Morgunblaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 15% afsláttur af öllum drögtum Síðasti tilboðsdagur iðunn tískuverslun Kringlunni, sími 588 1680 RALPH LAUREN Smáralind RALPH LAUREN POLO JEANS Ný sending af kvartbuxum frá Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Opið mán.—fös. frá kl. 10—18, lau. kl. 10—16 Sumarjakkar - Sumarúlpur          SIGURSTJARNAN Bláu húsunum Fákafeni • Sími 588 4545 • Opið 11-16 virka daga, 12-16 lau. Einnig opið á morgun sunnudag frá 13-16. SUMAR- SPRENGJA 60% af öllu Ekta pelsar, rúmteppi, púðar, styttur, lampar, húsgögn, rúmföt, leðurskálmar, hattar, úlpur Vaxtalausar léttgreiðslur í boði Til sýnis og sölu í dag og á morgun splunkunýr Ford Mustang GT primerium + aukahlutir KVÍÐANÁMSKEIÐ Ásmundar Gunnlaugssonar „Ég reyni að opna augu fólks fyrir því, að eitthvað sem er sársaukafullt og erfitt getur verið blessun í dulargervi. Það er hægt að nota það sem á dynur á uppbyggjandi hátt.” Sjá nánar á www.jogaskolinn.is Hefst 7. júní - Þriðjud. og fimmtud. kl. 20 S K Ó L I N N Skeifan 3, Reykjavík Skráning í símum 862 5560 og 862 5563 eða á www.jogaskolinn.is FORSETI Indlands, dr. A.P.J. Abd- ul Kalam, kemur til Íslands ásamt fjölmennri sendinefnd síðdegis á morgun í opinbera heimsókn. Í fylgd með forsetanum eru m.a. ráðherra, þingmenn, vísindamenn og háttsettir embættismenn. Þá koma einnig til landsins fjölmargir aðrir gestir frá Indlandi og Banda- ríkjunum í tilefni af heimsókninni, ekki síst áhrifamenn í viðskiptalífi. Það er í fyrsta sinn sem forseti Indlands kemur í slíka heimsókn en hún hefst formlega á mánudag- inn og stendur í tvo daga. Fram kemur í fréttatilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands að á meðan á heimsókninni stendur verður sjónum m.a. beint að hvern- ig Indverjar geta tileinkað sér þann árangur sem Íslendingar hafa náð við að byggja upp viðvör- unarkerfi um aðsteðjandi jarð- skjálfta og aðra náttúruvá. Forseti Indlands óskaði sérstaklega eftir því að kynnast framlagi íslenskra vísindamanna og stofnana á þessu sviði. Samvinna á sviði lyfjaiðnaðar Hin opinbera heimsókn hefst með móttökuathöfn á Bessastöðum að morgni mánudagsins 30. maí. Í hádeginu munu forsetarnir taka þátt í viðskiptaráðstefnu þar sem sérstök áhersla verður lögð á sam- vinnu á sviði lyfjaiðnaðar og for- seti Indlands mun leggja hornstein að nýrri byggingu lyfjafyrirtæk- isins Actavis. Síðdegis á mánudag verður sér- stök dagskrá á vegum Veðurstof- unnar í Öskju, húsi Háskóla Ís- lands, um viðvörunarkerfi vegna jarðskjálfta og annarra nátt- úruhamfara. Þá mun forseti Ind- lands einnig heimsækja Norrænu eldfjallastöðina og Stjórnstöð al- mannavarna. Um kvöldið bjóða ís- lensku forsetahjónin til hátíð- arkvöldverðar sem haldinn verður í Listasafni Reykjavíkur, Hafn- arhúsinu. Þriðjudaginn 31. maí mun for- seti Indlands eiga viðræður við Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra og snæða hádegisverð í boði hans á Þingvöllum. Hann mun jafn- framt koma að Nesjavöllum og kynnast starfseminni þar. Síðdegis verður málþingið um nýtingu jarð- varma og um vetnisverkefnið. Opinberri heimsókn forseta Ind- lands lýkur með indverskri menn- ingardagskrá í Salnum í Kópavogi og móttöku sem forsetinn býður til í Gerðarsafni. Forseti Indlands kemur í opinbera heimsókn á morgun Lýsti áhuga á að kynna sér viðvörunarkerfi um aðsteðjandi náttúruvá Reuters Dr. A. P. J. Abdul Kalam kemur með fjölmennri sendinefnd. Laxamýri. Morgunblaðið. | Vorferðir leikskólanna á Húsavík suður í Reykjahverfi og Aðaldal hafa staðið yfir þessa vikuna og hafa börnin haft mjög gaman af því að breyta til þó svo að veðrið hafi verið kalt. Hátt á annað hundrað barna fór í sveitaferðir til þess að sjá búskapinn, þau fóru einn- ig með nesti og brugðu á leik í heyi. Það að komast í snertingu við skepnurnar skiptir miklu máli fyrir marga, enda gaman að halda á og klappa. Vildís Rúnarsdóttir sem er í leikskólanum í Bjarnahúsi var ein þeirra sem kunni vel að meta skepn- urnar og kanínukarlinn Gráni var í sérstöku uppáhaldi. Gaman að halda á og klappa Morgunblaðið/Atli Vigfússon Vildís Rúnarsdóttir með Grána.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.