Morgunblaðið - 24.07.2005, Side 8
8 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍS
LE
N
SK
A
AU
GL
†S
IN
GA
ST
OF
AN
/S
IA
.I
S
L
YF
2
84
55
06
/2
00
5
www.lyfja.is
- Lifið heil
EINU SINNI Á DAG Í EINA VIKU DREPUR FÓTSVEPPINN.
Lamisil gel
FÆST ÁN LYFSEÐILS
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni -
Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði -
Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi -
Hvammstanga - Skagaströnd
Lamisil er borið á einu sinni á dag í eina viku. Hreinsið og þurrkið sýkt svæði vel áður en borið er á. Bera skal
Lamisil á í þunnu lagi á sýkta húð þannig að það þeki allt sýkta svæðið. Lamisil er milt og veldur mjög sjaldan
húðertingu. Lamisil inniheldur terbinafin sem er sveppadrepandi (fungisid) efni og vinnur á sveppasýkingum í húð
af völdum húðsveppa, gersveppa og litbrigðamyglu (“lifrarbrúnir blettir”). Lamisil á ekki að nota gegn sveppa-
sýkingum í hársverði, skeggi eða nöglum nema samkvæmt læknisráði. Það má ekki nota ef þekkt er ofnæmi fyrir
terbinafini eða öðrum innihaldsefnum í Lamisil. Geymist þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega
leiðbeiningarseðil sem fylgir hverri pakkningu.
Framundan er einmesta ferðahelgiársins, verslunar-
mannahelgin, en þá fara
tugþúsundir landsmanna
á stjá og streyma lands-
hornanna á milli, hvort
sem förinni er heitið á
útihátíð, í sumarbústað,
tjaldferð eða útilegu.
Lögreglan í Reykjavík
hefur mikinn viðbúnað um
helgina, enda mun megin-
straumur umferðar liggja
um Ártúnsbrekku og yfir á
Vesturlands- og Suður-
landsveg. Geir Jón Þóris-
son, yfirlögreglumaður hjá lög-
reglunni í Reykjavík, segir ljóst að
umferðin út úr borginni verði
mjög erfið á Vesturlandsvegi,
strax þegar komið er að gatnamót-
um Suðurlandsvegar og Vestur-
landsvegar. „Síðan eru fram-
kvæmdir fyrir austan Víkurveg á
leið inn í Mosfellsbæ. Fólk þarf að
gefa sér góðan tíma og átta sig á
því að það er ekki hægt að grípa
inn í umferðina þarna. Það er bara
um eina akrein að ræða þarna á
ákveðnum kafla og það verður
mjög erfitt,“ segir Geir Jón.
Aftur á móti telur Geir Jón að
Suðurlandsvegurinn verði greið-
fær og engar sérstakar tafir á um-
ferð um hann. „Lögreglan mun
fylgjast mjög vel með umferðinni
út úr borginni. Við leggjum
áherslu á að fólk sem er með eft-
irvagna sé rétt útbúið í umferðina,
því annars á það á hættu að lög-
reglan kippi þeim út úr röðinni og
snúi til baka.“
Geir Jón segir ennfremur afar
mikilvægt að fólk haldi ró sinni
þegar það kemur út úr þyngstu
umferðartöfunum, en oft reyni
fólk að vinna glataðan tíma með
því að drífa sig fram úr röðinni
undir Esjunni og alla leiðina hand-
an Borgarness. „Fólk sleppir sér
þegar það kemur út úr þrengsl-
unum, og við munum fylgjast með
því. Þess ber þó vel að geta að um-
ferð hefur verið verulega að hægj-
ast undanfarið vegna þess átaks
sem við erum með í gangi þar sem
tekið er á hraðakstri,“ segir Geir
Jón.
Þá hvetur lögreglan í Reykjavík
fólk til að reyna að dreifa heim-
komum sínum. „Þegar snúið er
heimleiðis viljum við hvetja fólk til
að reyna að dreifa sér svolítið og
koma ekki allt á sama tíma.
Seinnihlutinn á sunnudegi og
mánudagurinn eru oft mjög við-
kvæmir tímar. Það væri mjög gott
ef fólk gæti komið fyrripartinn á
mánudeginum eða aðeins seinna.“
Hjá Lögreglunni á Akureyri er
undirbúningur fyrir verslunar-
mannahelgina í fullum gangi, enda
mikilvægt að allt fari þar vel fram í
náinni sambúð ferðafólks við
heimamenn. Lögreglan á Akur-
eyri mun efla löggæslu verulega,
en búist er við miklum fjölda til
Akureyrar og á Eyjafjarðarsvæð-
ið í tengslum við hátíðina Eina
með öllu. „Öflugt vegaeftirlit mun
verða á þjóðvegum í umdæminu til
að stuðla að slysalausri helgi,“
segir Daníel Guðjónsson, yfirlög-
regluþjónn á Akureyri. Löggæsla
á Akureyri og nágrenni verður
stórefld og sérstök gæsla mun
verða á tjaldstæðum bæjarins.
„Þá mun verða lagt kapp á að sýni-
leg einkenni áfengisneyslu hafi
eins lítil neikvæð áhrif á bæjar-
braginn og mögulegt er með því að
taka áfengi af þeim sem eru undir
aldri og öðrum þeim sem veifa því
á almannafæri og láta dólgslega.“
Lögreglan á Selfossi hefur einn-
ig nokkurn viðbúnað, en megin-
þorri umferðar á þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum fer í gegnum
umdæmi hennar. Oddur Árnason
aðstoðaryfirlögregluþjónn á Sel-
fossi segir viðbúnaðinn mestan
vegna umferðar og fíkniefnaleitar.
„Ekki eru ráðgerðar sérstakar
útihátíðir í sýslunni, svo okkar við-
búnaður miðast aðallega að um-
ferð ferðamanna sem fara í gegn-
um sýsluna og einnig þeirra sem
dveljast hér í tjöldum og bústöð-
um um helgina,“ segir Oddur. „Við
munum bæta við mannskap og
eiga samstarf við lögregluliðin í
nágrenninu um það. Skilaboðin til
ökumanna eru sígild, að haga
akstrinum í samræmi við aðstæð-
ur og láta vera að aka ölvaðir.“
Oddur vill einnig beina þeim
ráðleggingum til ferðafólks að
skynsamlegt sé að leggja tíman-
lega af stað svo fólk þurfi ekki að
flýta sér. „Við munum verða með
viðbúnað varðandi fíkniefnaleit í
kringum umferð í Eyjar, sem og á
öðrum stöðum í sýslunni, en við
höfum átt samstarf við Ríkislög-
reglustjóra um fíkniefnahunda.“
Helgi Jensson, sýslufulltrúi á
Egilsstöðum, segir gert ráð fyrir
þó nokkurri umferð á Austfjörð-
um um verslunarmannahelgina,
enda eru þar tvær fjölskylduhátíð-
ir auk fjölda dansleikja og vínveit-
ingastaða sem verða opnir. „Við
munum auka umferðareftirlitið og
svo er margt fleira sem við þurfum
að hafa eftirlit með, t.d. dansleikir
og fleira. Við gerum það eins vel
og við getum með þeim mannskap
sem við höfum,“ segir Helgi. Hann
bætir því við að allir vegir séu í
ágætis standi, en biður þó menn að
fara varlega og ítrekar að utan-
vegaakstur er algerlega bannað-
ur. „Fólk freistast gjarnan til að
keyra utan vegar á heiðarlöndun-
um okkar en það er alls ekki leyfi-
legt.“
Fréttaskýring | Ferðahelgi allra
landsmanna á næsta leiti
Mikilvægt að
flýta sér hægt
Lögreglan um allt land verður með
mikinn viðbúnað í umferðareftirliti
Umferðareftirlit lögreglunnar.
Ökumenn með fellihýsi
virði hámarkshraðann
Fellihýsi hafa notið mikilla
vinsælda hjá landsmönnum und-
anfarin ár og sýnist sitt hverjum
um ágæti þeirra þegar umferðin
er þung á þjóðvegum. Til eru
dæmi um ökumenn sem segja
farir sínar ekki sléttar eftir að
hafa mætt ökuþórum með felli-
hýsi aftan í fólksbíl, takandi fram
úr langri röð bíla. Það er þó ljóst
að hámarkshraði bíla með felli-
hýsi er 80 km á klst. og ítrekar
lögreglan að bílstjórar virði það.
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is
HJÁLMAR Gunnarsson hefur ásamt
félaga sínum Sigurði Brynjólfssyni á
Sölva BA róið frá Bolungarvík að
undanförnu og hefur að sögn Hjálm-
ars aflinn verið heldur lítill í júlí.
Þegar Morgunblaðið sló á þráðinn á
föstudagskvöldið höfðu þeir félagar
fengið tvö tonn og sagði Hjálmar að
bræla hefði verið síðustu daga. Hann
sagðist hins vegar reikna með að
klára kvótann fyrir mánaðarlok.
Aðspurður hvort margir væru að
róa sagði hann að bátum hefði fækk-
að mikið eftir að dagarnir voru tekn-
ir af. „Það er varla að það sjáist að-
komubátur og færabátum hefur
fækkað svakalega. Áður fyrr var
mikið líf á þessum stöðum hérna fyr-
ir vestan. Nú er eina lífið í Smára-
lindinni,“ sagði Hjálmar að lokum og
hló.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Hjálmar Gunnarsson með afla dagsins um borð í Sölva BA í höfninni í Bíldudal.
„Nú er eina lífið í Smáralindinni“
SIGMAR B. Hauksson, formaður
Skotveiðifélags Íslands, segist afar
sáttur við ákvörðun umhverfisráð-
herra um að heimila rjúpnaveiðar í
haust enda hafi skotveiðimenn verið
andsnúnir banninu sem gilt hefur
undanfarin misseri. Jón Gunnar Ott-
ósson, forstjóri Náttúrufræðistofn-
unar Íslands, leggur þó áherslu á að
stór svæði Suðvestur- og Norðaust-
urlands verði friðuð algerlega.
Sigmar segir að veiðarnar þurfi al-
farið að vera frístundaveiðar og seg-
ist hann sammála ráðherra um að
veiðarnar þurfi að vera sjálfbærar.
„Með breytingum á lögum um
vernd, friðun og veiðar á villtum dýr-
um, sem samþykktar voru á þinginu,
hefur ráðherra tækifæri til að grípa
til aðgerða ef þurfa þykir, t.d. að
draga úr veiðum þegar rjúpnastofn-
inn er í lágmarki,“ segir Sigmar.
„Rjúpnaveiðibann er í sjálfu sér ekk-
ert nýtt. Það var reynt nokkrum
sinnum á öldinni sem leið og reynslan
af því sýndi að friðanir af og til eru
ekki góð veiðistjórnun. Langtíma-
veiðistjórnun er miklu hagstæðari og
við megum ekki gleyma því að með
veiðum fást heilmiklar upplýsingar
um stofninn. En það þarf að breyta
því veiðimynstri sem verið hefur, þ.e.
að 10% veiðimanna séu að veiða
helming allra fugla eins og því miður
hefur verið raunin. Rjúpan hefur al-
gera sérstöðu í íslensku dýrafánunni
því að hún sveiflast gríðarlega á 10
ára fresti. Þá má vera að það sé
hyggilegt að haga veiðunum nokkuð
eftir því.“
Jón Gunnar Ottósson minnir á að
rjúpnastofninn hafi stækkað veru-
lega á friðunartímanum. „Við teljum
að það skaði ekki stofninn að leyfa
veiðar núna, en það þarf að takmarka
veiðarnar miklu meira en gert hefur
verið,“ segir hann. „Það næsta sem
við gerum er að veita umhverfisráðu-
neytinu betri ráðgjöf um veiðiþolið og
koma með tillögur um hvernig sé best
að standa að veiðunum. Markmiðið er
að stofninn fái að halda áfram að
stækka og tryggja þarf að náttúruleg
sveifla nái sér líkt og hún var hér áður
fyrr. Við teljum mjög mikilvægt að
takmarka veiðarnar, fyrst og fremst
með sölubanni, og einnig teljum við
mjög mikilvægt að mjög stór svæði
verði friðuð, bæði á Suðvesturhorni
landsins og á Norðausturhlutanum.“
Búist er við að Náttúrufræðistofn-
un muni senda ráðuneytinu tillögur
sínar í ágústlok.
Rjúpnaveiðarnar þurfa
að vera sjálfbærar
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
FRAMKVÆMDANEFND um
einkavæðingu hefur auglýst forval
til útboðs um kaup á útlánasafni og
yfirtöku á skuldum Lánasjóðs land-
búnaðarins (LLB).
Salan er háð skilyrðum, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá
einkavæðingarnefnd. M.a. skal til-
boðsgjafinn vera fjármálafyrirtæki,
hafa trausta fjárhagsstöðu og al-
þjóðlegt lánshæfismat. Hann skal
yfirtaka skuldbindingar LLB, sem í
flestum tilvikum eru með rík-
isábyrgð og standa við lánsloforð
sem stjórn LLB hefur þegar veitt að
uppfylltum skilyrðum. Þá skal til-
boðsgjafi lýsa því yfir að hann muni
ekki hækka vexti né breyta kjörum
skuldabréfa til hins verra umfram
það sem LLB hefur samþykkt við
yfirtöku lána. Einnig skal hann
standa við ákvæði skuldabréfa um
uppgreiðsluheimild. Tilboðsgjafinn
á og að lýsa því yfir að hann muni
kappkosta að veita landbúnaðinum
fjármálaþjónustu á viðskiptalegum
grundvelli og leggja sig fram um að
starfsfólk LLB haldi störfum sínum
eða veita því sambærileg störf.
Lánasjóður
landbúnaðarins
til sölu