Morgunblaðið - 24.07.2005, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 24.07.2005, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ 27. júlí 1975: Sú aldraða sveit, sem nú situr á friðarstóli í dag, hefur gegnt mikilvægu hlutverki í framvindu þjóð- félagsmála. Það er hún, sem með störfum og striti breytti íslenzku þjóðfélagi úr frum- stæðu og fátæku samfélagi í það velferðarþjóðfélag, sem við búum að í dag. Það er hún, sem lagði grundvöllinn að nú- tíma velmegun landsmanna. Hún skilaði niðjum sínum betra landi en hún tók við. Þjóðin sem heild stendur því í stórri ógoldinni þakkarskuld við hina eldri kynslóð. Það er ljósasti votturinn um menningu og siðferðileg- an styrkleika hverrar þjóðar, hvern veg hún býr að hinum öldruðu. Sú endurskoðun á löggjöf almannatrygginga, sem núverandi ríkisstjórn hefur beitt sér fyrir og vænt- anlega leiðir til framlagn- ingar nýs lagafrumvarps á vetri komanda, verður að taka mið af þeim menning- arlegu og siðferðilegu kvöð- um nútíma þjóðfélags, sem skyldu þess við hina eldri kynslóð leggja því á herðar. . . . . . . . . . . 28. júlí 1985: Um þessar mundir eru tíu ár liðin síðan Helsinki-samþykktin svo- nefnda var undirrituð af leið- togum 35 ríkja í höfuðborg Finnlands. Af þessu tilefni munu utanríkisráðherrar þessara ríkja í Evrópu og Norður-Ameríku hittast á fundi í Helsinki nú í vikunni. [...] Á árinu 1976 gaf utanrík- isráðuneytið lokasamþykkt ráðstefnunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu, eins og Helsinki-samþykktin heitir fullu nafni, út í íslenskri þýð- ingu og er það þéttskrifuð 60 síðna bók. Þetta skjal hefur orðið haldreipi fjölmargra einstaklinga og hópa, sem vilja halda ríkisstjórnum kommúnistaríkjanna í Aust- ur-Evrópu við efni þess og ákvæði meðal annars um virðingu fyrir mannrétt- indum. Í stuttu máli sagt hafa kommúnistastjórnirnar sýnt þessum einstaklingum og hópum fulla fyrirlitningu. . . . . . . . . . . 29. júlí 1995: Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti á miðvikudagskvöld, með mikl- um meirihluta, tillögu um að Bandaríkin hættu þátttöku í vopnasölubanni Sameinuðu þjóðanna á Bosníu. [...] Lík- legt þykir að tillagan fái næg- an stuðning en ekki er heldur útilokað að málamiðlun takist milli þings og forseta um hertar aðgerðir í Bosníu. Bandamenn Bandaríkja- stjórnar hafa flestir lýst óánægju sinni með þessa ákvörðun öldungadeild- arinnar og bent á að verði vopnasölubannið fellt úr gildi leiði það líklega til að frið- argæsluliðar SÞ verði kall- aðir heim og allsherjarstyrj- öld brjótist út í fyrrverandi Júgóslavíu. Það eru ekki síst þau ríki er sent hafa frið- argæsluliða til Bosníu sem hafa verið andvíg afnámi vopnasölubanns. Bandaríkin eru ekki í þeim hópi. Þrátt fyrir kröfur bandaríska þingsins um stuðning við Bosníustjórn eru þingmenn andvígir því að bandarískir hermenn verði sendir til fyrr- verandi Júgóslavíu. Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Í fáum borgum, ef þá nokkurri, er nútímasagan jafnágeng við gestinn og í Berlín, höfuðborg Þýzkalands. Borgin er svo ótrúlega rík af minj- um og táknum úr sögu þeirra at- burða, sem hafa mótað heim okkar. Berlín segir m.a. sögu af uppgangi þjóðernishyggjunnar og stofnun þjóðríkjanna í Evrópu á nítjándu öld, tveimur blóðugum heimsstyrjöldum á þeirri tuttugustu, risi og falli tveggja kenningakerfa alræðis- hyggju og kúgunar, nazisma og sósíalisma – og síðast en ekki sízt af sigri frelsis, mannúðar og markaðskerfis. Í 28 ár, frá 1961 til 1989, skipti Berlínarmúr- inn borginni í tvennt; kommúnistastjórnin í Austur-Þýzkalandi neyddist til að múra þegna sína inni til að koma í veg fyrir að þeir flýðu yfir til vesturhlutans. Fyrir þá, sem komu til Berlínar á meðan múrinn stóð, fylgir því enn ákveðin óraunveruleikatilfinning að ganga hindrunarlaust t.d. í gegnum Brandenborg- arhliðið, þvert yfir Potsdamer Platz eða við- stöðulaust eftir Friedrichstrasse framhjá landamærastöðinni Checkpoint Charlie. Á svæðinu meðfram múrnum stóð öll borgarþró- un í stað í hartnær þrjá áratugi, einkum aust- anmegin, þar sem ekki var byggt meðfram múrnum heldur skorin í gegnum borgina breið ræma einkismannslands með gaddavírsgirðing- um og sjálfvirkum vélbyssum til að salla niður þá, sem sættu sig ekki við vistina í fyrirmynd- arríki sósíalismans. Á þessu svæði hafa þess vegna líka risið margar hinna stórkostlegu nýju bygginga, sem arkitektar og bygginga- verktakar hafa töfrað fram á undraskömmum tíma eftir að múrinn féll 1989. Víðast hvar sjást engin merki lengur um múrinn – á stöku stað eru þó bútar af honum varðveittir sem sögulegar minjar, svo að tilurð og saga þessa illa mannvirkis gleymist aldrei. Berangur verður borg- armiðja á ný Potsdamer Platz var einu sinni fjölfarn- asta umferðartorg Berlínar. Byggingar umhverfis torgið voru flestar jafnaðar við jörðu í seinna stríði og mörk hernáms- svæða Vesturveldanna og Sovétmanna lágu um það. Þegar Berlínarmúrinn var reistur, lá hann þess vegna þvert yfir torgið. Áratugum saman var Potsdamer Platz aðeins berangur; hálf- hrunin hús á stangli – og múrinn. Jafnvel sá, sem hefur lesið um hina gríðarlegu uppbygg- ingu við Potsdamer Platz undanfarinn áratug, getur ekki ímyndað sér hvílík breyting hefur orðið á þessum stað. Torgið, sem nú er á ný miðpunktur borgarlífsins í Berlín, hefur verið kallað sýningargluggi þess bezta í arkitektúr þúsaldamótanna. Skipulagsyfirvöld í Berlín settu ströng skil- yrði um að ekki mætti byggja of hátt og út- koman er hverfi, þar sem bæði er pláss fyrir höfuðstöðvar ýmissa helztu stórfyrirtækja Þýzkalands og hinn almenna, fótgangandi borgara, með kaffihúsum, görðum og gos- brunnum. Á gangstéttum við torgið er sýnt með hellu- lögn hvar múrinn stóð og við enda Ebert- strasse er einn steypufleki látinn standa; hann markar staðinn þar sem fyrsta skarðið var höggvið í múrinn í nóvember 1989, eftir að kommúnistastjórnin hafði loks gefizt upp fyrir fjöldamótmælum og landflótta og lýst yfir að þeir, sem vildu fara vestur, mættu það. Íbúar Austur-Berlínar ruku til með sleggjur og stein- bora og brutu sér leið í gegnum múrinn. Sagan á Ebertstrasse Ganga norður eftir Ebertstrasse þar sem múrinn stóð áð- ur, frá Potsdamer Platz að þinghúsinu Reichstag, er nánast eins og kennslustund í sögu Þýzkalands og Evrópu. Við þvergötuna Vossstrasse stóð á sínum tíma hin gríðarmikla kanzlarahöll Hitlers og að baki henni byrgið, þar sem foringinn endaði lífdaga sína. Reyndar hefur verið gengið svo frá að um hvorugt sjást nú nokkur merki. Fljótlega verður fyrir á hægri hönd hið gríð- armikla minnismerki um helför gyðinga, sem arkitektinn Peter Eisenman hannaði. Minn- ismerkið nær yfir svæði, sem samsvarar þrem- ur fótboltavöllum og samanstendur af 2.711 steinsteypublokkum, sem mynda eins konar völundarhús. Þeir, sem skoða minnismerkið, velta fyrir sér hvað eigi að lesa út úr stein- blokkunum; þeim er þannig fyrirkomið að það er eins og yfirborð minnismerkisins gangi í bylgjum; þær eru misháar og halla lítið eitt á mismunandi vegu. Einhver segir að engar tvær séu eins, frekar en þær sex milljónir ein- staklinga, sem Hitler sendi í gasklefana; hver um sig standi fyrir mannslíf, sem var einstakt. Annar gengur um á milli steinanna og telur að arkitektinn hafi viljað að gestinum fyndist hann einmana og týndur í fjandsamlegu um- hverfi. Sá þriðji sér út úr steinblokkunum haf af líkkistum eða grafhýsum, sem hinir myrtu gyðingar fengu aldrei; lík þeirra voru grafin í fjöldagröfum eða brennd. Hvaða merkingu, sem fólk leggur í minnismerkið, er eitt víst. Stærð þess og staðsetning í hjarta Berlínar þýðir að Þjóðverjar ætla ekki að gleyma þeim glæp, sem helförin var. Þeir horfast í augu við sögu sína, hversu sársaukafullt sem það kann að vera. Næst norðan við minnismerkið er verið að taka grunn fyrir nýbyggingu bandaríska sendi- ráðsins á þeim stað, sem það stóð fyrir seinni heimsstyrjöld. Steinsnar lengra norður eftir Ebertstrasse er Brandenborgarhliðið. Það var eitt sinn tákn um skiptingu Evrópu; glæst borgarhlið sem enginn mátti fara í gegnum, enda lá múrinn þétt upp að því. Nú er það orð- ið að ímynd endursameiningar þýzka ríkisins og raunar álfunnar allrar – og mynd þess prýðir evrumyntina, sem slegin er í Þýzka- landi. Handan við hliðið, á Pariser Platz, hafa arkitektar leikið lausum hala eins og víða á þessum slóðum og m.a. hafa sendiráð Bret- lands og Frakklands snúið aftur á sínar gömlu lóðir, en í nýjum húsum. Þegar göngunni er haldið áfram eftir Ebert- strasse er gengið meðfram Tiergarten á vinstri hönd; fara þarf yfir 17. júní-götu, sem hlaut nafn sitt á 6. áratugnum í minningu þeirra, sem féllu fyrir kúlum sovézkra skriðdreka í verkamannauppreisninni í Austur-Berlín sum- arið 1953. Við hornið á Scheidemannstrasse, beint á móti Reichstag, stendur minnismerki, sem lítið fer fyrir en hefur sterk áhrif á þann, sem skoðar það; röð af krossum til minningar um þá, sem voru skotnir er þeir reyndu að flýja yfir Berlínarmúrinn. Sá síðasti var myrt- ur í febrúar 1989, fáeinum mánuðum áður en múrinn féll. Reichstag og sameiningin Við enda Ebert- strasse er það auðvit- að hið gríðarmikla og sögufræga þinghús, Reichstag, sem vekur mesta athygli. Bygg- ingin var reist skömmu eftir sameiningu Þýzkalands á 19. öld og er helguð þýzku þjóð- inni með áletruninni „Dem deutschen Volke“, sem var bætt við 1916. Reichstag eyðilagðist í eldi 1933 – sem talið er að nazistar hafi kveikt, en þeir kenndu kommúnistum um – og var ekki endurbyggt fyrr en á sjöunda áratug sein- ustu aldar og þá án hvolfþaksins mikla, sem upphaflega prýddi það. Undir lok seinni heimsstyrjaldar var barizt hart um húsið – kúlnagötin sjást enn á út- veggjunum – og margir þekkja myndina af sovézka hermanninum, sem festir fána Sov- étríkjanna á einn af turnum hússins, eina frægustu táknmynd stríðslokanna og sigurs Sovétríkjanna á Þýzkalandi. Reichstag hefur þannig bæði staðið fyrir sigra Þjóðverja og niðurlægingu. Áratugum saman stóð þetta mikla hús harla þögult og beið endursameiningar Þýzkalands, sem marg- ir töldu að aldrei gæti orðið. Nú er það á ný stolt sameinaðs Þýzkalands, undir nýju hvolf- þaki sem arkitektinn Norman Foster hannaði og endurgert að innan með glæsilegum og nú- tímalegum hætti. Sá, sem heimsótti Reichstag í kalda stríðinu, tekur þó ekki aðeins eftir byggingunni sjálfri, heldur líka umhverfi hennar. Í 28 ár stóð Reichstag í skugga múrsins, sem lá eftir Ebertstrasse miðju. Höll þingforsetanna, sem var reist um aldamótin 1900 austan við götuna, lenti því handan við múrinn. Á sínum tíma var hægt að fara út á svalir Reichstag og horfa yf- ir múrinn á höllina, sem kúrði einmanaleg á einskismannslandinu austan við múrinn, með vesturgluggana byrgða. Nú hefur hún verið tengd þinghúsinu á ný og sameinuð nýbyggingum þess austan við Ebertstrasse – í gömlu Austur-Berlín – og er orðin aðsetur þýzka þingmannasambandsins. Steinsnar niður með ánni Spree hafa verið reistar tvær gífurlega miklar skrifstofubygg- ingar fyrir Reichstag, sem tengjast yfir ána, er eitt sinn aðskildi borgarhlutana á þessum stað, með mikilli brú. Þannig brúar sjálft aðsetur sambandsþingsins mörkin sem eitt sinn voru milli Vestur- og Austur-Þýzkalands og er öfl- ugt tákn um endursameiningu landsins. DAUÐINN Í EGYPTALANDI Enn eitt hryllilegt hryðjuverkhefur verið framið, að þessusinni í Egyptalandi, þar sem meira en áttatíu manns féllu á föstudagskvöld, er sprengjur sprungu við hótel og fjölfarna ferðamannastaði í Sharm el- Sheikh. Margir fleiri eru slasaðir og örkumla. Samtök, sem segjast tengd al- Qaeda-hryðjuverkasamtökunum, hafa lýst ábyrgð á morðunum á hendur sér. Hryðjuverkamenn, andsnúnir Vesturlöndum, hafa ár- um saman beint spjótum sínum að ferðaþjónustunni í Egyptalandi. Annars vegar vilja þeir valda dauða og skelfingu meðal vestrænna ferðamanna. Hins vegar vilja þeir valda efnahagslífinu í eigin landi sem mestum skaða og skapa glund- roða, sem á að auðvelda þeim öfga- stefnum, sem þeir aðhyllast, að ná fótfestu. Hryðjuverkamönnunum er auð- vitað nákvæmlega sama hvern þeir drepa; hvort það eru egypzkir her- og lögreglumenn, vestrænir ferða- menn eða þeirra eigin landar og trúbræður. Dauðinn er eina mark- miðið. Enn og aftur snerta hryðjuverkin okkur Íslendinga beint. Margir Ís- lendingar hafa heimsótt Egypta- land. Íslenzkar fjölskyldur voru í Sharm el-Sheikh er sprengjurnar sprungu, en enginn Íslendingur skaddaðist, eftir því sem bezt er vitað. Baráttan gegn hryðjuverkum er okkar barátta. Við eigum að leggja okkar af mörkum og styðja hvert það frumkvæði á alþjóðlegum vett- vangi, sem er til þess fallið að kveða hryðjuverkamennina í kútinn og hrinda sjúklegum áformum þeirra um dauða, upplausn og yf- irráð öfgakenndrar kreddufestu. KÍNA RÉTTIR ÚT SÁTTAHÖND Kínversk stjórnvöld stigu áfimmtudag mikilvægt skref í átt til þess að setja niður viðskipta- deilur sínar við Vesturlönd er þau tóku ákvörðun um að afnema teng- ingu gjaldmiðils Kína, júansins, við dollarann og hækka gengið lítið eitt. Bæði Bandaríkjastjórn og Evrópusambandið hafa lengi gagn- rýnt harðlega gengisstefnu Kín- verja; sakað þá um að halda geng- inu alltof lágu og styrkja þannig stöðu útflutningsatvinnuvega sinna. Kínverskar vörur séu þannig enn ódýrari en kostnaðarstigið í land- inu gefi tilefni til og veiti fram- leiðsluvörum vestrænna ríkja ósanngjarna samkeppni. Breyting á gengi júansins (sem líka er kallað renminbi) um tvö pró- sentustig dugar ekki til að leiðrétta það ójafnvægi í viðskiptum, sem hefur hlotizt af gengisstefnu Kín- verja. Sérfræðingar telja að gengi gjaldmiðilsins sé enn 15–30% of hátt skráð. Þýðing ákvörðunarinn- ar er fyrst og fremst pólitísk; segja má að Kína hafi nú viðurkennt þá ábyrgð, sem landið ber sem rísandi stórveldi í alþjóðaviðskiptum. Vesturlönd eiga hins vegar að taka viljann fyrir verkið. Nú hlýtur að sljákka í þeim, bæði austan hafs og vestan, sem vilja svara sam- keppni frá Kína með viðskiptahöml- um og tollmúrum. Kínversk stjórn- völd hafa sýnt að þau eru reiðubúin til samstarfs í þessum efnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.