Morgunblaðið - 23.07.2005, Blaðsíða 9
HNLFÍ 50 ÁRA | 9
Kristjánsson að þegar hann vildi í
burtu héðan úr héraði var safnað
undirskriftum og voru þær svo al-
mennar að Jónas hætti við brott-
för. Það var ekki eingöngu lækn-
irinn sem menn horfðu til.
Maðurinn Jónas Kristjánsson naut
mikilla vinsælda og trausts. Og
þannig er nú það með ræðumann
hér, að því meir sem hann kynnist
Jónasi Kristjánssyni, þá víkur
læknirinn Jónas til hliðar en mað-
urinn sjálfur Jónas, lífsviðhorf
hans og athöfn fyllir frekar út
myndflötinn ef svo flatneskjulega
má taka til orða. Þessi einstaki
hæfileiki mannsins að hrífa menn
til athafna og ganga sjálfur
fremstur til verka í þeim hópi sem
vildi verða samferða.“
Það er sama hvar borið er niður,
augljóst er að virðing Jónasar hef-
ur vaxið með árunum. Sú stefna
sem hann barðist fyrir og þær að-
ferðir sem hann kynnti hafi að
mörgu leyti orðið ofan á. Jónas
Kristjánsson læknir var einn af
merkustu og þjóðkunnustu mönn-
um þessa lands. Lokaorðin hefur
Pétur Gunnarsson: „Kenning hans
og náttúrulækningastefna er fyrst
og fremst fólgin í því að brýna fyr-
ir fólki að lifa sem mest á náttúru-
legri lifandi jurtafæðu og á þann
hátt koma í veg fyrir ýmsa þá svo-
kölluðu menningarsjúkdóma, sem
svo mjög þjá mannkynið nú til
dags og orsakast að meira eða
minna leyti af röngum lifnaðar-
háttum.“ (Minningargrein, 1960).