Morgunblaðið - 24.07.2005, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.07.2005, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ H inn 13. ágúst hefst keppni í ensku úrvals- deildinni í knattspyrnu á nýjan leik. Íslenskir áhugamenn um þessa vinsælustu deildakeppni í heimi nutu þess á síð- asta vetri að fylgjast með fjölda leikja í viku hverri í opinni dag- skrá á Skjá einum, sem yfirbauð Sýn og náði til sín útsendingarréttinum. Á nýju stöðinni, Enska boltanum, verða meira en helmingi fleiri leikir í boði en síðasta vetur. En nú er ekki um opna dagskrá að ræða, áhugamenn um ensku knattspyrnuna þurfa að setja sig inn í nýja tækni og greiða fyrir herlegheitin. Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Skjás eins, sagði að breytingarnar væru miklar. „Nú er komið að því að sjónvarp á Íslandi verður ekki bara stafrænt, heldur líka gagn- virkt. Það þýðir að nú færðu ekki bara gögn- in send heim til þín, heldur getur þú svarað til baka. Það er sem sagt kominn kapall í báðar áttir. Hin nýja „Myndveita“ Skjás eins er nánast eins og myndbandaleiga í heimahúsi. Þú getur valið mynd eða þátt og skoðað hann þegar þú vilt, stoppað, ýtt á pásu. Þú ert í raun með spólu á leigu í einn dag. Enski fótboltinn kemur ekki inn í þetta á myndveituformi til að byrja með en síðar meir verður hægt að nýta sér Myndveituna til að velja sér ákveðna þætti, eldri leiki og fleira í þeim dúr.“ Hvernig kemur þá enska knattspyrnan inn í þetta í næsta mánuði? „Nú er ekki lengur um að ræða takmark- aða bandbreidd eða rásafjölda og það er stóra byltingin. Áður þurfti að setja upp sér- staka senda fyrir hverja rás og fá úthlutað tíðni en það er úr sögunni. Nú er hægt að velja um hvaða leik þú vilt sjá þó margir leikir séu í gangi í einu. Á laugardögum geta áhugamenn um ensku knattspyrnuna farið inn á sjónvarpsstöðina Enski boltinn og val- ið á milli þeirra fimm leikja sem þá eru í gangi á sama tíma. Þá opnum við einfaldlega fimm rásir fyrir leikina. Þó um 20 leikir væru á sama tíma, væri þetta ekkert vanda- mál, þá myndum við bara búa til 20 rásir fyrir þá.“ Tvær dreifileiðir, breiðbandið og ADSL „Enska knattspyrnan verður í boði á tveimur dreifileiðum. Í ADSL-sjónvarpinu og á breiðbandinu. Nú þegar eru 40 þúsund heimili tengd breiðbandinu og um að gera fyrir fólk að nýta sér það ef það getur. Það er líka dreifileið með ótakmörkuðum fjölda rása. En breiðbandið er takmarkað að því leyti að það er ekki gagnvirkt, það verður ekki að myndveitu heima í stofu eins og möguleikinn er með ADSL-sjónvarpið, sem jafnframt býður uppá alls konar hluti sem ekki hafa áður þekkst í sjónvarpi. Það verð- ur svipað og að vera á Netinu, þú getur sent upplýsingar til baka og það verður til dæmis ekkert mál að tippa á leiki í gegnum sjón- varpið.“ Hvað þarf hinn almenni áhugamaður um ensku knattspyrnuna að gera áður en úr- valsdeildin hefst hinn 13. ágúst? „Það fer eftir því hvar hann er staddur í sjónvarpsvæðingunni í dag. Sumir eru tengdir og tilbúnir, bæði þeir sem eru á breiðbandinu og svo þeir sem þegar hafa fengið ADSL-sjónvarp. Það eru nokkur þús- und heimili því þegar það kom upp síðasta vetur að útsendingar Skjás 1 næðust ekki alls staðar, fórum við af stað með átak og tengdum mörg bæjarfélög, á Vestfjörðum og víðar um land, með ADSL. Nú þegar eru tugir þúsunda Íslendinga með ADSL-áskrift hjá Símanum og eru þar með sínar nettengingar. Það sem þeir þurfa að gera er að hafa samband við Símann og fá sinn búnað uppfærðan til að geta tekið við okkar efni. Nettengingin og sjónvarpið fara í gegnum svokallaðan beini („router“ á ensku) og það getur þurft að skipta um hann. Síminn leggur til búnaðinn sem er innifalinn í áskriftinni, ásamt myndlyklinum sem fylgir og þarf að tengjast við beininn og yfir í sjónvarpið. Þetta er því enginn auka- kostnaður fyrir þá sem eru með ADSL- áskrift, aðeins mánaðargjald sem er 1.990 krónur á mánuði í 10 mánuði. Það eru ekki mörg heimili þar sem fótboltaáhugamenn eru til húsa, sem eru ekki með nettengingu. Hún er á góðri leið með að verða jafn sjálf- sögð og kalda vatnið hér á landi.“ Það bætist sem sagt við myndlyklaflóru landsmanna með þessu. „Já, það er ekki hægt að komast hjá því, en Síminn útvegar myndlykilinn og það er engin fjárfesting, hann er innifalinn í verð- inu. Þjónustuver Símans sér alfarið um þessi mál, tæknimaður þaðan mætir á staðinn og setur tenginguna upp.“ Stóru liðin spila ekki á sama tíma Á mörgum heimilum eru nokkur sjónvörp. Getur hver og einn horft á sinn leik í sínu herbergi þegar margir eru sendir út í einu? „Nei, það er bara fluttur einn leikur í einu á þitt heimili. Það verður sama dagskráin í öllum sjónvarpstækjunum þannig að það verður að vera sátt um hvaða leik er fylgst með hverju sinni, þegar valinn er einn leikur af mörgum sem eru í boði á sama tíma. En í þessu efni er ekki mikið að óttast, það er Sky sem raðar niður leikjunum í úrvals- deildinni og þess er gætt að stærri liðin spili aldrei á sama tíma. Menn hafa væntanlega tekið eftir því að leikir Arsenal, Chelsea, Liverpool og Manchester United eru yf- irleitt ekki inni í leikjaþvögunni á miðjum laugardegi. Hættan á árekstrum er því ekki mikil, helst að stuðningsmenn minni félag- anna geti lent í vandræðum sín á milli ef t.d. Wigan og Fulham spila á sama tíma.“ Verða að bregðast snöggt við Nú eru aðeins þrjár vikur þangað til keppni hefst í ensku úrvalsdeildinni. Hvað þurfa áhugamenn um hana langan tíma til að koma sínum tengingum í lag? „Það er nefnilega málið sem ég held að þeir geri sér ekki allir grein fyrir. Álagið er byrjað, og ég óttast það mest að margar „boltabullur“ fái áfall þegar 13. ágúst rennur upp og þær átta sig á því að aðgangurinn er ekki tilbúinn. Enski fótboltinn fer nefnilega alfarinn af Skjá einum og yfir á Enska bolt- ann. Síminn er um þessar mundir að tengja um eitt þúsund heimili á viku við ADSL- sjónvarpið en nú þegar eru um þrjú þúsund á biðlista sem sífellt lengist. Þeir sem hafa ekkert gert í sínum málum verða að bregð- ast snöggt við ef þeir ætla að ná að vera með frá byrjun.“ Árekstrar við dagskrá á Skjá einum úr sögunni Magnús segir að því sé ekki að leyna að það hafi ekki allir verið sáttir við hve fyr- irferðarmiklir ensku leikirnir voru í dagskrá Skjás eins síðasta vetur. „Nei, þetta var ekki mjög hamingjusamt hjónaband og ég þurfti stundum að svara fyrir árekstra útsendinga frá Englandi við hina ýmsu þætti okkar. En með nýju stöð- inni er þetta alfarið úr sögunni. Hvað efnið sjálft, ensku knattspyrnuna, varðar þá var upplifun okkar af henni mjög góð. Það höfðu sumir áhyggjur af þessari þróun mála þegar við keyptum útsendingarréttinn, menn ótt- uðust að við næðum ekki að sinna ensku knattspyrnunni sem skyldi, en við slógum á þær áhyggjur strax í upphafi. Við sýndum gríðarlegt magn af leikjum síðasta vetur, um 140 talsins, en við ætlum að toppa það ræki- lega á komandi tímabili og bjóða upp á um eða yfir 300 leiki. Í raun gætum við sýnt hvern einasta leik í deildinni en við ráðum því ekki algjörlega og Knattspyrnusamband Íslands getur lokað á suma þeirra ef þeir rekast á knattspyrnuleiki hér heima.“ Enskir þulir í viðstöðulausu endurvarpi Í fyrra urðu talsverð læti þegar þið hófuð að senda út leiki með enskum þulum. Hvern- ig verða þau mál hjá ykkur í vetur? „Það mæltist gríðarlega vel fyrir hjá mörgum að hafa þetta blandað eins og það var hjá okkur til að byrja með, íslenskir þul- ir á sumum leikjum og enskir á öðrum. Síð- an vorum við kærðir af Sýn, eins og frægt er, og vorum alfarið með íslenska þuli eftir það. Á aðalrásinni, Enska boltanum, verða íslenskir þulir en þegar við setjum upp aukarásir fyrir hliðarleikina, þegar hægt er að velja um marga í einu, verður viðstöðu- laust endurvarp og þá getum við notað ensku þulina án þess að brjóta reglur.“ Enska knattspyrnan var í opinni dagskrá síðasta vetur í gjaldfrjálsu sjónvarpi. Óttist þið ekki slæm viðbrögð við því að flytja hana yfir á þetta form þar sem fólk þarf að greiða fyrir dagskrána og koma sér upp sérstökum búnaði? „Nei, ég held að það sé ekkert vandamál. Ég tel að við höfum endurvakið mjög áhug- ann á ensku knattspyrnunni hér á landi, enda var það tilgangurinn með því að vera með hana í opinni dagskrá. Yngri kynslóðin tók sérstaklega við sér. Enska knattspyrnan var búin að vera lengi í lokaðri dagskrá hjá Sýn og Stöð 2. Í raun hefur umfjöllunin allt- af batnað. Menn voru fúlir á sínum tíma þegar enska knattspyrnan fór af RÚV yfir á Stöð 2 og Sýn en þá kom í ljós að þar var henni betur sinnt en gert hafði verið á RÚV. Menn voru efins um að við gætum gert bet- ur en Sýn en það tókst og nú erum við að færa okkur enn lengra,“ sagði Magnús Ragnarsson. Nýja sjónvarpsstöðin Enski boltinn fer á fullt 13. ágúst „Við gætum sýnt hvern einasta leik í vetur“ Nýtt skeið er runnið upp í íslensk- um sjónvarpsmálum. Senn geta áhugamenn um ensku knattspyrn- una horft á nánast alla leiki og val- ið á milli leikja sem eru á sama tíma. Skjár einn hefur opnað sjón- varpsstöðina Enski boltinn og not- ar nýja tækni til að skila efninu inn á heimili landsmanna. Víðir Sigurðsson ræddi við Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóra Skjás eins, um útsendingar frá ensku knattspyrnunni og breytingar sem verða á þeim með tilkomu nýju stöðvarinnar. Morgunblaðið/ÞÖK Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Skjás eins: „Nettenging er á góðri leið með að verða jafn sjálf- sögð og kalda vatnið hér á landi.“ vs@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.