Morgunblaðið - 28.05.2005, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LÝSI hf. tók í notkun nýja verk-
smiðju við Fiskislóð í Örfirisey, þá
stærstu sinnar tegundar í heimin-
um. Framleiðslugeta fyrirtækisins
tvöfaldast í nýju verksmiðjunni.
Davíð Oddsson utanríkisráðherra
tók verksmiðjuna formlega í notkun
með táknrænum hætti í gær þegar
hann klippti á borða að viðstöddu
fjölmenni til marks um að starfsemi
sé formlega hafin í þessum nýju höf-
uðstöðvum fyrirtækisins. Þar verða
undir einu þaki öll rannsóknar- og
framleiðslustarfsemi, sem og aðal-
skrifstofur.
„Loksins er langþráður draumur
okkar að rætast,“ segir Katrín Pét-
ursdóttir, framkvæmdastjóri Lýsis.
„Aðstaðan við Grandaveg, þar sem
fyrirtækið hefur verið til húsa frá
stofnun árið 1938, var fyrir löngu
orðin allt of lítil. Það eru því mikil
umskipti fyrir okkur að flytja í þetta
glæsilega 4.400 fermetra hús, sem
búið er fullkomnasta tæknibúnaði
sem völ er á.“
Nýja verksmiðjan er sú stærsta í
heiminum á sínu sviði og fram-
leiðslugetan tvöföld á við gömlu
verksmiðjuna, eða 6.000 tonn á ári.
„Við höfum þurft að vísa frá við-
skiptum þar sem ekki hefur verið
hægt að anna eftirspurn þótt unnið
hafi verið dag og nótt, nær alla daga
ársins,“ segir Katrín. „Nú getum við
sinnt þessum viðskiptavinum og
fleirum, því þessi framleiðslugeta á
að duga okkur næstu 2–3 árin, þó
slíkt sé auðvitað aldrei hægt að full-
yrða með vissu.“
Með lyfjaframleiðsluleyfi
Nýja verksmiðjan uppfyllir svo-
kallað GMP lyfjaframleiðsluleyfi.
„Þannig færumst við nær og nær
lyfjageiranum,“ segir Katrín. „Það
er mikil eftirspurn eftir Omega-3
heilsuvörum og öðrum afurðum
okkar, enda sýna fjölmargar rann-
sóknir jákvæða virkni þeirra á lík-
amann, s.s. heila, hjarta, liði, geð,
húð, augu og sæðisfrumur. Einnig
hafa þær reynst vel í baráttu við
minnisleysi og athyglisbrest. Þessi
gæðastaðall er því mjög mikilvægur
fyrir okkur og skapar enn frekari
tækifæri til markaðssetningar á
vörum okkar.“
Langstærstur hluti framleiðsl-
unnar hjá Lýsi hf., eða 90%, fer á
markað erlendis. Vörur frá fyrir-
tækinu eru fluttar út til 30 landa.
Helstu markaðir eru í Evrópu,
Bandaríkjunum og Asíu.
65 starfsmenn vinna hjá Lýsi hf.
Samkvæmt markaðsrannsóknarfyr-
irtækinu AC Nielsen er Lýsi hf.
stærsta heilsuvörufyrirtæki lands-
ins og byggist niðurstaðan á sölutöl-
um verslana. Með því að skoða
fjölda skráðra strikamerkja í kassa-
kerfum fæst yfirlit yfir seldar ein-
ingar og söluverðmæti. Er Lýsi hf. í
fyrsta sæti í hópi heilsufyrirtækja í
báðum þessum flokkum.
Framkvæmdir hófust í ársbyrjun
2004. Íslenskir aðalverktakar og
Héðinn verksmiðja önnuðust verkið
og Landsbanki Íslands sá um fjár-
mögnun.
Lýsi opnar nýja og fullkomna verksmiðju í Örfirisey
„Langþráður draum-
ur okkar að rætast“
Morgunblaðið/Eyþór
Lýsi Katrín Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Lýsis, sýndi gestum nýju
verksmiðjuna í gær en hún tvöfaldar framleiðslugetu fyrirtækisins.
AÐGENGI að Geysi í Haukadal er
til fyrirmyndar en Gullfosssvæðið
er illa búið fyrir fólk sem er fatlað
eða á erfitt með gang. Þetta er
meðal niðurstaðna Þórunnar Eddu
Bjarnadóttur í BS ritgerð hennar í
umhverfisskipulagi við Landbún-
aðarháskóla Íslands.
Í ritgerðinni skoðaði Þórunn níu
náttúruverndarsvæði á Íslandi og
gaf þeim einkunn eftir því hvernig
aðgengismálum er háttað. Að henn-
ar sögn er aðgengi misjafnt og víða
óviðunandi.
Þórunn skoðaði svæðin með tilliti
til aðgengis fyrir hjólastóla og fyrir
fólk sem á erfitt með gang, t.d. fatl-
aðra, eldri borgara eða fólks sem á
við tímabundna erfiðleika að stríða,
t.d. vegna fótbrots. Staðirnir sem
Þórunn skoðaði voru Skaftafell,
Djúpalónssandur, Ásbyrgi, Þing-
vellir, Gullfoss, Geysir, Dimmuborg-
ir, Hraunfossar og Barnafoss. „Ég
ákvað að skoða þjóðgarðana því
þeir eru þjóðareign og eiga að vera
aðgengilegir fyrir alla. Hinir stað-
irnir eru fjölsóttir ferðamanna-
staðir,“ segir Þórunn og bætir við
að aðgengið hafi að mörgu leyti ver-
ið slæmt „Þetta eru oft lítil atriði
sem eru í ólagi en skipta fatlaða
einstaklinga rosalega miklu máli.
Stundum hefði mátt koma í veg fyr-
ir að hlutirnir færu svona ef við-
haldi og eftirliti væri sinnt með
skipulögðum hætti.“
Halli þarf að vera minni en 5%
Við athugunina skoðaði Þórunn
einkum halla göngustíganna, þétt-
leika yfirborðsins og breidd göngu-
stígsins. Þá fékk persónuleg upp-
lifun hennar á staðnum ákveðið
vægi. „Ég tók þá meðal annars mið
af því hversu vel maður sér í kring-
um sig frá göngustígnum. Við Gull-
foss sér maður t.d. allt í kringum
sig og fossinn blasir auðvitað við.“
Þórunn segir að halli á göngustíg-
um megi ekki vera meiri en 5% því
þá eigi fólk erfitt með að ganga
upp. „Það eiga að vera bekkir með
hundrað metra millibili við svona
göngustíga en það vantar mjög oft,“
segir Þórunn og bætir við að á nán-
ast öllum stöðunum hafi vantað upp
á að nægilega vel væri hugað að
handriðum sem fólk gæti stutt sig
við.
Þórunn segir að aðkoman í
Skaftafelli, við Hraunfossa og við
Geysi hafi verið einna best en
Djúpalónssandur og Gullfoss fá
lægsta einkunn. „Göngustígarnir á
Geysissvæðinu eru í ágætu ástandi,
breiðir og hellulagðir. Hins vegar er
ekki salerni fyrir fatlaða í Geysis-
stofu en það er verið að vinna í því.“
3 stjörnur fyrir gott aðgengi
Aðgengi að Gullfossi er hins veg-
ar slæmt og að sögn Þórunnar er
ekki merkt bílastæði fyrir fatlaða
við Sigríðarstofu eða Gullfosskaffi.
Þá er göngustígurinn frá Sigríð-
arstofu að útsýnispallinum illa far-
inn og misbreiður.
Þórunn leggur til að göngustígar
á náttúrusvæðum verði merktir sér-
staklega eftir því hvernig þeir eru
yfirferðar fyrir fatlaða. T.d. gefur
hún Hraunfossum þrjár stjörnur en
Gullfoss fær aðeins eina. Fyr-
irmyndina sækir hún til Bandaríkj-
anna og til Bretlands en bætir við
merki um hvort sérstakt bílastæði
sé fyrir fatlaða á svæðinu og hvort
salernisaðstaða sé fyrir hendi. „Í
Bretlandi eru stígar merktir með
stjörnugjöf eftir því hversu auðveld-
ir þeir eru yfirferðar. Ég held við
ættum að taka upp svona stjörnu-
gjöf. Það myndi auka útivist-
aráhuga hjá þeim sem þurfa á
þessu að halda,“ segir Þórunn og
bætir við að um stóran hóp fólks sé
að ræða.
Gott aðgengi að Geysi
en slæmt við Gullfoss
Lagt til að göngustígar fái stjörnur eftir aðgengi
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
Göngustígurinn að Gullfossi er víða illa farinn.
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Þórunn Edda skoðaði aðgengi að
níu náttúruverndarsvæðum.
Þórunn Edda leggur til að göngu-
stígar verði merktir stjörnum eftir
því hversu aðgengilegir þeir eru.
ÚR VERINU
Jón Páll fer
beint að
kjarnanum
á morgun