞAAAAÐ! JA...Ö... VIÐ STELPUR FÁUM ALDREI AÐ SJÁ SKOTTIÐ Á STRÁKUM JA... Ö... ÉG VÆRI ALVEG TIL Í AÐ SÝNA ÞÉR MITT, EN ÞAÐ VERÐUR ÞÁ AÐ VERA LEYNDARMÁL. HMM? ÞESS VEGNA ERUM VIÐ HÉRNA. ÞAÐ KEMUR ALDREI NEINN HINGAÐ ERTU ALVEG VISS? ÉG LOFA! ÉG SAGÐI EKKI NEINUM FRÁ ÞESSU MÉR FINNST EINS OG ÞAÐ SÉ VERIÐ AÐ FYLGJAST MEÐ MÉR HVAÐA VITLEYSA? HVAR GÆTI EINHVER SVO SEM VERIÐ? ÞÚ HEFÐIR GETAÐ SAGT VINKONUM ÞÍNUM FRÁ ÞESSU OG ÞÆR GÆTU VERIÐ INNI Í ÞESSUM SKÁP ÞARNA EN MAÐUR VERÐUR AÐ VERA SVOLÍTIÐ HUGRAKKUR TIL ÞESS AÐ VERA ÞARNA INNI. ÞAÐ ER ÖRUGGLEGA FULLT AF RISASTÓRUM KÓNGULÓM ÞARNA INNI RISASTÓRAR? ERTU VISS? HVERSU STÓRAR? JAFN STÓRAR OG HÁKARLAR! Dagbók Í dag er fimmtudagur 31. mars, 90. dagur ársins 2005 Nýlega var liðið eittár frá björgun fjölveiðiskipsins Bald- vins Þorsteinssonar í Meðallandsfjöru. Vík- verji var á staðnum fyrir Morgunblaðið meira eða minna þá tæpu viku sem björg- unaraðgerðir tóku og sendi frá sér fréttir. Þarna í fjörunni voru hinir fjölmiðlar lands- ins líka og voru auðvit- að í samkeppni um besta fréttaefnið. x x x En það var þetta meðsamkeppnina í fjörunni. Víkverji fór að rifja þetta upp eftir komu Bobby Fischers á skírdag. Sam- keppnisandinn sveif yfir vötnum á Reykjavíkurflugvelli líkt og í Með- allandsfjöru, en breyttist í hálfgerða samkeppnisandnauð þegar Stöð 2 brunaði með Bobby á jeppa út á Bú- staðaveg til að hrista af sér hina fjöl- miðlana. Þar var snúið við og brunað inn á flugbrautina aftur til að frétta- maður stöðvarinnar gæti tekið smá- spjall við meistarann. Víkverji gat ekki annað gert við þessu en hrein- lega hlaupið á eftir jeppa Bobbys þegar hann fór frá flugbrautinni en gafst upp á hlaupunum þegar ljóst varð að hann ætlaði eitthvað lengst út í bæ. En hvað gerist nokkrum mín- útum seinna? Jeppinn kemur inn Flugvall- arveginn eins og fyrr segir og stefnir aftur fyrir hótelið. Víkverji, sem hafði tekið sér stöðu við aðalinngang Loftleiða, tók sprettinn á ný og elti bílinn aftur fyrir húsið. En þar var ekki stoppað lengi því eftir smáspjall Stöðvar 2 við meistarann var aftur tekið af stað og Víkverji elti á hlaupum eins og kátasti sveitahund- ur. Jeppinn staðnæmdist við aðal- inngang Loftleiða og þar beið frétta- maður RÚV og náði örfáum orðum frá meistaranum. Meðan á þessu stóð höfðu flestir erlendu blaðamennirnr pakkað saman en nokkrir ráfuðu þó um svæðið. Og hver vann þessa sam- keppni í Bobby-málinu? Enginn sér- stakur að mati Víkverja. Hver og einn átti þokkalega spretti inn á milli. Engu að síður var þetta einn sér- kennilegasti skírdagur sem Víkverji hefur upplifað í kapphlaupi við ör- þreyttan hvítskeggjaðan öldung á Range Rover. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is       Digranes | Karim Djermoun, skipuleggjandi stórtónleikanna Kóngurinn 2005, leggur hér hönd á plóg við lokaundirbúninginn en tónleikarnir fara fram í kvöld í íþróttahúsinu Digranesi, Kópavogi. Um er að ræða vímulausa skemmtun þar sem fram koma Sálin hans Jóns míns, Skítamórall, Igore, DJ Páll Óskar og fleiri. Aldurstakmark er 16 ár en skemmtunin hefst klukkan 21.00 og henni lýkur um miðnætti. Miðum var skipt niður á menntaskóla landsins og eru þeir seldir í öllum verslunum Skífunnar, BT á Akureyri og BT Selfossi. Tónleikarnir eru í boði Iceland Express og eiga allir þeir sem kaupa sér miða möguleika á að vinna sér inn ferð fyrir tvo með Iceland Express til Kaupmannahafnar. Morgunblaðið/Golli Kóngurinn 2005 MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. En sá sem iðkar sannleikann kemur til ljóssins, svo að augljóst verði, að verk hans eru í Guði gjörð. (Jóh. 3, 21.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.