Morgunblaðið - 28.05.2005, Síða 66
66 LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Grímur Atlason hefur verið mikilvirkur íað færa okkur erlenda tónlistarmenn ásíðustu árum. Hann átti þátt í að flytja
Robert Plant til landsins og meðal skjólstæðinga
hans sem koma á næstunni eru Kim Larsen,
Sonic Youth og Antony and the Johnsons.
Ferillinn hófst þegar hann var í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð árið 1989. „Ég var í
listafélagi í MH, þar sem eitt af kosningalof-
orðum okkar var að standa að innflutningi á er-
lendu tónlistaratriði. Fyrst stóð til að flytja
House of Love til landsins, en bandið hætti
þremur dögum áður en það átti að koma hingað.
Í kjölfarið fluttum við svo hljómsveitina Happy
Mondays inn og það ævintýri varð eiginlega
hálfskrautlegt. Mér var bolað úr skólanum og ég
sem sagt hætti í MH upp úr þessu,“ segir Grím-
ur.
Þarna fékk Grímur nasaþefinn af bransanum
og mörgum árum seinna stofnaði hann einmiðl-
unarfyrirtækið Austur Þýskaland. „Þetta var
árið 2000, þegar margmiðlunarfyrirtækin voru
að ryðja sér til rúms. Þetta ár flutti ég inn Marc
Almond og gaf út barnabók. Síðan hefur þetta
rúllað áfram, en krafturinn verið meiri upp á síð-
kastið. Ég hef staðið ásamt fleirum fyrir hátíð-
um eins og Innipúkanum, sem er innihátíð í
bænum um verslunarmannahelgina og tón-
leikum innlendra og erlendra tónlistarmanna.“
Grímur segir sinn helsta kost og um leið galla
vera að hann sé kraftmikill maður sem komi
hlutum í verk. „Það hefur hentað vel að fá mig til
að sinna ýmsum verkefnum. Ég hef fengist við
alls konar hluti, til dæmis verið „road manager“
úti í heimi og hér á landi.“
Hvernig er þessi bransi í kringum tónleika-
hald með erlendum listamönnum? Er mikil
harka í honum?
„Ég hef nú reynt að halda mig utan við þessi
slagsmál, en mér finnst vera hálfgerður gull-
graftarþefur af þessu öllu saman. Það eru alveg
óteljandi aðilar sem hafa búið til hljómleika
hérna, með misjöfnum árangri og misjafnlega
faglegum vinnubrögðum. Ég hef fundið að það
ríkir öfund og menn hafa tilhneigingu til að
reyna að skemma fyrir hver öðrum. Mig langar
ekki mikið til að taka þátt í því.
Reyndar er frekar sjaldgæft að ferskir tón-
listarmenn séu fluttir hingað inn. Jú, jú, það ger-
ist, en þetta eru oft listamenn á síðari stigum
ferils síns. Það er ekkert að því að hingað séu
fluttir „gamlir“ listamenn sem enn eru starfandi
og eru að senda frá sér nýjar plötur. En þetta
þarf ekki allt að vera svona stórt í sniðum. Ég
get ekki séð að Ísland beri 6–8 tónleika á ári fyr-
ir 5–15 þúsund manns í hvert skipti. Að mínu viti
vantar miklu meira af minni tónleikum, þótt það
séu ekki nógu margir hentugir staðir fyrir þá
hér á landi. Kannski einna helst Nasa, sem ég
hef verið að nota undir mína tónleika. Austur-
bæjarbíó væri fullkomið, ef hægt væri að
stækka það þannig að 1.500 manns kæmust fyr-
ir.“
Hafa sumir innflytjendanna kannski skemmt
fyrir hinum, með frammistöðu sinni gagnvart
útlendingum?
„Ég veit það ekki. Auðvitað skemmir það þeg-
ar menn eru í óábyrgu rugli. Þetta er atvinnu-
grein og það er nauðsynlegt að viðhafa fagleg
vinnubrögð. En ég held að orðspor íslenskra
„prómótera“ sé engu að síður mjög gott, að svo
miklu leyti sem ég þekki til. Sem dæmi má nefna
Kára Sturluson. Menn eru ánægðir með hans
störf ytra.
En það mun skemma að hafa svona marga
stóra tónleika á sama árinu. Ég sé ekki fyrir mér
að það verði jafn mikið að gerast á næsta ári.
Eftir svona bylgju er viðbúið að menn fari unn-
vörpum á hausinn.“
Er þetta kannski auðveldara en menn halda,
að standa í svona innflutningi?
„Það held ég ekki. Þetta er fyrst og fremst
mikil vinna, sem tekur tíma. Smám saman skap-
ar maður sér velvild, sambönd og orðspor. Mað-
ur þarf að liggja yfir hlutunum, nostra við þá og
vera á tánum allan daginn. Auðvitað verður
þetta rútína með tímanum.“
Hver eru lykilatriðin, sem þarf að huga að?
„Ja, ég vil nú að þú takir fram að ég er ekki
besserwisser í þessu og vil ekki vera að segja
hvernig þetta á að vera. En fyrir mér er þetta
fyrst og fremst spurning um að hafa áhuga á því
sem maður er að gera. Ef maður hefur sannfær-
ingu fyrir því að listamaðurinn sé góður er auð-
veldara að selja tónleikana. Mikil vinna og gott
skipulag skipta höfuðmáli.“
Hvaða tónleikum ertu stoltastur af?
„Í minningunni er afskaplega gaman að því að
hafa staðið í því að flytja inn Happy Mondays,
þótt ég sé ekkert sérstaklega stoltur af þeim
tónleikum sem slíkum. Mér hefur þótt vænst um
að flytja inn frábæra listamenn á borð við
Blonde Redhead og Lisu Ekdahl. Sömuleiðis
verður gaman að flytja inn Sonic Youth, sem
kemur í sumar, Antony and the Johnsons og
auðvitað danska refinn sjálfan, Kim Larsen.“
Hvað er sem sagt á döfinni hjá þér?
„Fyrsta bandið sem kemur er Antony and the
Johnsons, 11. júlí. Það finnst mér déskoti gott.
Að mínu mati er mikilvægt að hingað komi upp-
rennandi listamenn sem eru jafn magnaðir og
Antony. Þetta eru ekki stórir tónleikar, enda
spilar hann almennt ekki á stórum stöðum.
Miðasala er í fullum gangi núna.
Svo spilar Sonic Youth 15. og 16. ágúst og
miðasala á þá tónleika hefst 27. maí, en þeir sem
kaupa sér miða á Antony geta tryggt sér miða
um leið.
Þá er það Kim Larsen, 26. og 27. ágúst. Þetta
verða lokatónleikar á ferðalagi hans. Hann er
með hljómsveitina Kjukken með sér og kunn-
ugir segja að hann fari í gegnum allt sitt vinsæl-
asta efni í gegnum árin. Larsen er miklu flottari
en hann var þegar hann kom hingað og spilaði á
Broadway á sínum tíma. Bandið er þéttara og
öflugra og hann hefur náð til breiðari hóps. Neð-
anjarðarliðið í Danmörku hefur tekið hann í sátt
og hann er mjög virtur í bransanum. Þetta er
„no logos“ kjaftæði. Ekkert „í boði þessa eða
hins“ eða „Rás 2 kynnir“. Ekkert svoleiðis. „Ég
er bara Kim Larsen og er að fara að spila
hérna“. Hann er töffari. Alvörumaður.“
Kim Larsen er töffari
Grímur Atlason er eldri en
tvævetur í innflutningi tón-
listarmanna og hefur ekki
látið staðar numið, eins og
Ívar Páll Jónsson komst að
raun um.
Morgunblaðið/Sverrir
Grímur Atlason stendur í ströngu við innflutning tónlistarmanna í sumar.
ivarpall@mbl.is
Skráðu þig á bíó.is
kl. 1, 4, 7 og 10
Sýnd kl. 1, 2, 4, 5, 7, 8, 10, 11 og 00.30 B.I 10 ÁRA
Sýnd kl. 2 og 4 m. ísl tali
KINGDOM
OF HEAVEN
ORLANDO
BLOOM
HL mbl l
Sýnd kl. 8 og 11 B.I 16 ÁRA
Fréttablaðið
MORGUNBLAÐIÐ
SJ. blaðið
Miðasala opnar kl. 12.30
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 1, 3.30, 5.45, 8 og 10.15
20.000 gestirá aðeins 7 dögum
20.000 gestir
FRÁBÆR GRÍNMYND FRÁ LEIKSTJÓRA
LEGALLY BLONDE
JENNIFER
LOPEZ
JANE
FONDA
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA I I Í
KOMIN Í BÍÓ
JENNIFER LOPEZ JANE FONDA
FRÁBÆR GRÍNMYND
FRÁ LEIKSTJÓRA
LEGALLY BLONDE
JENNIFER
LOPEZ
JANE
FONDA
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10
20.000 gestirá aðeins 7 dögum
MORGUNBLAÐIÐ
Fréttablaðið
SJ. blaðið
Kvikmyndir.com
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA I I Í
20.000 gestir
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR
DAGSINS - AÐEINS 400KR.
ATH - sýningar merktar með rauðu
Sýnd kl. 2, 5, 8 og
10. 45 (Kraftsýning) B.I 10 ÁRA
Sýnd kl. 2