Morgunblaðið - 28.05.2005, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 65
MENNING
Nýr og girnilegur
uppskriftavefur á mbl.is
Hráefni
2 öskjur jarðarber, fersk
2 öskjur hindber, fersk
Sabayonsósa
4 stk. eggjarauður
3 dl eplacider
2 msk. sykur
1 dl léttþeyttur rjómi
Aðferð:
Skolið berin vandlega og snyrtið.
Setjið í djúpa diska eða skálar.
Hellið sósunni yfir.
Sabayonsósa
Setjið eggjarauður, sykur og
eplacider í pott og pískið saman
yfir hita í 2 mínútur. Þegar sósan
er orðin vel freyðandi er létt-
þeyttum rjóma bætt saman við.
Hrærið saman og hellið yfir berin.
Finndu uppáhalds uppskriftina þína á mbl.is
Jarðarber og hindber sabayon
(fyrir 4 )
i
i
Nánari upplýsingar á heimasíðu okkar www.geymslusvaedid.is og í síma 565 4599
Útboð á bifreiðum og ýmsu öðru frá Varnarliðinu verður dagana 25.-30. maí. Bifreiðarnar verða til sýnis á plani Bílasölunnar Hrauns
við Reykjanesbraut gegnt álverinu. Hægt er að skila inn tilboðum á vefslóðinni www.geymslusvaedid.is
Útboð
Útboð
Útboð
UMRÆÐUFUNDUR um tengsl
samtímalistar og lýðhyggju, tilhneig-
inga í menningar- og stjórnmálum
verður haldinn í Norræna húsinu á
morgun. Að sögn Hönnu Styrm-
isdóttur, upplýsinga- og verkefnafull-
trúa Norræna hússins, er fundurinn
skipulagður í samstarfi Norræna
hússins í Reykjavík og NIFCA, the
Nordic Institute for Contemporary
Art, í tengslum við sýningu NIFCA,
Populism, sem nú stendur yfir í CAC,
Contemporary Art Centre í Vilnius,
Frankfurter Kunstverein í Frank-
furt, Nasjonalmuseet for kunst, arki-
tektur og design í Ósló og Stedelijk
Museum í Amsterdam. „Yfirskrift
sýningarinnar er lýðhyggja og það
hafa verið haldnir svona umræðu-
fundir víða, til dæmis í Malmö og
Kaupmannahöfn. Hugmyndin er að
fara út fyrir sýningarstaðina með
þessum umræðufundum og vekja
þannig athygli á fundarefninu,“ segir
Hanna um ástæður þess að fund-
urinn er haldinn hér þótt sýning-
arnar séu í öðrum borgum.
Myndlist sem
umræðuvettvangur
Útgangspunktur sýningarinnar er
sú hugmynd að tilfinningatjáning sú
sem einkennir lýðhyggju eigi sér
hliðstæðu innan samtímalistar.
Fundurinn er, að sögn Hönnu, sér-
staklega áhugaverður fyrir þá sem
líta á myndlist sem vettvang fyrir
umræðu sem vísar út fyrir mynd-
listina sjálfa. Einnig ætti umræðu-
efnið að höfða til þeirra sem áhuga
hafa á þróun stjórnmála í Evrópu síð-
ustu ár.
Sýningarstjórar Populism eru
Lars Bang Larsen, Cristina Ricu-
pero og Nicolaus Schafhausen.
Á meðal þátttakendanna á um-
ræðufundinum í Norræna húsinu á
morgun vegna sýningar NIFCA,
Populism, eru Jakob Beskov, Van-
essa Müller og Cristina Ricupero.
Ricupero er sýningarstjóri Popul-
ism og hefur starfað sem slíkur við
NIFCA í Helsinki frá árinu 2000.
Müller er ráðgjafi sýningarinnar og
hefur átti sæti í ritstjórn fræðarits
sem gefið var út samhliða henni.
Tilgangur fundarins er að vekja
upp umræðu um lýðhyggjuhreyf-
ingar og hvort þær nái til almennings
með fagurfræðilegri meðvitund.
Sýningin fer fram samtímis í
Litháen, Þýskalandi og Noregi og
eru verkin af ýmiss konar tagi.
Ricupero segir að ekki sé hægt að
hnita nákvæmlega hvað lýðhyggja
sé, til eru margir undirflokkar svo
sem stjórnmál fjölmiðla og ímynd
fyrirtækja svo eitthvað sé nefnt.
Listamennirnir notist meðal annars
við myndlíkingar og tilfinningar í
verkum sínum. Þetta er vítt svið
stjórnmálalegrar hugmyndafræði og
hægt að tengja það við ýmis önnur
svið.
Müller mun fjalla um hvernig listin
eigi að vera aðgengileg öllum og
hvort hin nýfrjálslynda afstaða lýð-
hyggjunnar sé í raun tilraun til að
hagnast á listáhugafólki.
Flestir listamannanna koma frá
Evrópu og allir túlka þeir viðfangs-
efnið á mismunandi hátt. Bæði Ricu-
pero og Müller segja skilgreiningu á
lýðhyggju ekki vera þá sömu í Evr-
ópu og annars staðar í heiminum en
þó hafi allir sína eigin mynd af hug-
takinu.
Umræða skapar nýjan skilning
Þær segja einnig að viðfangsefnið
sé ekki síður mikilvægt en sýningin
því umræða skapi fólki nýjan og betri
skilning á viðfangsefninu.
„Eftir hvern umræðufund öðlumst
við nýja sýn á lýðhyggju og það væri
spennandi að vinna einhvers konar
verkefni upp úr niðurstöðum
fundanna,“ segir Müller.
Beskov er listamaður sem býr og
starfar í Kaupmannahöfn og eru flest
verka hans háðsádeila á nútíma-
stjórnarfar.
Meðal þeirra er kvikmynd frá því
þegar Beskov og danskur blaðamað-
ur ferðuðust til Bandaríkjanna fyrir
forsetakosningarnar þar 2004. Við-
fangsefni myndarinnar var að athuga
stöðu Danmerkur í Íraksstríðinu.
Félagarnir þóttust vera harðir stuðn-
ingsmenn stríðsins og ferðuðust um
Bandaríkin á fundi Repúblikana-
flokksins.
„Það var athyglisvert að sjá
hversu glaðir repúblikanarnir voru
að hitta stuðningsmenn Bandaríkja-
manna því þeim finnst Evrópa yf-
irleitt vera á móti þeim,“ segir Bes-
kov. „Við ferðuðumst um í mánuð og
sóttum samkomur repúblikana.
Myndin lýsir eins konar pólitísku
ferðalagi um danskan og amerískan
stríðsheim.“
Beskov telur gífurlega nauðsyn-
legt að fjalla um frelsi, lýðræði og
stríð í list. „Kannski eru listaverk um
stríð og lýðræði orðin klisja en ég tel
þau vera mikilvæg og af nógu að
taka,“ segir hún.
Frekari upplýsingar um umræðu-
fundinn og þátttakendur má fá á vef-
síðu Norræna hússins,
www.nordice.is og um sýninguna á
slóðinni www.populism2005.com.
Ný andlit
lýðhyggjunnar
uppgötvuð
Verkið SuperDanish eftir danska listahópinn Superflex.
Listamaðurinn Jacob Beskov sem
mun taka þátt í umræðum um lýð-
hyggju í Norræna húsinu.
Eitt af verkunum á sýningunni Populism.
HJÁ Vöku-Helgafelli er komin út mat-
reiðslubókin Gott af grillinu. Þetta er
önnur bókin í nýjum flokki matreiðslu-
bóka en
fyrsta bókin,
Sumarsalöt,
kom út fyrra.
„Sem fyrr er
það matgæð-
ingurinn Mar-
grét Þóra Þor-
láksdóttir sem
veitir lesendum aðgang að
spennandi uppskriftum af ýmsu tagi –
forréttum, fiskréttum, kjötréttum, eft-
irréttum, sósum og meðlæti. Fjöl-
breytni og frumleiki er í fyrirrúmi, hvort
sem stendur til að blása til dýrlegrar
veislu eða skella einhverju fljótlegu á
grillið fyrir fjölskylduna,“ segir í kynn-
ingu um bókina.
Bókin er 105 bls. Útgefandi er
Vaka-Helgafell. Verð 2.990 kr.
Matreiðslubók