Morgunblaðið - 28.05.2005, Side 36

Morgunblaðið - 28.05.2005, Side 36
36 LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Samþykkt hefur verið að stofna tilfimm ára verkefnis innan ECAD,sem byggt verður á íslensku nálg-uninni og hefur stýrihópur verið stofnaður í þeim tilgangi og formaður hans er Dagur B. Eggertsson, læknir og borgar- fulltrúi. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, verður verndari verkefnisins sem ber heitið Youth in Europe. Forsetinn var við- staddur ráðstefnuna og ávarpaði hana á fimmtudag. Auk Reykjavíkur taka þátt í verkefninu Osló, Stokkhólmur, Helsinki, Düsseldorf, St. Pétursborg, Vilnius, Riga og e.t.v. fleiri borgir innan ECAD. Dagur hélt erindi á ráðstefnunni þar sem hann kom inn á niðurstöður úttektar á for- varnastarfi Reykjavíkurborgar sem sýna að verulega dró úr vímuefnaneyslu unglinga í Reykjavík frá 1998 til 2004, m.a. í tengslum við verkefnið Ísland án eiturlyfja 1997–2002. Af niðurstöðunum voru m.a. dregnar þær ályktanir að samverustundir með foreldrum væru afar mikilvægar til að draga úr hættu á neyslu. Þar koma einnig til skipulagðar frí- stundir eins og íþróttaiðkun og tónlistarnám. Dagur útskýrði hugmyndina á bak við Youth in Europe og fjallaði um mikilvægi for- varnastarfs sem þessa. Hann sagði að í fyrstu hefði ekki verið talið að verkefnið gæti borið árangur nema í litlum samfélögum eins og Ís- landi en fleiri hefðu þó verið áhugasamir og því yrði verkefnið sett á laggirnar. Herferðir þar sem talað hefur verið til foreldra um að standa saman, setja börnum og unglingum mörk, virða útivistartíma o.s.frv. geta átt er- indi utan Íslands. Kristín A. Árnadóttir, skrifstofustjóri borgarstjóra, segir þessa að- ferðafræði vissulega eiga erindi víðar, það sé sveitarfélaganna að nýta hana í samræmi við hvert samfélag og menningu. Grasrótarstarf mikilvægt Dagur sagði að verkefnið myndi gefa skýr skilaboð í baráttunni við fíkniefni og styrkja forvarnastarf í þátttökulöndunum. Í verkefn- inu myndi felast samstarf við frístundastarf, foreldrafélög, skólayfirvöld og lögreglu. Hann lagði einnig áherslu á áframhaldandi rannsóknir til að auka þekkingu sem hægt er að beita í forvarnarstarfi. Samanburðarrann- sóknir verða gerðar við upphaf og lok verk- efnisins, beint að 15 og 16 ára unglingum í þátttökulöndunum. Stýrihópurinn mun bera ábyrgð á að rannsóknirnar verði gerðar, safna fé, kynna verkefnið og meta. „Verk- efnið felur í sér áhrifamikil skilaboð um hvernig skýr sýn, alþjóðleg samvinna, vís- indalegur grunnur og grasrótarstarf getur skilað árangri og skapað betra samfélag,“ sagði Dagur m.a. Í samtali við Morgunblaðið segir hann gaman að Íslendingum sé treyst til að axla þessa ábyrgð og greinilegt að aðrar þjóðir horfi til þess árangurs sem náðst hefur á Ís- landi. „Það er frábært að aðrir geti nýtt sér það sem við höfum verið að gera og út á þetta gengur árangursríkt alþjóðlegt samstarf.“ Stóriðnaður og stríð Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði í ávarpi sínu að skuggi nýrrar ógnar yrði stöðugt stærri og banvænni með hverju árinu. Fíkniefnaiðnaðurinn hefði vaxið gífur- lega, fyrst hægt og án þess að vekja alvarlega athygli, og með aðstoð nútímatækni hefði orðið til yfirþyrmandi bákn. Forsetinn líkti baráttunni við fíkniefnin við stríð þar sem vopnin eru nútímatækni, landa- mæri óljós og fórnarlömbin yfirleitt ung að árum og æ fleiri. Hann lagði áherslu á mik- ilvægi samvinnu og samræðu þar sem óvin- urinn færi stöðugt stækkandi að afli. „Við stöndum saman í þessari baráttu. Enginn er stefnun borgar arsdótt Að h starf R 1995 e „Þetta áhrif og ég fann stefnu annars lands s alvarle ari af r að tala Norður við höl þurfa a þurfa a Grei stefnun ilvægt, og ref barna barna o barnas um; að berg v að fore gæfu s fyrirby Ennfre milli fa ustu og Eva lag sit heim. landi u ráðgjaf hennar urlyfju inum h þrátt f indi he rekur skipti n ekki að öruggur. Næsta fórnarlamb gæti verið fjöl- skyldumeðlimur okkar, vinur, dóttir okkar eða sonur.“ Í samtali við Morgunblaðið segir forsetinn ánægjulegt að sú mikla vinna sem íslenskir fræðimenn, borgaryfirvöld, skólayfirvöld og aðrir hafa lagt af mörkum skili svo miklum árangri. „Það er athyglisvert hvað vinna Reykjavíkurborgar og rannsóknirnar á Ís- landi vekja mikla athygli hér.“ Forsetinn verður verndari verkefnisins og segist hafa samþykkt það af tveimur ástæð- um. „Fyrst og fremst eru þetta merkar rann- sóknir íslenskra félagsvísindamanna, ég er nú upprunninn á þeim vettvangi og gamall prófessor við félagsvísindadeild Háskóla Ís- lands, og mér finnst ánægjulegt að sjá hvað rannsóknir íslensks félagsvísindafólks skipta miklu máli á evrópska vísu. Í öðru lagi vegna þess að árangur okkar á þessu sviði, sérstak- lega Reykjavíkurborgar, er greinilega ein- stakur og getur orðið öðrum fyrirmynd.“ Ólafur Ragnar fylgdist með ráðstefnunni og fannst einna athyglisverðast það sem fram kom í máli fyrrverandi forstjóra Europol, Jürgen Storbeck, að vaxandi hluti fíkniefna sem neytt er í Evrópu er framleiddur í álf- unni en Storbeck dró upp mynd af umfangs- miklum iðnaði sem erfitt væri að ráða við. „Ég verð að játa að ég eins og flestir taldi að þorrinn af þeim eiturlyfjum sem hér væri á markaði kæmi frá öðrum heimshlutum,“ seg- ir Ólafur Ragnar. „Ekki að í okkar eigin álfu væri orðinn til umfangsmikill eiturlyfjaiðnaður hjá bæði stórum og smáum fyrirtækjum. Þetta finnst mér kalla á nýja umræðu og að við viðurkenn- um að vandinn stendur kannski miklu nær okkur sjálfum. Það þýðir ekki að horfa alltaf til fátækra þjóða í Mið-Ameríku eða Asíu og segja að ef þær hætti nú bara að framleiða fíkniefni þá verði þetta allt í lagi. Það er greinilega röng sýn.“ Forvarnir og refsing Um 200 manns frá 19 löndum sóttu ráð- stefnuna og var Sonja Noregsdrottning við- stödd setninguna á fimmtudagsmorguninn. Um tíu manna hópur frá Íslandi sótti ráð- Árangur Íslendinga í baráttu gegn fíkniefn Stöndum sama baráttu – engin Árangur Íslendinga í baráttu gegn fíkniefnaneyslu unglinga vakti athygli á ráðstefnu Evrópskra borga gegn fíkniefnum, sem nú stendur yfir í Ósló. Steingerður Ólafsdóttir fylgdist með ráðstefnunni. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Mou ÞINGIÐ OG BREYTT ÞJÓÐFÉLAG Alþingi Íslendinga á að end-urspegla og þarf að endur-spegla íslenzkt þjóðfélag eins og það er hverju sinni. Þetta hefur gengið misjafnlega vel eða illa eftir því, hvernig á það er litið. Seinni hluta 20. aldarinnar vantaði töluvert upp á að þingið endur- speglaði þjóðfélagið með eðlilegum hætti. Ástæðan var sú, að fámenn- ari kjördæmi á landsbyggðinni höfðu á að skipa hlutfallslega fleiri þingmönnum en eðlilegt gat talizt ef miða átti við jafnan kosningarétt ekki bara í orði heldur líka á borði. Þetta hefur breytzt til batnaðar, þótt fullum jöfnuði sé ekki náð. En jafnframt er rétt að hafa í huga, að lengi vel var nokkuð víðtæk sam- staða um að svona skyldi þetta vera. Markmiðið með því fyrir- komulagi var að rétta hlut lands- byggðar gagnvart þéttbýli á suð- vesturhorninu. Á síðustu áratugum en þó alveg sérstaklega á síðasta áratug og þessum áratug hafa orðið miklar breytingar á íslenzku þjóðfélagi. Nú er það vegna þess, að töluvert stór hópur af fólki hefur flutzt bú- ferlum til Íslands, setzt hér að og gerzt íslenzkir ríkisborgarar. Þetta er fólk frá öðrum Norður- löndum, öðrum Evrópulöndum en einnig frá fjarlægari slóðum, ekki sízt Asíu. Það hefur tekið okkur nokkurn tíma að laga okkur að þessum breytingum og það tekur það fólk, sem hingað hefur flutt, lengri tíma að laga sig að okkar lífsháttum en í stórum dráttum hefur þetta gengið nokkuð vel, þótt mörgu sé vissu- lega ábótavant. Nú er tímabært að rödd hinna nýju Íslendinga fái að heyrast beint á Alþingi Íslendinga. Nú er tímabært að stjórnmálaflokkarnir leggi áherzlu á að laða nýbúa til starfa á vettvangi flokkanna, svo að rödd þeirra heyrist og þeir eign- ist málsvara á Alþingi og í sveit- arstjórnum, sem geti talað máli þeirra, og stjórnvöld fái sterkari tilfinningu fyrir hagsmunum þeirra og sjónarmiðum. Þetta snýst um lýðræði. Ganga má út frá því sem vísu, að þetta gerist ekki af sjálfu sér nema á löngum tíma. En það þarf að byrja. Þess vegna eiga stjórnmála- flokkarnir að gera sérstakar ráð- stafanir til þess að fá fulltrúa þeirra, sem hingað hafa flutt, til starfa innan vébanda sinna. Og þess vegna eiga flokkarnir að hafa frumkvæði að því að nýbúarnir fái tækifæri til að láta að sér kveða í íslenzkum þjóðmálum ekki síður en aðrir, sem búa í þessu landi. Þetta snýst bæði um lýðræði og jafnrétti. Jafnréttisbaráttan er ekki bara spurning um jafnan rétt karla og kvenna. Hún er líka spurning um jafnrétti fyrir þá, sem hingað hafa flutt og tekið sér var- anlega búsetu hér. En hér geta komið upp mörg álitamál. Sumir þeirra, sem hafa helgað líf sitt baráttu fyrir jöfnum rétti kynjanna, hafa smátt og smátt komizt á þá skoðun, að það dugi ekki til að tryggja jafnan rétt karla og kvenna í löggjöf heldur verði að gera virkar ráðstafanir til þess að jafna stöðu karla og kvenna t.d. með kynjakvótum. Og athygl- isvert er að konur, sem hafa ungar hafið þátttöku í jafnréttisbarátt- unni, hallast meir og meir að því að grípa þurfi til virkari aðgerða en gert hefur verið vegna þess, hvað baráttu kvenna miði hægt. Það er augljóslega ekki hægt að vera þeirrar skoðunar að slíkar að- gerðir eigi ekki að koma til í sam- bandi við jafnréttisbaráttu kvenna en hins vegar eigi að beita þeim til að tryggja pólitíska stöðu nýbúa. Í þessum efnum verður eitt yfir alla að ganga. Það er hins vegar tímabært að hefja þessar umræður. Vafalaust mun mörgum þykja þetta óþægileg umræða og spyrja spurninga í þessu sambandi. Þeim hinum sömu er ráðlagt að lesa bækur Böðvars Guðmundssonar um Vesturfarana og sjá Híbýli vindanna, sem Leikfélag Reykja- víkur hefur sýnt í vetur og byggist á leikgerð hluta sögunnar. Áttu Íslendingarnir, sem fluttu vestur um haf fyrir hundrað árum, ekki að eiga neinn rétt í Kanada? Áttu þeir ekki að hafa möguleika á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri, að berjast fyrir sínum hagsmunum, að eignast sína full- trúa í sveitarstjórnum, fylkisþing- um og þjóðþingi? Auðvitað finnst okkur að þeir hafi átt að fá þann rétt, sem þeir og fengu. Hið sama á við um það fólk af er- lendu bergi brotið, sem hefur flutt hingað til lands. Að sumu leyti er þetta fólk í sömu sporum og Vest- urfararnir, nema þeir hafa það betra. Lífskjör þeirra eru strax í upphafi betri og lífsbaráttan er ekki jafn hörð. En það er alltaf erf- itt að flytja til annars lands. Við lítum svo á, að landar okkar, sem hafa t.d. flutt til Norður- landanna og setzt þar að, eigi þann sjálfsagða rétt að taka þátt í þjóð- félagsumræðum og starfi á hinum pólitíska vettvangi. Nákvæmlega sömu rök eiga við um þá útlend- inga, sem hingað hafa flutt. Auðvitað fá þeir þennan rétt lög- um samkvæmt. En það eitt dugar ekki til. Þeir þurfa að fá hvatningu til þess að beita þeim rétti, sem þeir hafa lögum samkvæmt. Og stjórnmálaflokkarnir þurfa að átta sig á því, að nýbúar með kosninga- rétt eru að verða það margir að þeir geta haft áhrif á úrslit kosn- inga, ef þeir beita sér sérstaklega í þágu eins flokks umfram aðra. Þjóðfélagið er breytt. Við þurf- um að laga okkur að þeim breyt- ingum á öllum sviðum – ekki bara sumum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.