Morgunblaðið - 24.07.2005, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 2005 37
AUÐLESIÐ EFNI
Spennandi
sérferðir
í haust
Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • sími 591 9000
Akureyri sími 461 1099 • www.terranova.is
- SPENNANDI VALKOSTUR
Tyrkland, fyrr og nú
- örfá sæti laus
Fornar borgir, fjölskrúðugar og spennandi.
Istanbúl, Antíokkía og Tarsus
fæðingarstaður Páls Postula ásamt dvöl í
Antalya á tyrknesku rivierunni.
23. september - 6. október, 13 dagar.
Verð kr. 156.960 á mann í tvíbýli
með hálfu fæði. Aukagjald f. einbýli 11.520.
Fararstjórar: Jóna Hansen og
sr. Frank M. Halldórsson.
Tékkland - Þýskaland
- Austurríki
- nokkur sæti laus
Einstök haustferð þar sem við kynnumst
mörgum af fallegustu svæðum Mið-Evrópu
á uppskerutíma. 3.-13. október, 10 dagar.
Verð kr. 89.910 á mann í tvíbýli með
hálfu fæði. Aukagjald f. einbýli 19.530.
Fararstjóri: Harpa Hallgrímsdóttir.
Norður-Spánn
- 6 sæti laus
Spennandi ferð um Norður-Spán þar sem
við kynnumst einni fjölförnustu pílagrímsleið
Evrópu til Santiago de Compóstela.
2.-14. september, 12 dagar.
Verð kr. 129.910 á mann í tvíbýli
með hálfu fæði. Aukagjald f. einbýli 25.170.
Fararstjóri: Jón Friðrik Arason.
Síðustu sætin
SIR Edward Heath, fyrr-
verandi forsætis-ráðherra
Bretlands, lést í gær, 89 ára
að aldri. Samningar náðust í
land-helgis-deilu Breta við Ís-
lendinga
vegna út-
færslunnar í
50 sjómílur í
ráð-herra-tíð
Heaths
haustið
1973.
Heath sem var sonur tré-
smiðs og vinnu-konu var um-
deildur leið-togi Íhalds-
flokksins. Árið 1975 velti
Margaret Thatcher honum úr
sessi. Mun Heath aldrei hafa
sætt sig við að tapa leiðtoga-
sætinu.
Heath kom til Íslands árið
1967.
Heath látinn
GEORGE W. Bush, for-seti
Bandaríkjanna, til-nefndi á
þriðjudags-kvöld John Roberts
til að taka við sæti Söndru
Day O’Connor sem dómari við
hæsta-rétt Banda-ríkjanna.
Roberts er fimmtugur og á
glæsi-legan feril að baki sem
lög-fræðingur og dómari.
Skipanin kemur nokkuð á
óvart þar sem Roberts er lítið
þekktur og fáir vita hverjar
skoðnir hans eru. Um-ræðan
um skipan Roberts í
dómara-sæti mun snúast um
rétt kvenna til fóstur-eyðinga.
Frjáls-lyndir í landinu óttast að
Roberts, sem íhalds-maður,
sé á móti fóstur-eyðingum og
þá muni hæsti-réttur
tak-marka rétt á þeim.
Fjöl-miðlar í Banda-ríkjunum
halda þó fæstir að hann sé of
íhalds-samur.
Bush valdi
Roberts
Á FIMMTUDAGINN tók söng-
konan Emilíana Torrini við
gull-plötu í útgáfu-fyrirtæk-
inu 12 tónum. Til-efnið var
að plata hennar, Fisherm-
an’s Woman, eða Sjó-
manns-konan, hefur selst í
um 6.700 ein-tökum frá því
hún kom út í byrjun árs.
Emilíana býr í Englandi, en
er nú á Íslandi. Þennan
sama dag hóf hún tónleika-
ferð um landið.Emilíana
ætlaði að halda ferna tón-
leika víðs-vegar um landið,
en vegna mikillar að-sóknar
var ákveðið að halda auka-
tónleika í Reykjavík. Mið-
arnir á þá tónleika seldust
síðan upp á 2 klukku-
tímum. Enn er hægt að fá
miða á tónleikana í Bol-
ungavík, Borgarfirði eystra
og á Akureyri.
Gull-plata og
tónleika-ferð
Morgunblaðið/Jim Smart
Emilíana tekur við gull-plötunni ásamt kærasta sínum og
umboðs-manni Jamie Cruisey.
ÍSLANDS-MEISTARARNIR í FH töpuði 1:2 fyrir
knatt-spyrnu-liðinu Neftchi frá Aserbaídsjan, á
Kaplakrika-velli í seinni leik liðanna í fyrstu um-
ferð for-keppni Meistara-deildar Evrópu í knatt-
spyrnu. Þar með heldur Neftchi áfram í keppn-
inni, en FH er úr leik.
Sigur gestanna frá Aserbaídsjan var sann-
gjarn. Leik-menn FH segja þá einfald-lega hafa
verið betri, og hér hafi munurinn á atvinnu-
manna-liði og áhuga-manna-liði komið ber-lega
í ljós.
„Þrátt fyrir að við hefðum lagt okkur alla fram
í þetta verk-efni þá var það einfaldlega ekki
nóg,“ sagði Auðunn Helgason, leik-maður FH.
Íslands-meistarar úr leik
Morgunblaðið/Jim Smart
Guðmundur Sævarsson og sóknar-maður
Nefchi.
Pálmi á tónlistar-afmæli
Nú um helgina var haldin
meiri-háttar tónlistar-hátíð á
Vopna-firði, þar sem ferill
Pálma Gunnarssonar var í
brenni-depli. Pálmi á 40 ára
tónlistar-afmæli um þessar
mundir, en hann fór 13-14
ára gutti á Vopna-firði að
gutla á hljóð-færi.
Breytingar hjá 365 miðlum
Breytingar hafa orðið á 365
miðlum í kjöl-far þess að Páll
Magnússon sagði upp sem
frétta-stjóri Stöðvar 2.
Sigmundur Ernir Rúnarsson
tók við stöðu Páls, en hann
var áður frétta-ritstjóri Frétta-
blaðsins. Arndís Þorgeirs-
dóttir hefur nú verið ráðin
frétta-stjóri hjá Frétta-
blaðinu. Í vikunni tilkynntu
365 miðlar að ný sjónvarps-
stöð tæki til starfa í haust og
verður dag-skráin einkum
frétta-tengd. Róbert Marshall
verður framkvæmda-legur for-
stöðu-maður hennar, en Sig-
mundur Ernir Rúnarsson
verður frétta-ritstjóri stöðv-
arinnar.
Íþrótta-kappar semja
Brynjar Björn Gunnarsson
knattspyrnu-maður hefur
skrifað undir samning við
enska 1. deildar liðið Read-
ing. Hann fer þangað frá Wat-
ford.
JÓN Arnór Stefánsson,
landsliðs-maður í körfu-
knattleik, hefur gert samning
við ítalska liðið Pompea Na-
poli. Jón Arnór lék síðast með
rússneska liðinu Dynamo St.
Petersburg.
Stutt
MINKA-GRENI fannst um 20
metra frá heimili Hrafns
Gunnlaugssonar,
kvikmynda-gerðarmanns, í
Laugarnesi í Reykjavík á
dögunum. Grenið var undir
steini í fjörunni neðan við
íbúðar-húsið. Þar gaut
minka-læða í vor og varð
Hrafn minkanna var þegar
hvolparnir fóru að fara á stjá í
kringum íbúðar-húsið.
Meindýra-eyðir hefur náð
læðunni og 4 hvolpum, og
eru enn gildrur við húsið ef
dýrin skyldu vera fleiri. Það er
óvenju-legt að minkar veiðist í
þétt-býli -Reykjavíkur, og hvað
þá svo nálægt íbúðar-húsi.
Minkar í
Reykjavík
ÞRJÁR sprengingar urðu í
neðan-jarðar-lestum í London
á fimmtudaginn og sú fjórða í
strætis-vagni. Þær voru ekki
öflugar en yfir-maður
lög-reglunnar í London sagði
að þær „til-raunir til alvarlegra
sprenginga“. Sumar
sprengnanna sprungu ekki
einsog þær áttu að gera.
Aðeins einn maður særðist
smá-vegis. Bara 2 vikur voru
liðnar frá hryðju-verkunum í
London 7. júlí. Þau dóu 56
manns og yfir 700 særðust.
Ekki er vitað hvort
sprengingarnar tengjast
árásunum 7. júlí. Margt er þó
líkt með þeim, og jafnvel er
um svo-kallaðar hermi-krákur
að ræða sem hafa viljað
fremja eins hryðju-verk og
sjálfs-morðs-árása-rmennirnir
fyrir hálfum mánuði.
Fleiri
sprengjur
í London
NÚ stendur yfir
Lands-mót
skáta á
Úlfljóts-vatni.
Þema mótsins
er „Orka
jarðar“ eða
orkan sem er
allt í kringum
okkur, bæði
innra með
okkur og í ytra
um-hverfi.
Lands-mót skáta er haldið á 3 ára fresti. Það er ein
stærsta úti-samkoma ungs fólks á Íslandi og er vímu-laus
hátíð. Mótið er ætlað skátum 11-18 ára en 9-10 ára
ylfingar koma einnig, eldri skátar og fjöl-skyldur.
Um 4-5000 manns gista á svæðinu og eru erlendir gestir
um 800. Þeir eru frá Evrópu, Asíu og Norður-Ameríku. Mikil
stemning er á svæðinu og fjöl-breytt dag-skrá er í boði fyrir
móts-gesti, og þar af er vatns-slagurinn vin-sælastur.
Orku-miklir skátar
Skátar í stuði.