Morgunblaðið - 28.05.2005, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
15% afsláttur
af öllum drögtum
Síðasti tilboðsdagur
iðunn
tískuverslun
Kringlunni,
sími 588 1680
RALPH LAUREN
Smáralind
RALPH LAUREN
POLO JEANS
Ný sending
af
kvartbuxum
frá
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18, lau. kl. 10—16
Sumarjakkar - Sumarúlpur
SIGURSTJARNAN
Bláu húsunum Fákafeni • Sími 588 4545 • Opið 11-16 virka daga, 12-16 lau.
Einnig opið á morgun sunnudag frá 13-16.
SUMAR-
SPRENGJA
60%
af öllu
Ekta pelsar, rúmteppi, púðar, styttur, lampar,
húsgögn, rúmföt, leðurskálmar, hattar, úlpur
Vaxtalausar léttgreiðslur í boði
Til sýnis og sölu
í dag og á morgun
splunkunýr
Ford Mustang GT
primerium +
aukahlutir
KVÍÐANÁMSKEIÐ
Ásmundar Gunnlaugssonar
„Ég reyni að opna augu fólks fyrir því, að
eitthvað sem er sársaukafullt og erfitt getur
verið blessun í dulargervi. Það er hægt að
nota það sem á dynur á uppbyggjandi hátt.”
Sjá nánar á www.jogaskolinn.is
Hefst 7. júní - Þriðjud. og fimmtud. kl. 20
S K Ó L I N N
Skeifan 3,
Reykjavík
Skráning í símum 862 5560 og 862 5563
eða á www.jogaskolinn.is
FORSETI Indlands, dr. A.P.J. Abd-
ul Kalam, kemur til Íslands ásamt
fjölmennri sendinefnd síðdegis á
morgun í opinbera heimsókn. Í
fylgd með forsetanum eru m.a.
ráðherra, þingmenn, vísindamenn
og háttsettir embættismenn. Þá
koma einnig til landsins fjölmargir
aðrir gestir frá Indlandi og Banda-
ríkjunum í tilefni af heimsókninni,
ekki síst áhrifamenn í viðskiptalífi.
Það er í fyrsta sinn sem forseti
Indlands kemur í slíka heimsókn
en hún hefst formlega á mánudag-
inn og stendur í tvo daga.
Fram kemur í fréttatilkynningu
frá skrifstofu forseta Íslands að á
meðan á heimsókninni stendur
verður sjónum m.a. beint að hvern-
ig Indverjar geta tileinkað sér
þann árangur sem Íslendingar
hafa náð við að byggja upp viðvör-
unarkerfi um aðsteðjandi jarð-
skjálfta og aðra náttúruvá. Forseti
Indlands óskaði sérstaklega eftir
því að kynnast framlagi íslenskra
vísindamanna og stofnana á þessu
sviði.
Samvinna á sviði lyfjaiðnaðar
Hin opinbera heimsókn hefst
með móttökuathöfn á Bessastöðum
að morgni mánudagsins 30. maí. Í
hádeginu munu forsetarnir taka
þátt í viðskiptaráðstefnu þar sem
sérstök áhersla verður lögð á sam-
vinnu á sviði lyfjaiðnaðar og for-
seti Indlands mun leggja hornstein
að nýrri byggingu lyfjafyrirtæk-
isins Actavis.
Síðdegis á mánudag verður sér-
stök dagskrá á vegum Veðurstof-
unnar í Öskju, húsi Háskóla Ís-
lands, um viðvörunarkerfi vegna
jarðskjálfta og annarra nátt-
úruhamfara. Þá mun forseti Ind-
lands einnig heimsækja Norrænu
eldfjallastöðina og Stjórnstöð al-
mannavarna. Um kvöldið bjóða ís-
lensku forsetahjónin til hátíð-
arkvöldverðar sem haldinn verður
í Listasafni Reykjavíkur, Hafn-
arhúsinu.
Þriðjudaginn 31. maí mun for-
seti Indlands eiga viðræður við
Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra og snæða hádegisverð í boði
hans á Þingvöllum. Hann mun jafn-
framt koma að Nesjavöllum og
kynnast starfseminni þar. Síðdegis
verður málþingið um nýtingu jarð-
varma og um vetnisverkefnið.
Opinberri heimsókn forseta Ind-
lands lýkur með indverskri menn-
ingardagskrá í Salnum í Kópavogi
og móttöku sem forsetinn býður til
í Gerðarsafni.
Forseti Indlands kemur í opinbera heimsókn á morgun
Lýsti áhuga á að kynna
sér viðvörunarkerfi um
aðsteðjandi náttúruvá
Reuters
Dr. A. P. J. Abdul Kalam kemur
með fjölmennri sendinefnd.
Laxamýri. Morgunblaðið. | Vorferðir
leikskólanna á Húsavík suður í
Reykjahverfi og Aðaldal hafa staðið
yfir þessa vikuna og hafa börnin haft
mjög gaman af því að breyta til þó svo
að veðrið hafi verið kalt. Hátt á annað
hundrað barna fór í sveitaferðir til
þess að sjá búskapinn, þau fóru einn-
ig með nesti og brugðu á leik í heyi.
Það að komast í snertingu við
skepnurnar skiptir miklu máli fyrir
marga, enda gaman að halda á og
klappa. Vildís Rúnarsdóttir sem er í
leikskólanum í Bjarnahúsi var ein
þeirra sem kunni vel að meta skepn-
urnar og kanínukarlinn Gráni var í
sérstöku uppáhaldi.
Gaman
að halda á
og klappa
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Vildís Rúnarsdóttir með Grána.