Morgunblaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 2
Bændur bíða vætunnar úrkoma og vindur verði undir eða yfir til- teknum mörkum.“ Að sögn Einars er sú aðferð sem beitt er í stórum dráttum sú, að gerðar eru um 50 keyrslur á veðurlíkani þar sem upphafs- gildum er hnikað lítillega. Í einni keyrslunni er spáð lítilsháttar úrkomu norðanlands til- tekinn dag en í annarri er ekkert minnst á það o.s.frv. Samanlagt gefa þessar 50 tölvu- keyrslur á einni öflugustu tölvu heims lík- indadreifingu á ýmsum veðurþáttum. „Þessar spár hafa sömu annmarka og aðrar tölvureiknaðar veðurspár, mikið dregur úr áreiðanleika þeirra eftir sex til átta daga, en þessi nálgun í framsetningu á veðurspám er önnur en landsmenn eiga að venjast,“ segir Einar. „Óvissuþáttunum fjölgar eftir því sem lengra dregur, en engu að síður er spá til sex til átta daga á þessum árstíma nokk- uð ábyggileg. Spáin sem nú liggur fyrir sýnir líkur á samanlagðri úrkomu 3 mm eða meira yfir þriggja daga tímabil í næstu viku. Sam- kvæmt spánni eru líkur á úrkomu 3 mm eða meira þessa daga innan við 35%. Grænu svæðin á kortinu sýna þau svæði þar sem verulega líklegt er að vætusamt verði þessa daga. Úrkoma innan við 3 mm á þremur dögum er tiltölulega lítil úrkoma og gerir lítið gagn. Til glöggvunar er meðalúrkoma í maí í Reykjavík 44 mm, á Akureyri 19 mm, á Dalatanga (austast á landinu) 93 mm og á Kirkjubæjarklaustri 118 mm. Ekki munaði miklu að heiðskírt væri yfir landinu þegar þessi gervitunglamynd var tekin á hádegi. Einhver ský læddust þó yfir hluta landsins, sérstaklega á Suðausturlandi. Blíðan ent- ist langt fram eftir degi, þótt ekki væri heiðskírt svo víða nema í stuttan tíma þegar myndin var tekin. ÞEIR Íslendingar sem hyggja á útiveru næstu dagana geta að öllum líkindum glaðst, en bændur og garðyrkjufólk verða að bíða úrkomunnar a.m.k. í eina viku í við- bót ef marka má veðurspá Evrópsku reikni- miðstöðvarinnar fyrir veðurspár (ECMWF). Samkvæmt henni mega Íslend- ingar eiga von á áframhaldandi nokkuð þurru veðri fram yfir helgi og jafnvel eitt- hvað lengur. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir veðrið undanfarið hafa verið nokkuð þurrt og norðanátt ríkjandi. „Nú erum við komin inn í hæg- viðrasamt veður og háþrýstingur yfir land- inu. Það sem þarf er að þessi veðurstaða sem uppi hefur verið brotni upp og við fáum lægð sem brýst í gegn með vænum skammti af rigningu,“ segir Einar og bætir við að þessar sömu tölvuspár geri ráð fyrir að það geti gerst um næstu helgi. Spágildi sem líkindi „Í ECMWF eru daglega reiknaðar veð- urspár til næstu tíu daga sem settar eru fram myndrænt með ýmsum hætti,“ segir Einar. „Til að mynda er hægt að sjá spá- gildi sem líkindi á því að þættir eins og hiti, Von á áframhaldandi nokkuð þurru veðri fram yfir helgina 2 LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MET Í MR Höskuldur Pétur Halldórsson hef- ur lokið stúdentsprófi með hæstu ein- kunn í sögu Menntaskólans í Reykja- vík, en hann hlaut einkunnina 9,90. Hæsta einkunnin áður var 9,89 og var sú einkunn gefin fyrir tveimur ár- um. Löggjöf endurskoðuð Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra hefur falið Ragnheiði Braga- dóttur, prófessor við lagadeild HÍ, að semja drög að lagafrumvarpi hvað snertir þau ákvæði sem eru um nauðgun og önnur brot gegn kyn- frelsi fólks, kynferðisbrot gegn börn- um og vændi. Sjóræningjatogarar á karfa Flugvél Landhelgisgæslunnar sá sjö svokallaða sjóræningjatogara að karfaveiðum við 200 sjómílna lög- sögumörkin suðvestur af Reykjanesi, og náði á mynd þegar flutningaskip tók við fiski úr einum togaranna. Varðskip verður sent á vettvang til að elta flutningaskipið til að sjá hvar það landar. Biðlað til Frakka Stuðningsmenn stjórnarskrársátt- mála Evrópusambandsins reyndu í gær að vinna óákveðna kjósendur í Frakklandi á sitt band fyrir þjóð- aratkvæðagreiðsluna um hann á morgun. Kanslari Þýskalands og for- sætisráðherra Spánar fóru til Frakk- lands til að taka þátt í síðustu fundum stuðningsmanna stjórnarskrárinnar. Viðurkenna vanhelgun Bandarískir embættismenn sögðu í gær að vitað væri með vissu um fimm tilfelli þess að Kóraninn, hin helga bók múslíma, hefði verið óvirt- ur í fangabúðum Bandaríkjahers í Guantanamo á Kúbu. Engin áreið- anleg sönnun væri þó fyrir því að honum hefði verið sturtað niður um salerni. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Umræðan 35/48 Sigmund 8 Bréf 47 Úr verinu 12 Kirkjustarf 48 Viðskipti 16 Messur 49 Erlent 18/19 Minningar 49/54 Minn staður 22 Dagbók 60/63 Akureyri 24 Myndasögur 60 Suðurnes 24 Víkverji 60 Landið 26 Velvakandi 61 Árborg 26 Staður og stund 62 Daglegt líf 28 Af listum 69 Ferðalög 29/31 Leikhús 64 Menning 32/33, 63/69 Ljósvakamiðlar 70 Úr vesturheimi 34 Staksteinar 71 Forystugrein 36 Veður 71 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                 ! " #          $         %&' ( )***                     edda.is KOMIN Í VERSLANIR! Fáanleg á íslensku og ensku. Eyðibýli á Íslandi Í þessari sérlega fallegu ljósmyndabók er að finna einstakar myndir af eyðibýlum á Íslandi. Þær eru teknar á um 15 ára tímabili en flestar eru þó frá árunum 1997-2002. Falleg bók sem vekur upp ljúfsárar tilfinningar um það sem eitt sinn var. eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og Nökkva Elíasson KARLMAÐUR beið bana er fólksbif- reið og vöruflutningabíll skullu saman á þjóðveginum um Hvalfjörð, rétt við afleggjarann að Miðdal í Kjós. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík varð óhappið um klukkan hálfníu í gærmorgun. Flutningabíll með tengi- vagn var á leið í austurátt. Á móti honum kom fólksbíll sem lenti framan á vöruflutningabílnum. Bílstjóri flutn- ingabílsins gerði hvað hann gat til að afstýra árekstri en allt kom fyrir ekki. Hann sakaði ekki en ökumaður fólks- bílsins, sem var einn í bílnum, lést. Hann var 24 ára gamall. Veginum um Hvalfjörð var lokað vegna slyssins en opnaður aftur um klukkan 11. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar síðdegis í gær var enn unnið að rannsókn málsins. Banaslys í Hvalfirði Morgunblaðið/Júlíus Slökkviliðsmenn að störfum á vettvangi slyssins í Hvalfirði í gær. ALMENN prestskosning fer fram í Hofsprestakalli í Múlaprófastsdæmi í dag. Fjórir umsækjendur eru í kjöri en þetta er fyrsta kosningin af þessu tagi síðan árið 1997 í Garðabæ. Yf- irleitt eru það valnefndir viðkomandi prestakalls sem koma sér saman um nýjan prest en meira en þriðjungur sóknarbarna í Hofsprestakalli fór fram á kosningu, líkt og lög heimila. Í kjöri eru sr. Brynhildur Óladótt- ir, prestur á Skeggjastöðum, og guð- fræðingarnir Klara Hilmarsdóttir, Stefán Már Gunnlaugsson og Þóra Ragnheiður Björnsdóttir. Óánægja vegna kjörskrár Skv. upplýsingum Morgunblaðs- ins gætir óánægju meðal nokkurra sóknarbarna á Vopnafirði sem ekki hafa komist á kjörskrá þjóðkirkjunn- ar. Er þetta á annan tug manna, m.a. fólk sem hefur verið í kirkjukór Vopnafjarðarkirkju og átt sæti í sóknarnefnd. Fjórir í kjöri í Hofs- prestakalli VORIÐ er loks farið minna á sig og miðað við veðurblíðuna í gær geta landsmenn smám saman farið að pakka vetrarföt- unum niður. Í gærdag var mjög víða léttskýjað og hiti fór mest upp í 16 gráður á Húsafelli og í Hjarðarlandi. Reykvík- ingar nutu 12 stiga hita og glampandi sólar og á Norðurlandi voru 5–10 gráður en 12 á Akureyri. Gert er ráð fyrir svipuðu veðri í dag þótt það gætu verið meiri skúrir sunnan- og vestanlands. Hitinn ætti að fara að aukast á Vopnafirði en þar hafa bændur verið í stökustu vandræðum með sauðfé vegna kulda og ryðja þurfti Hellisheiði eystri í gær. Næstu daga verður hægur vindur og sól og landsmenn geta krosslagt fingur og vonast til þess að nú sé sumarið komið til að vera. Sumarið komið til að vera? HALLDÓR Ásgrímsson forsætisráðherra hefur rætt við Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, borgarstjóra Reykjavíkur, um að ríki og borg vinni saman að því að auka öryggi gönguleiðarinnar á Þverfellshorn. Í gær kynnti hann sér göngustíg sem Ferðafélag Ís- lands hefur lagt í Laufskörðum sem gerir gönguleið- ina þar færa flestum. Halldór stundar talsvert fjallgöngur og var ferðin í gær þriðja ferð hans á Esjufjallgarðinn í þessum mánuði. Hann segist talsvert hafa orðið var við það að fólk hafi lent í vandræðum efst í Þverfellshorni, sumir villst og aðrir slasast. „Það er til mikillar fyr- irmyndar sem Ferðafélag Íslands er að gera í Lauf- skörðunum og það þarf að gera það sama efst í Þverfellinu. Þeir segja mér að þeir ætli að gera það og mér finnst að það þurfi að ganga í það sem fyrst. En auðvitað þurfa Reykjavíkurborg og ríkið að hjálpa til við þetta því þetta er vinsælasta leið Reyk- víkinga þegar þeir fara í fjallgöngur. Þetta er nú ekki mikið mál, það þarf bara að koma þessu í gang,“ sagði Halldór Ásgrímsson í fjallgöngunni í gærmorgun. | 11 Morgunblaðið/Rúnar Í þriðja skipti í þessum mánuði fór Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra upp á Esjufjallgarðinn. Forsætisráðherra vill auka öryggi göngumanna á Esjunni Gönguleiðin upp á Þver- fellshorn verði lagfærð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.