Morgunblaðið - 18.05.2005, Blaðsíða 16
Mýrdalur | Sauðburður er víða
langt kominn á suðurhluta
landsins eða honum jafnvel lokið
en í landshlutum þar sem vorar
seinna er sauðburður skemmra
á veg kominn. Það er mikil upp-
lifun fyrir börn úr þéttbýli að
koma í fjárhúsin á sauðburði.
Svo var einnig hjá Nínu Þöll
Birkisdóttur úr Hveragerði sem
fékk að halda á lambi í heimsókn
í fjárhúsin í Fagradal.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Sauðburður langt kominn
Landbúnaður
Höfuðborgin | Akureyri | Landið | Suðurnes
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Vefurinn vinsælli | Heimasíða Grinda-
víkurbæjar er mikið skoðuð um þessar
mundir.
Byrjaði umferðin að aukast um miðjan
apríl eftir umfjöllun á bandarísku vefsíð-
unni AskMen.com um Bláa lónið og sjón-
varpsþættina Amazing Race.
Fram kemur á síðunni að nú eru að-
sóknarmet á dag slegin reglulega. Flest
innlit til þessa eru 343 heimsóknir á dag.
Síðustu tvo mánuðina hefur vefurinn feng-
ið samtals um 3.500 heimsóknir frá
Bandaríkjunum.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Byggðasafnið opnað | Byggðasafns-
nefnd Sveitarfélagsins Garðs hefur
ákveðið að formleg vígsla á Byggða-
safninu eftir byggingu nýs safnahúss á
Garðskaga verði laugardaginn 2. júlí.
Safnið mun síðan verða opnað almenn-
ingi daginn eftir og verða opið alla
daga frá klukkan 13 til 17.
Veitingastaðurinn sem verður á ann-
arri hæð nýja hússins verður opnaður
sama dag.
Byggðasafnsnefnd hefur ákveðið að
efna til samkeppni um nafn á veitinga-
staðinn. Veitt verða verðlaun fyrir
besta nafnið og er skilafrestur til 8.
júní.
Tilkynnt verður um nafnið við há-
tíðahöldin á þjóðhátíðardaginn, 17.
júní.
Kassaklifur | Kristín Ósk Jónsdóttir frá
Suðureyri varð Íslandsmeistari í kassa-
klifri, en mótið var haldið á Akureyri ný-
lega. Hún kom undir sig 34 kössum og
var komin upp í rjáfur KA-heimilisins þar
sem keppnin fór fram og varð ekki hærra
komist. Þetta tókst henni að gera á 10
mínútum og varð því óumdeildur Íslands-
meistari í þessari ungu íþróttagrein.
Kristín Ósk keppti í flokki stúlkna 16 til
18 ára.
Kamilla Mjöll Haraldsdóttir í flokki 13
til 15 ára fór með sigur af hólmi í sínum
flokki, staflaði 29 kössum á 10 mínútum
og 55 sekúndum.
Óskar Þór Óskarsson í flokki 13 til 15
ára kleif 31 kassa á 8 mínútum og 54 sek-
úndum og Örn Þór Björnsson í flokki 16
til 18 ára kleif 30 kassa á 8 mínútum og
51 sekúndu.
Dagar lita og tóna ermikil djass- ogmyndlistarhátíð
sem unnið hefur sér fastan
sess á hvítasunnunni í
Vestmannaeyjum. Mikill
metnaður hefur verið
lagður í hátíðina og hafa
flestir okkar bestu lista-
menn í djassinum heimsótt
Eyjarnar um hvítasunnu
og leyft fólki að hlýða á
það sem þeir hafa fram að
færa.
Hún var engin undan-
tekningin núna þar sem
söngkonan unga, Ragn-
heiður Gröndal, var mætt
með breiðsíðu tónlistar-
manna í Oktekt sem í eru
Haukur Gröndal á altó-
saxófón, Bb á klarínett og
útsetningar, Sigurður
Flosason á barítonsaxófón
og þverflautu, Jóel Páls-
son á tenórsaxófón og
bassaklarínett, Ólafur
Jónsson á tenórsaxófón,
Ásgeir Ásgeirsson á gítar,
Róbert Þórhallsson á
organista í Landakirkju.
Það er Listvinafélag
Vestmannaeyja sem stend-
ur að Dögum lita og tóna
og það hefur sýnt sig að
Eyjamenn og gestir kunna
að meta framtakið. Fullt
hús var á tónleika Ragn-
heiðar og einnig vel mætt
á tónleikana í Landa-
kirkju.
kontrabassa og Erik Qvick
á trommur. Kvartett
Andrésar Þórs kom líka
fram á tónleikunum en
hann skipa Andrés á gítar,
Jóel á saxófón, Róbert á
kontrabassa og Erik á
trommu. Þriðja atriðið var
svo samleikur Sigurðar
Flosasonar saxófónleikara
og Gunnars Gunnarssonar
Morgunblaðið/Sigurgeir
Djassað Ragnheiður Gröndal söngkona mætti með
einvala lið djassspilara á Daga lita og tóna í Eyjum.
Djassað á Dögum lita og tóna
Friðrik Steingríms-son í Mývatns-sveit frétti af
tölvupósti sem barst
stuðningsmönnum Ingi-
bjargar Sólrúnar vegna
formannsslags í Samfylk-
ingunni og orti:
Á banaspjótum berast
fjendur
og baráttan fer yfir strikið;
Ingibjargar aðdáendur
Össuristar hrella mikið.
Þegar Gunnar Örlygsson
gekk í Sjálfstæðisflokk-
inn orti Friðrik:
Sá frjálslyndi flóttamanns-
rokkur
fetaði slóðir kunnar;
nú svarthol og Sjálfstæðis-
flokkur
sameina Árna og Gunnar.
Friðrik var við störf í
Bárðardal og hjó eftir
því að þarsveitungar töl-
uðu gjarnan um að allt
byrjaði í Bárðardal,
meira að segja partíin.
Hann orti:
Upphafið gjarnan skoða skal
og skyggnast í gleðikríka;
ef partýin byrjuðu í Bárðardal
þá býst ég við þynnkan líka.
Frá Mývatnssveit
pebl@mbl.is
Hornafjörður | Malbikun í Almanna-
skarðsgöngum lauk í síðustu viku, segir á
vefnum hornafjordur.is. „Það er búið að
vera allt á fullu við vegagerðina hér utan
við göngin undanfarnar vikur og þetta hef-
ur allt gengið mjög vel,“ segir Björn Harð-
arson, verkstjóri hjá Geotek.
Rafvirkjar eru nú að vinna við að setja
upp lýsingu í göngunum ásamt öðrum raf-
búnaði. Verktakinn stefnir á að ljúka öllu
sínu verki á tilsettum tíma samkvæmt
verksamningi sem er 15. júní nk. Þá verður
eftir ýmis minni háttar frágangsvinna og
nokkur atriði sem Vegagerðin sér um að
ljúka. Björn segir að reiknað sé með að
göngin verði tekin í notkun seinni hluta
júní.
Lokið við
að malbika
göngin
Austurland | Fjórir umsækjendur voru
um starf ritstjóra Austurgluggans, frétta-
blaðs sem gefið er út á Austurlandi. Aust-
urglugginn hefur komið út um nokkurra
ára skeið og fylgdi í kjölfar héraðsfrétta-
blaðanna Austra og Austurlands, sem gef-
in voru út í áratugi eystra.
Þeir sem sóttu um eru að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá útgáfufélag-
inu: Björgvin Valur Guðmundsson, búsett-
ur á Stöðvarfirði, en hann hefur starfað
við blaðið í um eitt ár. Gísli Þór Gunn-
arsson, búsettur í Reykjavík, sálfræðingur
að mennt og hefur hvað blaðamennsku
varðar aðallega komið að þýðingum.
Gunnar Gunnarsson, búsettur á Egilsstöð-
um, en hann hefur stundað ýmis ritstörf.
Sigurður Aðalsteinsson frá Vaðbrekkur í
Hrafnkelsdal, en hann hefur starfað sem
blaðamaður og ljósmyndari frá 1991, með-
al annars unnið við Austurgluggann í af-
leysingum.
Á fundi útgáfufélagsins síðastliðinn
föstudag lét Ágúst Ólafsson af stjórnar-
störfum, en hann hefur verið formaður út-
gáfustjórnarinnar í eitt ár. Ágúst hefur
nýlega verið ráðinn forstöðumaður
RAUST, Ríkisútvarpsins á Austurlandi,
með aðsetur á Egilsstöðum.
Jón Knútur Ásmundsson lætur af starfi
ritstjóra á næstu mánuðum og mun ráðast
alveg á næstunni hver tekur við af honum.
Fjórir vilja rit-
stýra Austur-
glugganum
♦♦♦