Morgunblaðið - 24.07.2005, Page 34
34 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Sverrir
Einarsson
Bryndís
Valbjarnardóttir
Oddur
Bragason
Guðmundur
Þór Gíslason
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.is
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför
elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
ÁGÚSTU STEINUNNAR
ÁGÚSTSDÓTTUR WARD,
Stóragerði 20,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Landspítala Landakoti, Hringbraut
og Fossvogi fyrir einstaka umhyggju og alúð.
Rannveig S. Guðjónsdóttir,
Viðar S. Guðjónsson, María Valborg Guðmundsdóttir,
Gústaf Guðmundsson,
Guðmundur Viðarsson,
Páll Tómas Viðarsson,
barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og tengdadóttir,
KOLBRÚN KRISTINSDÓTTIR,
Sunnuvegi 4,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
mánudaginn 25. júlí kl. 13.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Heima-
hlynningu Krabbameinsfélagsins.
Engilbert Ó. H. Snorrason,
Jóhann Engilbertsson, María Kristjánsdóttir,
Helgi Karl Engilbertsson, Þóra Helgadóttir,
Snorri Engilbertsson,
Perla Kolbrún Jóhannsdóttir,
Baldur Kári Helgason,
Snorri Jónsson, Olga Hafberg
og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns,
tengdasonar, föður okkar, tengdaföður, bróður,
fósturföður og afa,
ANTONS Ó. ANTONSSONAR
útskurðarmeistara,
(Tony trélist),
Munkaþverárstræti 11,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks lyfjadeildar FSA, blóðlækningadeildar
Landspítalans og Hvítasunnusafnaðarins.
Drottinn blessi ykkur öll.
Hanna Rúna Jóhannsdóttir,
Jóhann Pálsson trúboði,
Gerður Antonsdóttir Ringsted, Jón Gestur Helgason,
Ragnheiður Antonsdóttir, Sigurbjörn Óli Ágústsson,
Ólafur Þór Antonsson,
Anton Elvar Antonsson, Guðrún Björg Ragnarsdóttir,
Bjarki Þór Skjaldarson, Ólöf Minny Guðmundsdóttir,
Ármann Hólm Skjaldarson, Kolbrún Elfarsdóttir,
Helgi Garðar Skjaldarson, Þórhildur Þórhallsdóttir,
Stefán Rúnar Árnason,
Sólvegi Hulda Árnadóttir
og afabörn.
✝ Þuríður JónasíaSigurjónsdóttir,
fyrrum húsfreyja
og bóndi á Háreks-
stöðum í Norðurár-
dal, fæddist í
Skriðukoti í Hauka-
dal í Dalasýslu 17.
september 1913.
Hún lést á hjúkrun-
ardeild Hrafnistu í
Hafnarfirði að
morgni 8. júlí síð-
astliðins. Foreldrar
hennar voru hjónin
Sigurjón Jónasson,
f. 1.7. 1884, d. 24.3. 1962 og Jó-
hanna Kristín Andrésdóttir, f.
30.7. 1889, d. 4.8.1973, bændur í
Skriðukoti í Haukadal 1913–
1920, síðan að Stóra Vatnshorni
í Haukadal frá 1920 –1954. Jó-
hanna var ljósmóðir í Dalasýslu
frá 1912 –1946. Systkini Þuríðar
voru Guðmundur Kristinn Breið-
fjörð, f. 10.2. 1909, d. 3.12. 1930,
Jóhanna Bjarnveig, f. 15.5. 1918
og Gestur Zophanías, f. 18.11.
1923, d. 14.6. 1983.
Þuríður giftist árið 1938
manni sínum Sigurði Hallgríms-
syni, f. 11.6. 1909, og bjuggu þau
að Háreksstöðum í
Norðurárdal 1938 –
81, en þá fluttust
þau að Miðvangi 14
í Hafnarfirði. Þau
eignuðust tvö börn:
1) Ninna Breiðfjörð
íþróttakennari, f.
29. júní 1938, mað-
ur hennar er Stein-
ar Ólafsson, bú-
fræðingur frá
Valdastöðum í
Kjós. Dætur þeirra
eru Ágústa Kristín,
f. 4.10. 1959, og
Þuríður Elin, f. 27.6. 1961. 2)
Elsa hjúkrunarfræðingur, f. 17.
nóvember 1939, maður hennar
er Paul B. Hansen tæknifræð-
ingur. Börn þeirra eru Jóhanna
Björg, f. 12.11. 1966, og Sigurð-
ur Böðvar, f. 8.10. 1969.
Þuríður fór snemma að vinna
við bústörf hjá foreldrum sínum
. Hún stundaði nám í húsmæðra-
skóla að Staðarfelli í Dölum. Með
kvenfélögum í Mýra- og Borg-
arfjarðarsýslum sinnti hún ýms-
um trúnaðarstörfum.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Kæra amma, nú verða bréfin eða
heimsóknirnar til þín ekki fleiri að
sinni. Þó að aldurinn og veikindi hafi
sagt til sín síðustu árin er myndin
sem geymist af þér, af sterkri og
myndarlegri konu, konu sem lét sér
ekkert fyrir brjósti brenna.
Gestrisni var í hávegum höfð hjá
þér og þegar litið er yfir farinn veg
er minnisstætt hversu gott var æv-
inlega að koma til þín í sveitina. Þar
fengu allir sem knúðu dyra gott at-
læti og góðar veitingar. Öll börnin
sem dvöldust hjá þér á sumrin
gengu í gegnum góðan skóla og
fengu skerf af þeirri arfleifð sem þín
kynslóð var svo rík af. Þú kenndir
okkur dugnað og heiðarleika og
hrósaðir alltaf fyrir vel unnin verk.
Dýrmætast var hins vegar það að þú
gafst þér ávallt tíma til þess að
hlusta á okkur börnin, spjallaðir við
okkur og sagðir okkur sögur frá
liðnum tímum. Það voru forréttindi
sem við lærum æ betur að meta í
hröðu samfélagi nútímans, þar sem
vart gefst tími til þess að staldra við.
Við erum sannarlega rík að hafa átt
þig að, amma.
Jóhanna Hansen.
Það er Guðsgjöf að geta safnað
fallegum minningum.
Fallegar minningar bernskunnar
eru dýrmætar og fylgja okkur í
gegnum lífið.
Við ,,Bæjargilsfjölskyldan“ erum
svo lánsöm að eiga góðar minningar
um hana Þuríði ömmu og lang-
ömmu. Minningar sem við getum
kallað fram í hugann hvenær sem
við viljum. Sérstaklega þegar sökn-
uðurinn og tárin brjótast fram.
Það var okkur auðvelt að finna í
sameiningu orð sem lýsa ömmu og
langömmu: glæsileiki, röggsemi,
glettni, fliss, lífsgleði, félagslyndi,
silkimjúkar hendur, blíða, alúð, um-
hyggja, hlýja, virðing, stolt, hjálp-
semi, gjafmildi, heiðarleiki, tryggð,
þrautseigja, vandvirkni, snyrti-
mennska, vinnusemi, atorka,
ákveðni, kraftur, verksvit, bókvit,
kunnátta í því að lesa í náttúruna og
fólkið í kringum sig, óþrjótandi sög-
ur úr Dölunum, Breiðafjarðareyjun-
um og Norðurárdalnum, skapandi
hendur.
Blessuð sé minning þín, elsku
amma og langamma.
Ágústa Kristín, Þórarinn,
Jón Steinar, Ninna og Jóna.
Mig langar til að minnast Þuríðar
mágkonu minnar með nokkrum orð-
um. Þuríður var fríðleiks- og mynd-
arstúlka. Hún vann að búi foreldra
sinna á Stóra-Vatnshorni sem er
kirkjustaður. Þar var nóg að gera,
ekki síst þegar Jóhanna móðir henn-
ar var að sinna ljósmóðurstörfum í
sveitinni. Um tvítugt fór Þuríður í
húsmæðraskólann á Staðarfelli. Eft-
ir það fór hún að vinna í Reykjavík á
veturna og þar kynntist hún eigin-
manni sínum Sigurði Hallgrímssyni
frá Háreksstöðum í Norðurárdal í
Borgarfirði. Þau bjuggu fyrst í
Reykjavík en fluttu síðan að Há-
reksstöðum og hófu búskap þar með
foreldrum Sigurðar. Þuríður og Sig-
urður eignuðust tvær dætur, Ninnu
Breiðfjörð íþróttakennara og Elsu
Norðdal hjúkrunarfræðing. Þuríður
var mjög dugleg kona, hún var mikil
handavinnukona og einnig hafði hún
oft börn í sveit á heimilinu. Hjá þeim
Sigurði nutu börnin frjálsræðis og
lærðu einnig eitthvað að vinna.
Ég kynntist Þuríði fyrst árið 1956
en þá vorum við Gestur bróðir henn-
ar trúlofuð og heimsóttum þau að
Háreksstöðum. Ég var hálffeimin
við þau hjónin fyrst, en þau tóku
mér svo vel og sýndu mér hlýju og
vináttu alla tíð eftir það. Það var
alltaf gaman að koma að Háreks-
stöðum til Þuríðar og Sigurðar, þau
hjónin voru bæði glöð og skemmti-
leg og eins voru dæturnar, Ninna og
Elsa. Um 1980 fluttu þau hjónin í
Miðvang 14 í Hafnarfirði. Þar
bjuggu þau vel um sig í fallegri íbúð.
Þuríður var mikil hagleikskona, hún
prjónaði mikið og flosaði margar
myndir, m.a. stóra mynd af æsku-
heimili sínu á Stóra-Vatnshorni í
Haukadal. Allra síðustu árin bjuggu
þau hjónin á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Sigurður lést árið 2004. Þuríður var
á 92. aldursári þegar hún lést 8.
þessa mánaðar.
Ég kveð elskulega mágkonu mína
með þakklæti fyrir liðin ár og sendi
fjölskyldu hennar innilegar samúð-
arkveðjur.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(Vald. Briem.)
Jóhanna Anna Einarsdóttir.
Mig langar að kveðja Þuríði
frænku mína með þessu ljóði.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Það var alltaf gaman að hitta þig,
þú varst glöð og skemmtileg og þið
Sigurður tókuð svo vel á móti mér
og strákunum mínum þegar við
komum í heimsókn til ykkar.
Hvíl í friði frænka mín, bestu
þakkir fyrir allt gott.
Erna Jóna Gestsdóttir.
ÞURÍÐUR
SIGURJÓNSDÓTTIR
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Skilafrestur Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram
eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Lengd Minningargreinar séu ekki
lengri en 2.000 slög (stafir með
bilum - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
votta þeim sem kvaddur er virð-
ingu sína án þess að það sé gert
með langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Formáli Minningargreinum fylgir
formáli, sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær
sá, sem fjallað er um, fæddist,
hvar og hvenær hann lést, um for-
eldra hans, systkini, maka og börn
og loks hvaðan útförin fer fram og
klukkan hvað athöfnin hefst. Ætl-
ast er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er feit-
letraður, en ekki í minningargrein-
unum.
Undirskrift Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Myndir Ef mynd hefur birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja mynd
er ráðlegt að senda hana á
myndamóttöku: pix@mbl.is og
láta umsjónarmenn minningar-
greina vita.
Minningar-
greinar