Morgunblaðið - 28.05.2005, Síða 30
ÞEGAR ferðalag er skipulagt getur orðið höf-
uðverkur að finna gistingu á góðu verði þótt flugmið-
inn fáist á spottprís. Á vef Aftenposten er gerð úttekt
á leitarsíðum á Netinu sem hægt er að nota til að finna
hótel víða um heim. Í ljós kemur að ítalska síðan ven-
ere.com er talin best að mati þeirra sem gerðu könn-
unina. Leitað var að hótelherbergi ákveðna daga fyrir
tvo í Barcelona og Þrándheimi. Verðið var mikilvæg-
asta breytan en síðan var tekið með í reikninginn
hvort leitarsíðurnar væru notendavænar eða auðvelt
að komast í samband við fyrirtækið.
Í ljós kom að þær leitarvélar sem buðu ódýrustu
gistinguna voru ekki mjög neytendavænar og erfitt
reyndist að bera saman allar þær 65 leitarsíður sem
skoðaðar voru.
Leitarsíðurnar hotwire.com og expedia.com, og
norsku síðurnar ebookers.no og hotelglobal.no fengu
þó einnig góða dóma.
FERÐAVEFUR
Ítölsk síða
talin best
Morgunblaðið/Eggert
Samkvæmt norskri könnun eru ódýrustu vefsíð-
urnar ekki endilega alltaf þær neytendavænustu.
Ólíkum gim-
steinategundum
er gjarnan
blandað saman
við hönnun skartgripa.
Innkaupaleiðangur til Rajast-han skilar kannski ekki fimmólíkum gerðum af gallabuxum,tíu bómullarbolum og tuttugu
geisladiskum í ferðatöskuna, en hér-
aðið bíður engu að síður upp á fjöl-
margar freistingar, enda má þar
finna skartgripi, vefnaðarvöru, textíl
og keramík á mun lægra verði en
þekkist á Vesturlöndum. Það er held-
ur ekki að ástæðulausu að hönnuðir
tískuhúsa á borð við Armani, Stella
McCartney, Kenzo, Donna Karan og
Dolce & Gabbana, koma með teikn-
ingar sínar til Rajasthan og láta
framleiða hluta söluvarningsins þar.
Ull, silki og bómull í öllum mögu-
legum og ómögulegum litum og fjöl-
breytt munstur bæði prentuð og ofin
blasa líka við kaupglöðum ferða-
mönnum á alla vegu um leið og þeir
óska sér þess sem heitast að hafa
mætt með ferðatöskuna tóma!
Ekki stenst þó öll vefnaðarvara
sama gæðastaðalinn og því borgar
sig að hafa augun opin og skoða
vandlega bæði frágang og hráefni.
Allt sem hugurinn girnist
Í höfuðborg Rajasthan, Jaipur,
leynist vefnaðarvara og textíll víða,
en þeir sem leita munúðarkenndra
silki-saríefna ættu að rölta eftir Bapu
Bazaar þar sem silki og aðra vefn-
aðarvöru er að finna hjá kaupmanni
eftir kaupmanni eftir götunni endi-
langri. Ódýrari efni og fatnað má síð-
an finna á Johari Bazaar, þar sem
margir kaupmannanna sérhæfa sig í
bómullarefnum og á Kishanpol Baza-
ar eru textílefni, m.a. hin sérstæða
bandhani lita- og munsturgerð.
Kaupmenn við Nehru Bazaar selja
einnig vefnaðarvöru, en eru hvað
þekkastir fyrir jooties, skrautlega
skó með upprúllaðri tá sem eru með-
al sérkenna héraðsins.
Þeir sem vilja láta sérsauma sam-
kvæmt eigin óskum, hvort sem um
ræðir fatnað, rúmteppi eða aðra
heimilisvöru hafa þá ratað á réttan
stað þar sem klæðskerakaup nemur
ekki háum upphæðum í Jaipur.
Ekki allt gull sem glóir
Rajasthan er ekki síður þekkt fyrir
gott úrval skartgripa á mun vægara
verði en við eigum að venjast og er
Jaipur einn besti staðurinn til að
kaupa skartgripi. Indverskt gull er til
að mynda mun hreinna en þekkist á
Vesturlöndum. Sterkgulur liturinn
getur líka virkað nokkuð fram-
andlegur við fyrstu sýn og skreyti-
lega sé ekki úr vegi að kynna sér
flutningskostnaðinn áður en út í slík-
ar framkvæmdir er farið.
Jodphur geymir svo einnig hefð-
bundinn Rajasthan-verslunarvarn-
ing, t.d. textíl og vefnaðarvöru og er
viðkoma í Maharani Art Government
Emporium við Tambako Market vel
heimsóknarinnar virði. Úrvalið virð-
ist nánast ótæmandi enda státa eig-
endur Maharani af því að framleiða
rúmteppi, púða, gluggatjöld og jakka
fyrir ekki ómerkari hönnuði en Arm-
ani, Stellu McCartney og Kenzo en
gefa sér engu að síður tíma til að sér-
sauma dýrindis silkiteppi fyrir ferða-
menn á örskammri stundu.
Klukkuturninn, sem er einn af
miðpunktum bæjarins, geymir svo
bása fjölda kryddkaupmanna, m.a.
Mohanlai Verhomal þar sem saffran,
kardemommur, sinnepsfræ og önnur
hefðbundin krydd er að finna í góðu
úrvali í bland við sértækari krydd-
blöndur á borð við vetrartónik sem
ætlað er til að hressa upp á kynlífið.
Prútta, prútta og prútta
Í Rajasthan, eins og annars stað-
ar á Indlandi, gildir þó að prútta,
prútta og prútta og því er ekki úr
vegi áður en haldið er í versl-
unarleiðangur fyrir alvöru að kynna
sér fyrst almennt verðlag í rík-
isreknum verslunum á borð við
Rajasthali Emporium í Jaipur til að
hafa til viðmiðunar áður en ermar
eru brettar upp fyrir prúttslaginn.
Kaupmenn í þessum hluta Indlands
eru nefnilega fyrir löngu orðnir van-
ir ferðamönnum með takmarkaðan
tíma en fullar hendur fjár og hika
því ekki við að leggja duglega á
varning sinn áður en haldið er að
samningaborðinu.
INDLAND | Silfur, silki, eðalsteina og skart er að finna í Rajasthan
Öðruvísi verslunarferð
Morgunblaðið/Anna Sigríður
Á götumörkuðum má finna krydd, klæði og ýmsan annan varning í bland við litskrúðugt mannlíf.
Enamel-lagður
silfurfíll, unn-
inn með svo
nefndri mee-
nakari-tækni.
huga að ef verðið er lygilega lágt, er
kannski ekki allt sem sýnist. Silfrið
t.d. mengað eða steinarnir aðrir en
fullyrt er. Við síðastnefndu göturnar
má líka finna mörg skemmtileg dæmi
um enamel-lagða silfurgripi, svo
nefnda meenakari-gripi, sem eru
meðal margra litríkra sérkenna
Rajasthan.
Í Pahar Ganj, einu hverfa múslima
í Jaipur og jafnframt einu helsta
svæði gimsteinakaupa í borginni, má
svo fylgjast með er steinar eru slíp-
aðir til í illa lýstum vinnustofum í
þröngum bakstrætum.
Forngripir og góðar eftirlíkingar
Jaipur er þó langt í frá eini stað-
urinn í Rajasthan þar sem hægt er að
gera góð kaup, þó að nálægðin við
höfuðborgina Delhi og Agra, heim-
Glasgow, Dublin, London og Minneapolis eru vin-
sælir staðir til verslunarferða. Héraðið Rajasthan á
Indlandi býður þó upp á ekki síðri freistingar og á
öllu lægra verði en við eigum að venjast.
kynni hins víðfræga Taj Mahal, geri
hana að einum vinsælasta við-
komustaðnum.
Bærinn Jodphur, sem stendur í út-
jaðri Thar-eyðimerkurinnar, er til að
mynda sérlega vinsæll meðal forn-
gripakaupmanna. Þangað streyma
vestrænir forngripakaupmenn árið
um kring með veskin vel úttroðin og
skanna vandlega forngripaversl-
anirnar á svæðinu. Í slíku umhverfi
kann að vera borin von að gera góð
kaup á indverskum forngripum, enda
tollar og innflutningsgjöld áður en til
Íslands væri komið líklega svo him-
inhá að kaupin reyndust á færi
fæstra. Flestar forngripaversl-
anirnar taka hins vegar líka að sér að
láta framleiða eftirlíkingar, hvort
sem um ræðir smámuni eða stærri
húsgögn, á mun hóflegra verði þó lík-
30 LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG
annaei@mbl.is
Morgunbl
aðið/Eyþó
r
gleði Indverja er kemur að gullinu
fellur ef til vill ekki fyllilega að nor-
rænum naumhyggjusmekk. Svo gott
sem ótakmarkað úrval af silfur-
munum og skrautlegum steinum,
sem eru einkar einkennandi fyrir
hönnun rajasthanskra skartgripa,
ætti hins vegar að falla í góðan jarð-
veg.
Í Jaipur má finna steina á borð við
ametyst, túrkis, jaði, bláan og gulan
tópas, akvamarín, granat, rósakvarts
og peridot hjá vel flestum skart-
gripasölum sem margir hverjir
blanda ólíkum steinategundum sam-
an við smíðina. Rúbínsteina, demanta
og safíra má vissulega líka finna hjá
gullsmiðum borgarinnar á lægra
verði en þekkist hér heima, en þar
sem auðvelt er að láta plata sig borg-
ar sig við slík kaup að vera annað-
hvort góður steinaþekkjari eða halda
sig hjá virtum kaupmönnum sem
ekki stunda prúttkaupmennsku. Því
þótt litlu skipti er 200–500 kr. túrkis-
eyrnalokkar reynast ekki sú gæða-
vara sem talið var, er skaðinn öllu
meiri þegar rúbínarmbandið reynist
úr granati.
Fjölmarga skartgripasala er að
finna við Siredeori og Johari Bazaar,
þar sem finna má hlið við hlið virta
sem skuggalega skartgripasala sem
sumir bjóða gripina á lygilega lágu
verði. Þá er kannski vert að hafa í
www.indiabecons.com
Vika íDanmörku
hertzerlendis@hertz.is
19.350 kr. - ótakmarkaður akstur,kaskó, þjófavörn, flugvallargjaldog skattar.*Verð á viku miðað við 14 daga leigu.*
Opel Corsa eða sambærilegur
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
27
70
7
03
/2
00
5
50 50 600
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta