Morgunblaðið - 28.05.2005, Page 18

Morgunblaðið - 28.05.2005, Page 18
18 LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FRANSKIR fjölmiðlar sögðu í gær að ákall Jaques Chiracs, forseta Frakklands, á fimmtudaginn hefði verið ,„of lítið, of seint“. Flestir kjós- endur hefðu þegar gert upp hug sinn varðandi stjórnarskrársáttmála Evr- ópusambandsins og að þeir myndu líklega hafna henni í þjóðaratkvæða- greiðslu morgun. Í gær var lokadagurinn í kosninga- baráttunni og naut Chirac fulltingis Gerhards Schröders, kanslara Þýskalands, og Jose Luis Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar, sem komu til Frakklands í gær til að reyna í síðasta sinn að sannfæra efa- semdamenn á vinstri vængnum um mikilvægi stjórnarskrárinnar. Ætl- uðu þeir fyrst og fremst að reyna að hafa áhrif á stuðningsmenn Evrópu- sinnaðra sósíalista en sósíalistar hafa verið mjög tvístraðir í afstöðu sinni til stjórnarskrárinnar. Efri deild þýska þingsins sam- þykkti í gærmorgun stjórnarskrár- sáttmála Evrópusambandsins. Þýskaland er því níunda ríkið til að samþykkja stjórnarskrána en öll 25 aðildarríkin þurfa að samþykkja hana til að hún taki gildi. Talsmaður fram- kvæmdastjórnar Evrópusambands- ins segir þýsk stjórnvöld hafa með þessu sent sterk skilaboð til Frakka og Hollendinga sem ganga til þjóð- aratkvæðagreiðslu um stjórnar- skrána á næstu dögum, Frakkar á morgun og Hollendingar þremur dögum síðar. Skoðanakannanir í löndunum hafa sýnt að möguleiki sé á að báðar þjóðirnar hafni henni. Valery Giscard d’Estaing, fyrrver- andi forseti Frakklands, ávarpaði þýska þingið áður en gengið var til at- kvæða en hann er einn höfunda stjórnarskrárinnar. Sagðist hann innilega vona að samlandar sínir sam- þykktu stjórnarskrána á sunnudag- inn. Forn frægð, fornir draumar Eins og fram kemur í nýjasta hefti The Economist geta Frakkar státað sig af því að vera sú þjóð sem kom Evrópusamrunanum af stað. Árið 1950 lagði Robert Schuman, þáver- andi utanríkisráðherra Frakka, til samvinnu á sviði kola- og stálfram- leiðslu. Kola- og stálbandalag Evrópu varð fyrsti vísirinn að því að efla sam- starf Evrópuríkja. Markmið þess var að leitast við að gera ríkin efnahags- lega háð hvert öðru því þannig yrði verulega dregið úr líkum á því, að þau gripu til vopna til að gera út um ágreiningsmál sín. Síðan þá hafa Frakkar verið í aðalhlutverki í Evr- ópusamrunanum og tekið þátt í öllum verkefnum honum tengdum. Umræðan í Frakklandi snýst þó ekki aðeins um væntanlega stjórnar- skrá, heldur einnig um framtíð Frakklands. Eins og segir í fyrrnefndu hefti The Economist hefur sýn Frakka á sameinaða Evrópu breyst verulega frá því sem áður var. Í upphafi sáu þeir í sameinaðri Evrópu öryggi, full- vissu og athvarf frá þýskri þjóðern- ishyggju og fátækt. Nú líta þeir á hana sem ógn við hin frönsku sér- kenni. Auk þess er í Frakklandi mikil andstaða gegn því að Tyrkland fái inngöngu í Evrópusambandið en margir Frakkar líta svo á að hin væntanlega stjórnarskrá greiði Tyrk- landi leið inn í sambandið. Með inn- göngu Tyrklands óttast Frakkar að þeir missi enn frekar þau ítök sem þeir eitt sinn höfðu í sameinaðri Evr- ópu. Frakkar óttast einnig að stjórnar- skráin geri ódýru erlendu vinnuafli, sérstaklega frá Mið- og Austur Evr- ópu, auðveldara fyrir að komast inn á franskan vinnumarkað en atvinnu- leysi mælist nú 10,2% í landinu. Þessi ótti er ekki úr lausu lofti gripinn því franskur iðnaður hefur að einhverju leyti nú þegar verið fluttur út fyrir landsteinana þangað sem efni og vinnuafl er ódýrara. „Annars konar stjórnarskrá“ Nýleg stækkun Evrópusambands- ins til austurs hefur einnig áhrif á það hverjum augum Frakkar líta sam- runann. Eftir að tíu ný ríki gengu í sambandið 1. maí 2004 finnst þeim rödd sín ekki hljóma eins hátt innan sambandsins og þeim finnst tungu sinni og framtíð ógnað. Einnig upp- lifðu margir þeirra höfnun þegar þeir gátu ekki komið í veg fyrir innrásina í Írak og sáu að Evrópuþjóðirnar stóðu síður en svo sameinaðar að baki þeim. Hafni Frakkar stjórnarskránni mun það veikja stöðu Jacques Chir- acs forseta verulega og líklega koma í veg fyrir að hann geti setið kjörtíma- bil til viðbótar. Hann hefur þegar lýst því yfir að hann muni ekki feta í fót- spor fyrirrennara síns, Charles de Gaulle og segja af sér, en de Gaulle beið ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1969. Verði stjórnarskránni hafnað eða hún studd með naumum meirihluta mun hann þó líklega skipta út forsætisráðherranum, Jean- Pierre Raffarin, sem hefur verið mjög óvinsæll. Margir Frakkar segjast vilja „ann- ars konar stjórnarskrá fyrir annars konar Evrópu“ og telja að hægt verði að semja nýja, betri stjórnarskrá verði þessi felld. Leiðtogar annarra Evrópuþjóða telja það þó ekki raun- hæfan kost. Ákall Chiracs þótti ,,of lítið, of seint“ 55% Frakka eru á móti stjórnarskrár- sáttmála ESB en 45% styðja hann Reuters Fulltrúar á Evrópuþinginu standa fyrir utan þinghúsið í París og hvetja Frakka til að segja „já“ við væntanlegri stjórnarskrá Evrópusambandsins þegar hún verður lögð til þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudaginn. Eftir Jóhönnu Sesselju Erludóttur jse@mbl.is Islamabad. AP. | Að minnsta kosti 20 manns féllu og tugir til viðbótar særð- ust í því sem talið er hafa verið sjálfs- morðsárás í nágrenni Islamabad, höf- uðborgar Pakistan, í gær. Sprengingin varð við helgistað sjíta- múslíma sem voru samankomnir við bænahald hundruðum saman. Sjónarvottar segja að sprengingin hafi verið gríðarlega öflug og því sé ómögulegt að segja nákvæmlega til um hversu margir hafi fallið. Aðstæð- ur á vettvangi voru sagðar „eins og í helvíti,“ og má búast við að dánartal- an eigi eftir að hækka þar sem enn á eftir að koma í ljós um hversu mörg lík er að ræða auk þess sem margir hinna slösuðu eru taldir í lífshættu. Enginn hefur lýst tilræðinu á hend- ur sér en talið er að það tengist lang- varandi átökum súnníta og sjíta í landinu. 20 féllu og tugir særðust Búkarest. AP.| Rúmenskir saksóknar- ar fullyrtu í gær að ránið á blaða- mönnunum þremur, sem leystir voru úr haldi í vikunni eftir að hafa verið í haldi í 55 daga í Írak, hafi verið skipulagt í Rúmeníu. Segja þeir að- mannránið sé runnið undan rifjum auðkýfingsins Omars Hayssan, sem er sýrlenskur að uppruna. Hayssan, sem er einn af ríkustu mönnum Rúmeníu, hefur undanfarið sætt lögreglurannsóknar vegna fjár- málamisferlis. Talið er að hann hafi vonast til þess að með því að „bjarga“ gíslunum fengi hann aukna samúð og jafnvel mildari dóm. „Mannráninu og hótunum mann- ræningjanna í Írak var ætlað að hafa sterk sálfræðileg áhrif á þjóðina og láta Hayssan síðan líta út fyrir að vera bjargvættur blaðamannanna,“ sagði í yfirlýsingu frá rúmenska sak- sóknaraembættinu í gær. Leiðsögumaðurinn var með í ráðum Upplýsingar saksóknaranna byggjast á vitnisburði níu manns sem handteknir voru í Bagdad og greindu frá því að Hayssan hefði ásamt Mohammed Monaf, írask- bandarískum leiðsögumanni blaða- mannanna, skipulagt allt mannráns- ferlið. Monaf var „rænt“ með blaða- mönnunum þremur og sást hann á þeim myndböndum sem mannræn- ingjarnir sendu frá sér af gíslum sín- um. Stuttu eftir mannránið sagðist Hayssan svo hafa fengið símtal þar sem farið var fram á að hann greiddi mannræningjunum fjórar milljónir Bandaríkjadollara (sem svarar 260 milljónum króna) gegn því að gísl- arnir yrðu látnir lausir. Hayssan neitaði því fyrir rétti að hafa átt þátt í mannráninu. Hann sagði að hlutur sinn í málinu hefði snúið að því að afla fé til lausnar gísl- unum auk þess sem forseti landsins, Train Basescu, hefði beðið hann að nota sambönd sín í Bagdad til að greiða fyrir lausn þeirra. Blaðamennirnir, sem komu til síns heima á mánudag, hafa ekki tjáð sig um mannránið opinberlega en hafa boðað blaðamannafund á næstu dög- um. Í gær var gefin út handtökutil- skipun á hendur bæði Hayssan og Monaf vegna ásakana um hryðju- verkastarfsemi. Mannránið skipu- lagt í Rúmeníu Auðkýfingur lét ræna blaðamönnum í Írak svo hann gæti „bjargað“ þeim Washington. AP, AFP. | Bandarískir embættismenn sögðu í gær, að vitað væri með vissu um fimm tilfelli þess, að Kóraninn, hin helga bók múslíma, hefði verið óvirtur í fangabúðum Bandaríkjamanna í Guantanamo á Kúbu. Engin áreiðanleg sönnun væri þó fyrir því, að honum hefði verið sturtað niður um salerni. Ásakana um, að fangaverðir hafi sturtað niður Kóraninum er getið í skjölum starfsmanns FBI, banda- rísku alríkislögreglunnar, árið 2002 og tímaritið Newsweek hélt því einnig fram í grein, sem það var neytt til að draga til baka. Olli hún uppnámi í nokkrum múslímskum löndum og féllu að minnsta kosti 15 manns í mótmælaaðgerðum. Fór Bandaríkjastjórn hörðum orðum um Newsweek og sakaði það um að hafa „varanlega“ skaðað ímynd Banda- ríkjanna meðal múslíma. Ásetningur í þrjú skipti Jay Hood hershöfðingi sagði á fréttamannafundi í fyrradag, að ásakanir um að Kóraninn hefði verið svívirtur væru 13 en sannanir fyrir slíku lægju fyrir í fimm tilvikum. Fjórum sinnum hefðu fangaverðir átt í hlut en einu sinni maður, sem annaðist yfirheyrslur. Þrisvar sinn- um hefði verið um ásetning að ræða en tvisvar vangá. Vildi Hood ekki segja frá því í hverju óvirðingin hefði falist. Lawrence Di Rita, talsmaður Don- ald H. Rumsfelds varnarmálaráð- herra, var á fundinum með Hood og sagði, að nú ætti að vera ljóst, að í Guantanamo væri borin mikil virð- ing fyrir trú fanganna. Krefst refsingar Nokkrir breskir ríkisborgarar og fyrrverandi fangar Bandaríkja- manna í Afganistan og Guantanamo ítrekuðu á mánudag, að þeir hefðu margsinnis orðið vitni að saurgun Kóransins. Þá hefur Pervez Mush- arraf, forseti Pakistans, krafist þess, að Bandaríkjastjórn refsi þeim harð- lega, sem óvirtu Kóraninn, en ýmsir íslamskir hópar í Pakistan höfðu boðað til mótmæla í gær víða um landið. Viðurkenna að Kóraninn hafi verið saurgaður AP Þúsundir Pakistana mótmæltu vanhelgun liðsmanna Bandaríkjahers á Kóraninum í Islamabad í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.