Morgunblaðið - 28.05.2005, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 28.05.2005, Qupperneq 60
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn SJÁÐU GRETTIR, ÉG FÉKK ANNAÐ PÓSTKORT FRÁ HVERJUM HELDUR ÞÚ AÐ ÞAÐ SÉ... MÍN ÁGISKUN ER AÐ ÞETTA SÉ GLUGGA- PÓSTUR... BÍDDU, ÞETTA ER EKKI JÓLAKORT HELDUR GLUGGAPÓSTUR BEETHOVEN VAR ÞÉTTUR ÞEGAR HANN VAR UNGUR HANN VAR FREKAR SÆTUR HANN VAR LÍTILL, MEÐ BREIÐAR AXLIR, STUTTAN HÁLS, STÓRT HÖFUÐ OG KÚLUNEF BEETHOVEN VAR EKKI SÆTUR!! SAMKVÆMT AUGLÝSING- UNNI EIGA STELPUR AÐ VERA VITLAUSAR Í MIG EF ÉG DREKK ÞETTA ÉG ER EKKI FRÁ ÞVÍ AÐ ÞÚ ÆTTIR AÐ KÆRA EINHVERN ÞAÐ FÓR BEINT UPP Í NEFIÐ! ANDSTÆÐINGAR OKKAR ERU HELMINGI FLEIRI EN VIÐ... ÞETTA ER STUNDIN SEM MUN SÝNA HVERJIR ERU SANNIR KARLMENN OG HVER- JIR ERU LITLIR STRÁKAR HVAÐ SEGIÐI UM AÐ FARA FREKAR BARA ÚT Í FÓTBOLTA? EKKI REYNA AÐ SEGJA MÉR AÐ HÚN SÉ EKKI BÚIN AÐ FARA Í AÐGERÐ ER FYRIRTÆKIÐ Í HÆTTU VEGNA ÞESS AÐ LALLI ER SPILAFÍKILL? OG ÞESS VEGNA ERTU ALDREI HEIMA? E... SJ.. ÉG... AF HVER- JU ERTU AÐ SEGJA ÞEIM ÞETTA RUGL? EF ÞAU FATTA AÐ ÉG BÝ MEÐ KÆRUSTUNNI MINNI ÞÁ BRJÁLAST ÞAU EKKI KENNA MÉR UM ALLT SAMAN! ALLT Í LAGI... ÉG SKAL REDDA ÞESSU ÖLLU SAMAN ÉG HEF EKKI VERIÐ AÐ SEGJA SATT... ÞAÐ ER ÉG SEM ER SPILAFÍKILL, EN EKKI LALLI RÁNIÐ ER AÐ HEPPNAST JÁ, ÞAÐ VAR GÓÐ HUGMYND AÐ LOKA ÖLLUM LEIÐUNUM INN Í DÝRAGARÐINN ÞIÐ GLEYMDUÐ EINNI LEIÐ GÁFNALJÓS... HAA!! ÉG KEM AÐ OFAN Dagbók Í dag er laugardagur 28. maí, 148. dagur ársins 2005 Eitt af því sem Vík-verji heggur eftir þegar hann er staddur erlendis er vöruverð enda árvökull neyt- andi með afbrigðum. Á dögunum var Vík- verji staddur í paradís sælkeranna, Frakk- landi, og þegar svo ber við er fátt sem veitir eins mikla ánægju og að sleikja út um yfir kræsing- unum sem fáanlegar eru hjá kaupmann- inum á horninu. Ost- arnir, smjör, rauðvín, pylsur, ólífuolían og brauð. Já, brauð. Þeirra himneska baguette – eða snittubrauð eins og við köllum það hér upp á íslenskuna. Fátt jafn- ast líka á við ost og baguette með góðu rauðvíni. Einfaldur matur, til- tölulega hollur og á viðráðanlegu verði – í Frakklandi það er að segja. x x x Hér á Íslandi er slík sígild og sjálf-sögð hversdagsfæða ekkert minna en munaðarvara og það vit- anlega verðsins vegna. Án þess að Víkverji hafi neinar haldbærar vís- indalegar sannanir eftirfarandi full- yrðingu til stuðnings segir honum þó svo hugur að sá staður sé vandfund- inn í heiminum þar sem þessi hvers- dagsfæða er dýrari. Í sjálfu sér er það ekki vegna ostsins. Hann er orðinn dýr alls staðar. Í það minnsta í Evrópu. Og það e.t.v. af þeirri eðli- legu ástæðu að hráefn- ið er dýrt og ostagerð langt og vandmeðfarið ferli. Sama gildir um rauðvínið, en þó er það margfalt ódýrara víð- ast hvar annars stað- ar, af þeirri einföldu ástæðu að ríkisein- okunin hér á landi og forsjárhyggja hefur kýlt verðið upp úr öllu valdi. x x x Þá er komið að snittubrauðinu.Þessum fransbrauðslengjum sem sáraeinfalt er að laga. Í Frakk- landi kostar eitt baguette ekki meira en eina evru, sem jafngildir rúmlega 80 krónum. En hér á Íslandi fær maður sömu vöru – gjarnan síðri að gæðum – vart undir 200 krónum! Hvurslags okur er það? Og virðist hér hæpið að beita þeim rökum að háu verði á innfluttu hráefni sé um að kenna því Víkverji man ekki bet- ur en að í fréttir hafi komist ekki svo margt fyrir löngu að verðið á hveiti hafi verið lægra hér en í nágranna- löndunum – einhverra hluta vegna. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is    Kópavogur | Aladár Rácz píanóleikari sést hér á æfingu fyrir tónleika sem verða í dag kl. 16 í Salnum í Kópavogi. Þar mun hann flytja Goldbergtilbrigði Bachs. Aladár hefur leikið á tónleikum víðsvegar um heiminn, leikið inn á geisladiska og unnið til verðlauna fyrir píanóleik í alþjóðakeppnum.Undanfarin ár hefur Aladár starfað sem tónlistarkennari við Tónlistarskóla Húsavíkur, leikið með ýmsum kórum og söngvurum á Norður- og Austurlandi. Morgunblaðið/Sigurður Jökull Goldbergtilbrigði Bachs í Salnum MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. En í honum eru allir fjársjóðir spekinnar og þekkingarinnar fólgnir. (Kól. 2, 3.)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.