Morgunblaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 22
Í einkasölu 3 stórglæsileg raðhús mið-
svæðis í Þorlákshöfn á Selvogsbraut 3–3b.
Húsin afhendast fullbúin og eru tilbúin til
afhendingar mjög fljótlega. Húsin eru með blágrýti að utan og eru því nánast við-
haldsfrí.
Í húsunum eru 2 mjög rúmgóð svefnherbergi, sjónvarpshol, rúmgott baðherbergi,
glæsileg stofa með bogaglugga og eldhús, þvottahús og góð forstofa þaðan sem inn-
angengt er í bílskúrinn. Í enda bílskúrs er góð geymsla. Stórt og gott milliloft er yfir
bílskúrnum. Húsið afhendist með vönduðum innréttingum, fataskápum og innihurð-
um úr eik. Heimilistæki verða mjög vönduð. Á gólfum í stofu, eldhúsi, sjónvarpsholi
og svefnherbergjum verður eikarparket. Í forstofu, þvottahúsi og á baðherbergi verða
flísar. Hiti er í gólfum að hluta. Halogen-lýsing er í loftum. Öll loft eru upp tekin. Sól-
bekkir verða uppsettir. Í bílskúrnum og í geymslu verður Eposi Terrazo efni á gólfi.
Endahúsið er 106 fm ásamt 25,6 fm bílskúr. Verð kr. 22,3 m.
Miðhúsin eru 103,6 fm ásamt 26,9 fm bílskúr. Verð kr. 20,9 m.
Allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Fasteignasölu Suðurlands
í síma 483 3424 og á www.eignin.is
LÚXUS ÍBÚÐIR Í ÞORLÁKSHÖFN
– 3O MÍN. FRÁ REYKJAVÍK
Unubakka 3b • Þorlákshöfn • Guðbjörg Heimisdóttir, lögg. fasteignasali
Flúðir | Sólardagarnir sem verið hafa að und-
anförnu eru vel þegnir hjá garðyrkjubændum sem
ekki stunda útirækt. Heitt er í húsunum þótt loft-
hiti sé ekki mikill utandyra. Uppskera hjá tóm-
ataræktendum er ágæt og sala á afurðunum góð.
Fjórar tegundir af tómötum eru ræktaðar á
Flúðum. Eru það auk venjulegra, konfekttómatar,
plómutómatar og kirsuberjatómatar. Þeir síðast-
nefndu eru ræktaðir í garðyrkjustöðinni Brún en
þaðan eru sendar um 1.000 öskjur að jafnaði á
dag. Þar var Eva Dís Thorsteinson að tína kirsu-
berjatómata.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Tómatarnir vaxa vel í sólinni
Garðyrkja
Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Trúlega eru flestir bæjarbúar sammála
um að úrbóta sé þörf í atvinnumálum
svæðisins. Hins vegar eru menn ekki
sammála um leiðir, margir vilja stóriðju
og þá er álver oftast nefnt til sögunnar
en svo eru aðrir sem vilja styrkja þann
atvinnurekstur sem fyrir er, eða byggja
upp minni fyrirtæki. Heldur hefur farið
lítið fyrir þingmönnum okkar í þessari
umræðu að mínu mati. Það mun vafa-
laust breytast ef sérstakur Akureyr-
arlisti verður boðinn fram í næstu al-
þingiskosningum eins og flest bendir til.
Á Akureyri búa líka langflestir kjós-
endur Norðausturkjördæmis og þeir
ættu því að geta haft töluverð áhrif á
gang mála.
En það er líka við okkur heimamenn
að sakast, við höfum ekki unnið okkar
heimavinnu í atvinnumálunum. Hér hafa
aðeins verið stofnuð félög og haldin
málþing og er því nema von að árang-
urinn sé ekki betri? Nýlega var félagið
Nýtt afl á Norðurlandi stofnað, sem
ætlar að beita sér fyrir uppbyggingu
stóriðju í Eyjafirði og nýtingu orkunn-
ar. Í dag er svo verið að stofna annað
félag, samtök um fjölbreytta atvinnu-
uppbyggingu. Munurinn á þessum
tveimur er að félagið sem stofnað verð-
ur í dag vill ekki álver, heldur leggja
áherslu á nýsköpun, þekkingariðnað og
hátækniiðnað, hvað sem það svo þýðir
nákvæmlega.
Um daginn var verið að ræða þessi
stóriðjumál í útvarpinu og þá hringdi
kona, úr Skagafirði að ég held, og hún
lagði það til að Akureyringar sneru sér
að ullariðnaðinum á ný. Já, af hverju
setjum við ekki verksmiðjurnar á Gler-
áreyrum í gang á ný? Við höfum reynsl-
una. Ef ég man rétt var hún þó ekkert
sérstök, alla vega ekki undir það síð-
asta. Hins vegar er Iðnaðarsafnið hans
Jóns Arnþórssonar mjög skemmtilegt
og fróðlegt og ástæða fyrir ferðalanga
sem og bæjarbúa að heimsækja það.
Úr
bæjarlífinu
AKUREYRI
Eftir Kristján Kristjánsson blaðamann
ursson yfirlæknir sagði tækið notað til
endurlífgunar eftir hjartastopp. Hann
sagði tækið veita mikið öryggi en von-
aðist jafnframt til þess að aldrei þyrfti
að nota það. Á myndinni eru fulltrúar
Hjarta- og æðaverndarfélags Akureyrar
og nágrennis og Heilsugæslustöðv-
arinnar, f.v. Sigríður Jónsdóttir, Kristín
Sigfúsdóttir, Bragi Sigurðsson, Gunn-
laugur Fr. Jóhannsson, Skúli Flosason,
Margrét Guðjónsdóttir og Pétur Pét-
ursson.
Hjarta- og æðaverndarfélag Ak-ureyrar og nágrennis afhentinýlega Heilsugæslustöðinni á
Akureyri hjartastuðtæki að gjöf. Gunn-
laugur Fr. Jóhannsson, formaður félags-
ins, afhenti Margréti Guðjónsdóttur
framkvæmdastjóra Heilsugæslustöðv-
arinnar tækið. Tækinu verður komið
fyrir í vaktbíl stöðvarinnar og sagði
Margrét að tækið kæmi að góðum not-
um. Það er mjög fullkomið og auðvelt í
notkun fyrir hvern sem er. Pétur Pét-
Morgunblaðið/Kristján
Afhentu hjartastuðtæki
Jón Ingvar Jónssonfór út að hjóla:
Stjórnin hefur höfuð tvö,
hún er völt á stóli.
Þetta ljóð frá A til Ö
orti ég á hjóli.
Honum varð litið til fjalla:
Fagnar degi foldar skart
og fer á stjá í einum rykk.
Æðislega er Esjan smart
en Akrafjallið dáldið sikk.
Nýstárleg notkun orða
minnir á Blús eftir skáld-
ið Elías Mar, sem ortur
var til minningar um Sig-
fús Daðason:
Lukt eru ljóðhús,
liggur nár Sigfús;
fékk smáa félús
fyrir sitt bardús.
Litterert létt-djús
lepur úr plastkrús
heimsk þjóð sem hrjáð mús.
Hjálpi mér Jesús.
Rúnar Kristjánsson á
Skagaströnd hlýddi á há-
degisfréttir á laugardag:
Gefur skell og skell og skell
skrítið valdaprikið.
Össur féll og féll og féll,
fall hans þótti mikið!
Af bardúsi
pebl@mbl.is
ÞRJÚ gömul sam-
göngumannvirki eru
myndefni á frímerkj-
um sem Íslandspóst-
ur gefur út 26. maí.
Sama dag koma út
tvö Evrópufrímerki
með óvenjulegu sniði, en þau eru að þessu
sinni tileinkuð matargerðarlist.
Þrjú íslensk samgöngumannvirki eiga
aldarafmæli á þessu ári. Þetta eru Lag-
arfljótsbrú, Sogsbrú og Jökulsárbrú í Öx-
arfirði sem allar koma nú út á frímerkjum.
Verðgildi frímerkjanna er 50 kr., 95 kr. og
165 kr. Hlynur Ólafsson, grafískur hönn-
uður, hannaði frímerkin. Ljósmyndir tóku:
Sigfús Eymundsson, Eyjólfur Jónsson og
Bárður Sigurðsson.
Evrópufrímerkin
Efni Evrópufrímerkjanna að þessu sinni
er matargerðarlist. PostEurop, samtök
póstrekenda í Evrópu, ákveður myndefni
Evrópufrímerkjanna hverju sinni. Verð-
gildi frímerkjanna er 70 kr. og 90 kr.
Frímerkin eru með óvenjulegu sniði sem
hæfir myndefninu vel en gengið er út frá
matardiski sem forsendu hönnunarinnar.
Hany Hadaya hjá H2 hönnun hannaði frí-
merkin. Ljósmyndir tók Thorsten Henn.
Gamlar brýr
og matar-
gerðarlist á
frímerkjum
Húsavík | Fjögur tilboð bárust í byggingu
sorpbrennslustöðvar á Húsavík, og var eitt
af þeim frávikstilboð. Frávikstilboð frá
Rein ehf. var kr. 147.409.488, eða 12% yfir
kostnaðaráætlun. Norðurvík bauð kr.
150.333.000, eða 14,2% yfir áætlun. Grímur
ehf. bauð kr. 153.282.283, eða 16,4% yfir
áætlun. Og Rein ehf. var svo með tilboð
upp á kr. 166.458,359, eða 26,5% yfir kostn-
aðaráætlun. Gróf kostnaðaráætlun hljóðar
upp á kr. 131.632.000.
Fjögur tilboð
♦♦♦