Morgunblaðið - 28.05.2005, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 19
ERLENT
Íbúaþing í Mosfellsbæ laugardaginn 28. maí 2005
Gerum gott samfélag betra
Kl. 9:30 Morgunkaffi, skráning í hópa
Kl. 9:50 Karlakórinn Stefnir syngur
Kl. 10:00 Setningarávarp, Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Kl. 10:15 Jóhann Ingi Gunnarsson, íbúaþingsstjóri flytur inngangsorð
Kl. 10:30 Skipt í hópa – framsöguerindi sérfræðinga
Kl. 11:00 Hópavinna hefst
Kl. 12:00 Hádegisverður í boði Mosfellsbæjar – Mosfellskórinn syngur
Kl. 13:00 Hópavinna heldur áfram
Kl. 14:45 Kaffihlé
Kl. 15:00 Greint frá niðurstöðum hópavinnu í Íþróttamiðstöðinni
Kl. 15:55 Samantekt – lokaorð og þingi slitið
Kl. 16:00 Sveitaball fyrir utan Íþróttamiðstöðina
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar leikur og félagar úr Leikfélagi
Mosfellssveitar bregða á leik
Dagskrá:
Þingstaðir: Dagskrá íbúaþings:
FJÖLSKYLDAN
Fyrirlesarar:
Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands
Gylfi Jón Gylfason, yfirsálfræðingur hjá Reykjanesbæ
Umræðuefni í hópum:
Lýðræði unga fólksins – Barnafjölskyldur – Heldri borgarar
FRÆÐSLA, MENNING, TÓMSTUNDIR OG FRÍTÍMI
Fyrirlesarar:
Signý Pálsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála Reykjavíkurborgar
Þórólfur Þórlindsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands
Umræðuefni í hópum:
Fræðslumál – Menningarmál – Íþróttir, tómstundir og frítími
SKIPULAGS- OG UMHVERFISMÁL
Fyrirlesarar:
Gylfi Guðjónsson, arkitekt og skipulagsráðgjafi
Bjarni Reynarsson, land- og skipulagsfræðingur
Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt
Umræðuefni í hópum: Skipulagsmál – Umhverfismál og náttúra
ATVINNU- OG FERÐAMÁL
Fyrirlesari:
Sævar Kristinsson ráðgjafi
Umræðuefni í hópum: Atvinnu- og ferðamál
Sjá einnig á www.mos.is
• Íþróttamiðstöð Mosfellsbæjar við Varmá: setning og morgunkaffi
• Varmárskóli, yngri deild, gagnfræðadeild og Íþróttamiðstöð: fyrirlestrar
• Varmárskóli gagnfræðadeild: hópavinna, hádegisverður og kaffi
• Íþróttamiðstöð Mosfellsbæjar: niðurstöður kynntar
• Utan við Íþróttamiðstöð Mosfellsbæjar: sveitaball
MOSFELLSBÆR
Sérstök dagskrá fyrir börn
og unglinga meðan á
íbúaþinginu stendur
Tókýó. AFP. | Japanskir karlmenn
eru mjög vandir að virðingu sinni
og jakkaföt og bindi eru búning-
urinn, sem þeir klæðast við næstum
öll tækifæri svo fremi þeir stundi
ekki einhverja erfiðisvinnu. Í kæf-
andi sumarhitanum er þessi klæðn-
aður að sjálfsögðu hin mesta pína
og þess vegna er það venjan að hafa
loftkælinguna á fullu. Það á hins
vegar sinn þátt í vaxandi gróður-
húsaáhrifum og með það í huga hef-
ur nú japanska umhverfisráðu-
neytið beðið alla bindisþræla að
mæta léttklæddir í vinnuna.
Yuriko Koike umhverfisráð-
herra, sem er kona, varð auðvitað
fyrst til að létta aðeins á sér og
mætir nú í ráðuneytið í stutterma
skyrtu með blóma- og fuglamynd-
um. Þá vakti það ekki litla athygli
þegar Hiroyuki Hosada, talsmaður
stjórnarinnar og hægri hönd Jun-
ichiro Koizumis forsætisráðherra,
mætti á reglulegan fréttamanna-
fund í ljósblárri, stutterma skyrtu
og fráhneppt í hálsinn. Tók hann þó
skýrt fram, að ef þetta mæltist ekki
vel fyrir, myndi hann umsvifalaust
fara í jakkafötin aftur en Hosada er
kunnur fyrir íhaldssaman klæða-
burð.
Hitinn ekki niður
fyrir 28 gráður
Umhverfisráðuneytið vill, að eng-
in loftkæling verði stillt á minni hita
en 28 gráður á celsíus, sem er auð-
vitað fullmikill hiti fyrir menn í
jakkafötum og með bindið reyrt að
hálsinum. Af þessum sökum hefur
verið boðað til „léttklædds“ rík-
isstjórnarfundar 3. júní næstkom-
andi.
Þetta er raunar ekki í fyrsta sinn,
sem Japanir fitja upp á herferð af
þessu tagi. Það gerðu þeir líka í ol-
íukreppunni 1979, í kjölfar íslömsku
byltingarinnar í Íran. Þá var ráð-
herrum sagt að mæta í heldur létt-
ari klæðnaði en venjulega og máttu
vera með bindið lausreyrt og dálítið
opið í hálsinn. Þótt þetta gengi fljótt
yfir hafa sumir gamlir stjórn-
málamenn enn þennan háttinn á
enda miklu þægilegra.
Kýótó-sáttmálinn um umhverf-
ismál var undirritaður í Japan eins
og nafnið bendir til og Japanir vilja
því ekki vera eftirbátar annarra í
þeim efnum. Hefur umhverfisráðu-
neytið hafið mikla auglýsinga-
herferð í samvinnu við stórverslanir
og aðaláherslan lögð á myndir af
„flottum“ og léttklæddum karl-
mönnum á öllum aldri. Með þeim
fylgja síðan nokkur góð ráð.
„Ekkert að óttast“
Það fyrsta er að kaupa skyrtur
með stífum flibba.
„Ef skyrturnar eru pressaðar
heima, má halda lögun flibbans með
því að nota meiri sterkju en áður,“
segir þar og ráð númer tvö er að
vanda vel valið á nærskyrtunni. Lit-
urinn á henni skipti miklu máli.
Mjög ljósbrún nærskyrta fari best
við skjannahvíta skyrtu. Síðan er
líka útskýrt hvernig fara eigi með
vasaklút við þessa múnderingu.
Koike umhverfisráðherra hvetur
til byltingar í hugsunarhætti og seg-
ir, að rangt sé að áfellast karlmenn
fyrir virðingarleysi eða ruddaskap
þótt þeir séu léttklæddir.
„Það er ekkert að óttast ef allir
standa saman,“ segir hún en Jap-
anir eru kunnir fyrir margt annað
en sundurgerð í klæðaburði.
„Flott“ að vera léttklæddur
Umhverfisráðuneytið hvetur japanska karlmenn til að skilja jakkafötin og
stífa flibbann eftir heima til að draga úr gróðurhúsaáhrifum
Reuters
Virðulegir menn, japanskir stjórnmálamenn. Nú kemur í ljós hvort satt sé, sem sagt er, að fötin skapi manninn.
Kuala Lumpur. AFP. | Innanrík-
isráðherra Malasíu, Azmi Kha-
lid, sagðist í gær ætla að slaka á
reglum varðandi ólöglegt
vinnuafl í landinu. Ætlar hann
að gefa út atvinnuleyfi til þeirra
verkamanna sem þegar eru
fyrir í landinu frá Indónesíu og
öðrum grannríkjum. Nægir
framvegis að hafa ferðamanna-
áritun til að geta sótt um vinnu.
Gildandi reglur hafa valdið
miklum vinnuaflsskorti í Mal-
asíu og fögnuðu atvinnurek-
endur ákvörðun ráðherrans.
Fleiri erlendir verkamenn
eru í Malasíu en í flestum öðr-
um Asíulöndum og er talið að
nú séu löglegir og ólöglegir út-
lendingar um 2,6 milljónir af
alls um 10,5 milljónum starf-
andi manna í landinu. Nokkur
hundruð þúsund manns hafa
verið rekin úr landi síðustu
mánuði en stjórnvöld hafa m.a.
borið því við að ólöglegir verka-
menn séu hættulegir öryggi
þjóðarinnar, glæpatíðni vaxi
vegna veru þeirra.
Talið er að nú skorti um
200.000 verkamenn til starfa í
verksmiðjum, 150.000 í bygg-
ingariðnaði, 50.000 í vinnu á
plantekrum og 20.000 í þjón-
ustustörf. Stjórnvöld í Kuala
Lumpur hafa öðru hverju frá
1992 rekið ólöglega verkamenn
úr landi, en hafa ávallt dregið í
land vegna þarfa atvinnulífsins
fyrir ódýrt vinnuafl.
Malasía
Vilja meira
erlent
vinnuafl