Morgunblaðið - 28.05.2005, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 28.05.2005, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 61 DAGBÓK MBA in Technology, Market and Organization AN EXECUTIVE PROGRAMME Copenhagen Business School, Denmark MBA Technology and Market  When transforming technology into business is of prime importance to your organization  When working in technology-based business is your plan for the future  When you want to combine your interest in technology with your interest in economic and commercial matters MBA-TMO is what you need. To improve your personal competen- ces, to kick your career, and to be an influential player in both tech- nological, commercial and general management circles. Next class takes off August 2005. MBA-TMO is an interna- tional education, taught in English, based in Copenhagen. www.mba-tmo.dk Það var vorið 1885 sem nokkrir frammá-menn í þjóðfélaginu, undir forystuGeorgs Schierbecks, þáverandi land-læknis, komu saman til að stofna „Hið íslenska garðyrkjufélag“ eins og Garðyrkju- félag Íslands hét í öndverðu. Jóhanna B. Magnúsdóttir, núverandi fram- kvæmdastjóri félagsins, segir markmiðið með stofnun garðyrkjufélagsins hafa verið þá að auka og efla garðyrkju í landinu til þess að Ís- lendingar ættu hægara með að afla sér heil- næmrar jurtafæðu. Með því sáu stofnendurnir leið til að afstýra ýmsum sjúkdómum á borð við skyrbjúg . „Félagið var stofnað með það markmið fyrir augum að kenna almenningi að rækta, útvega fræ, áburð og verkfæri sem þá var brýn þörf á enda fátækt og fábreytni í matarúrvali mikil. Fræ voru keypt frá útlöndum og þeim dreift til félagsmanna.“ Í fyrstu var megináherslan lögð á ræktun matjurta en smám saman breyttust áherslurnar og skrautjurtum ýmiss konar var gert hærra undir höfði. Í byrjun síðustu aldar styrkti Garðyrkju- félagið Einar Helgason til garðyrkjunáms í Danmörku. Hann átti síðar eftir að verða for- sprakki félagsins og bar hann uppi starfsemi félagsins til æviloka 1935. Hann ferðaðist um landið, gerði tilraunir, veitti leiðsögn í garð- yrkju og hjálpaði til við að útvega fræ, garð- yrkjuáhöld og tilbúinn áburð. Þá var grunn- skólabörnum í Reykjavík einnig veitt tilsögn í garðyrkju. Á fjórða áratugnum tók Garðyrkju- félagið þátt í Garðyrkjusýningu Norðurlanda og var veitt heiðursverðlaun sýningarinnar. Jóhanna segir starf Garðyrkjufélags Íslands vera blómlegt. „Það má meðal annars nefna að innan félagsins eru starfræktir þrír klúbbar um einstök ræktunaráhugamál; rósaklúbbur; sumarhúsaklúbbur og matjurtaklúbbur. Svo eru fræðslufundir haldnir reglulega og í vetur hafa 40–110 félagsmenn setið hvern fund. Um 1700 félagsmenn eru nú skráðir í félagið.“ Garðyrkjufélag Íslands, þessi blómlegi öld- ungur, býður öllum sem áhuga hafa til afmæl- isveislu í Grasagarði Reykjavíkur í dag, laug- ardaginn 28. maí kl. 13–17. Dagskráin er fjölbreytt, fræðsla, blómaball og plöntuskiptamarkaður. Klúbbarnir eru kynntir sérstaklega og farið verður í fræðslu- göngu um Grasagarðinn. Jóhanna segir þetta frábært tækifæri fyrir fjölskylduna til að koma, upplifa afmælisstemningu í fallegu um- hverfi og sækja sér fræðslu. Ef veðrið verður gott er upplagt að koma með nesti og breyta ferðinni í lautartúr eða þá að rölta á Café Flóru. Afmæli | Garðyrkjufélag Íslands er eitt hundrað og tuttugu ára um þessar mundir Mikið og blómlegt starf  Jóhanna B. Magn- úsdóttir er fram- kvæmdastjóri Garð- yrkjufélags Íslands. Hún útskrifaðist af um- hverfisbraut Garð- yrkjuskóla ríkisins árið 1990. Hún er nú verk- efnisstjóri Staðardag- skrár 21 í Mosfellsbæ, sem er áætlun um sjálf- bæra þróun fyrir sveit- arfélögin. Jóhanna hefur einnig verið ferða- málfulltrúi á Kirkjubæjarklaustri og starfar mikið við náttúruvernd. Auk þess er hún áhugasamur ræktandi með sérstakan áhuga á matjurtarækt. Árnaðheilla dagbók@mbl.is 50 ÁRA afmæli. 31. maí nk. verðurBirgir Kristinsson 50 ára. Af því tilefni býður hann vinum, vanda- mönnum og starfsmönnum Ný-Fisks ehf. í opið hús á afmælisdaginn í sam- komuhúsinu í Sandgerði kl. 19–22. 50 ÁRA afmæli. Í dag, 28. maí, erfimmtug Svanfríður Jóns- dóttir, hjúkrunarfræðingur og hót- elstjóri. Hún og eiginmaður hennar, Kristófer Oliversson, eru stödd er- lendis. Í tilefni afmælisins eru vinir og vandamenn velkomnir í Logafold 72 kl. 18 á afmælisdegi þess síðarnefnda 30. júní næstkomandi. Gullbrúðkaup | Í dag, 28. maí, eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Þóra Þor- steinsdóttir og Sigurþór Hallgrímsson pípulagningameistari, Kirkjubraut 18, Seltjarnarnesi. Þau verða að heim- an í dag. Hlutavelta | Þessir krakkar söfnuðu nýlega flöskum og dósum á Akureyri til styrktar Rauða krossi Íslands og höfðu 3.500 krónur upp úr krafsinu. Þau heita Almar Kristmarsson, Daníel Ingi Kristinsson, Fanney Lind Pétursdóttir og Heiða Hlín Björnsdóttir. Morgunblaðið/Kristján Hverjum skal strætó þjóna? HVERJUM skal strætó þjóna? Maður bara spyr. Heilt ár er nú lið- ið frá því ég benti stjórn Strætó b.s. á þau hræðilegu mistök sem sjá mátti við skipulag nýs leiðakerfis. En þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar til þeirra og til þáverandi borg- arstjóra situr flest við það sama. Stóra málið er að slitið verður á greiðar og góðar almennings- samgöngur við Laugardalinn þar sem borgin hefur og er að byggja upp stórar íþróttahallir, stærsta sundlaug landsins er og eini útivist- arskemmtigarður borgarinnar. Tvær strætóleiðir verða um Suður- landsbraut, önnur í Mosfellsbæ sem sinna skal öllum efri hverfum borg- arinnar, hin í bæjarfélögin sunnan borgar og ein um Sundlaugaveg sem hefur ekki góðar tengingar við fjarlægari svæði. Þau hundruð og oft þúsundir barna og unglinga sem æfa íþróttir auk allra þeirra hópa sem heim- sækja Fjölskyldu- og húsdýragarð- inn, tónleika og sýningar geta átt á hættu að þurfa að bíða langtímum saman eftir næsta eða þarnæsta vagni. Þetta nýja kerfi miðar að því að margar leiðir aki um hraðbrautir og eru biðstöðvar settar þar út í kant, þeir sem þetta skipuleggja hafa greinilega ekki ferðast um bæinn með börn, hvað þá barnahópa sem hér eftir verða víða að skipta og bíða við mestu og hraðeknustu brautir höfuðborgarsvæðisins. Þarf slys eða dauða til að menn sjái að sér? Til að auka enn á hættuna verða margar hraðahindranir í íbúð- arhverfum fjarlægðar. Er þessum ráðamönnum algjörlega sama um börn og eldri borgara? 78 bílar um Hverfisgötu á klukku- stund er kannski það sem við þurf- um, svona verður þetta í hinu nýja kerfi. Einfalt sporvagnakerfi gæti vel þjónað þessum þrönga bæj- arhluta ásamt þeim fáu há- skólanemum sem ekki eru á bílum. Í staðinn gæti aðalendastöð Strætó verið í Laugardalnum eða þar sem betra væri, á Geirsnefinu sem núna þjónar aðallega hundum og eig- endum þeirra. Þarna eru og verða enn frekar mót mestu hraðbrauta til allra átta á höfuðborgarsvæðinu. Huga ætti að skýlum sem skýla fyr- ir aurslettum bifreiða yfir bíðandi farþega. Hættulausum skiptingum og þar með skipulagi stæða skipti- stöðva svo farþegar séu ekki í hættu þegar hlaupa þarf milli leiða, vagnar mættu bíða ögn lengur á skipti- stöðvum svo farþegar hafi tíma til að skipta. Þá er einnig nauðsynlegt að end- urhanna forgangsröðun þrifa og snjómoksturs gönguleiða sem lengj- ast mjög með þessu kerfi. Björn Finnsson, Krummahólum 13, Rvík. Telpuúr í óskilum TELPUÚR fannst í Kringlunni. Upplýsingar í síma 553 5972. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Í DAG opna Þórólfur Antonsson og Hrönn Vilhelmsóttir ljósmyndasýn- ingu í turni Hallgrímskirkju. Í kynningu um sýninguna segir: „Ljósmyndirnar hafa þau tekið af Hallgrímskirkju frá sama sjón- arhorni, eldhúsglugganum sínum, yfir 15 ára tímabil. Þau hjón eru leikmenn í ljósmyndun og hafa haft þetta sem fjölskyldutómstund. Myndirnar hafa fangað marg- breytileg blæbrigði birtu, veðurs og árstíða en með kirkjuna ávallt í for- grunni.“ Við hæfi þótti að hafa sýn- inguna í turni kirkjunnar enda kemur þar við fjöldi ferðamanna. Sýningin stendur til 15. ágúst og verður opin frá kl. 9–5 á daginn, eða á opnunartíma turnsins. Ljósmyndasýning í Hallgrímskirkjuturni 80 ÁRA afmæli. Á morgun, 29.maí, verður áttræður Andrés Þ. Guðmundsson, Hrauntungu 11, Kópvogi. Eiginkona hans er Sigríður Williamsdóttir. VORTÓNLEIKAR Karlakórs Dal- víkur verða í Dalvíkurkirkju kl. 16:00. Stjórnandi kórsins er Guð- mundur Óli Gunnarsson. Um tón- leikana og dagskrá kórsins á næst- unni segir í tilkynningu: „Dagskrá er fjölbreytt að vanda og er við lagaval er hugsað til þess að kór- inn er að fara í söngferðalag til Norðurlanda. Í þeirri ferð verðu sungið í Tivoli í Kaupmannahöfn. Einnig verður sungið við setningu á vinarbæjarmóti í Lundi í Svíþjóð og það sama kvöld tónleikar í Lomma Kirkja í samstarfi við þar- lendan kór Svanholm Singers. Ef farið er á heimasíðu Íslendinga- félagsins í Kaupmannahöfn sést að við tökum einnig þátt í hátíðahöld- um þjóðhátíðardagsins með lönd- um okkar í Kaupmannahöfn Ferð- inni lýkur svo með tónleikum í Hönefos í Noregi einnig í sam- starfi við þarlendan kór Ringerike Mannskör.“ Einsöngvarar á tónleikunum hér og einnig í söngferðinni verða Davíð Ólafsson, bassi og Björn Björnsson. Píanóleikari verður Daníel Þorsteinsson á öllum tón- leikum kórsins. Á tónleikunum í dag leikur Júlíus Baldursson undir á skeiðar í tveimur lögum. Karlakór Dalvíkur Tónleikarnir hefjast kl. 16.00 í Dal- víkurkirkju
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.