Morgunblaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 63 MENNING         Varnarmistök. Norður ♠32 ♥ÁK3 N/Allir ♦Á852 ♣ÁD54 Vestur Austur ♠84 ♠ÁK9765 ♥D10874 ♥52 ♦G10 ♦K62 ♣10963 ♣87 Suður ♠DG10 ♥G96 ♦D975 ♣KG2 Vestur Norður Austur Suður -- 1 tígull 1 spaði 1 grand Pass 3 grönd Pass Pass Pass Keppnin um Bermúdaskálina fer fram í Portúgal í haust og eiga Banda- ríkjamenn rétt á tveimur sveitum. Sveit Nicks Nickells vann sér rétt á mótið á síðasta ári (Nickell, Freeman, Hamman, Soloway, Meckstroth og Rodwell), en nú er nýlokið í Houston í Texas sérstakri landsliðskeppni þar sem hin sveit Bandaríkjamanna var valin. Sveit Ekeblad vann þar sigurorð af Welland í úrslitaleik og verður því önnur sveit Bandaríkjanna. Í sveitinni spila: Russ Ekeblad, Ron Rubin, Geoff Hampson, Eric Greco, Fred Gitelman og Brad Moss. Spil dagsins er frá úrslitaleiknum. Á báðum borðum voru spiluð þrjú grönd í suður eftir sömu sagnir. Útspil vesturs var spaðaátta. Zia Mahmood og Ron Rubin voru með spil austurs og báðir dúkkuðu fyrsta slaginn. Þar með var geimið létt- unnið með því að taka slagina á lauf, ÁK í hjarta, og senda austur síðan inn á spaða til að spila tígli frá kóngum í lokastöðunni. Eina vörin sem bítur er að taka ÁK í spaða og spila þriðja spaðanum. Þá er innkastið ekki lengur inni í myndinni. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 1. e4 Rf6 2. e5 Rd5 3. d4 d6 4. Rf3 Bg4 5. Be2 e6 6. 0-0 Be7 7. c4 Rb6 8. h3 Bh5 9. Rc3 0-0 10. Be3 d5 11. c5 Bxf3 12. gxf3 Rc8 13. f4 Rc6 14. b4 Bh4 15. b5 R6e7 16. Bd3 f5 17. Kh2 Rg6 18. Hg1 De8 19. Df3 Kh8 20. a4 Bd8 21. a5 Rce7 22. Dg3 Rg8 23. Be2 Bh4 24. Dg2 R8e7 25. Rb1 Hg8 26. Rd2 Rf8 27. Rf3 Reg6 28. Hgc1 Be7 29. c6 b6 30. Dg3 Dd8 31. Kh1 Hc8 32. Bd2 h6 33. Hg1 Rh4 34. Rh2 g6 35. Db3 Hg7 36. axb6 axb6 37. Ha7 Kh7 38. Rf1 Kh8 39. Rg3 Rh7 40. Hga1 Hg8 41. Da4 g5 42. Db3 gxf4 43. Bxf4 Bg5 44. Rh5 Bxf4 45. Rxf4 Rg5 46. De3 De7 47. f3 Rg6 48. Rh5 Rh7 49. Rf6 Rxf6 50. exf6 f4 51. De5 Rxe5 52. fxe7 Rg6 53. Bd3 Rh4 54. Hg1 Hge8 55. Hg4 Rxf3 56. Hxf4 Rg5 Staðan kom upp á armenska meist- aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Erevan. Beniamin Galstian (2448) hafði hvítt gegn Ara Minasjan (2510). 57. Hxc7! Hxc7 58. Hf8+ Kg7 59. Hxe8 Kf7 60. Bg6+! áhrifaríkasta leiðin til sigurs. 60. ...Kf6 61. h4 Re4 62. Hf8+ Kxe7 63. Hf7+ Kd6 64. Hxc7 Kxc7 65. Bxe4 og svartur gafst upp. Aðalfundur Skáksambands Íslands fer fram í dag. Nánari upplýsingar er að finna á vef- síðunni www.skak.is. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. Félagsstarf Aflagrandi 40 | Í dag frá kl. 13 list- munasýning, klassískur gítarleikur, Ásgeir Ásgeirsson. Söngvarar frá Söngskólanum Hjartansmál syngja um kl. 15. Kaffi og hátíðarmeðlæti, all- ir velkomnir. Breiðfirðingabúð | Farið verður í hinna árlegu vorferð laugardaginn 4. júní frá Umferðarmiðstöðinni kl. 9. Farið verður á Blönduós. Gestir vel- komnir með. Tilkynnið þáttöku hjá Gunnhildi í síma 564 5365 eða hjá Ellu í síma 566 6447. Félagsstarf Gerðubergs | Gerðu- bergskórinn er á söngferðalagi um Norðurland, m.a. á laugard. sungið í Íþróttahúsinu á Húsavík, umsjón Ás- mundur Bjarnason, kl. 20.30 í gamla Alþýðuhúsinu á Akureyri, á sunnud. kl. 14.30 í Blönduóskirkju, ásamt fleir- um. Furugerði 1 | Handavinnu og list- munasýning félagsstarfsins og leir- listahóps Blindrafélagsins verður á sunnudag 29. og mánudag 30. maí frá kl. 13.30 til kl. 17. Kaffiveitingar. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öllum opið. Gönguhópur kl. 10 árdeg- is. Vatn og teygjuæfingar eftir göngu. Kirkjustarf Aðventkirkjan í Reykjavík | Biblíu- fræðsla fyrir börn og fullorðna. Sér- stök unglingadeild. Samkoma hefst á eftir biblufræðslunni kl. 11. Aðventkirkjan í Vestmannaeyjum | Biblíufræðsla fyrir börn og fullorðna kl. 10–11. Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði | Guðþjónusta/biblíufræðsla kl. 11. Sér- stakar barnadeildir og unglingadeild. Safnaðarheimili aðventista Keflavík | Kl. 10.45 Biblíufræðsla fyrir börn og fullorðna. Guðþjónusta á eftir biblíu- fræðslunni. Safnaðarheimili aðventista Selfossi | Kl. 10 Biblíufræðsla fyrir börn og fullorðna. Guðþjónusta á eftir biblíu- fræðslunni. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Listahátíð í Reykjavík Dagskráin í dag Íslenska óperan kl. 15.00 Kvartettinn Pacifica leikur. Einn Íslend- ingur er í kvartettinum, Sigurbjörn Bern- harðsson fiðluleikari. Hinir meðlimirnir eru: Masumi Per Rostad, lágfiðla, Simin Ganatra, fiðla og Brandon Vamos, selló. Þau leika verk eftir Mendelsohn, Beet- hoven, Ruth Crawford Seeger og Þorkel Sigurbjörnsson. Íslenska óperan kl. 20.00 Barði Jóhannsson og Keren Ann. Tónlist- armaðurinn Barði Jóhannsson, sem við þekkjum úr Bang Gang, og söngkonan Keren Ann mynda dúettinn Lady and Bird. Þau hafa gefið út einn geisladisk, Ecoutez l’histoire de Lady & Bird - Hlustið á sögu Lady & Bird. Á tónleikunum í Íslensku óp- erunni munu þau flytja tónlist sína með íslenskum kór og hörpuleikara. Broadway kl. 21.00 Mariza ásamt hljómsveit Portúgalska fado-söngkonan Mariza kemur með fjöl- menna hljómsveit með sér. Hún hefur lagt áherslu á að fado sé ekki safngripur, heldur lifandi tónlistarform og hefur þannig leyft sér að bregða útaf hefðinni á síðustu plötum sínum. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús kl. 11 Dieter Roth listsmiðja Listsmiðja fyrir 10– 12 ára börn, þátttökugjald kr. 3.300. Há- degisverður innifalinn. SÝNINGUM á einleiknum „Alveg BRILLJANT skilnaður“ fer að ljúka en þrjár sýningarhelgar eru eftir. Í fréttatilkynningu segir: „List og fræðsla ehf. vekur athygli á bráðskemmtilegum einleik Eddu Björgvinsdóttur sem sýndur er í Borgarleikhúsinu um þessar mund- ir. Edda hefur fengið frábæra dóma gagnrýnenda og áhorfenda fyrir frammistöðu sína og uppselt hefur verið á allar sýningar.“ Á laugardaginn er 50. sýning en leikritið hefur verið fært á Litla svið Borgarleikhússins. Einleik Eddu fer að ljúka FRUMSÝNING á einleiknum „Alveg brilljant skilnaður”. LJÓSMYNDASÝNINGU Frank Ponzi á myndum sem Englending- urinn Howell tók á ferðum sínum um Ísland 1890–1901 lýkur um helgina. Sýningin er í Bókasafni Mosfells- bæjar og opið er frá kl. 10 til 18 á laugardag og sunnudag. Sýningu lýkurRANGT var farið með í blaðinu í gær þegar Jón Sigurpálsson var sagður formaður menningarmála- nefndar Ísafjarðarbæjar. Rétt er að Jón er einn af aðstandendum Slunkaríkis á Ísafirði sem tók að sér gæslu á sýningu verks Elínar Hansdóttur í Edinborgarhúsinu. Er beðist velvirðingar á þessu. Leiðrétt Í DAG opnar herra Ólafur Ragnar Grímsson nýja Kristjánsstofu í Byggðasafninu Hvoli, Dalvík- urbyggð. Einnig mun Margrét Hall- grímsdóttir þjóðminjavörður af- hjúpa eftirgerð af Upsakristi á nýrri sýningu safnsins sem heitir Mannlíf og munir í Dalvíkurbyggð. „Í vetur hefur safnið í Hvoli verið lokað vegna mikilla breytinga sem hafa verið gerðar á safninu. Mið- hæð safnsins hefur verið tekin í gegn og gólf dúkalögð og veggir málaðir. Þar með voru allir munir safnsins teknir niður og í dag mun afrakstur mikillar vinnu líta dags- ins ljós með opnun tveggja nýrra sýninga“ segir í tilkynningu. Byggðasafnið Hvoll er fjölbreytt safn en helstu hlutar þess eru Jó- hannsstofa Svarfdælings, Krist- jánsstofa, sýningin Mannlíf og mun- ir í Dalvíkurbyggð, náttúrugripir og Jarðskjálftasýning. Í frétta- tilkynningu segir enn frekar: „Í húsinu eru hin og þessi skúmaskot og í hverju rými eru litlar sýningar sem vert er að skoða.“ Forseti Íslands opnar nýja Kristjánsstofu Opnunin hefst kl. 14 í Byggðasafn- inu Hvoli, Dalvíkurbyggð. ÚT ER komin ljósmynda- og ljóðabókin Íslensk eyðibýli með myndum Nökkva Elíassonar og ljóðum Að- alsteins Ásbergs Sigurðssonar, bók- in er einnig komin út á ensku undir heitinu Abandoned Farms. „Eyðibýli á Íslandi eru viðfangsefnið í þessum einstæðu myndum Nökkva Elíassonar. Sú fegurð sem býr í hús- um á fallandi fæti er hér fönguð og þannig kölluð fram hughrif frá horfn- um tíma, heimildir um líf sem var. Eyðibýli hafa verið viðfangsefni Nökkva Elíassonar í hartnær tvo ára- tugi. Hann hefur leitað fanga um allt land og fest á filmu eyðibýli, sem mörg eru nú horfin ofan í svörðinn. Þessar óvenjulegu og sérstæðu myndir hafa verið sýndar víða um heim og hvarvetna hlotið verðskuld- aða athygli,“ segir í kynningu um bók- ina Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson hef- ur meðal annars gefið út ljóð, ljóða- þýðingar og barnabækur. Að auki hef- ur hann samið fjölda söngljóða sem komið hafa út á hljómplötum og tón- list fyrir börn og fullorðna. Hér yrkir hann ljóð sem kallast á við myndir Nökkva. Bókin er 121 blaðsíða. Útgefandi er Mál og menning. Verð 2.990 kr. Ljósmynda- og ljóðabók Í DAG opnar Ljósmyndasafn Reykjavíkur sýninguna Rótleysi. Átta suður-afrískir ljósmyndarar sýna verk sín en í ár eru tíu ár liðin frá stofnun lýðræðis í Suður-Afríku. Að sögn Jóhönnu Guðrúnar Árna- dóttur, verkefnisstjóra á safninu, er útgangspunktur sýningarinnar að kanna þær miklu breytingar sem Suður-Afríka hefur gengið í gegnum frá kosningunum 1994. „Sýningin gefur innsýn í einstaka ljósmynda- hefð þar sem ljóðrænn kraftur og gæði heimildaljósmyndunar eru í sérflokki. Samruni félagslegrar heimildaljósmyndunar og listar er eitt af kennimerkjum suður- afrískrar ljósmyndunar,“ segir Jó- hanna Guðrún. Á fimmta áratugnum varð ljós- myndun mikilvægur þáttur í þróun félagslegrar meðvitundar í Suður- Afríku. Ólíkt erlendum starfssystk- inum sínum þurftu suður-afrískir ljósmyndarar að gæta varúðar í gagnrýni sinni á hinn pólitíska raun- veruleika. Jóhanna segir að út frá þessum aðstæðum hafi ný þjóðleg listgrein sprottið sem náði að fela gagnrýninn áróður í formi mjúkra og ljóðrænna mynda. Nokkur viðfangsefni eru áberandi í myndunum á sýningunni: Efna- hagslíf, innflytjendur, landslag, trú- mál og ríkisborgararéttindi. „Rík- isborgararétturinn hefur mikil áhrif á sýninguna sem hugleiðing um af- leiðingar aðskilnaðarstefnunnar. Hvað þýðir það að vera ríkisborgari og hvaða réttindi felur það í sér?“ segir í tilkynningu um sýninguna. Þessar spurningar eru enn í dag mikilvægar í Suður-Afríku. Jóhanna segir að lokum um ástandið í Suður-Aftíku í dag: „Það að læra að búa í nágrenni hver við annan hefur reynst vera örðugasta viðfangsefnið eftir að aðskiln- aðarstefnan leið undir lok og á þess- ari reynslu byggja þýðingarmestu sögurnar á sýningunni.“ Rótleysi var upprunalega sett upp í Þjóðarljósmyndasafninu í Kaup- mannahöfn í sýningarstjórn Mads Damsbo og Davids Brodie. „Rótleysi“ í Ljósmyndasafni Reykjavíkur Ljósmynd Guy Tillim, Eldur á bóndabýli í nágrenni Kroonstad sem tekin var í Suður-Afríku árið 2003, verður á sýningunni sem verður opnuð í dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.