Morgunblaðið - 28.05.2005, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Selfoss | „Ég er svona frekar
stemningstónskáld og einfaldleikinn
er ríkjandi í mínum verkum. Ég vil
miðla til fólks öllum mannlegum til-
finningum. Tónlistin hefur þau áhrif
á mann að stundum vill maður dansa
og syngja eða hugsa og velta hlut-
unum fyrir sér,“ segir Elín Gunn-
laugsdóttir sem nýlega fékk menn-
ingarviðurkenningu Árborgar. Hún
starfar sem tónskáld og tónlistar-
kennari, kennir við Vallaskóla á Sel-
fossi, er þar með barnakór og kennir
líka tónfræði við Tónlistarskóla Ár-
nesinga þar sem hún er deildarstjóri.
„Mín aðalhugsjón er að semja tón-
list og það er gott að vera tónskáld,“
segir Elín sem vill vanda mjög tón-
verkin sem hún lætur frá sér fara.
„Þau verða til með ýmsu móti, ann-
aðhvort er ég beðin að semja verk
eða verkin verða til að mínu frum-
kvæði og þá út frá einhverri hug-
mynd eða stemningu. Ég vil skila
ákveðinni tilfinningu frá mér í gegn-
um tónlistina og þróa hana oft lengi
með mér svo hún skýrist og verði
öðrum heyranleg eða sýnileg. Mér
finnst gott að taka góðan tíma í að
skapa verkin og hugsa þau. Að því
loknu tekur ekki svo langan tíma að
koma þeim á blað.
Mér finnst mjög gott að setjast
niður og byrja að vinna, oft þarf
maður að beita sig ákveðni og kom-
ast í vinnugír en það er eins og með
aðra vinnu. Mér finnst handverkið í
tónverkinu skipta miklu mál, hvern-
ig verkið er og hvert hver nóta á að
fara og ég vil vera viss um að tónlist-
in sé eins og ég hugsaði mér. Mér
finnst það skipta mestu að vita hvert
maður stefnir og ég gef undirmeðvit-
undinni góðan tíma til að vinna úr
hugmyndunum sem ég geng með því
tónlistin þarf tíma og aðalatriðið er
að maður sé sáttur við það sem mað-
ur er að gera,“ segir Elín sem er með
nokkur járn í eldinum.
Hún segir það standa upp úr á síð-
asta ári þegar hún var stað-
artónskáld í Skálholti. Einnig tón-
leikar sem hún hélt í tilefni eigin
fertugsafmælis en þá voru flutt
kammerverk sem hún hefur samið.
Hún segist eiga í sínum fórum 30
til 40 tónverk. Núna vinnur hún að
útgáfu geisladisks með hópnum
Camerarctica. Upptökum lýkur
næsta vor en á diskinum verða
kammerverk eftir Elínu. Svo er hún
núna að skrifa tónverk fyrir Hlín
Pétursdóttur sópransöngkonu og
fyrir Dísurnar sem er kammerhópur
skipaður óbói og strengjatríói. Text-
inn við það verk er á þýsku, Das
blaue Wunder eftir Barböru Köhler.
„Þetta er frekar íhugult verk,“ segir
Elín og getur þess að tónlist hennar
beinist nú orðið meira inn á við til
íhugunar. Þá vinnur Elín einnig að
útsetningum og er með ýmis verk í
höndunum af því tagi þessa dagana.
Hver og einn þarf
að finna sitt tónmál
„Já, mér finnst ég vera að breyt-
ast sem tónskáld. Það þarf hver og
einn að finna sitt tónmál og það tek-
ur tíma að fá fram hvað maður vill
segja, hvert maður vill fara og hvað
maður vill skilja eftir sig,“ segir Elín
þegar hún er beðin að lýsa sér sem
tónskáldi.
Eins og gefur að skilja er henni
mikið í mun að aðstaða til tónlistar-
uppeldis og flutnings sé sem best og
bendir á að það eigi að vera sjálfsagt
að í stærsta þéttbýlisstaðnum á Suð-
urlandi sé tónlistarsalur eins og er í
Kópavogi. „Við þyrftum að fá tónlist-
arsal sem er sniðinn fyrir flutning á
tónlist og auðvitað líka sérsniðið hús-
næði fyrir tónlistarkennsluna. Það
þýðir ekki að kasta til höndunum
varðandi þessi atriði. Salurinn í
Kópavogi hefur breytt mjög miklu
þar og slíkur salur myndi gera það
líka hér,“ segir Elín og minnir á að til
sé fokheldur salur á Selfossi sem bíð-
ur eftir að verða kláraður.
Vil miðla mannlegum
tilfinningum til fólks
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Viðurkenning Elín Gunnlaugsdóttir, tónskáld á Selfossi, við píanóið á
vinnustofu sinni á Sólbakka á Selfossi.
Eftir Sigurð Jónsson
Hveragerði | Við deilum ekki nema í
stærðfræði. Reiknaðu með sigri.
Þessar fyrirsagnir eru einkennisorð
fyrir stærðfræðikeppni grunnskól-
ans í Hveragerði, á miðstigi og elsta
stigi, sem haldin var fyrir
skemmstu.
Í undanfara keppninnar var efnt
til samkeppni meðal nemenda um
slagorð fyrir keppnina og var
„Reiknaðu með sigri“ valið ein-
kennisorð keppninnar og „Við deil-
um ekki nema í stærðfræði“ valið
sem undirslagorð. Höfundar þeirra
eru Tinna Björk Kristinsdóttir og
Bylgja Sif Jónsdóttir, nemendur við
skólann.
Nær 60% þátttaka var í stærð-
fræðikeppninni nemenda 10–16 ára.
Nemendum var frjáls þátttaka, en
voru óspart hvattir til að vera með
undir kjörorðinu að „Það er töff að
taka þátt“, sem efldi marga til þátt-
töku því þeir voru ekki alveg vissir í
fyrstu hvort það væri yfirleitt nokk-
uð töff að vera með í svona keppni.
Hugmynd að þessari keppni á Sig-
urður Blöndal, kennari skólans, sem
langaði með þessu framtaki að
glæða áhuga nemenda skólans á
stærðfræðinni, því hún er að margra
mati ein skemmtilegasta námsgrein-
in.
Leitað var til fyrirtækja í bænum
og víðar. Fjöldi fyrirtækja og félaga
lagði þessu framtaki lið og sýndi sem
oft áður skólanum hlýhug þegar eitt-
hvað stendur til. Var heildarverð-
mæti vinninga um 250.000 krónur.
Úrslit hafa ekki verið tilkynnt, en
verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú
sætin í hverjum árgangi og að auki
verður einn heppinn nemandi í
hverjum bekk leystur út með vinn-
ingi, sem einungis er í þakklætis-
skyni fyrir þátttökuna í keppninni. Í
grunnskólanum í Hveragerði er því
reiknað með sigri í vor.
Efnt til mikillar stærðfræðikeppni
í grunnskólanum í Hveragerði
Reiknaðu með sigri
Eftir Margréti Ísaksdóttur
Stokkseyri | Árleg vorsýning Elfars Guðna, bæjarlistamanns Stokkseyrar
og handhafa menningarverðlauna Árborgar árið 2003, stendur nú yfir í
vinnustofu listamannsins, Svartakletti í Menningarverstöðinni Hólmaröst á
Stokkseyri.
Þetta er 43. einkasýning listamannsins, sem er borinn og barnfæddur
Stokkseyringur og sækir myndefni sitt til síns nánasta umhverfis, fjör-
unnar, brimsins, Flóans og hinnar dulmögnuðu birtu, sem bæði bregður
fyrir á lognkyrrum sumarkvöldum og í útsynningi vetrarstormanna. Sýn-
ingin er opin frá 14–22 um helgar og 17–22 virka daga. Hún stendur til 5.
júní.
Bæjarlistamaður sýnir
Morgunblaðið/Jóhann Óli
Elfar Guðni, listmálari á Stokkseyri, við eitt verka sinna.
LANDIÐ
Hrunamannahreppur | Sauðburði
er að ljúka í Hrunamannahreppi og
hefur gengið vel. Frjósemi stofns-
ins er orðin mikil.
Að þessu sinni hefur sauðburð-
urinn útheimt meiri vinnu og
kostnað en endranær enda þurft að
gefa lambfé að mestu fram að
þessu. Þó kalt hafi verið hefur ver-
ið hægt að setja lambær út og gefa
úti en alls staðar eru næg hey enda
afburðaheyskaparsumar í fyrra.
Nokkrir sauðfjárbændur rækta
enn forystufé, oft eina til þrjár
kindur sér til gamans. Þetta er af-
ar sérstakur sauðfjárstofn sem
hvergi er til í heiminum nema hér
á landi. Allar hreinræktaðar for-
ystukindur eru hyrndar og mislitar.
Forystuærin Blesa í eigu Eiríks
Kristóferssonar á Grafarbakka bar
nýlega þremur arnhöfðóttum, ble-
sóttum hrútum með hvíta leista eða
sokka. Eiríkur ætlar að vana einn
þeirra og koma sér upp van-
inhyrndum forystusauð. Þá eru
hornin látin vaxa sérstaklega. Góðir
forystusauðir þóttu gersemi á fyrri
tíð þegar halda þurfti sauðfé til
beitar svo sem var gert um aldir og
spara þurfti hvert strá.
Efni í vaninhyrndan forystusauð
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Eftir Sigurð Sigmundsson
Grímsnes | Steinar Árna-
son, athafnamaður á Syðri
Brú í Grímsnesi, hefur keypt
Ljósafosslaug af Grímsnes-
og Grafningshreppi. Laugin
er ein meginstoð í afþrey-
ingu fyrir frístundabyggðina
sem skipulögð hefur verið í
landi Syðri Brúar.
Sveitarfélagið er að
byggja upp þjónustuaðstöðu
á Borg í Grímsnesi, grunn-
skóla, sundlaug og stjórn-
sýslumiðstöð sveitarfé-
lagsins.
„Sundlaugin er í mjög
góðu standi og alveg lykilatr-
iði að fá hana með í okkar
uppbyggingu. Við munum
opna laugina fyrir almenning
núna um helgina og það eru
allir velkomnir,“ sagði Stein-
ar Árnason.
Sundlaugin er á skjólgóðum stað
steinsnar frá Syðri Brú og þar verð-
ur heitt og þægilegt andrúmsloft
þegar sólin skín. Laugin hefur verið
vinsæl á undanförnum árum og heil-
mikið sótt af sumarhúsafólki, gest-
um og gangandi sem fara um Gríms-
nesið.
Einstaklingur kaupir Ljósafosslaug
Lykill að frekari
uppbyggingu
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Lyklavöldin Margrét Sigurðardóttir sveit-
arstjóri afhendir Steinari Árnasyni og Daða
Má Sigurðssyni sundlaugarstjóra lyklavöld-
in að Ljósafosslaug.