Morgunblaðið - 28.05.2005, Side 39

Morgunblaðið - 28.05.2005, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 39 UMRÆÐAN Poulan 4.75 Hö Safnpoki Sláttutraktor Poulan Pro 15,5 Hö Mótor B&S NÝ VERSLUN FELLSMÚLA Sími 5172010 Tilboð 199.000.- Tilboð 29.900.- Tilboð 34.900.- Partner 4.0 Hö með drifi Skemmuvegi 48 • Kópavogi • S: 557 6677 www.steinsmidjan.is SÍÐASTLIÐIÐ sumar varð einn af mörgum skrúðgörðum Ísfirðinga, Austurvöllur, 50 ára. Ísafjarðarbær er lík- lega það bæjarfélag sem á flesta af elstu og merkilegustu skrúðgörðum landsins. Þar er fyrstan að nefna Skrúð á Núpi í Dýrafirði frá 1909, Jónsgarð á Ísafirði frá 1923, Simsonsgarð frá árunum 1920–1930 og svo Austurvöll frá 1954. Þetta eru menn- ingarverðmæti sem Ís- firðingar verða að gæta vel og ómet- anlegt bæði fyrir heimafólk og ferðamenn að geta notið slíkra un- aðsreita sem vel hirtir skrúðgarðar eru. Það má geta þess að mikil ferðamennska er tengd garða- og náttúruskoðun t.d. í Englandi og mætti vel gera út á þann markað hérlendis. Í fyrra á 50 ára afmæli Aust- urvallar þegar ég heimsótti garðinn var fátt sem minnti á þessi tímamót í sögu garðsins og þótti mér sárt að sjá þennan miðbæjargarð Ísfirðinga meira og minna í niðurníðslu. Efalaust kann mörgum að þykja fátt um þennan garð, en ég vil benda á að Austurvöllur á Ísafirði ásamt Hallargarðinum í Reykjavík eru tveir heildstæðustu og upp- runalegustu nútíma- (módernísku) skrúðgarðar sem við Íslendingar eigum. Það var fyrsti faglærði ís- lenski landslagsarkitekt okkar Ís- lendinga sem hannaði þessa garða, Jón H. Björnsson. Hallargarðinn í Reykjavík hannaði hann 1953 og Austurvöll 1954 og eru þeir ein- kennandi fyrir þann ameríska módernisma sem Jón var fulltrúi fyrir, enda menntaður í Bandaríkjunum. Ein- kenni þessa garðstíls eru einmitt m.a. bog- myndaðir stígar sem flæða eðlilega í gegn um garðinn og af- marka á einfaldan hátt gróðurbeð og gras- flatir eins og einkennir Austurvöll. Því miður hefur Austurvöllur verið rú- inn mörgu því sem gerir garð áhugaverðan, fyrir utan slæma umgengni hefur eitt aðal- aðdráttarafl garðsins, tjörnin, verið fjarlægt. Í stað hefur myndastyttu verið komið fyrir þar sem tjörnin var áð- ur og stendur nú þar skökk á sínum stalli. Áður var þessi fallega stytta Ásmundar Sveinssonar innst í garð- inum, þar sem hún naut sín mun betur með sundhöllina og grósku- mikinn gróður í bakgrunni. Það er engu líkara en að garð- urinn sé gleymdur, gróðurinn víða illa farin, grasflötin slitin og hálf- karað grindverk sem virðist hafa verið hætt við að setja um garðinn í miðjum klíðum var ekki til að auka reisn garðsins. Það er athyglisvert í ljósi sög- unnar að þegar Austurvöllur var hannaður var áætlað að reisa ráð- hús Ísafjarðar á lóðinni þar sem Faktorshúsið í Hæstakaupstað stendur. Það verður að teljast mikið lán fyrir þau miklu menningar- verðmæti og bæjarprýði sem Hæstikaupstaður er að ekki varð úr þeim áformum. Ég geri það að tillögu minni að rykið verði dustað af uppdrætti garðsins og hann endurgerður, jafnframt að tengja garðinn yfir að Fjarðarstræti svo að þar myndist áhugaverð gönguleið. Með tengingu við lóð Hæstakaupstaðar myndu auk þess starfsemin þar og garð- urinn upphefja hvort annað. Það væri mikið menningarslys ef þessi einn best varðveitti módern- íski almenningsgarður landsins eyðilegðist og hvet ég Ísfirðinga eindregið til að hefja Austurvöll til vegs og virðingar sem aðlaðandi miðbæjargarð fyrir gesti og gang- andi. Skrúðgarðar eru menningarverðmæti Samson Bjarnar Harðarson fjallar um Austurvöll, skrúð- garð Ísfirðinga ’Það væri mikið menn-ingarslys ef þessi best varðveitti móderníski almenningsgarður landsins eyðilegðist og hvet ég Ísfirðinga eindregið til að hefja Austurvöll til vegs og virðingar.‘ Samson Bjarnar Harðarson Höfundur er landslagsarkitekt FÍLA. samson@landmotun.is Austurvöllur á Ísafirði – einn best varðveitti móderníski almenningsgarður landsins. SÝSLUMAÐURINN á Selfossi gerir í grein í Morgunblaðinu 23. maí sl. tilraun til að klóra yfir mistök sem áttu sér stað við rekstur sakamáls á hendur þremur Lettum nýver- ið, sem hann og hann einn ber ábyrgð á. Sýslumaðurinn seg- ir ranglega að undirrit- aður hafi látið að því liggja að sýslumaður bæði ákæri og dæmi. Bendir hann á í grein sinni að héraðsdómari dæmi og hann sjálfur sem lögreglustjóri sinni ekki rannsókn persónulega, heldur lögreglumenn. Sýslu- maður stjórnar rann- sóknum lögreglu og ber ábyrgð á því að hún sé lögum samkvæmt; mál séu upplýst og rann- sókn hlutlaus. Sýslumaður ákærir í málum og skal við höfðun opinbers máls gæta þess að hagsmunir ákærðu séu tryggðir og að mál sé þannig á borð borið fyrir dómara að hann sé upplýstur um alla málavexti og átti sig á öllum lagaatriðum sem sakfelling og sýkna geti byggst á. Ábyrgð sýslumanna er mikil en menn standa greinilega misvel undir henni. Sýslumaður fullyrðir í grein sinni að ekki hafi verið um neinn þjónustu- samning að ræða í tilviki Lettanna þriggja; hann hafi ekki fundist (!) Til upprifjunar skal bent á að samn- ingur er gildur þótt munnlegur sé. Slíka samninga er því ekki alltaf að finna. Fyrir lá í málinu að Lettarnir voru sendir hingað á vegum lettn- eska fyrirtækisins Vislande og ítrek- að var við sýslumanninn að til staðar væri þjónustusamningur. Sá þjón- ustusamningur uppfyllir skilyrði 1.tl.1.mgr. 2.gr. Eftir þessum samn- ingi hefur lögreglan aldrei borið sig og aldrei var tekin skýrsla af vinnu- veitanda Lettanna eða reynt að afla upplýsinga þaðan. Það er stórkost- lega ámælisvert og fer í bága við lög um meðferð opinberra mála að hand- hafi lögreglu- og ákæruvalds skuli fullyrða að eitthvað sé staðreynd, þegar fyrir liggur að málsatvik hafa ekki verið rannsökuð. Sýslumaður fullyrðir að Lettarnir hafi átt að fá 90.000 kr. fyrir 3 mán- uði og því ekki verið farið að ákvæð- um 3. gr. laga 54/2001 um starfskjör. Í fyrsta lagi þá er það ekki skilyrði þess að ráðningarsamband falli und- ir lög 54/2001 að laun og kjör séu í samræmi við lögbundin lágmarks- kjör hér á landi, heldur er einfald- lega kveðið á um það í lögunum að starfsmenn erlends vinnuveitanda sem ráðast tímabundið til starfa hér á landi við framkvæmd þjónustu, skuli njóta lágmarkskjara eins og Íslendingar. Í öðru lagi hefði lögreglan komist að því, hefði málið verið rannsakað að launa- greiðslur (greiddar inn á bankareikninga Lett- anna) voru í samræmi við íslenska kjarasamn- inga og af þessum laun- um voru greiddir skatt- ar í Lettlandi. Sýslumaðurinn segir Lettana hafa afþakkað boð um skipun verj- anda. Hvers vegna skyldi það hafa verið? Í samtölum við vinnuveit- anda sinn sögðu hinir ákærðu að þeim hefði verið tjáð að þeir þyrftu sjálfir að greiða lög- mannskostnað. Það veit sýslumað- urinn að er ekki rétt. Aldrei er gerð tilraun til þess að innheimta útlend- inga sem dæmdir eru hér og heim- vísaðir í kjölfarið, nema svo ólíklega vilji til að þeir séu með mikla fjár- muni á sér. Aldrei var þeim tjáð að vinnuveitandi þeirra í Lettlandi hefði ráðið verjanda fyrir þá; þá vitneskju hafði sýslumaðurinn og aðeins hann, en hvorki undirmenn hans né hér- aðsdómarinn. Hlýtur hann að hafa skráð þetta hjá sér eins og allt ann- að. Sýslumaðurinn segir samanburð við mál Lettanna sem sýknaðir voru í Héraðsdómi Austurlands úr lausu lofti gripinn. Þeir hafi verið í vinnu hjá fyrirtæki en enginn Íslendingur kannast við að hafa hina í vinnu. Þessi ummæli eru óskiljanleg með öllu. Það liggur fyrir í málinu að Lettarnir þrír voru að vinna við til- tekið verk. Varla hefur það því verið málum blandið hver naut góðs af vinnu þeirra. Einnig var og er ljóst að lettneska fyrirtækið Vislande sendi þá til landsins. Það hentar síð- an sýslumanninum að sneiða hjá því að sýknan fyrir austan byggði einnig á lagaatriði, þ.e.a.s. að skv. lögum 97/ 2002 um útlendinga þurftu ákærðu yfirhöfuð ekkert atvinnuleyfi. Lögin breytast ekki frá einu máli til annars. Í niðurlagi greinar sinnar segir sýslumaðurinn að Lettarnir hafi ver- ið fórnalömb. Rétt er það – þeir voru fórnarlömb Sýslumannsins á Sel- fossi. Fórnarlömb sýslumannsins Sveinn Andri Sveinsson svarar grein Ólafs Helga Kjartanssonar Sveinn Andri Sveinsson ’Lögin breytastekki frá einu máli til annars.‘ Höfundur er hæstaréttarlögmaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.