Morgunblaðið - 28.05.2005, Qupperneq 24
24 LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
Helguvík | Hlutfall endurvinnslu og endurnýt-
ingar er yfir 80% í nýrri flokkunar- og brennslu-
stöð Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja, Kölku, í
Helguvík. Stöðin var kynnt og formlega opnuð í
gær. Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráð-
herra sagði við þetta tækifæri að með opnun
stöðvarinnar væri tekið mikið framfaraskref.
Sveitarfélögin fimm á Suðurnesjum eiga og
reka Sorpeyðingarstöð Suðurnesja í samein-
ingu. Leysir hún af hólmi brennslustöðina við
Hafnaveg sem þjónaði svæðinu í 25 ár. Þar er
tekið á móti sorpi af öllum Suðurnesjum, meðal
annars af Keflavíkurflugvelli.
Stenst allar kröfur
Kalka hefur verið í uppbyggingu frá því á
árinu 2001 og hóf starfsemi í byrjun síðasta árs.
Þá tók við tímafrek vinna við að samstilla
brennslukerfið og ná upp fullum afköstum.
Lokaprófanir á hæfni og brennslugetu kerfisins
fóru fram í mars síðastliðnum og stóðst stöðin
allar hönnunarkröfur, að því er fram kom í
ávarpi Guðjóns Guðmundssonar, framkvæmda-
stjóra Sorpeyðingarstöðva Suðurnesja. Stöðin
er sú fullkomnasta sem starfrækt er hér á landi
og er byggð samkvæmt stöðlum Evrópusam-
bands Evrópu. Framkvæmdirnar kosta rúmar
800 milljónir kr. og er það í samræmi við upp-
haflega kostnaðaráætlun, að sögn Guðjóns.
Um leið og móttaka sorps var hafin á nýjum
stað voru sorpmál Suðurnesja endurskoðuð frá
grunni. Sorphirðukerfinu var breytt og flokkun
aukin. Reynt er að koma sem mestu í endur-
vinnslu. Varminn frá stöðinni er notaður til að
knýja gufurafal sem framleiðir álíka mikið raf-
magn og stöðin notar. Hlutfall endurvinnslu og
endurnýtinga í stöðinni er nú yfir 80% og segir
Guðjón að áhugi sé á því að auka það enn frekar.
Sveitarfélög landsins vinna nú að gerð áætl-
ana sem miðað að því að draga úr úrgangi sem
fer til brennslu eða förgunar. Sigríður Anna
Þórðardóttir umhverfisráðherra fagnaði því
sérstaklega í ávarpi sínu að unnið væri að einni
sameiginlegri svæðisáætlun fyrir Suðurland,
Suðurnes, höfuðborgarsvæðið og Vesturland. Á
svæðinu eru 46 sveitarfélög. Sveitarstjórnir á
þessu svæði sýndu með því framtaki mikla
framsýni og sagði ráðherra ljóst að þessi sam-
vinna yki möguleika á því að taka á úrgangs-
málum á markvissari og hagkvæmari hátt.
Yfir 80% endurnýting
Víkurfréttir/Þorgils
Kalka Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sorpeyðingarstöðvarinnar, tekur við platta frá
fulltrúa Vélsmiðjunnar Héðins sem sá um uppsetningu verksmiðjunnar.
Nýja móttöku- og sorpbrennslustöðin Kalka kynnt og formlega opnuð
Njarðvík | Erla Dögg Haraldsdóttir
sundkona hefur verið útnefnd Íþrótta-
maður Ungmennafélags Njarðvíkur fyrir
árið 2004. Tilkynnt var um valið á aðal-
fundi UMFN á dögunum. Er þetta annað
árið í röð sem Erla Dögg hlýtur sæmd-
arheitið.
Góð mæting var á fundinn, að því er
fram kemur á vef UMFN. Kristbjörn Al-
bertsson lét af formennsku eftir ellefu ár
í forystu félagsins. Kristján Pálsson,
fyrrverandi alþingismaður, var kjörinn í
hans stað.
Erla Dögg stakk sér varla til sunds á
síðasta ári án þess að vinna til verðlauna,
yfirleitt gullverðlauna. Meðal afreka
hennar má nefna að Erla Dögg varð
meistari í 14 einstaklingsgreinum á Ís-
landsmótum SSÍ.
Sigurvegari Erla Dögg með verðlaun sín.
Erla Dögg íþrótta-
maður UMFN
AKUREYRI
VIÐBRÖGÐ við nýrri almennri bók-
námsbraut við Menntaskólann á Ak-
ureyri fyrir nemendur sem lokið
hafa 9. bekk grunnskóla eru meiri
og jákvæðari en forsvarsmenn skól-
ans gerðu ráð fyrir. Menntamála-
ráðuneytið hefur veitt MA heimild
til fjögurra ára tilraunaverkefnis, að
hafa fljótandi skil milli grunn- og
framhaldsskóla, en kennsla á braut-
inni hefst þegar næsta haust. Náms-
brautin er fyrir nemendur sem hlot-
ið hafa 8 eða meira í einkunn í 9.
bekk grunnskóla. Um er að ræða
nýja leið fyrir framhaldsskóla með
bekkjakerfi til að koma til móts við
þá sem vilja flýta námi sínu um eitt
ár.
Um 100 manns, bæði frá Akur-
eyri, Eyjafjarðarsvæðinu og víðar
að af landinu, komu á kynningar-
fund á dögunum þar sem náms-
brautin var kynnt. „Mætingin var
langt umfram okkar væntingar,“
sagði Jón Már Héðinsson, skóla-
meistari Menntaskólans á Akureyri.
„Þetta var afskaplega ánægjulegt og
við höfum fengið fjölda fyrirspurna
um þessa nýjung frá öllum lands-
hornum og einnig útlöndum, en Ís-
lendingum búsettum víða um lönd
þykir þetta upplagt tækifæri fyrir
börn sín, þannig komast þau fyrr en
ella inn í framhaldskóla og ljúka
námi 19 ára gömul.“
Jón Már kvaðst afar ánægður
með að ráðuneytið skyldi fallast á
þessa byltingarkenndu nýjung varð-
andi nám við framhaldsskóla og
sagði þetta einnig mikla viðurkenn-
ingu fyrir grunnskólann.
Alma Oddgeirsdóttir námsráð-
gjafi hefur verið ráðin verkefna-
stjóri en hennar hlutverk er að
halda utan um allt skipulag, sjá um
námskeið fyrir kennara og leita leiða
til að bjóða upp á nýjungar í námi.
Hún sagði að vandað yrði sérstak-
lega til vals á nemendum inn á þessa
nýju braut. Miðað er við að kennt
verði í 15 manna bekk og verður
kennsla mun einstaklingsmiðaðri en
unnt er að bjóða upp á í stærri
bekkjum. „Við gerum ráð fyrir að
fara af stað með einn bekk í haust,
en vonandi verða þeir fleiri þegar
reynsla er komin á verkefnið,“ sagði
Alma. Við val á nemendum inn á
brautina verður auk einkunna horft
til greinargerðar sem nemandinn
skrifar sjálfur um hvers vegna hann
langar að spreyta sig á framhalds-
skólanámi ári á undan skólafélögum
sínum, einnig umsagnar umsjónar-
kennara sem og viðtala sem tekin
verða við umsækjendur og forráða-
menn þeirra.
„Þessi atriði munum við hafa til
hliðsjónar við val á nemendum, en
það skiptir að okkar mati afar miklu
máli að vanda vel til valsins á þess-
um fyrsta hóp,“ sagði Alma.
Stjórnendum MA telst til að um
30 ungmenni á Eyjafjarðarsvæðinu
nái tilskilinni lágmarkseinkunn, en
námið er að sjálfsögðu einnig opið
fyrir nemendur annars staðar af á
landinu og stendur pláss á nýrri
heimavist þeim nemendum til boða.
„Við vitum að það er ekki einföld
ákvörðun að yfirgefa grunnskólann
ári á undan félögum sínum, þetta er
mikil ákvörðun og ungmennin þurfa
að vega og meta ýmsa kosti og galla
áður en þeir taka slíka ákvörðun,“
sagði Jón Már.
Haustið 2006 mun MA bjóða upp
á kennslu á annarri almennri braut
fyrir nemendur sem lokið hafa 10.
bekk grunnskóla en uppfylla ekki
kröfur menntamálaráðuneytis um
inngöngu á bóknámsbraut fram-
haldsskóla Markmið þeirrar brautar
er að auka áhuga nemenda á námi
og búa þá undir að tryggja árangur
sinn í bóklegu námi á framhalds-
skólastigi.
„Það er jákvætt að nemendur og
foreldrar þeirra hafi meira val. Það
er svo afskaplega misjafnt hvaða
námsleið hentar hverjum og einum
og því fleiri leiðir sem í boði eru
þeim mun meiri líkur eru á að ung-
mennin finni eitthvað við sitt hæfi,“
sagði Alma.
Ný almenn bóknámsbraut við MA fyrir nemendur 9. bekkjar
Viðbrögð fram úr
björtustu vonum
Morgunblaðið/Kristján
Menntastofnun Húsnæði Menntaskólans á Akureyri.
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
TÓNLISTARSKÓLINN á Ak-
ureyri stendur fyrir Blásara-
sveitamóti á Akureyri nú um
helgina. Frumkvæði að mótinu
kemur frá Lúðrasveit Akureyrar
en aðalstjórnandi hennar er
Kaldo Kiis, aðstoðarskólastjóri
Tónlistarskólans. Um nýjung er
að ræða í tónlistarlífi bæjarins
þar sem blásarasveitamót með
þessu sniði hefur ekki áður verið
haldið þar sem völdum hljóm-
sveitum hefur verið boðin þátt-
taka. Gestahljómsveitir koma frá
Dalvík, Blönduósi og S-Þingeyj-
arsýslu. Sérstakir gestir helg-
arinnar eru meðlimir í Big Band
hljómsveit FÍH undir stjórn
Edwards Frederiksen. Á milli kl.
14.00 og 16.30 í dag verður
brugðið á leik og hljómsveitirnar
heimsækja Sundlaug Akureyrar,
Bónus, Hagkaup, Glerártorg og
Blómaval og spila fyrir fólk sem
á þar leið um. Í kvöld verða tón-
leikar Big Band hljómsveitar FÍH
kl. 21.00 í Ketilhúsinu. Aðgangur
er ókeypis og eru allir velkomnir.
Mótinu lýkur á morgun með tón-
leikum í nýju byggingu Brekku-
skóla kl. 10.30 þar sem allar
hljómsveitirnar koma fram. Bæj-
arbúar eru hvattir til að fjöl-
menna bæði á tónleikana í Ketil-
húsinu og í Brekkuskóla.
Tónleikar og uppá-
komur um allan bæ
Í VETUR hefur Heilsueflingarráð
Akureyrar staðið fyrir heilsuefl-
ingarátakinu „Einn, tveir og nú“
þar sem fyrst og fremst hefur ver-
ið lögð áhersla á að virkja börn á
grunnskólaaldri og foreldra þeirra
til reglulegrar hreyfingar. Átakinu
lýkur á morgun, sunnudaginn 29.
maí, kl. 13–16, með Göngudegi fjöl-
skyldunnar. Miðstöð Göngudagsins
verður á tjaldsvæðinu að Hömrum
og verður þar fjölbreytt dagskrá.
Boðið verður upp á gönguferðir
með leiðsögn um Kjarnaskóg þar
sem áhersla verður lögð á sögu
skógarins, vistkerfið og gróðurinn
sem fyrir augu ber, einnig verður
gönguferð um skóginn þar sem
fornminjar á svæðinu verða skoð-
aðar og saga Kjarnabæjarins rak-
in, Ferðafélag Akureyrar mun
kynna gönguleiðir og nýjum kort-
um af gönguleiðum á Akureyri og
nágrenni verður dreift. Boðið verð-
ur upp á kynningu á stafgöngu og
frisbígolfi, enn fremur verða rat-
leikir og útileikir.
Þá verður boðið upp á ókeypis
veitingar og tónlistaratriði, en öll
áðurnefnd dagskráratriði eru öll-
um opin án endurgjalds. Einnig
verða afhent verðlaun fyrir þátt-
töku í „Einn, tveir og nú“ í apríl
og maí.
Heilsueflingarátakið hefur staðið
yfir frá því í september 2004. Fjöl-
skyldur hafa skráð hvers kyns
hreyfingu á fjölskyldukort sem síð-
an hefur verið skilað inn og í
hverjum mánuði hafa síðan verið
dregin út tíu kort og eigendur
þeirra verið verðlaunaðir fyrir
þátttökuna. Alls hafa liðlega fjögur
þúsund manns tekið þátt í átakinu
og um 200 fjölskyldumeðlimir
fengið verðlaun fyrir að skila inn
fjölskyldukorti.
Göngudag-
ur fjöl-
skyldunnar
að Hömrum
Heilsueflingarátakinu
„Einn, tveir og nú“
lýkur á morgun
Sýning | María Jónsdóttir
opnar sýningu á verkum sínum
á veit-
ingastaðnum
Friðriki V. á
Akureyri á
morgun,
sunnudaginn
29. maí kl. 14.
Þar gefur að
líta olíu-
málverk, unnin
á þessu ári og í
fyrra. Sýningin verður opin í
sumar. María, sem er Akureyr-
ingur, stundaði nám við Acca-
demia di Belle Arti í Flórens á
Ítalíu. Hún sýndi fyrir fáum ár-
um á Kaffi Karólínu og einnig
hefur hún tekið þátt í samsýn-
ingu á Ítalíu þar sem hún býr.