Morgunblaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 67
Nýr og betriMiðasala opnar kl. 13.00 kl. 1.30, 4.30, 7.30 og 10.30 B.I 10 ÁRA kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 B.I 16 ÁRA  HL mbl EINSTÖK UPPLIFUN ÍSLENSK TÓNLIST Í 1000 ÁR Sýnd kl. 2, 4 og 9  SK.dv Ó.H.T. Rás 2 Sýnd kl. 3, 6 og 9  SJ. blaðið  Kvikmyndir.com  MORGUNBLAÐIÐ Fréttablaðið  20.000 gestir 20.000 gestirá aðeins 7 dögum Frá framleiðendum Lock Stock & Snatch r fr l i t t Breskur glæpatryllir eins og þeir gerast bestir. Svartur húmor, ofbeldi og cool tónlist með Cult, Starsailor, FC Kahuna og Duran Duran. 20.000 gestir    - BARA LÚXUS JENNIFER LOPEZ JANE FONDA KOMIN Í BÍÓ 553 2075☎ Fréttablaðið  MORGUNBLAÐIÐ SJ. blaðið  Kvikmyndir.com  Sýnd í kl. 2, 5, 8 og 10.40 B.I 10 ÁRA 20.000 gestirá aðeins 7 dögum Sýnd kl. 2 m. ísl. talikl. 10.15 B.I 16 ÁRA T H E INTERPRETER Sýnd kl. 8 TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400KR. ATH - sýningar merktar með rauðu FRÁBÆR GRÍNMYND FRÁ LEIKSTJÓRA LEGALLY BLONDE JENNIFER LOPEZ JANE FONDA FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA I I Í Sýnd í kl. 2, 4, 6, 8 og 10 DIARY OF A MAD BLACK WOMAN DOWNFALL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 67 NEMENDASÝNING Ljósmyndaskóla Sissu verður opnuð í dag klukkan 14 á Hólmaslóð 6. Að þessu sinni sýna nítján nemendur tæplega 200 myndir og „má þar finna mikla fjölbreytni enda kynnast þeir flest- um hliðum ljósmyndunar í náminu, s.s. portrett-, frétta-, tísku-, landslags- og auglýsingaljós- myndun,“ að því er segir í tilkynningu. Ljósmyndaskólinn hef- ur verið starfræktur frá árinu 1997 og er því að ljúka sínu áttunda starfs- ári. Alls sækja skólann um tuttugu nemendur ár hvert og stendur nám- ið frá september til loka maí. Mikil áhersla er lögð á að virkja sköpunarkraft nemenda um leið og þeim eru kennd fagleg vinnubrögð og undirstöðuatriði í ljósmyndun. Margir af helstu ljósmyndurum landsins koma að kennslu við skól- ann. Hingað til hefur ljósmyndaskól- inn haft aðsetur á Laugavegi 25 en flytur nú í stærra og betra húsnæði á Hólmaslóð. Sýningin stendur yfir frá 28. maí til 5. júní og er opin kl. 14–20 um helgar og 16–20 virka daga. Ljósmyndun | Nemendasýning Ljósmyndaskóla Sissu opnuð í dag Ljósmynd/Harpa Másdóttir Ein myndanna á nemendasýningunni, sem verður opnuð í dag. Ljósmyndaskóli Sissu er fluttur á nýjan stað við Hólmaslóð. Hægt er að skoða verk nemenda á www.ljosmyndaskolinn.is/ nemendur05/ Sköpun og fagmennska Smekkleysubúðin, sem er hjáKjörgarði, Laugavegi 59,hefur undanfarna mánuðirekið metnaðarfulla tón- leikadagskrá um helgar. Sumardag- skráin hefst í dag klukkan 15.00 og óhætt að segja að blásið sé í herlúðra en þá munu Nina Nastasia, söngva- skáld frá Bandaríkjunum og tuv- anska sveitin Huun Huur Tu koma fram. Meðlimir Huun Huur Tu hafa nú dvalið hér á landi síðan um miðj- an maí en sveitin lék á upphafs- dögum Listahátíðar eins og kunnugt er. Tímann hér hafa þeir notað til frístunda en einnig sóttu þeir Sigur Rósar pilta heim í hljóðver þeirra í Mosfellsbæ auk þess að hitta á Ninu Nastasiu en hún hefur unnið með sveitinni áður og munu meðlimir hennar aðstoða hana í dag með hljóðfæraslátt. Íslenskur faðir Þetta er í fjórða skipti sem Nina kemur hingað til lands en unnusti hennar og nánasti samstarfsmaður, Kennan Gudjonsson, á íslenskan föður. Kennan hefur haldið góðu sambandi við fjölskylduna hérlendis og má m.a. heyra það á lýtalausum framburði hans á íslenskum orðum, þó að málið tali hann ekki. Hér eru þau í fríi og hitti blaðamaður á þau hjú síðastliðið fimmtudagskvöld á efri hæð Sirkus og saup með þeim á öli. Í ljós kom að hér var sannkallað sómafólk á ferðinni, yfirmáta kurteist og meira en til í óformlegt og afslappað spjall en þannig þróaðist þessi hittingur sem betur fer. Nastasia var mjög indæl, dálítið feimin á meðan Kennan átti til að koma með grallaraleg innskot. Návist þeirra beggja var einkar þægileg. Nina segir að tónleikarnir sem fram fara í dag hafi verið ákveðnir með stuttum fyrirvara. Þau Kennan séu hér á landi til að slaka á eftir mánaðartúr um Evrópu sem er nýlokið en þau og Huun Huur Tu-limir tóku nokkrar æfingar í Klink og Bank fyrir settið í dag. Nastasia og Kennan búa á Manhattan en Nastasia vakti verðskuldaða athygli fyrir fyrstu plötu sína, Dogs, sem út kom árið 1999. Tónlistin þar er myrk, lágstemmd og naumhyggjuleg en hún og Kennan gáfu plötuna út á eigin merki, Socialist Re- cords, í 1.000 til 1.500 ein- tökum (ekki 500 eins og víða er staðhæft). Þau límdu um- slögin saman sjálf og seldist platan fljótlega upp, en Nastasia hafði verið að geta sér gott orð í New York árin á undan með hljómleika- haldi. Hún innsiglaði svo gott orðspor með meist- arastykkinu The Blackened Air (2002). Auk fallegrar, lágværrar raddar Ninu og meðfylgjandi gítarplokki má þar heyra strengi, sög og mandólín. Ári síðar kom Run to Ruin, sem er ekki síðri og ef eitthvað er meira „inn í sig“ en forverinn. Dogs var svo endurútgefin á síðasta ári af Touch & Go, sem gefið hafði út hinar tvær. Ljúflingurinn Albini Allar plöturnar hafa verið unnar með hinum fræga undirgrundarupptökustjóra Steve Albini. Nastasia og Kennan lýsa honum sem einstökum ljúflingi og getur blaðamaður staðfest þessa lýsingu á manninum. Engu að síður er hann ávallt málaður upp sem hinn versti óþokki í pressunni – hinni bresku þá einkanlega. „Hann borðar ekki,“ segir Nastasia. „Þegar hann er að taka upp vinnur hann og vinnur og vinnur og maður þarf að stoppa hann af. Hann lifir á kaffi og hnetusmjör- skexkökum.“ Einn af þeim sem hampaði Nastasiu mikið var John heitinn Peel, útvarpsmaðurinn frægi. Nastasia segist hafa spilað fjórum sinnum í þætti hans, og tvisvar sinn- um haldið tónleika í Peel Acres, sem var heimili Peel ut- an við London. „Síðustu tónleikarnir voru einmitt með Huun Huur,“ rifjar Kennan upp. „Það var mjög sorglegt er hann lést. Við hittum hann degi áður en hann fór til Perú í fríið sitt örlagaríka. Drukkum með honum rauðvín heima hjá honum og spjölluðum. Hann var alveg einstakur maður.“ Kennan segir að þau hafi einnig hitt Sigur Rósar strákana og þeir hafi verið einkar viðkunnanlegir. Talið berst nú um velli víða en svo fer að þau þurfa að drífa sig aftur á æfingu. Auðsótt var hjá fótbrotnum blaðamann- inum að fá skutl aftur á Sólvallagötuna, en þau hafa verið á þeysingi um landið í litlum og huggulegum sendibíl. Sómafólk. Tónleikar | Nina Nastasia í Smekkleysubúðinni í dag Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Hjartað hamast Nina Nastasia og Huun Huur Tu leika í Smekkleysubúðinni í dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.