Morgunblaðið - 28.05.2005, Side 28

Morgunblaðið - 28.05.2005, Side 28
28 LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF               !  "#$%  !       & '    ()    *'*  +   !,  ! '  -    #  , .* (  +   ()   !+-   - !    /    *      ' +, ()   -    ,  0 *  !   1    '  2 3 4    ,  4   &   ,   '    '   *      56   '                                    !  "# $      $             %&    ' ( )        *           +     *  "     ( ,    ( )     $-   *      *    *      (  ". ( /      0     "       $       *   "    $ 1     #     "#      "        112     $  #  * $      $        $  $    3 # %4* %56 7.$ 685 8&55   &955  %+955  $    $   Við höfum haft áhuga á hjól-reiðum alla ævina og alltafhreyft okkur mikið. Það má segja að við höfum byrjað að stunda hjólreiðar almennilega þegar við keyptum okkur hjól árið 1986, það voru þriggja gíra háklassa hjól af bestu gerð. Við höfum nú endurnýj- að hjólin síðan þá.“ Hinn 26. júní næstkomandi eru Eggert og Hulda að fara í tíu daga hjólaferð til Austurríkis með Ferða- þjónustu bænda. „Við erum að þjálfa okkur fyrir ferðina og höfum því verið mjög dugleg að hjóla að undanförnu. En við hjólum ekki mikið yfir vetrartímann, við erum löt í hálkunni.“ „Við fórum í okkar fyrstu hjóla- ferð með Ferðaþjónustu bænda í fyrra. Þá fórum við til München og hjóluðum upp í Alpana, það var vikuferð. Við hjóluðum 60 til 80 kílómetra á dag og það var eig- inlega allt upp í móti. Svo var stopp- að reglulega á ýmsum ferða- mannastöðum og skoðað. Ferðin sem við förum í núna til Austurríkis er meira niður í móti. Við fljúgum til München og keyrum þaðan að upp- tökum árinnar Mur sem er hátt í fjöllum Austurríkis, þar hefst hjóla- ferðin og endar niðri á sléttum aust- urhlutans. Það verða hjólaðir um 60 kílómetrar á dag í þessari ferð og meðal annars farið í dagsferð yfir til Slóveníu.“ Gefur lífinu gildi „Okkur finnst ekkert mál að hjóla svona og erum við góða heilsu. Ég verð nú að viðurkenna að þetta var svolítið erf- itt í fyrra enda allt upp í móti, en það er kannski það sem gefur þessu gildi,“ segir Hulda og Eggert bætir við að hópurinn sem þau ferðuðust með hafi verið alveg yndislegur. „Meiri- hlutinn af hópnum sem fór í fyrra fer aftur í ferðina í ár. Við vorum elst í þeim hópi en sá yngsti var fjór- tán ára.“ Eggert og Hulda eru nú að æfa fyrir ferðina, um daginn fóru þau í tveggja tíma hjólatúr í kringum Úlf- arsfellið og um hvítasunnuhelgina hjóluðu þau svokallaðan Árborg- arhring. „Hraðinn fer mikið eftir fjölda kaffistoppa og því hvort það er vindur eða ekki, vindurinn og kuldinn eru erfiðastir. Árborg- arhringurinn tók okkur um þrjá klukkutíma, hann er 55 kílómetrar og liggur frá Selfossi, til Hvera- gerðis, gegnum Ölfusið, niður Þrengslaveg og svo aftur á Selfoss.“ Þau hjóla yfirleitt tvö saman en Guðrún dóttir þeirra æfir núna fyrir ferðina með þeim. Það var einmitt Guðrún sem kom þeim á sporið með hjólaferðirnar erlendis. „Dóttir okkar sá ferðina auglýsta í fyrra og heillaðist alveg, ákvað að fara og vildi okkur með. Við gátum ekki sleppt því þegar við kynntum okkur ferðina. Þetta var svo óskaplega skemmtilegt að við urðum að fara öll saman aftur í ár.“ Hulda varð sjö- tug á seinasta ári og Eggert gaf henni ferðina í afmælisgjöf. Búin að hjóla hringinn Hjólreiðar eru eitt af mörgum áhugamálum Eggerts og Huldu. Þau ganga líka á fjöll. „Við fengum okkur fellihýsi fyrir nokkrum árum og nú keyrum við með það þangað sem er gott veður og klífum svo fjöllin sem þar eru eða hjólum um.“ Þau hjóluðu hringinn í kringum landið í tveimur áföngum fyrir um fimmtán árum. „Við fórum í öðrum áfanganum austur til Hornafjarðar og árið á eftir keyrðum við með hjólin þangað og lukum hringnum,“ segja þessi spræku hjón sem hafa alla sína tíð búið á Selfossi. „Það vantar reyndar brekkurnar hérna í Flóanum til að ná almennilegri æf- ingu á hjólinu.“ Hulda og Eggert segja að það sé aldrei að vita nema þau eigi eftir að fara í fleiri svona ferðir en þau taki bara eitt sumar fyrir í einu. „Við höfum óskaplega gaman af því að hjóla svona erlendis, loftið er svo hlýtt, vegirnir eru góðir og það er sjaldan rok. Við hvetjum flesta sem hafa getu til að fara í svona ferðir og stunda hreyfingu, þetta gefur manni voðalega mikið. Þótt þetta sé erfitt og þó maður sé þreyttur þá er það alveg yndisleg, áunnin þreyta, sigur og ánægja.“  ÁHUGAMÁL | Hjólakappar á áttræðisaldri Hjólatíminn fer eftir kaffistopp- um og veðri Eggert og Hulda segja erfiðið við langar hjólreiðaferðir vel vera áreynslunnar virði. „Við höfum hjólað um allt hérna innanlands,“ segja hjónin Eggert Vigfússon og Hulda Vilhjálmsdóttir sem stunda hjólreiðar af kappi. Það væri kannski ekki í frásögur fær- andi nema að þau eru bæði komin yfir sjötugt. ingveldur@mbl.is Við hjóluðum 60 til 80 kíló- metra á dag og það var eig- inlega allt upp í móti. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson NÚ telja vísindamenn sig hafa sannað að kvenlegt innsæi sé ekki til. Þvert á móti hafi karlar meira innsæi en konur. Þetta kemur m.a. fram á vef BBC. Hópur vísindamanna við háskól- ann í Hertfordshire í Englandi lét 15 þúsund manns skoða tvær myndir af brosandi manneskju og bað alla um að giska hvor myndin sýndi ekta bros. Munurinn á ágiskunum kynjanna var ekki ýkja mikill en karlar reyndust þó oftar hafa rétt fyrir sér eða í 72% tilvika en konur í 71% tilvika. Munurinn var meiri þegar þátttakendurnir áttu að skoða myndir af gagn- stæðu kyni. Karlarnir reyndust eiga auðveldara með að sjá í gegnum falskt bros konu en karls og gátu í 76% tilfella séð í gegnum konurnar. Áttu kon- urnar líka auðveldara með að sjá í gegnum kynsystur sínar, en gátu í 67% tilvika séð í gegnum karlana. Augun koma upp um þá sem brosa falskt og hægt er að sjá á hláturhrukkunum hvort brosið er ekta eða ekki. Ef það er falskt nær það ekki til augnanna. Það eru augun sem segja til um hvort brosið sé ekta.  KÖNNUN Hafa karlar meira innsæi en konur? Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.