Morgunblaðið - 24.07.2005, Page 2
MIKIL hreyfing hefur að undan-
förnu verið á litlu svæði á háhita-
svæðinu í Hveradölum í Kerlingar-
fjöllum. Stór melur í Neðri
Hveradölum skríður fram og molnar
niður og segir Eðvarð Hallgrímsson,
einn aðstandenda Fannborgar, fé-
lagsins sem rekur ferðaþjónustu í
Kerlingarfjöllum, að melurinn hafi
skriðið fram á síðustu vikum. Segir
hann að göngumenn á ferð um svæð-
ið verði að sýna þar fulla aðgát.
Hveradalir eru allumfangsmikið
háhitasvæði þar sem gufa streymir
út um fjölmörg augu og göt og hitar
vatn sem seytlar um og bræðir snjó.
Eðvarð segir svæðið í raun í sífelldri
þróun, virknin sé síbreytileg og ný
augu geti opnast hér og þar og göm-
ul lokast. Forráðamenn Fannborgar
hafa lagt nokkrar gönguleiðir og
merkt með stikum og segir Eðvarð
að fara verði um allt svæðið með sér-
stakri gát.
Melurinn sem skriðið hefur af stað
er undir svonefndri Löngufönn og
er greinileg hreyfing langt inn undir
fönnina og má sjá hvernig snjórinn
brotnar og sígur niður brekkuna.
Eðvarð segir ekki ljóst hvað sé að
gerast, hugsanlega sé gufa að brjót-
ast þarna fram á nýjum stað sem
hreyfi við melnum og bræði snjóinn.
Göngustígur liggur rétt við melinn
og bendir Eðvarð ferðamönnum á að
fara þar um með sérstakri gát og
ræður hann mönnum frá að fara út á
melinn sjálfan því aldrei sé að vita
hvenær hann hreyfist. Þótt fram-
skriðið hafi verið í hægum skrefum
til þessa geti hann allt eins hlaupið
af stað í einkum rykk.
Á hverju vori þegar mestan snjó
hefur leyst fara Fannborgarmenn
um svæðið og koma á ný fyrir stik-
um á gönguleiðum svo og göngu-
brúm á tveimur stöðum. Svæðið er
allt mjög litríkt og fjölbreytt ásýnd-
ar.
Morgunblaðið/jt
Eðvarð Hallgrímsson segir að háhitasvæðið í Hveradölum taki sífelldum
breytingum. Á minni myndinni sjást sprungurnar í melnum við Löngufönn.
Órói á háhitasvæðinu í Kerlingarfjöllum
Eftir Jóhannes Tómasson
joto@mbl.is
2 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Salou
Súpersól 12. ágúst
frá kr. 49.995
Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • sími 591 9000
Akureyri sími 461 1099 • www.terranova.is
Salou er fallegur bær á Costa Dorada ströndinni, sunnan Barcelona. Þar er Port
Aventura, glæsilegasti skemmtigarður Spánar. Salou skartar stórkostlegum ströndum,
fjölbreyttri afþreyingu og litríku næturlífi. Terra Nova býður þér einstakt tækifæri á
ótrúlegum kjörum. Þú bókar sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Kr. 59.990 í 12 daga
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna.
Súpersól tilboð, 12. ágúst, 12 dagar.
- SPENNANDI VALKOSTUR
Kr. 49.995 í 12 daga
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna
og 2 börn. Súpersól tilboð,
12. ágúst, 12 dagar.
83 LÁTNIR EFTIR ÁRÁS
Að minnsta kosti 83 biðu bana
og yfir 100 manns slösuðust í
hryðjuverkum Sharm el-Sheikh í
Egyptalandi í fyrrinótt. Samtök
sem kenna sig við
al-Qaeda-hryðjuverkanetið lýstu í
gær ábyrgð sinni á hryðjuverk-
unum. Þeir sem urðu fyrir hryðu-
verkunum vorum einkum heima-
menn en einnig fjöldi evrópskra
ferðamanna.
Ís lendinga sakaði ekki
Tvær íslenskar fjölskyldur, alls
sjö manns, eru í Sharm el-Sheikh
en sakaði ekki í sprengingunum.
Að sögn Jóns Diðriks Jónssonar,
sem dvelur í borginni, var spreng-
ingin gífurlega sterk og nötraði
allt húsið sem hann var í, en fjöl-
skyldan sat úti á svölum þegar at-
vikið átti sér stað.
Útrás undirbúin
Í bígerð er að setja upp Vestur-
farasetur í norska bænum Stryn
að fyrirmynd íslenska setursins á
Hofsósi. Þessi nýstárlega útrás
byggist á hugviti og þekkingu á
sviði menningartengdrar ferða-
þjónustu, og er undirbúningur vel
á veg kominn. Stefnt er að opnun
Vesturfaraseturs vorið 2007.
Þjónustan f lutt út í hverfin
Við opnun fjögurra nýrra þjón-
ustumiðstöðva í Reykjavík til við-
bótar við eldri þjónustumiðstöðvar
í Grafarvogi og Vesturbæ var Fé-
lagsþjónustan í Reykjavík form-
lega lögð niður 1. júní sl.
Eftir breytinguna geta Reykvík-
ingar sótt upplýsingar og skilað
umsóknum um alla þjónustu borg-
arinnar í þjónustumiðstöðvunum.
Annar maður handtekinn
Breska lögreglan greindi frá því
í gær að annar maður hefði verið
handtekinn í suðurhluta London,
nálægt Stockwell-neðanjarðarlest-
arstöðinni þar sem grunaður
hryðjuverkamaður var skotinn til
bana í fyrradag. Var handtakan
sögð tengjast rannsókn á til-
raunum fjögurra manna til að
fremja hryðjuverk í borginni á
fimmtudag. Einn maður var í
haldi lögreglunnar fyrir.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Í dag
Fréttaskýring 8 Myndasögur 40
Hugsað upphátt 23 Dagbók 40/43
Sjónspegill 25 Víkverji 40
Forystugrein 26 Staður og stund 42
Reykjavíkurbréf 26 Leikhús 44
Umræðan 28/31 Bíó 46/49
Bréf 32 Sjónvarp 50
Hugvekja 32 Staksteinar 51
Minningar 33/36 Veður 51
* * *
KRISTÍN Ármannsdóttir, bóndi á Ytra-Hólmi,
hefur lagt fram tvær kærur í framhaldi af af-
greiðslu Innri-Akranesshrepps á hugmynd hennar
og manns hennar að skipuleggja land undir íbúðar-
húsnæði. Önnur kæran er eignarréttarlegs eðlis en
hin snýr að hæfismati félagsmálaráðuneytisins.
Landið sem um ræðir liggur við sjó og er um þrjá
kílómetra utan við Akranes í átt að Hvalfjarðar-
göngunum. Hugmynd Kristínar og Brynjólfs Otte-
sen, eiginmanns hennar, er að búa til átján lóðir
fyrir einbýlishús en að sögn Kristínar hafa borist
nokkuð margar fyrirspurnir frá fólki sem hefur
áhuga á að byggja á þessum stað.
Árið 2003 fóru þau hjónin á fund oddvita og að
sögn Kristínar tók hann mjög vel í hugmyndina.
„Við fórum því í gang og létum skipuleggja svæðið
og gera uppdrátt af því hvernig lóðirnar ættu að
vera til að leggja fyrir sveitarstjórn. Okkur var
sagt að þetta yrði tekið inn á næsta aðalskipulag,“
segir Kristín.
Hins vegar fór svo að sveitarstjórn hafnaði hug-
mynd Kristínar og Brynjólfs með þeim rökum að
bygging einbýlishúsa á þessu svæði samræmdist
ekki hugmyndum sveitarstjórnarinnar um upp-
byggingu. Kristín segist ekki hafa fengið önnur
haldbær svör og telur því að hugmyndinni hafi ver-
ið hafnað án nægjanlegs rökstuðnings.
Má sveitarfélagið ákveða í
hvað fólk notar lóðir sínar?
Brynjólfur er sjálfur í sveitarstjórn og félags-
málaráðuneytið úrskurðaði hann vanhæfan til að
fjalla um málið. „Við efuðumst auðvitað aldrei um
að hann ætti ekki að fjalla um eigið mál en það er
hins vegar furðulegt að honum var meinað að fjalla
um aðalskipulag yfirhöfuð. Það getur verið flókið
að finna einhvern í hundrað manna samfélagi sem
er hæfur til að fjalla um það svo við drógum tillögu
okkar til baka um tíma enda var búið að hafna
henni.“
Kristín leggur annars vegar fram kæru til úr-
skurðarnefndar félagsmálaráðuneytisins þar sem
hún telur að jafnræðisregla og meðalhófsregla
stjórnsýslulaga hafi verið brotnar auk þess sem
hún gerir athugasemd við hæfi eins sveitarstjórn-
armanna til að fjalla um málið. Hins vegar leggur
hún fram kæru til úrskurðarnefndar skipulags- og
byggingarmála vegna höfnunar sveitarfélagsins.
Sú kæra er í raun eignarréttarlegs eðlis og veltir
því upp hvort sveitarfélagið eigi að hafa vald yfir
því hvernig fólk nýtir eigin lóðir. „Mér finnst
harkalegt að það sé hægt að taka svona ákvarðanir
og sé ekki að það sé nein lagaleg stoð fyrir því,“
segir Kristín.
Mega ekki skipuleggja
land sitt undir einbýlishús
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
hallag@mbl.is
NÁKVÆM hæð Hvannadals-
hnúks mun liggja fyrir í byrjun
ágúst en á þriðjudag verður flog-
ið með mælitæki á hnúkinn og
gögnum safnað í tvo sólarhringa.
Það eru Landmælingar Íslands í
samvinnu við Landhelgisgæsluna
og Jarðvísindastofnun sem
standa að mælingunni en í sömu
ferð verður komið fyrir mæli-
tækjum á tveimur stöðum í ná-
grenni hnúksins til að fylgjast
með hreyfingum jarðskorpunnar
undir Öræfajökli.
Hvannadalshnúkur er hæsti
tindur landsins og er í kennslu-
bókum og alfræðiritum almennt
sagður 2.119 metra hár. Sú tala
miðar við mælingu sem fór fram
fyrir hundrað árum með frekar
ónákvæmum mælingum en ýms-
ar vísbendingar hafa komið fram
um að hnúkurinn sé í raun lægri.
Þó ber að hafa í huga að hæð
hnúksins getur sveiflast um
nokkra metra á hverju ári þar
sem um jökul er að ræða og úr-
koma eða sumarbráðnun geta
haft þó nokkur áhrif.
Hvannadalshnúkur
mældur á þriðjudag