Morgunblaðið - 28.05.2005, Qupperneq 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
DAVÍÐ Oddsson utanríkis-
ráðherra opnaði með formlegum
hætti í gær nýja verksmiðju Lýsis
hf. í Örfirisey í Reykjavík. Verk-
smiðjan þykir tæknilega mjög full-
komin og sú stærsta sinnar teg-
undar í heiminum. Hún uppfyllir
meðal annars kröfur um lyfjafram-
leiðslu sem að sögn Katrínar Pét-
ursdóttur, framkvæmdastjóra Lýs-
is, færir framleiðslu fyrirtækisins
nær lyfjageiranum og skapi enn
frekari tækifæri til markaðs-
setningar á vörum Lýsis. Með
verksmiðjunni tvöfaldast fram-
leiðslugeta fyrirtækisins. | 12
Morgunblaðið/Golli
Stærsta verksmiðja sinnar tegundar
BJÖRN Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráð-
herra, hefur falið Ragnheiði Bragadóttur, pró-
fessor við lagadeild Háskóla Íslands, að semja
drög að lagafrumvarpi á þeim ákvæðum sem
eru um nauðgun og önnur brot gegn kynfrelsi
fólks, kynferðisbrot gegn börnum og vændi.
Þetta tilkynnti Björn á morgunverðarfundi
með fulltrúum félagasamtaka og stjórnvalda
sem aðgerðarhópur gegn kynbundnu ofbeldi
efndi til í gær. Fjöldi fólks sótti fundinn og mátti
merkja ánægju í salnum með yfirlýsingu
Björns.
Ekki víst að allir verði sammála
Aðgerðahópurinn lagði nýverið fram drög að
aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi en
dómsmálaráðherra hefur nú þegar látið alls-
herjarnefnd Alþingis vita að ráðuneytið hafi
hug á að vinna úr þessum tillögum. Björn árétt-
aði þó að endurskoðun á kynferðisbrotakaflan-
um þyrfti að byggja á traustum refsiréttarleg-
um grunni og taka mið af alþjóðlegri þróun auk
íslenskrar lagahefðar. Hann sagði framtak að-
gerðahópsins mikilsvert og sagðist fús til frek-
ara samstarfs þótt ekki væri víst að allir verði
sammála um breytingar á hegningarlögum.
Björn benti á að víða hafi komið fram ábend-
ingar um nauðsynlegar breytingar og að tekið
sé mið af þeim. Þannig hafi hann m.a. falið refsi-
réttarnefnd að fjalla um hvort nauðsynlegt sé að
setja sérstaka löggjöf um heimilisofbeldi.
Löggjöf um kynferðisof-
beldi verður endurskoðuð
Morgunblaðið/Eyþór
Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri í
félagsmálaráðuneyti, flutti erindi á fundinum.
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
VERKEFNIÐ „Karlar til ábyrgðar“ verður
endurvakið en það var lagt niður vegna fjár-
skorts fyrir nokkrum árum. Þetta kom fram í
máli Ragnhildar Arnljótsdóttur, ráðuneyt-
isstjóra í félagsmálaráðuneytinu, á fundi um
aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi í gær.
Tveir sálfræðingar höfðu umsjón með verk-
efninu á sínum tíma en tugir heimilisofbeld-
ismanna leituðu sér aðstoðar og gaf það góða
raun. Verkefnið stóð aðeins yfir til tilraunar í
tvö ár.
Á fundinum í gær kynnti aðgerðahópur til-
lögur sínar um hvernig megi bæta umhverfi
þolenda kynferðis- og heimilisofbeldis. Í að-
gerðaáætluninni er m.a. bent á að úrræði fyrir
ofbeldismenn verði að vera virk til að mögu-
legt sé að dæma menn til meðferðar eða virða
þeim það til refsilækkkunar. Ragnhildur sagði
að félagsmálaráðuneytið hefði ákveðið að
veita sex og hálfa milljón til verkefnisins og að
undirbúningur væri þegar hafinn.
„Karlar til ábyrgð-
ar“ endurvakið
ÍSLENSKIR æðaskurðlæknar æða-
skurðlækningadeildar Landspítala –
háskólasjúkrahúss í Fossvogi kenna nú
kollegum sínum víðs vegar að úr Evr-
ópu. Alþjóðlegt námskeið í æðaskurð-
lækningum hófst í gær og lýkur í dag.
Stjórnandi námskeiðsins er Stefán E.
Matthíasson, yfirlæknir deildarinnar.
Íslensku æðaskurðlæknarnir sýna
beitingu nýrrar aðferðafræði við teng-
ingar á gerviæðum sem hannaðar eru
til að minnka viðnám æða og æðateng-
inga. Tæknimenn á heilbrigðistækni-
sviði LSH voru með gagnvirka sjón-
varpssendingu í æfingabúðir í Blásölum
á sjúkrahúsinu í Fossvogi í gær. Þar
var sýnt í háskerpusjónvarpi frá aðgerð
sem byrjaði kl. 10.00 í gærmorgun og
stóð í tvær klukkustundir. Kennararnir
voru þannig í beinu sambandi við alla
sem sátu námskeiðið. Í framhaldi af út-
sendingunni fóru síðan fram æfingar í
saum og öðrum þáttum sem tengdust
þessu.
Æðaskurðlækningar í beinni
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Gagnvirk sjónvarpssending var frá æðaskurðlækningadeild Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss á námskeið læknanna sem fram fór í æfingabúðum í Blásölum.
LATIBÆR hefur gert
samning við Disney fjöl-
miðlafyrirtækið um dreif-
ingu á sjónvarpsþáttaröð-
inni í Frakklandi, Spáni og
Ítalíu. Var samningurinn
undirritaður á Hótel Loft-
leiðum af þeim Ágústi Frey
Ingasyni, fyrir hönd Lata-
bæjar, og Olivier Brémond,
fyrir hönd Disney.
Vinsælast í Kanada
„Disney er einn þekktasti
framleiðandi skemmtiefnis í
heiminum, og er þetta því
mikil viðurkenning fyrir
Latabæ,“ sagði Kjartan Már
Kjartansson við þetta tæki-
færi. Sagði hann aðstand-
endur Latabæjar vinna nú
að því að koma þáttaröðinni
í sýningu í sem flestum
löndum, en nú þegar sýna
sjónvarpsstöðvar í Banda-
ríkjunum, Kanada og Suð-
ur-Ameríku þættina.
„Latibær hefur hvarvetna
fengið frábærar viðtökur,“
sagði Kjartan. „Til dæmis
náði þátturinn að verða
þriðja vinsælasta barna-
efnið í Argentínsku sjón-
varpi á átta dögum, og ein-
um mánuði eftir að
sýningar hófust í Kanada
var þátturinn í fyrsta sæti
yfir vinsælustu barna-
þætti.“
Skapari og þekktasti íbúi
Latabæjar, heilsufrömuður-
inn Magnús Scheving, gat
ekki verið viðstaddur und-
irritunina, en hann er nú
staddur í Finnlandi þar sem
unnið er að sölu þáttanna
til finnskrar sjónvarps-
stöðvar. | 16
Semur við Disney
GREININGARDEILD Landsbanka Ís-
lands reiknar með því að fasteignaverð muni
hækka um 10% út þetta ár. Þá spáir deildin
mun minni hækkun fasteignaverðs á næsta
ári en verið hefur, eða 5% yfir árið í heild. Í
síðustu viku spáði Greining Íslandsbanka að
fasteignaverð myndi hækka um 15% fram á
næsta ár en verðið muni staðna árið 2007.
Greiningardeild Landsbankans segir að
þeir sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð
standi augljóslega höllum fæti við þær að-
stæður sem verið hafa á fasteignamarkaði.
Svo virðist sem verðhækkanir á fasteigna-
markaði hafi „étið upp allan ávinning stórs
hluta ungs fólks af lækkun vaxta og leng-
ingu lánstíma“.
Væntingar
um minni
hækkanir
Spá 10% | 16
STJÓRNIR Samvinnulífeyrissjóðsins
og lífeyrisjóðsins Lífiðnar hafa undir-
ritað viljayfirlýsingu um sameiningu
sjóðanna frá og með næstu áramótum.
Eignir sameinaðs sjóðs verða um 52
milljarðar króna og félagar eru um tíu
þúsund. Ársfundir beggja sjóðanna
voru haldnir í gær á sama tíma og kom
þar fram að stefnt er að sameiningu
sjóðanna um áramótin. Er gert ráð
fyrir aukaársfundi í hvorum sjóði um
sig í nóvembermánuði.
Stefna að
sameiningu
um áramót
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar sótti slasað-
an vélsleðamann upp á Langjökul á tíunda
tímanum í gærkvöldi, og lenti með hann við
Landspítala – háskólasjúkrahús á tólfta
tímanum. Að sögn læknis var líðan hans góð
við komuna og hann ekki mikið slasaður.
Óhappið varð ekki fjarri jökulrótunum,
við skálann Jaka, og að sögn lögreglunnar í
Borgarnesi er talið að maðurinn hafi farið
fram af brún og lent harkalega. Félagar
mannsins tilkynntu Neyðarlínunni um slys-
ið, og var þegar tekin ákvörðun um að senda
þyrlu eftir manninum, auk þess sem björg-
unarsveitir og lögregla voru kvödd til.
Vélsleðaslys
á Langjökli