Morgunblaðið - 29.05.2005, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MAÍ 2005 47
HUGVEKJA
Allt frá því að RÚV tókað sýna frá Evró-visjón-söngkeppninni,sem mun hafa veriðupp úr 1966, hef ég
verið mikill aðdáandi alls sem
henni viðkemur. Og sat í íslensku
dómnefndinni 1988, þegar Céline
Dion fór með sigur af hólmi.
Í seinni tíð hefur áhuginn þó far-
ið dvínandi. Ástæðan er sú, vil ég
meina, að keppnin stendur ekki
lengur undir nafni. Laglínan er
orðin aukaatriði, sjóið allt um
kring tekið við aðalhlutverkinu.
Ekki er mér kunnugt um hve-
nær lestin fór út af sporinu, e.t.v.
vegna þess, að umferðarslysinu er
ekki lokið, atburðurinn ekki orðinn
að fullu. Það gæti útskýrt neista-
flugið sem fylgt hefur ákveðnum
söngatriðum undanfarin ár. Flug-
eldasýninguna. Rússneska glæsi-
kvendið Marija Naumova, sem var
fulltrúi Lettlands árið 2002, er
ágætt dæmi um þetta. Þar sigraði
kabarett, en ekki melódía þótt hún
væri raunar með betra móti. Svip-
að var upp á teningnum ári síðar,
2003, þegar Sertab Erener og
dansflokkur hennar færði Tyrk-
landi 1. verðlaunin. Það var teater.
Að ekki sé minnst á framlag Úkra-
ínu 2004, þar sem Ruslana Lyzh-
ichko og félagar slógu í gegn. Að
hlýða á þá tónsmíð í útvarpi, án
hins sjónræna þáttar, er í einu orði
sagt ömurlegt. Þá fyrst áttar mað-
ur sig.
Og gott ef einhverjir þátttak-
enda árið 2005 voru ekki gangandi
auglýsingar um brjóstastækkanir
og annað því tengt.
Ekki bætir úr skák eftiröpunin,
þar sem iðulega er leitað á sömu
mið og gáfu vel af sér árið áður.
Moldavía féll í gryfjuna núna, sem
og Rúmenar, berjandi trumbur af
öllum stærðum og gerðum. Enn
aftar í sögunni varð ekki þverfótað
fyrir unglingsstúlkum, jafnvel
börnum, eftir að Sandra Kim
hreppti gullið; þetta mun hafa ver-
ið 1986. Og þannig mætti lengi
áfram telja.
Að þessu sögðu var ánægjulegt
hvað maltnesku söngkonunni gekk
vel í ár, einni, þéttri á velli og
óstuddri á sviðinu. Í því leyndist
vonarneisti, um að einhvers staðar
væri enn hlustað á lagið eingöngu,
eins og forðum.
Það sem er í gangi þessa stund-
ina í hinni gamalgrónu Evróvisjón
er það, að verið er að fela lélega
söngva með því að vefja þá inn í
glæsiumbúðir, litfagran pappír.
Þetta er vel þekkt úr hinu daglega
lífi mannskepnunnar, og yfirleitt
kallað að slá ryki í augu fólks, í
þessu tilviki að vísu glimmeri. Tak-
markið er eitt og hið sama, að
blekkja, leiða athyglina frá kjarna
málsins, hinu raunverulega inni-
haldi. Þetta er húmbúkk, ef eitt-
hvað verðskuldar að heita svo.
Við sjáum þetta alls staðar, ekki
bara á skjánum í maí. Litað, kol-
sýrt sykurvatn er auglýst, eins og
þar sé um ómissandi veigar að
ræða. Markhópurinn er líttmót-
aðar og áhrifagjarnar sálir. Aðrar
vörur flestar eru matreiddar á lík-
an hátt, þar sem gefið er í skyn að
ekki eða tæpast sé hægt að komast
af án þeirra. Og við tökum hugs-
unar- og möglunarlaust þátt í
dansinum um gullkálfinn, enda-
lausri dýrkun mammons. En í
raun og veru ætti þetta ekki að
skipta okkur neinu máli. Jörðin
mun ekki nema staðar í himin-
geimnum eða farast, þótt ein-
hverjar gostegundir lognist út af,
eða rifnar gallabuxur hverfi af
markaðnum. Eða einhver standist
þá freistingu að kaupa nýjan bíl,
sem kostar „aðeins“ nokkrar millj-
ónir.
Okkur er þörf á að staldra að-
eins við og rétta kúrsinn. Þessi til-
vera á nefnilega ekki bara að snú-
ast um veraldlega hluti. Okkur er
stefnt annað og lengra og hærra.
Væri ekki hyggilegt, í ljósi þess, að
velta aðeins fyrir sér þeim málum,
í staðinn fyrir að gefa hinu bröltinu
allan tíma og orku?
Um hyrningarsteininn í þeirri
byggingu, um leiðsögumanninn og
skipstjórann í þeirra andans för,
orti Aurelíus Ambósíus biskup í
Mílanó (4. öld) á eftirfarandi veg, í
þýðingu Sigurbjörns Einarssonar:
Skaparinn stjarna, Herra hreinn,
sem hverri sálu lýsir einn,
Kristur, sem allan leystir lýð,
líknsamur vorum bænum hlýð.
Mæddi þinn hug vor mikla neyð,
með oss þín heilög elska leið,
þú vildir frelsa veröld þá,
er villt og sek í myrkri lá.
Þú komst með dögun, Drottinn hár.
Sem dimman flýr við morgunsár,
eins breiddist ljós þitt bjart um heim,
brosir allt líf í geisla þeim.
Þú ert það orð, sem allt er frá
og öllu ráða og stjórna má,
það föður orð, sem flutt þá var,
er fæddist ljós og stjörnurnar.
Eins muntu síðast, Drottinn dýr,
dæma það allt, sem með oss býr,
og skapa nýjan, hreinan heim.
Hjálpa þú oss á degi þeim.
Himnar og jörðin hneigi þér,
helja og allt, sem skapað er.
Viljinn þinn góði, valdið þitt,
veki og lífgi hjartað mitt.
Þarf að segja eitthvað meira?
Glimmer
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, eða öllu
heldur Dans- og kjólasýningin mikla, eins og hún ætti
fremur að kallast, er nýafstaðin. Sigurður Ægisson ger-
ir í pistli dagsins að umtalsefni eitt og annað sem læra
má af téðu fyrirbæri, ef grannt er skoðað.
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Scierra fluguveiðipakki - einhenda
Stöng í 3 hlutum fyrir línu 6, 7 eða 8. Large
arbour diskabremsuhjól frá Scierra. Scierra
Avalanche flotlína fylgir ásamt baklínu, taumi
og taumatengi. Einnig kastkennsla á DVD
með Henrik Mortensen.
Frábært tilboðsverð aðeins 19.900
Scierra fluguveiðipakki - tvíhenda
Stöng í 4 hlutum. Val á milli 12.6 og 14 feta.
Scierra large arbour diskabremsuhjól, Scierra
skothaus og rennilína frá Henrik Mortensen,
baklína og sökktaumur.
Kastkennsla á DVD
með Henrik Mortensen fylgir.
Frábært tilboðsverð aðeins 29.900
Simms Guide Gore-
tex vöðlur ásamt
Simms L2 skóm.
Belti fylgir.
Verð aðeins 39.900
Simms Lightweight
Gore-tex vöðlur.
Simms L2 skór og
belti.
Verð aðeins 31.900
Simms Freestone
öndunarvöðlur.
Simms Freestone
skór og belti.
Verð aðeins 23.900
Scierra Blackwater
vöðlur, Scierra Ipac
skór með nöglum.
Belti og taska
Verð aðeins 31.900
VÖÐLUPAKKAR
Á TILBOÐI
Veiðihornið - Hafnarstræti 5 - sími 551 6760 • www.veidihornid.is • Veiðihornið - Síðumúla 8 - sími 568 8410
Sendum samdægursMunið gjafabréfin
Scierra Aquatex
öndunarvöðlur og
regnstakkur ásamt
Scierra Greyhound
skóm.
Verð aðeins 24.990
Scierra MBQ
öndunarvöðlur
ásamt Scierra
Greyhound skóm.
Verð aðeins 16.995
Ron Thompson
Aqusafe
öndunarvöðlur
ásamt Scierra
Greyhound skóm
Verð aðeins 17.995
Ron Thompson Classic
Pro neoprenvöðlur
með filtsóla og
styrkingu á hnjám.
Góð vöðlutaska fylgir.
Verð aðeins 9.995
Opið í dag
Sjá nánar á veidihornid.is