Morgunblaðið - 24.07.2005, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 24.07.2005, Qupperneq 52
„ENN er byrjað ævintýr, við Úlfljótsvatn hver skáti syngur glaður,“ segir í mótssöng Landsmóts skáta 2005 en mótið náði hápunkti sínum í gær á heimsóknardegi. Fjöldi fólks lagði leið sína á Úlfljótsvatn í gær og fékk smjörþefinn af því sem tvö þúsund þátttakendur eru að fást við þessa dagana undir traustri leiðsögn foringja sinna. Margrét Tómasdóttir skátahöfðingi segir að dagskráin gangi ótrú- lega vel enda leikur veðrið við skátana. „Hér er mikil stemning meðal barna og fullorðinna og það eru komnir fleiri en nokkru sinni í fjöl- skyldubúðirnar,“ segir Margrét sem hefur tekið þátt í skátamótum frá árinu 1962. Að sögn Margrétar iðuðu tjaldbúðirnar af lífi í gær. Hóparnir voru með kynningu á bæjarfélagi sínu og einhvern leik eða annars konar glens á sínu svæði. Gestir gátu því gengið á milli og skemmt sér auk þess sem stanslaus dagskrá var á sviðinu. „Hér hittist fólk og end- urnýjar gömul kynni eða myndar ný,“ segir Margrét en hún nýtur hins sanna skátaanda sem er víst laus við allt vesen og vafstur. Mikil stemning á skátamótinu Ljósmynd/Guðvarður Ólafsson Landsmót skáta hefur gengið vel enda veðrið leikið við þátttakendur sem taka því fagnandi. MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK. BÆJARYFIRVÖLD á Akranesi hafa áhuga á að tengjast leiðakerfi Strætó bs. Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, segir að það yrði þó ekki fyrr en í fyrsta lagi um áramót sem strætisvagnaferðir milli Akraness og Reykjavíkur gætu orðið að veruleika. Um áramót eru fyrirhugaðar breytingar á sérleyfismálum þegar öll sérleyfi verða boðin út. Akranes- kaupstaður hefur áhuga á því að leysa til sín það fjármagn sem rík- isvaldið hefur sett í að niðurgreiða sérleyfi milli Akraness og Reykjavík- ur og nota það fé til þess að kosta samstarf við Strætó bs. í staðinn. „Við höfum fyrir okkar leyti lýst okkur reiðubúin til þess,“ segir Ásgeir Ei- ríksson, framkvæmdastjóri Strætó. „Hugmyndin gengur þá út á það að framlengja akstursleið númer 27, sem liggur í dag milli Mosfellsbæjar og Kjalarness, upp á Akranes.“ Gísli segir að málið hafi verið rætt við samgönguráðuneytið og að þar hafi verið tekið ágætlega í hugmynd- ina. „En miðað við þá samninga sem eru í gildi er alveg öruggt að það ger- ist ekkert fyrr en í fyrsta lagi um ára- mót,“ segir Gísli. „Við munum nota haustið til að fínvinna málið en vonir standa til að Akranestenging geti far- ið af stað eftir áramótin.“ Aðalávinningur lægri fjargjöld Gísli segir að aðalávinningur bæj- arbúa af tengingu við strætókerfið sé lægri fargjöld milli Akraness og höf- uðborgarsvæðisins. Í dag greiða þeir um 1.000 kr. fyrir ferðina en krafa Akraness yrði sú að íbúar þar nytu sömu kjara í strætó og notendur á höfuðborgarsvæðinu. Reiknar Akra- nesbær með að þurfa að leggja fram fjármuni til að svo megi verða. Akranes vill verða hluti af leiðakerfi Strætó stuðla að þverfaglegu samstarfi sérfræðinga og efla félagsauð í hverfum borgarinnar. Að auki er breytingin liður í undirbúningi borgarinnar að taka við fleiri verkefnum frá ríkinu. Um 180 sér- fræðingar Félagsþjónustunnar, Fræðslumið- stöðvar, Leikskóla Reykjavíkur og ÍTR skiptu um vinnustað við breytinguna 1. júní sl. Þjón- ustumiðstöðvarnar opna upplýsingaskála og verða breytingarnar kynntar í september. Svara í borgarnúmer allan sólarhringinn Regína segir þjónustumiðstöðvarnar einn lið í endurbótum á allri þjónustu og viðmóti borgar- innar gagnvart borgarbúum. „Annar liður í breytingunni er að hægt er ná sambandi við allar VIÐ opnun fjögurra nýrra þjónustumiðstöðva í Reykjavík til viðbótar við eldri þjónustumið- stöðvar í Grafarvogi og Vesturbæ var Fé- lagsþjónustan í Reykjavík formlega lögð niður 1. júní sl. Þjónustumiðstöðvarnar sinna ekki aðeins flestum þjónustuverkefnum Félagsþjónustunnar heldur sérfræðiþjónustu frá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur og Leikskólum Reykjavíkur og frí- stundaráðgjöf frá Íþrótta- og tómstundasviði. Eftir breytinguna geta Reykvíkingar sótt upp- lýsingar og skilað umsóknum um alla þjónustu borgarinnar í þjónustumiðstöðvunum. Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og rekstrarsviðs, segir þríþætt meginmarkmið breytinganna að bæta aðgengi að þjónustunni, stofnanir borgarinnar í gegnum eitt númer, 4 11 11 11. Nú er meira að segja búið að ganga frá því með samningi við Neyðarlínuna að svarað er í símanúmerið á nóttunni. Borgarbúar geta því hringt og tilkynnt skemmdir, umhverfisslys og beðið um neyðarþjónustu svo dæmi séu tekin í sama númeri, 4 11 11 11, allan sólarhringinn. Regína segir þriðja dæmið um endurbætur átak í upplýsingatækni. „Borgaryfirvöld hafa ákveðið að steypa flestum tölvudeildum borgar- innar saman í eina upplýsingatæknimiðstöð. Með því móti er m.a. stutt við þróun í átt til meiri áherslu á rafrænar umsóknir.“ Fjórar þjónustustofnanir Reykjavíkurborgar komnar í eina sæng Þjónustan flutt út í hverfin  Grasrót | 10 SÉRA Gunnar Sigurjónsson, prestur í Digraneskirkju, æfir stíft þessa dagana fyrir kraftakeppni sem fram fer í Ukna í Svíþjóð 6. ágúst. Sem kunnugt er er séra Gunnar enginn venjulegur prestur heldur sterkasti prestur í heimi. Meðal æfingatækja Gunnars eru þrír mjólkurbrúsar, fullir af möl, sem hann hleður á og af sérsmíðuðum mjólkurbrúsapalli sem stendur fyrir utan kirkjuna. Auk þess tekur hann sig til og dregur leikandi létt bíla sem eru úti á bílaplani kirkjunnar eins og hér sést. Gunnar fer út til Svíþjóðar í boði sænsku sendiherrahjónanna og þar verður hann heiðursgestur. Jafnframt verður hann eini Íslendingurinn meðal keppenda. Aðspurður segist hann ætla sér að vera framarlega ef ekki fremstur. „Ég hugsa að ég taki þetta nú svona nokkurn veginn. Þeir verða ekki margir fyrir framan mig ef nokkur,“ segir Gunnar. Æft fyrir kraftakeppni Morgunblaðið/Þorkell BUBBI Morthens hefur ákveðið að höfða meiðyrðamál á hendur útgáfu- félagi DV og Hér og nú vegna umfjöll- unar þeirra um einkalíf hans. Úti- stöður Bubba við blöðin hófust með því að DV birti fyrr í sumar forsíðumynd af honum inni í bíl sínum að reykja síg- arettu. Í viðtali við Pál Kristin Pálsson í Tímariti Morg- unblaðsins kemur fram að hann sætti sig hvorki við að vera myndaður úr launsátri þar sem hann taldi sig vera í friði né villandi fyrirsögnina „Bubbi fallinn“. Hann telur það einfalt að í allri vit- und þjóðarinnar, sem viti að hann sé óvirkur alkóhólisti, þýði slík fyrirsögn ekki að hann sé aftur byrjaður að reykja, eins og fréttin hafi gengið út á, heldur að hann væri dottinn í það. „Þetta kom mér mjög í opna skjöldu vegna þess að öll mín tilvera í dag, all- ur minn trúverðugleiki, byggist á því að ég sé edrú. Og ég trúi því að ég myndi ekki bara deyja ef ég myndi falla, held- ur eyðileggja allt það sem ég hef lagt inn í gegnum árin,“ segir Bubbi. Þörf fyrir skýr lög Hann telur nauðsynlegt að fá skýr lög m.a. um hvort hægt sé að koma á gluggann heima hjá honum og taka myndir, búa til falsaðar fréttir og birta þær í þeim eina tilgangi að selja eitt- hvert blað. „Ég geri mér grein fyrir að fram er komin ný tegund af blaðamennsku á Ís- landi, og tímarnir breytast og allt það, en ég samþykki ekki slíka blaða- mennsku,“ segir Bubbi. Honum finnst magnaður sá stuðn- ingur, sem hann hefur fengið frá al- menningi: „Þjóðin reis bara upp á aft- urfæturna og sagði látið Bubba í friði. […] Tölvan mín brann yfir, síminn minn brann yfir, hvert sem ég fór kom ókunnugt fólk til mín og vottaði mér stuðning sinn. Það var eins og allt í einu yrði sprenging og fólk sagði hing- að og ekki lengra.“ | Tímarit Bubbi höfðar meiðyrðamál Bubbi Morthens PERSÓNUVERND virðist komin út á grátt svæði þegar vinnslu í meðferð gagna er ruglað saman við efnistök og framsetn- ingu blaðamanna að mati dr. Herdísar Þor- geirsdóttur lagaprófessors sem skrifar grein í Morgunblaðið í dag um álit Persónu- verndar á umfjöllun fjölmiðla um einkalíf fólks. „Persónuvernd tekur fram að hún geti veitt álit sitt á því hvernig blaðamenn fari með persónuupplýsingar og hvort þeir upp- fylli kröfur meginreglunnar um gæði gagna og vinnslu, að þær séu unnar með sann- gjörnum, málefnalegum og lögmætum hætti og að öll meðferð þeirra sé í samræmi við vandaða vinnsluhætti persónuupplýs- inga, en setur þann fyrirvara að skoða verði þau skilyrði í ljósi þeirrar stjórnskipulegu verndar sem fjölmiðlar njóta,“ segir í grein Herdísar. „Ákvæðin sem vísað er í taka til „vinnslu- hátta“ – meðferðar upplýsinga sem blaða- maður hefur undir höndum en ekki hins textalega samhengis eða túlkunar sem kem- ur fram í staðhæfingum í frétt eða fyrir- sögn. Það er alþjóðlega viðurkennt lögmál að blaðamaður skuli beita heiðarlegum vinnubrögðum í öflun frétta, annarra gagna og við myndatökur,“ segir Herdís.| 20 Persónu- vernd á gráu svæði ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.