Morgunblaðið - 28.05.2005, Síða 49

Morgunblaðið - 28.05.2005, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 49 MESSUR Á MORGUN | FERMINGAR Bolladóttur miðborgarpresti. Tón- listarmaðurinn Þorvaldur Hall- dórsson mun leiða lofgjörðina, en hann mætir kl. 13:30 til að gleðja fólk með söng og spjalli. Þá er hægt að leggja inn fyrirbænarefni til þeirra sem þjóna í guðsþjónustunni áður en stundin hefst. Í lok stund- arinnar verður blessun með olíu. Guðsþjónustan fer fram í kaffi- stofunni Kaffiport í Kolaportinu, þar er hægt að kaupa sér kaffi og dýrindis meðlæti og eiga gott sam- félag við Guð og menn. Það eru all- ir velkomnir. Miðborgarstarf þjóðkirkjunnar. Vortónleikar KÓR og unglingakór Grafarvogs- kirkju flytja vorlög og kirkjulega tónlist í Grafarvogskirkju nk. sunnudag 29. maí kl.16.00. Að- gangseyrir 500 krónur og allur ágóði af kaffisölu í hléi mun renna óskiptur í ferðasjóð Unglingakórs- ins. Unglingakórinn er í vináttu- sambandi við bandarískan drengja- kór „Land of Lakes Choirboys“ frá Elk River Minnesota. Drengjakór- inn hefur tvívegis komið í heimsókn til okkar og haldið tónleika í Graf- arvogskirkju nú síðast 30. júní 2004 þar sem Unglingakórinn söng ásamt honum. Nú í sumar mun kórinn leggja upp í langa og mikla söngferð til USA og á Íslendingaslóðir í Kan- ada. Hann mun endurgjalda heim- sókn Drengjakórsins og halda ásamt honum þrenna tónleika í ná- grenni Elk River Minnesota ásamt því að syngja við messu í Central Lutheran Church í Elk River. Í Kanada heldur kórinn tónleika í Winnipeg og Gimli og mun syngja við messu í Árborg. Einnig mun hann heimsækja elliheimili og gleðja eldri borgara með íslenskri tónlist. Á efnisskrá kórsins er að finna nær eingöngu íslenska tónlist og höfum við kosið að kalla þetta verkefni okkar „Íslensk tónlist vestur um haf“. Fimmtíu ára fermingarbörn í Laugarneskirkju HÓPUR gamalla félaga sem fermd- ust frá Laugarneskirkju vorið 1955 hefur boðað komu sína í kvöld- messu sunnudagskvöldið 29.5. kl. 20:00. Margrét Ólafsdóttir fulltrúi fermingarhópsins mun ávarpa í lok messunnar og svo bíður kleinukaffi í safnaðarheimilinu þar sem fólki mun gefast færi á að rifja upp göm- ul kynni. Hvetjum við þau öll sem fermd- ust þetta vor að koma til messunnar og hafa meðferðis ljósmyndir frá bernskuárum í Laugarnesi, ef til eru, til sýnis í messukaffinu. Bjarni Karlsson sóknarprestur mun þjóna ásamt Sigurbirni Þor- kelssyni meðhjálpara. En Gunnar Gunnarsson organisti leikur og stjórnar kór Laugarneskirkju. Kvöldmessur Laugarneskirkju eru almennar messur og öllum opnar. Boðið er upp á barnasamveru með- an á messu stendur. Verið velkom- in. Ensk messa í Hallgrímskirkju Á SUNNUDAG, 29. maí nk. kl. 14:00 verður haldin ensk messa í Hallgrímskirkju. Prestur verður sr. Bjarni Þór Bjarnason. Organisti verður Hörður Áskelsson. Guðrún Finnbjarnardóttir mun leiða al- mennan safnaðarsöng. Fjórða árið í röð er boðið upp á enska messu í Hallgrímskirkju síðasta sunnudag hvers mánaðar. Messukaffi að at- höfn lokinni. Service in English SERVICE in English at the Church of Hallgrímur (Hallgrímskirkja) 29th of May, at 2 pm. Holy Comm- union. The first Sunday after Trin- ity. Celebrant and Preacher: The Revd Bjarni Þór Bjarnason. Org- anist: Hörður Áskelsson. Leading singer:Guðrún Finnbjarnardóttir. Refreshments after the Service. ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Félagar úr kór Áskirkju syngja, organisti Kári Þor- mar. Prestur sr. Karl V. Matthíasson. Kaffi eftir guðsþjónustu í boði sóknarnefndar í efri safnaðarsal. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Organisti Guðmundur Sigurðsson. Molasopi eftir messu. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11:00. Sr. Jak- ob Ágúst Hjálmarsson prédikar. MR kórinn syngur Organisti Marteinn H. Friðriksson. GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Samskot í líknarsjóð. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: Guðs- þjónusta kl. 14:00. Organisti Kjartan Ólafsson. Sr. Hreinn S. Hákonarson. HALLGRÍMSKIRKJA: Laugardagur: Brigði birtu og veðurs. Opnun ljósmyndasýningar Þórólfs Antonssonar og Hrannar Vilhelms- dóttur í turni Hallgrímskirkju. Sýningin mun standa til 15. ágúst og vera opin frá kl. 9–5 á daginn eða á opnunartíma turnsins. Sunnudagur: Messa kl. 11:00. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti Hörður Áskelsson. Hópur úr Mótettukórnum syngur. Ensk messa kl. 14.00 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnason- ar. Organisti Hörður Áskelsson. Forsöngv- ari Guðrún Finnbjarnardóttir. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11:00. Org- anisti Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas Sveinsson. LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS: Hringbraut: Guðsþjónusta kl. 10:30. Sr. Gunnar Rúnar Matthíasson. Organisti Helgi Bragason. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups. Messa kl. 11. Prestur sr. Bára Friðriksdóttir. Organisti Jón Stefánsson. Félagar úr Kór Langholtskirkju leiða söng. Kaffisopi eftir messu. LAUGARNESKIRKJA: Messa og barna- samvera kl. 20:00. Fermingarbörnum vorsins 1955 sérstaklega boðið til guðs- þjónustu. Margrét Ólafsdóttir fulltrúi fimm- tíu ára fermingarbarna ávarpar. Bjarni Karlsson sóknarprestur þjónar ásamt Sig- urbirni Þorkelssyni meðhjálpara. Kór Laug- arneskirkju syngur við stjórn Gunnars Gunnarssonar organista og messukaffi Sigríðar kirkjuvarðar bíður svo allra að messu lokinni. Börn taka þátt í upphafi messunnar eins og venjulega og svo er boðið upp á samveru við þeirra hæfi í safn- aðarheimilinu eða farið út í leiki ef veður leyfir. NESKIRKJA: Messa kl. 11.00. Félagar ú Vox Academica leiða safnaðarsöng. Org- anisti Elías Davíðsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. SELTJARNARNESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.11. Kammerkór Seltjarnarneskirkju leið- ir sálmasöng. Organisti Pavel Manasek. Sr. Arna Grétarsdóttir. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Minningarguðs- þjónusta um þá sem látist hafa af völdum alnæmis verður haldin sunnudaginn 29. maí kl. 14:00. Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir guðsþjónustuna og félagar úr Al- næmissamtökunum taka þátt í guðsþjón- ustunni.Allir hjartanlega velkomnir. ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.11. Kórinn leiðir söng undir stjórn organistans Krisztinu Kalló Szklenár. Molasopi að stundinni lokinni. Minnum á að sunnu- dagaskólinn er farinn í sumarfrí. BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl. 11. Prest- ur sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir. Organisti Keith Reed. DIGRANESKIRKJA: Útvarpsguðsþjónusta kl 11: 00. Prestur sr. Gunnar Sig- urjónsson, Organisti Kjartan Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju. Einsöngur Vilborg Helgadóttir. Léttur málsverður í safn- aðarsal eftir messu. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Fermdar verða: Anna Lísa Leonar og Rakel Björg Leonar, Unufelli 46. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Kór Fella- og Hólakirkju leiðir söng undir stjórn Lenku Mátéovu organista. GRAFARVOGSKIRKJA: Flugmessa kl. 11. Prestar: Sr. Vigfús Þór Árnason og Sr. Bjarni Þór Bjarnason. Hugleiðing: Benóný Ásgrímsson, yfirflugstjóri. Einsöngur: Þur- íður Sigurðardóttir, myndlistamaður og fv. flugfreyja. Fiðla: Jóhannes Bjarni Guð- mundsson, flugmaður. Flauta: Sigrún Her- mannsdóttir, flugfreyja. Kontrabassi: Jón Hörður Jónsson, flugstjóri. Trompetar: Berglind Jóna Þráinsdóttir, flugfreyja, Ingi- björg Lárusdóttir, flugfreyja og Sigurður Heiðar Wiium, flugmaður. Söngur: Kór Flugfreyjufélags Íslands og kvartett flug- stjóra. Organisti: Ólafur W. Finnsson, flug- stjóri. Ritningarlestur: Signý Pétursdóttir, flugumferðarstjóri og Berglind Jóna Þráins- dóttir, flugfreyja. Flutningur bæna: Hertvig Ingólfsson, flugvirki, Rafn Jónsson, flug- stjóri og Þóra Guðmundsdóttir, fv. flug- freyja. Lokabæn: Björn Þverdal, flugvirki. Upp úr kl 10:00 munu fallhlífastökkvarar lenda við Grafarvogskirkju. Listflug verður við kirkjuna um kl. 13:00. Flugvélar í áætl- unarflugi munu fljúga yfir Grafarvoginn. Rekstaraðilar, starfsmannafélög og lífeyr- issjóðir er tengjast flugrekstri bjóða upp á „flugkaffi“ eftir messu. HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Félagar úr kór kirkjunnar leiða safnaðarsöng. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Við minnum á bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18 KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sóknarprestur, sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson predikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópa- vogskirkju syngur og leiðir safnaðarsöng, organisti Þóra Vigdís Guðmundsdóttir. Boðið upp á kaffi eftir guðsþjónustu. SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar. Kór Selja- kirkju leiðir söng. Organisti Jón Bjarnason. Altarisganga. Aðalfundur Seljasafnaðar verður haldinn í Seljakirkju strax að lokinni guðsþjónustu. Á aðalfundi er fjallað um reikninga safnaðarins, skýrslur fluttar um starf og kosið til ábyrgðarstarfa. Atkvæð- isrétt hafa íbúar Seljahverfis sem skráðir eru í þjóðkirkjuna og hafa náð 16 ára aldri. Safnaðarfólk er hvatt til þátttöku á fund- inum. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Vorferð kirkj- unnar verður farin í Viðey kl.11.00. Sam- koma kl. 20.00 í umsjá unga fólksins í kirkjunni. Böðvar Ingi Böðvarsson og Jó- hann Axel Schram Reed tala. Þáttur kirkj- unnar „Um trúna og tilveruna“ verður sýnd- ur á Ómega kl.14.00. BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmári 9, Kóp.: Samkomur alla laugardaga kl. 11:00. Bænastund alla miðvikudaga kl. 20:00. Biblíufræðsla allan sólarhringinn á Útvarp Boðun FM 105,5. Allir alltaf velkomnir. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagur: Bænastund kl. 19.30. Samkoma kl. 20. Hallelújakórinn syngur. FRÍKIRKJAN KEFAS, Fagraþingi 2a: Sam- koma kl. 14.00. Bryndís Svavarsdóttir tal- ar. Lofgjörð og fyrirbænir. Tvískipt barna- starf fyrir 1–5 ára og 6–12 ára börn á samkomutíma. Kaffi og samfélag eftir samkomu. Þriðjudaginn 31. maí er bæna- stund kl. 20.30. Allir velkomnir. KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma kl. 17:00. Síðasta samkoma vetrarins. Fé- lagar í Kristilegu stúdentafélagi sjá um samkomuna. Lofgjörðarhópur KFUM og KFUK leiðir söng. Barnagæsla meðan á samkomunni stendur. Matur á fjöl- skylduvænu verði eftir samkomuna. Allir velkomnir. FÍLADELFÍA: Samkoma kl. 11:00 með Hafdísi Traustadóttur píanóleikara, brauðsbrotning á eftir. Almenn samkoma kl. 16:30. Ræðum. Vörður Leví Trausta- son. Gospelkór Fíladelfíu leiðir söng. Barnakirkja á meðan á samkomu stendur. Allir eru hjartanlega velkomnir. Bæna- stund miðvikudagskvöld kl. 20:00. Bæna- stundir alla virka morgna kl. 07–08. www.gospel.is - Ath! Hægt er að horfa á beina útsendingu á www.gospel.is eða hlusta á útvarp Lindina fm 102.9. KROSSINN: Almenn samkoma að Hlíða- smára 5 kl. 16.30. BETANÍA, Lynghálsi 3: Samkoma kl. 11 sunnudaga. Einnig samkomur kl. 19.30 á föstudögum. KIRKJA JESÚ KRISTS Hinna síðari daga heilögu, Mormónar, Ásabraut 2, Garða- bæ: Sakramentisguðsþjónusta sunnudag kl. 9 árdegis á ensku og kl. 12 á íslensku. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dóm- kirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Messa á ensku kl. 18.00. Alla virka daga: Messa kl. 18.00. „Ár alt- arissakramentisins“: Tilbeiðslustund er haldin í Kristskirkju á hverju fimmtudags- kvöldi að messu lokinni, þ.e. frá kl. 18.30 til 19.15. Reykjavík, Maríukirkja við Rauf- arsel: Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Laug- ardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga: Messa kl. 18.30. „Ár alt- arissakramentisins“: Tilbeiðslustund á mánudögum frá kl. 19.00 til 20.00. Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl. 16.00. Miðvikudaga kl. 20.00. Hafnarfjörður, Jós- efskirkja: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Alla virka daga: Messa kl. 18.30. „Ár alt- arissakramentisins“: Tilbeiðslustund á hverjum degi kl. 17.15. Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl. 08.30. Virka daga: Messa kl. 8.00. Keflavík, Barbörukap- ella: Skólavegi 38: Sunnudaga: Messa kl. 14.00. Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga: Messa kl. 10. Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11. Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18. Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16. Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19. Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja, Hrafnagilsstræti 2. Laugardaga: Messa kl. 18.00. Sunnudaga: Messa kl. 11. „Ár alt- arissakramentisins“: Tilbeiðslustund á hverjum föstudegi kl. 17 og messa kl. 18. LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Messa kl. 11. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Guðmundar H Guðjónssonar. Gengið verð- ur að borði Drottins. Minnum á nærhópa- starf á mánudagskvöldið og tólf spora fund á þriðjudagskvöldið. Prestur sr. Þor- valdur Víðisson. HALLGRÍMSKIRKJA í Vindáshlíð í Kjós: Messa kl. 14. Prestur sr. Petrína Mjöll Jó- hannesdóttir. Eftir messu er kaffisala Vindáshlíðar. Allir velkomnir. KRÝSUVÍKURKIRKJA: Messa kl. 14:00. Sætaferð frá Hafnarfjarðarkirkju kl.13:05. Upprisu, altaristöflu Krýsuvíkurkirkju kom- ið fyrir á sínum stað í kirkjunni. Prestar: Dr. Gunnar Kristjánsson, prófastur sem pré- dikar og sr. Gunnþór Þ. Ingason, sem þjón- ar fyrir altari. Jóhann Baldvisnsson leikur á gítar og Sveinn Sveinsson á þverflautu. Meðhjálpari: Magnús Sigurðsson. Kirkju- kaffi í Sveinshúsi eftir messuna. Þar stendur nú yfir málverkasýningin „Fuglar í myndum“. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Mannréttinda- messa kl.11.00. Prestur: Sr. Gunnþór Þ. Ingason. Organisti: Antonía Hevesi. Kór Hafnarfjarðarkirkju leiðir safnaðarsöng. Lesarar: Einar S. Einarsson og Guð- mundur G. Þórarinssson. Sigurjón Pét- ursson leiðir bænir. Meðhjálpari: Ingólfur Halldór Ámundason. Opið hús og léttur há- degisverður í Strandbergi eftir messuna. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Guðs- þjónusta kl. 14. Kór Víðistaðasóknar syng- ur létta söngva undir stjórn Úlriks Ólason- ar. FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Kór Fríkirkj- unnar í Hafnarfirði syngur við guðsþjón- ustu í Akraneskirkju kl. 14 ásamt kórum Akraneskirkju og Lágafellssóknar. Allir vel- komnir. KÁLFATJARNARKIRKJA: Fjölskylduguðs- þjónusta sunnudag kl. 17. Fundur með fermingarárgangi 2006 eftir guðsþjón- ustu. GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00. Kór Vídalínskirkju leiðir safnaðarsöng. Org- anisti Jóhann Baldvinsson. Börn borin til skírnar. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar. Rúta fer frá Vídalínskirkju kl. 10.30 og frá Hlein- um kl. 10.40. Allir velkomnir. Prestarnir. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Tónlistarguðsþjónusta sunnudaginn 29. maí kl. 20. Kór kirkjunnar syngur og verður sálmaval mjög fjölbreytt. Stjórnandi er Na- talía Chow Hewlett. Meðhjálpari er Ástríð- ur Helga Sigurðardóttir. Kaffiveitingar í safnaðarsal að athöfn lokinni, allir vel- komnir. KEFLAVÍKURKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón- usta og sunnudagaskóli kl. 11 árd. Starfs- hópur sunnudagaskólans tekur þátt í at- höfninni. Sunnudagaskólastarfi lýkur á þessu vori. Nes, íþróttafélag fatlaðra tekur þátt í athöfninni. Prestur: Sr. Sigfús Bald- vin Ingvason. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng. Organisti og stjórnandi: Hákon Leifs- son. Meðhjálpari: Helga Bjarnadóttir. Úti- grill eftir messu. Sjá: keflavikurkirkja.is AKUREYRARKIRKJA: Laugardagur: Ferm- ingarmessa kl. 10.30. Sr. Svavar A. Jóns- son og sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Fé- lagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti: Eyþór Ingi Jónsson. Sunnudag- ur: Helgistund kl. 20.30. Sr. Jóna Lísa Þor- steinsdóttir. Bryngeir Kristinsson, Michael Jón Clarke, Sigrún Arna Arngrímsdóttir og Þórhildur Örvarsdóttir flytja tónlist og leiða almennan söng. Organisti: Eyþór Ingi Jóns- son. GLERÁRKIRKJA: Fermingarmessa kl. 14 í Lögmannshlíðarkirkju. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Félagar úr Kór Gler- árkirkju syngja. Organisti Hjörtur Stein- bergsson. Allir velkomnir. HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Sam- koma sunnudag kl. 11. Ann Merethe Jac- obsen talar. LAUFÁSPRESTAKALL: Svalbarðskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Minnst afmælis kirkjunnar sem vígð var 30. maí 1957. EGILSSTAÐAKIRKJA: Messa kl. 11. Mánudaginn 30. maí er kyrrðarstund kl. 18. Sóknarprestur. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu- dag kl. 11. Sóknarprestur. SAFNKIRKJAN í Árbæjarsafni: Messa nk. sunnudag kl. 14:00. Tilvalið tækifæri til að upplifa friðsæld og látleysi veraldar sem var. Kristinn Á. Friðfinnsson. SELFOSSKIRKJA: Messa sunnudaginn 29. maí kl. 11. Héraðsfundur Árnes- sprófastsdæmis haldinn í safnaðarheimili kirkjunnar eftir messu. Léttur hádeg- isverður borinn fram að venju. Tíðagjörð með fyrirbæn þriðjudaga til föstudaga kl. 10.00. Kaffisopi og spjall á eftir. Hinir vin- sælu pabba- og mömmumorgnar á mið- vikudögum kl. 11. Sr. Gunnar Björnsson. Guðspjall dagsins: Ríki maðurinn og Lasarus. (Lk. 16.) Svalbarðskirkja Ferming í Akureyarkirkju laugardag- inn 28. maí kl. 10.30. Prestar sr. Svav- ar A. Jónsson og Jóna Lísa Þorsteins- dóttir. Fermd verða: Arna Valgerður Erlingsdóttir, Löngumýri 9. Eva Árnadóttir, Engimýri 12. Freyr Þórðarson, Víðimýri 4. Hafdís Þorbjörnsdóttir, Hríseyjargötu 20. Helen Hannesdóttir, Vanabyggð 4d. Hjörtur Larsen Þórðarson, Hindarlundi 8. Hrefna Rut Nielsdóttir, Álfabyggð 8. Inga Rakel Ísaksdóttir, Víðimýri 14. Ingibjörg Valdimarsdóttir, Norðurgötu 6. Jana Salome Jósepsdóttir, Kringlumýri 9. Karen Ósk Birgisdóttir, Norðurgötu 1. Katrín Guðmundsdóttir, Helgamagrastræti 25. Kolbrún Kara Pálsdóttir, Oddagötu 15. Margrét Einarsdóttir, Engimýri 14. Margrét Larsen, Dalsgerði 6c. María Sigurðardóttir, Háalundi 10. Valdís Eva Hannesdóttir, Vanabyggð 17. Ferming í Glerárkirkju 29. maí kl. 14. Fermdur verður: Atli Sigurjónsson, Steinahlíð 7d. Ferming í kirkju mótmælenda í Lúx- emborg 29. maí. Fermdur verður: Einar Þorri Georgsson, Lúxemborg. Fermingar 28. og 29. maí S

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.