Morgunblaðið - 28.05.2005, Qupperneq 69

Morgunblaðið - 28.05.2005, Qupperneq 69
Í kvöld kemur dúettinn Lady& Bird fram á tónleikum íÍslensku óperunni á vegum Listahátíðar í Reykjavík. Lady & Bird er skipaður þeim Barða Jóhannssyni og Keren Ann en samnefnd plata þeirra kom út árið 2003 og vakti mikla athygli, bæði hér á landi og á meginlandi Evrópu þar sem Keren Ann er mjög virt á tónlistarsviðinu. Þau Keren Ann og Barði hafa brallað margt fleira saman en Lady & Bird – hann hefur til að mynda aðstoðað hana við upp- tökur á sólóplötu hennar og hún kom að gerð síðustu plötu Bang Gang. Þar að auki hafa þau sett saman tónlist við heim- ildamyndir. Barði og Keren voru svo kurteis að hitta mig að máli og svara nokkrum spurningum um Lady & Bird og tónleikana sem verða annað kvöld. Keren mætti með stór, dökk sól- gleraugu eins og franskri stjörnu er einni lagið en Barði var órakaður og … við skulum bara segja að hann hafi verið að skemmta gestum kvöldið áð- ur.    Hvernig kynntust þið?„Við kynntumst á bar í París fyrir sex árum. Barði var að skemmta sér með einhverri hljómsveit og ég var að fagna eftir tónleika á sama bar.“ Vissuð þið hvort af öðru? „Ég hafði heyrt af Barða en við þekktumst ekki neitt.“ Og var það ákveðið á staðn- um að þið mynduð vinna sam- an? „Já. Við ákváðum að búa til tónlist saman. Þetta var hvorki formlegt né skipulagt en við ákváðum að vinna saman og áð- ur en við vissum af höfðu tvær verur króað okkur af úti í horni.“ Hvaða tvær verur voru það? „Lady og Bird!“ svarar Barði. Hvernig spyr ég! Þú Keren værir þá „Lady“ ekki satt? „Stundum. Stundum er ég „Lady“ og stundum er ég „Bird“, það veltur á ýmsu.“ Hvernig kom nafnið til? „Það kom til okkar. Þetta er heiti á frægu lagi frá áttunda áratugnum og við viljum trúa því að lagið hafi komið til okk- ar með þessar tvær verur í far- teskinu.“ Kemur ykkur vel saman í hljóðverinu eða rífist þið mikið? „Við rífumst mikið við aðra en okkur tveimur kemur mjög vel saman.“    Og hvort ykkar stýrir ferð-inni? „Við stýrum okkur sjálf og styðjum hvort annað. Þegar annað okkar verður úrvinda tekur hitt við. Það er það góða við að vera í hljómsveit, við getum unnið miklu lengur en alla jafna þegar maður er einn.“ Platan ykkar var bæði tekin upp hér og í París, ekki satt? „Hún er tekin upp í Reykja- vík, París, Brussel, Súðavík, Kópavogi og á Hellu.“ Af hverju Súðavík? „Af hverju ekki?“ spyr Barði eðlilega á móti og Keren heldur svo áfram: „Vegna þess að það eru bara sjö hús á Súðavík og svo er hægt að kaupa kaffi á bensínstöðinni sem rann út árið 1989.“ Við á Íslandi stöndum í þeirri trú að Barði sé vinsæll í Frakk- landi. Er það rétt? „Hann er líklega frægari í Frakklandi en hér. Hann er samt ekki frægur á þann hátt að fólk þekki hann úti á götu en þannig er það líka með mig. Fólk veit af okkur og tónlist okkar þó að það viti ekki hvernig við lítum út. Barði er ótrúlega hæfileikaríkur tónlist- armaður og hann nýtur virð- ingar í Frakklandi fyrir hæfi- leika sína.“    Hversu langt viljið þið farameð Lady & Bird? „Við skipuleggjum ekki neitt fram í tímann. Okkur finnst gaman að búa til tónlist og það er það eina sem skiptir máli. Við komum saman þegar við erum í fríi og búum til tónlist. Hvað gerist í framtíðinni varð- ar okkur lítið um.“ Hvað getið þið sagt mér um tónleikana á morgun í Óp- erunni? „Við komum fram með fimm- tán stúlkna kór, Monika Abend- roth leikur undir á hörpu og sérstakur gestur, Þorgeir Guð- mundsson, öðru nafni Toggi, lítur inn og syngur með okk- ur.“ Kynntust á bar í París AF LISTUM Höskuldur Ólafsson Morgunblaðið/Þorkell Barði og Keren Ann, öðru nafni Lady & Bird: Hún segist stundum vera Lady, stundum Bird og sama gildir væntanlega um hann. hoskuldur@mbl.is Tónleikar Lady & Bird í Íslensku óperunni hefjast í kvöld klukkan 20.00. Miðaverð er 2.500 krón- ur. ’Vegna þess að þaðeru bara sjö hús á Súðavík og svo er hægt að kaupa kaffi á bensínstöðinni sem rann út árið 1989.‘ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 69 EIN umtal- aðasta og rómaðasta mynd sem komið hefur frá Bretlandi í háa herrans tíð er fanta- krimminn Layer Cake. Hér er um ekta breskan glæpamynd að ræða; mynd sem sögð er sverja sig í ætt við myndir Guy Ritches; Lock, Stock and Two Smoking Barrels og Snatch. Í myndinni leikur aðalhlutverkið Daniel nokkur Craig, sem flestir þekkja úr myndum eins og Road To Perdition og Löru Croft. Í Layers Cake, sem byggist á skáldsögu J.J. Connolly, leikur hann sigldan eitur- lyfjasala sem hyggst láta af þeirri ólöglegu iðju sinni. Það reynist hins- vegar þrautinni þyngra eftir að hann fellur fyrir rangri konu og flækist inn í alþjóðlegan eiturlyfjahring. Craig hefur slegið í gegn með frammistöðu sinni í myndinni og fyrir vikið er hann nú einn af þeim nefndur hefur verið sem næsti James Bond. Layer Cake er fyrsta mynd hins bandaríska Matthew Vaughn, fyrrum samstarfsmanns Ritchies. Þótti hann sýna svo góð tilþrif í leikstjórastólnum að hann var fenginn til að leysa af Bryan Singer við gerð þriðju X-Men- myndarinnar. Frumsýning | Layer Cake Breskur krimmi ERLENDIR DÓMAR Roger Ebert The Times  BBC  Metacritic.com 73/100 New York Times 80/100 Variety 80/100 Daniel Craig þykir hörku- fínn í Layer Cake.    AKUREYRI KEFLAVÍKKRINGLANÁLFABAKKI  ELISHA CUTHBERT CHAD MICHAEL MURRAY BRIAN VAN HOLT PARIS HILTON JARED PADALECKI Sýningatímar 28. maí HOUSE OF WAX kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 HOUSE OF WAX VIP kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 CRASH kl. 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 HITCHHIKER´S GUIDE... kl. 1.30 - 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30 THE WEDDING DATE kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 HOUSE OF WAX kl. 3.30 -5.45 - 8 - 9.15 - 10.20 - 11.30 B.i. 16 THE WEDDING DATE kl. 5 - 7 - 8 HITCHHIKER´S GUIDE... kl. 10 THE ICE PRINCESS kl. 4 - 6 THE JACKET kl. 10.30 B.i. 16 SAHARA kl. 6 - 8.15 SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 2 - 4 THE PACIFIER kl. 2 - 4 House of Wax kl. 5.50 - 8 - 10.10 Star Wars - Episode III kl. 2- 5 - 8 - 10.45 The Pacifier kl. 2 - 4 HOUSE OF WAX kl. 8 - 10 THE WEDDING DATE kl. 8 - 10 HITCHHIKER´S GUIDE... kl. 6 THE ICE PRINCESS kl. 4 - 6 SVAMPUR SVEINSSON kl. 4 Sjóðheit og sláandi góð hrollvekja með hinni umdeildu djammstelpu, Paris Hilton, Elisha Cuthert úr Girl Next Door og 24 þáttunum og Chad Michael Murray úr One Tree Hill Þáttunum. Stranglega bönnuð innan 16 ára. Hetja. Þjóðsögn. Svampur Byggð á metsölubókClive CusslerByggð á metsölubókClive Cussler Kvikmyndir.is Gerið ykkur klár... ... fyrir pelann!  Kvikmyndir.is H Á D E G I S B Í Ó 400 KR MIÐAVERÐ Á ALLAR MYNDIR KL.12 Á SUNNUDAGINN Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI  
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.